Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.04.1997, Side 11
ÍDagur-®fcnröm
Laugardagur 5. apríl 1997 -11
PJÓÐMÁL
Skólamál á
Akureyri
Vortilboð
Fallegir frúarkjólar
15% afiláttur íþrjá daga, 7., 8. og 9. apríl.
yllilaureuLujt ^teinunnar.
- Krónunni, Hafnarstræti 97, Akureyri, sími 462 2214 -
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammm
111»
NORÐURLANDSHF/
Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
1997
Aðalfundur Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. verður
haldinn á Hótel KEA fimmtudaginn 10. apríl nk. og
hefst kl. 16.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkv. 12. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillögur um breytingu á samþykktum félags-
ins.
3. Önnur mál löglega fram borin.
Ársreikningur, tillögur og endanleg dagskrá
munu liggja frammi á skrifstofu Kaupþings
Norðurlands hf. frá og með 2. apríl.
Akureyri, 3. apríl 1997.
Stjórn Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
Páll
Jóhannesson
skrifar
S
Aundanförnum misserum
hefur töluverð umræða
átt sér stað um málefni
skóla hér á Akureyri. Margir
valinkunnir einstaklingar hafa
látið þar ljós sitt skína með
blaðaskrifum, t.d í Degi-Tíman-
um, okkur hinum til gagns og
gaman.
Að sjálfsögðu er það svo, að
allir telja sig hafa réttu lausn-
ina á vanda skólamála. Alla-
vegana hafa skrif manna á síð-
um dagblaða verið á þann veg.
Til að fyrirbyggja allan mis-
skilning skal ég fúslega játa það
að þar er ég engin undantekn-
ing þ.e.a.s. ég tel mig hafa réttu
lausnina á þessum málaílokki,
nema hvað. En ekki hvarflar
það að mér að reyna að leysa
þessi mál í einni svipan heldur
ætla ég að varpa ljósi á einn
þátt sem mér virðist hafa
gleymst í öllu orðagjálfrinu.
Það sem hefur vakið hvað
mesta athygli hjá mér er; hvað
sumir einstaklingar hafa sveifl-
ast ( eins og laufblað í vindi )
milli málaflokka jafnvel enn
hraðar en Ragnar Reykás.
Einn daginn eiga málefni
grunnskólanna hug manna svo
um munar, ef vindarnir blása
þannig. En við breytta vindátt,
þá eru menn jafnvel tilbúnir að
hvetja til þess að peningum
verði ausið í að reisa einhverja
menningarmiðstöð Akureyrar,
fínt skal það nú vera. Þegar
umræðan fór að snúast um há-
leita drauma ákveðinna manna
um glæsibyggingu sem hýsa
skuli stofnun menningarmála
Akureyringa fannst undirrituð-
um kominn tími til að láta Ijós
sitt skína. Okkur Akureyringa
vantar síst af öllu einhverja
snobb byggingu þar sem
menningarpostular geta hist og
raupað spekingslega um
menningu og listir yfir kaffi-
bolla eða bjórkönnu, nóg er til
af slíkum stöðum.
Týndi málaflokkurinn
Um leið og það virðist vera að-
almálið í dag að einsetja skóla
hvað sem það kostar og láta
alla skóla bjóða uppá vistun til
að gera foreldrum auðveldara
fyrir með útivinnuna, þá virðist
það gleymast að það þarf að
manna þessar ágætu stofnanir.
Ég verð að játa að þetta eru
bæði nauðsynlegir og sjálfsagð-
ir hlutir í því nútíma þjóðfélagi
sem við lifum í dag.
Þaö er nefnilega staðreynd
að skólarnir hafa ekki úr eins
mörgum starfskröftum að
moða eins og æskilegt er og
hvað þá peningum. Það er
hreinlega óþolandi að börnin
skuli ekki fá þá þjónustu sem
okkur ber að veita þeim innan
veggja skólans. Hugsum okkur
barn sem er að byrja
skólagöngu. Ef barnið verður
t.d. fyrir stríðni í sturtu eftir
leikfimi eða sund getur það haft
mjög alvarlegar afleiðingar.
Þannig getur sund og leikfimi
orðið að algjöru helvíti fyrir
varnarlaust barnið. Þetta eru
aðstæður sem við höfum ekki
heimild til að skapa börnum
okkar. Við verðum að vera þess
minnug að við berum ábyrgð á
þeim og verðum að haga okkur
samkvæmt því. Sturtur og bún-
ingsklefar eru ákjósanlegir
staðir til að hefja og stunda
einelti og áreiti.
Skóli eins og t.d. Glerárskóli
hefur yfir að ráða bæði íþrótta-
húsi og sundlaug en er í al-
gjöru svelti hvað varðar mann-
afla. Að mínu viti þarf skóli
eins og Glerárskóli að hafa
minnst ijóra sturtuverði ( af
báðum kynjum ) á vakt í einu
þ.e.a.s tvo í sundlaug og tvo í
íþróttahúsi. Því er það óþolandi
að bæjaryfirvöld skuli ekki
sýna þessum málaflokki meiri
skilning en raun ber um vitni.
Krafa mfn sem foreldris er
sú að þeir sem stjórna skóla-
málum okkar Akureyringa taki
sér tak og manni skólanna með
sómasamlegum hætti. Það er
lítið vit í því að hrúga niður
skólum á framhaldskólastigi
eins og t.d. háskóla og eyða í þá
miklum ijármunum ef við tím-
um ekki að manna barnaskól-
ana með viðunandi hætti.
Einnig er það sorgleg stað-
reynd að kennarar geta t.d.
ekki lengur með góðu móti far-
ið með börn í vettvangskannan-
ir eða ferðalög uppí vetrar-
íþróttamiðstöðina (þið vitið
þessa uppí Hliðarfjalli) sem eru
að verða ljarlægur draumur
vegna peningaskorts. Meðan
ástandið er svona ættu allir
sæmilega vitibornir menn að
hætta öllu bulli um að ausa
peningum í einhverjar snobb
byggingar á borð við menning-
armiðstöð eða álíka vitleysu.
Nú vil ég taka það fram að
ég er síður en svo eitthvað á
móti Háskóla eða öðrum fram-
haldsskólum. Málið er bara við
verðum að byrja á því að koma
börnunum í gegnum barna-
skóla með sæmilegri reisn. Ef
sá málaflokkur sem að börn-
unum snýr væri í lagi þá væri
ekkert að því að leggja ríka
áherslu á Háskóla eða aðra
framhaldsskóla.
En verum þess ávallt minnug
að lengi býr að fyrstu gerð.
6 vikna förðunarnámskeið, grunnur I
hefst 15. aprílnk.
Litgreining - ljósmyndaförðun
Leiðréttingaförðun - skyggingar
Tískusýningaförðun, tískan ’97 ofl.
Nemendur fá myndamöppu í lok námskeiðs.
Hárkolluleiga! Nýtt frá París
Gular, grænar, bláar, rauðar, hvítar,
alls konar litir og gerðir.
Förðunarskólinn
áAkureyri
Innritun og upplýsingar milli kl. 17 og 19
í síma 462 6112 alla daga.
Nanna G. Yngvadóttir,
snyrti- og förðunarmeistari.
Förðunarskólinn
Ný námskeið