Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Side 7
1®agur-'2Imrám
Laugardagur 5. apríl 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Sértrú
Til annars heims
íyrir fimm dollara
Applewhite og Bonnie Lu Tinsdale Nettles, trúsystir hans sem látin er fyrir
nokkrum árum.
Baksvið
Dagur Þorleifsson
39 manneskjur (21 kona og 18
karlmenn) í trúarhópi sem
nefndist Hlið himinsins sviptu sig
nýlega lífl í glæsiliúsi í Rancho
Santa Fe, auðmannaútborg
skammt frá San Diego í Suður-
Kaliforníu. Flest þetta fólk var
miðaldra eða aldrað, aðeins
fimm undir fertugu og sá elsti 72
ára. Það svipti sig lífi með eitri,
er blandað hafði verið í epla-
mauk og vodka.
Flest líkanna lágu í rúmum
eða á dýnum, eins og fólkið hefði
lagst til svefns. Allt var það klætt
nákvæmlega eins svörtum fötum
og snoðklippt. Hjá hverju líki var
lítil ferðataska með hinu og
þessu sem sá látni hafði átt, allir
höfðu á sér fimm dollara seðil og
nokkra 25 senta peninga. Allir
voru í nýjum hlaupaskóm, svört-
um.
Heimsendaspár og
Hale-Bopp
Hópurinn, sem um skeið hafði
búið í áminnstu húsi, var vel að
sér í tölvutækni og vann fyrir sér
með starfsemi á þeim vettvangi.
Þar að auki höfðu safnaðarmeð-
limir lagt allar eigur sínar, sem í
sumum tilvikum voru talsverðar,
í sameiginlegan sjóð hópsins.
Þetta voru dagfarsprúðar mann-
eskjur, að sögn kunnugra.
Mikið hefur verið um heims-
endaspár af tilefni komandi ár-
þúsundamóta, og þar að auki
kom halastjarna, kölluð Hale-
Bopp eftir þeim sem uppgötvuðu
hana, í nálægð við jörðu nýlega.
Margir hafa trúað því að hala-
stjörnur væru fyrir stórtíðindum.
Fjöldasjálfsvíg á vegum trúar-
hópa undanfarið eru talin tengd
þessu. Fólkið í Hhði himinsins
mun hafa álitið að heimsendis
væri skammt að bíða, og að eftir
að það hefði yfirgefið sína jarð-
nesku Iíkama færi það um borð í
geimfar, er biði þess í hléi við
Hale-Bopp-stjörnuna. Geimfarið
flytti það síðan til Sviðsins fyrir
ofan hið mannlega, sem væri ein-
hvers staðar úti í geimnum, trú-
lega á einhverri stjörnu. Þaðan
taldi fólkið sig hafa komið upp-
haflega og sest að í líkömum
manna, en nú hefði það lokið er-
indum sínum á plánetunni Jörð
og færi aftur til upphafs síns.
Misheppnaðar tilraunir hópsins
til þess að afla sér fylgis með
áróðri á veraldarvefnum kunna
að hafa aukið honum lífsleiða.
„Sá höndli þetta, er
höndlað getur“
í Hliði himinsins var algert bann
við áfengi, eiturnautnaefnum og
kynlífi. Það síðasttalda er rakið
til þess að Marshall Herff
Applewhite, 66 ára og foringi
hópsins, var samkynhneigður og
lenti í vandræðum út af því á 8.
áratugnum. Til þess að undir-
strika það að kynferði skipti
engu máli í hópnum klæddust
karlar og konur í honum eins og
létu klippa sig eins. Applewhite
og fleiri karlmenn þar á bæ létu
vana sig. í því og afneitun á kyn-
h'fi og kynhneigðum yfirleitt
studdist hópurinn við Matteusar
guðspjall 19:12.: „... til eru þeir
geldingar, sem hafa gelt sjálfa sig
vegna himnaríkis. Sá höndh
þetta, er höndlað getur.“
Auk Biblíunnar skiptu fljúg-
andi furðuhlutir, geimverur og
Fyrsta fjöldasjálfsvíg í
tengslum við Alnetið,
segja fjölmiðlar. En
flest við kaliforníska
söfnuðinn Hlið him-
insins kemur kunnug-
lega fyrir sjónir.
geimferðir miklu í trúarlífi hóps-
ins. Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakannana eru 45%
Bandaríkjamanna sannfærðir um
að fljúgandi furðuhlutir hafi
komið til jarðarinnar. (Og næst-
um fjórðungur þeirra heldur að
Rússland sé í NATO.)
Maðurinn hefur haft trúar-
brögð alla sína tíð. Með hliðsjón
af því er þess að vænta að trúar-
brögðin haldi velli áfram, hvað
sem á gengur, en taki á sig ýms-
ar myndir eftir heimshlutum,
löndum og tímaskeiðum. Sumra
fræðimanna mál er að það mesta
í sálarlífi og hugsun mannsins
hafi „prógrammerast" inn í hann
í ævaforneskju, með þeim afleið-
ingum að í hugsun hans, skynj-
un, tilfinningum og breytni sé
flest stöðugt að endurtaka sig,
öld eftir öld, árþúsund eftir ár-
þúsund, með einhverjum blæ-
brigðamun eftir menningu og
tímaskeiðum.
Helskór fyrr og nú
Ýmislegt við Hlið himinsins getur
virst renna stoðum undir þær
kenningar. Svörtu nýkeyptu
skórnir minna á helskóna sem
látnum mönnum voru bundir í
norrænni heiðni. Með fimm doll-
ara seðlunum mun hafa átt að
borga farið með geimskipinu.
Látnir Forn-Grikkir borguðu
Karoni ferjukarli skilding fyrir að
flytja sig til Hadesarheims. Með-
limir í Hliði himinsins létu far-
angur í töskur, eins og fyrir hvert
annað ferðalag. í svipuðum til-
gangi var fé og munir lagt í haug
eða borið á bál með mönnum til
forna. Hugmyndir um annað líf á
öðrum hnöttum þekktust þegar í
fornöld og voru í uppgangi á
mótunarskeiði kristninnar.
Þá voru þjóðræn gildi á und-
anhaldi í alþjóðleika Rómaveldis.
Við það fannst ófáum að þeir
væru óhugnanlega einir í heimin-
um og gerðust svartsýnir á hann.
Það varð til eflingar trúflokkum,
sem höfðu trúarhugmyndir úr
ýmsum stað og beindu athyglinni
að öðru lífi, frelsun og sælu í því.
Þ. á m. var kristnin. Píslarvottar
hennar dóu fagnandi, sannfærðir
um að eilíf sæla yrði hlutskipti
þeirra er guðsríki gengi í garð að
fullu.
Einnig nú eru tímar sjálfs-
ímynda á hverfanda hveli og al-
þjóðleika, ekki síst í þeim
„bræðslupotti" sem ýmsum þykir
vel við eiga að kalla Bandaríkin.
Kannski er svo hvergi fremur en
í Suður-Kaliforníu. Jafnframt
fara sögur af almennri öryggis-
leysiskennd og kvíða þar vestra.
andaðist á FSA föstudaginn 28. mars.
Hún var kvödd frá Höfðakapellu 3. aprfl í kyrrþey að hennar
ósk.
Haraldur Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
daginn 1. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. apríl
kl. 13.30.
Ingólfur Kristjánsson,
Karitas Kristjánsdóttir,
Karl Kristjánsson,
Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Freyja F. Sigurðardóttir.
innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
FINNS SIGURÐSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
dvalarheimilinu Hlíð fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Freygerður Bergsdóttir,
Sigrún Finnsdóttir, Daníel Þórðarson,
Guðmundur Finnsson, Gréta Stefánsdóttir,
Bergur Finnsson, Sumarrós Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
KARL JÓNATANSSON,
Nípá,
lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur fimmtudaginn 3. apríl.
Sólveig Bjarnadóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
KRISTÍN HALLGRÍMSDÓTTIR,
Neðri-Rauðalæk, Glæsibæjarhreppi,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
29. mars, verður jarðsungin frá Bægisárkirkju mánudaginn 7.
apríl kl. 13.30.
Steingrímur Pétursson,
Guðbjörn Pétursson, Hulda Kristjánsdóttir,
Kristín Brynjólfsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
ORÐ DAGSINS
462 1840
K___-_________r