Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Síða 6
6 - Laugardagur 5. apríl 1997
|Dagur-'ðImróm
Almannavarnaæfing
Alþjóðalið mun kljást
við „stórslys“ á SV-hominu
„Vonum að aldrei komi til atburða sem þessarra," segir utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson. Mynd. eói
Hundruðum milljóna
varið til almannavarna-
æfingar á íslandi á veg-
um PfP, friðarferlis
NATO og fyrrum komm-
únistaríkja - Ævintýra-
legur tækja- og mann-
aflaflutningur til
landsins í júlí.
Auðvitað vonum við að
aldrei komi til atburða
sem þessara, en við vilj-
um vera viðbúnir og vita hvern-
ig best má bregðast við,“ sagði
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra í gær, þegar hann og
sérfræðingar hans í ráðuneyt-
inu kynntu stærstu almanna-
varnaæfingu sem fram hefur
farið í landinu, Samvörð ’97,
sem mun verða mjög áberandi
helgina fyrir næstu verslunar-
mannahelgi, dagana 25.-27.
júlí.
Hér er um að ræða alþjóð-
lega almannavarnaæfingu sem
mun án efa kosta hundruð
milljóna króna fyrir þátttöku-
löndin, sem eru um 20 talsins,
vestanhafs og austan. Al-
mannavarnaæfingin fer fram
undir merkjum Partnership for
Peace, PfP, en sú áætlun varð til
innan NATO og gerir ráð fyrir
samstarfi þjóða við björgunar-
aðgerðir og neyðarhjálp.
Inntak æfingarinnar, sem um
1.100 manns taka þátt í, þar af
600 útlendingar, eru náttúru-
hamfarir á SV-horni íslands,
jarðskjálfti austan Reykjavikur.
íslensk stjórnvöld hafa óskað
eftir hjálparliði erlendis frá,
enda hefur orðið mikið mann-
fall, íjöldi manns innikróaður í
húsarústum, eyðilegging gífur-
leg, rof samgangna og íjar-
skipta hefur orðið.
Æfingin er tilkomin vegna
óska utanríkisráðherra við
NATO fyrir tveim árum og er
hún liður í friðarsamstarfi Atl-
antshafsbandalagsins, fyrrum
lýðvelda Sovétríkjanna, fyrrum
kommúnistaríkja A-Evrópu og
annarra Evrópuþjóða, eins og
Sviss og Svíþjóðar, sem ekki
hafa verið aðilar að NATO.
Tækjabúnaður sem þjóðir í
PfP flytja með sér til íslands í
júlí næstkomandi er nánast æv-
intýralegur: Hér má nefna
flytjanlegt rússneskt sjúkrahús
sem verður búið skurðar- og
röntgentækjum. Ellefu þyrlur
koma frá ijórum löndum, flug-
tími hverrar þyrlu fyrir sig
skiptir hundruðum þúsunda
króna. Varðskip kemur frá Nor-
egi, auk sjúkrabíla og slökkvi-
bfla og flytjanlegs neyðarskýlis.
Þátttakendur eru um 500 frá
Evrópulöndum en 100 frá Am-
eríku. Mikið hvflir á íslenskum
þátttakendum. Yfirstjórnin
verður hjá Almannavörnum við
Seljaveg. Þrettán almanna-
varnanefndir verða með í að-
gerðum og björgunarsveitir af
öllu landinu. Lögregla, slökkvi-
lið og sjúkrahús koma að sjálf-
sögðu mikið við sögu, að ekki sé
talað um Landhelgisgæslu og
Flugmálastjórn. Þá munu Veð-
urstofan, veitustofnanir, Rauði
krossinn, Vegagerðin og emb-
ætti yfirdýralæknis taka þátt í
æfingunni svo einhverjir séu
nefndir.
Um 400 erlendir þátttakend-
ur munu dveljast í í Keflavík, í
íþróttahúsi þar, Fjölbrautaskól-
anum og í Holtaskóla. Neyðar-
eldhús verður þar sett upp af
íslensku veitingafyrirtæki og af-
greiðir 1.500 máltíðir á dag,
væntanlega við afar bágbornar
aðstæður. Opnunar- og lokaat-
höfn Samvarðar ’97 verður á
íþróttavellinum í Keflavík.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði í gær að án efa
mundi almannavarnaæfingin í
sumar verða mjög áberandi í
mesta þéttbýli landsins. Hann
kvaðst þó ekki eiga von á að æf-
ingin truíli neina starfsemi hér
á landi.
Svo virðist sem erlendir fj ö 1 -
miðar hafi mikinn áhuga á
þessu samstarfi þjóðanna og
æfingunni sem nú er nánast
skipulögð í þaula. Fyrirspurnir
hafa meðal annars borist til
sjónvarpsins um möguleika á
fréttasendingum. -JBP
Sjávarútvegur
Metloðnuvertíð
er senn lokið
Loðnuvertíðinni er að
mestu lokið og veidd-
ust tæplega 1,2 millj-
ónir tonna en heildarkvótinn
var 1.273 þúsund tonn.
Þetta er mesti afli sem
komið hefur að landi á einni
vertíð og einnig er aflaverð-
mæti það mesta. Talið er að
útflutningsverðmæti loðnuaf-
urðanna séu liðlega 18 millj-
arðar króna, þar af verðmæti
mjöl og lýsis um 84% og
frystrar Ioðnu um 15% og er
þetta um 55% meiri verðmæti
en á þeirri vertíð sem best gaf
af sér áður. Aflahæsti bátur-
inn er Beitir NK frá Neskaup-
stað með tæp 48 þúsund tonn
og skammt þar á eftir koma
Jón Kjartansson SU, Víkingur
AK, Hól’maborg SU og Júpíter
ÞH. Mestum aíla, eða liðlega
102 þúsund tonnum, var land-
að í Vestmannaeyjum, en síð-
an koma Eskifjörður og
Neskupstaður með um 75
þúsund tonn hver höfn. Þórð-
ur Jónsson, rekstrarstjóri SR-
mjöls hf., segir að nokkrir
bátar frá Akranesi séu enn að
veiðum, en veiðarnar séu að
Qara út enda loðnan orðin lít-
Us virði sem hráefni, hrygnd
loðna og karlsfli sem er lítið
annað en roð og bein. Af
heildaraflanum á vetrarvertíð,
alls um 720 þúsund tonn, hafa
Mestu landað í Vest-
mannaeyjum, eða
102 þúsund tonnum,
en síðan koma Eski-
fjörður og Neskaup-
staður með um 75
þúsund tonn
hver höfn.
verksmiðjur SR-mjöls hf. tekið
á móti liðlega 180 þúsund
tonnum sem er svipað magn
og var á vetrarvertíð árið áð-
ur og er bræðslu að mestu
lokið. Allt það mjöl sem fram-
leitt hefur verið er selt, og fer
það til ýmissa landa í Evrópu,
t.d. Bretlands, Noregs,
Frakkalands og Danmerkur
auk Bandarflcjanna. Næsta
verkefni verksmiðjanna er
sfldarvertíðin sem hefst 3. maí
nk. GG
Námsmenn
Atvinnuástandið
með betra móti
Mér sýnist atvinnuástand
meðal námsmanna
vera mun betra nú en
var til að mynda í fyrra og hitt-
eðfyrra. En engu að síður en
þörfin fyrir atvinnumiðlun af
þessu tagi mjög mikil, segir
Erla Hlín Hjálmarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Atvinnumiðlunar
námsmanna, í samtali við Dag-
Tímann.
Atvinnumiðlun námsmanna
er nú að hefja sitt 20. starfsár,
en um 1.500 námsmenn leita
að jafnaði til miðlunarinnar á
ári hverju. 250 námsmenn hafa
skráð sig nú þegar. Fimm sam-
tök námsmanna standa að baki
þessari atvinnumiðlun, en eðli
og umfang starfsemi þessarar
hefur aukist ár frá ári að und-
anförnu.
Það hafa allmargir atvinnu-
rekendur haft samband við
okkur og leitað að starfskröft-
um fyrir sumarið. Þeir eru
jafnvel fyrr á ferðinni en verið
hefur síðustu ár. Síðan eru
menn ekki endilega að leita að
sumarstarfsmönnum, nokkrir
eru til að mynda að leita að af-
leysingafólki til starfa í þessum
mánuði. Þau störf sem bjóðast
svo í gegnum Atvinnumiðlun
námsmanna eru afar íjölbreytt.
Þar getum við jafnt verið að
tala um fiskvinnslustörf og
vegavinnu og eins sérhæfða
vinnu við rannsóknir og fræði-
störf, segir Erla Hlín. -sbs.
Akureyri
Tjónaökumenn á námskeið
Tryggingarfélagið Sjóvá/Al-
mennar stendur fyrir
námskeiði á Akureyri í
dag fyrir unga ökumenn á aldr-
inum 17 til 20 ára sem lent
hafa í tjóni, en öðrum öku-
mönnuin er einnig frjálst að
sækja námskeiðið. Það fer fram
í húsakynnum Ökuskólans í
verslunarmiðstöðinni í Sunnu-
hlíð. Meðal fyrirlesara er Sig-
urður Helgason, starfsmaður
Umferðarráðs. GG