Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Síða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Síða 4
Hyjólliir Ágústsson í Hvanuni Eyjólfur Ágústsson bóndi í Hvammi á Landi var fæddur í Hvammi 9. janú- ar 1918. Hann lést á Hellu 30. mars sl. Foreldrar hans voru Ágúst Kristinn Eyjólfsson bóndi og kennari í Hvammi og kona hans Sigurlaug Eyjólfsdóttir, húsfreyja. Systkini Eyjólfs eru Þórður verslunarmaður í Reykjavík, f. 5. mars 1920, d. 14. maí 1990. Eyjólfur Karl arkitekt í Svíþjóð, f. 1.9. 1922. Guðbjörg verslunarmaður í Bandaríkjunum f. 5. des. 1924. Sæmundur verslunarmaður á Hellu, f. 5. apríl 1930. Kona Eyjólfs er Guðrún Sig- ríður Kristinsdóttir, húsmóðir í Hvammi, dóttir hjónanna Krist- ins Guðnasonar hreppstjóra í Skarði og Sigríðar Einarsdóttur ljósmóður. Börn Eyjólfs og Guðrúnar Sigríðar eru: Kristinn bifreiðar- stjóri á Hellu, f. 24. febrúar 1942, d. 13. nóvember 1996. Kona hans er Anna Magnús- dóttir tónlistarkennari á Hellu. Katrín póstfulltrúi í Reykjavík, f. 19. sept. 1943. M. Már Jóns- son, pípulagningameistari í Reykjavík. Ágúst Sigurvin mál- arameistari í Svíþjóð, f. 5. júní 1945, d. 7. desember 1996. M. Ástríður Erla Stefánsdóttir saumakona í Svíþjóð. Ævar Pálmi lögregluþjónn í Reykja- vík, f. 21. ágúst 1946. M. Kol- brún Sveinsdóttir verslunar- maður í Reykajvík, f. 10. júlí 1948. Knútur strætisvagnastjóri í Reykjavík, f. 7. janúar 1949. M. Edda Halldórsdóttir, f. 11. júní 1967. Selma Huld sjúkraUði í Brussel, f. 25. júb' 1961. M. Jó- hann Guðmundsson skrifstofu- stjóri í Briissel, f. 19. júní 1958. Eyjólfur var bóndi í Hvammi í 40 ár, sat í sýslunefnd Rangár- vaUasýslu og jarðanefnd, var leiðsögumaður inní Veiðivötn og á Landmannaafrétt, refaskytta Land- og Holtamanna og bað- stjóri sveitar sinnar. „Nú lítum við á fjöllin." Hann stóð á tröppunum í Hvammi, hár og þrekinn, sambland af alþjóð- legum sjarmör og norrænum kóngi. Þetta var uppáhalds frændi hennar mömmu, - „jafn góður eins og hann var fallegur," - hún kunni að orða mannlýsing- arnar gamla konan. Hekla hafði gosið í Skjólkvíum og réttað var inní Sölvahrauni. Við ókum upp Landsveitina fógru með hátignina Heklu á aðra hönd og Gull-Ilreppana á hina. Landmannaafréttur kom í ljós, þar sem ég næsta átatug átti eftir að þramma fjöllin í nafni Eyjólfs. Fyrir hann voru fjöllin sem aldingarður. Þangað fór féð á vorin og dragvænt sótt í rétt- irnar á haustin. Þarna voru öll veiðivötnin, sem gáfu fjölskyldu okkar björgina um aldir, - sprikklandi urriði og bleikja úr djúpbláma bergvatnanna. Þarna voru líka óbrigðul jök- ulvötn, sem möluðu þjóðinni gull í virkjunum, og svo fagrir unaðs- reitir, að fmuntíu þúsund manns koma í Landmannalaugarnar á hveiju ári. Svo voru líka átökin við óbyggðirnar. Eyjólfur var refaskytta sveitarinnar og lá oft úti marga sólahringa í fjöllunum til þess að hafa hemil á lágfótu. Stundum brá líka til beggja vona með smalamennskuna. Jökulgilið geymir himinháa hryggi, sem smalarnir fara uppá fjöllin, og sagnir eru um Eyjólf, þar sem hann vó upp féð á smalastafnum einum úr sjálfheldu. Eyjólfur var maður víðáttunn- ar og óbyggðanna. Mikill veiði- maður, sem átti jafnan villibráð inni í bæ af afrétti sínum, sem og hreindýr af örævum Austfjarða. Hann elskaði hka að skemmta sér með glöðu fólki, en það gékk aldrei útyfir starfið. Fjörugastur allra á mannfögnuðum og gat endalaust rætt pólitík. Mikill Sjálfstæðismaður, en alltaf opinn fyrir skoðunum annarra. Öllum þótti vænt um hann, löðuðust að honum, og hann var sjálfkjörinn foringi, enda lék honum allt í hendi, sem hann kom nálægt. Hann var fróðleiks- brunnur og hefði ábyggilega orð- ið doktor í sinni fræðigrein hefði hann fengið að læra. Svo stóðu jafnan fínustu bílar sinnar teg- undar á hlaðinu í Hvammi og jafnvel flugvélar stundum notað- ar við bústörfin. Eyjólfur var algjör lífsnautna- bóndi. Hann elskaði að vera inn- an um skepnurnar og hafði eitt- hvað sérstakt samband við þær. Margir höfðu á orði, sem komu f Hvamm, að aðkoman og stað- setningin væri eins og á stórum herragarði. Endur og gæsir vöppuðu spekingslegar á hlað- inu, innan um hunda og ketti, kálfa og jafnvel yrðlinga. Yfir bú- skapnum í Hvammi var sérstak- ur ljómi. Grasið spratt á réttum tíma og heyskapurinn gékk alltaf eins og í sögu enda tileinkaði Eyjólfur sér allar nýtanlegar ný- ungar fram undir áttrætt, sem ungur bóndi væri. Hann lagði sjálfur hitaveitu heim til sín og jafnvel traktorarnir voru í ein- hverju sérstökum stuði í Hvammi. Svo er þessi yndislegi Langur laugardagur frá kl. 11.00-18.00 Nýr Galant - Nýr Galant Frumsýnum nýja Galantinn laugardaginn 12. apríl í sýningarsal okkar að Tryggvabraut 10 REYNSLUAKSTUR Aðeins opið á laugardag Einnig aðrar gerðir frá Mitshubishi, VW, Audi og Kia HEKLA Höldur ehf. Tryggvabraut 10 • Sími 461 3000 • Akureyri skrúðgarður sunnan við húsið, birkiskógur og aspir með grasflöt og heitum potti fyrir þá, sem virkilega vilja láta Iíða úr sér eða bara spjalla og endanlega leysa heimsmálin. Það, sem magnaði sérstaklega upp yndislegan andblæ Hvamms- heimilisins, var hversu vel kvæntur Eyjólfur var. Guðrún Sigríður, - Dúna, eiginkona hans, var frá Skarði á Landi, sem hefur verið í þjóðbraut á íslandi frá landnámi. Foreldrar hennar, Kristinn hreppstjóri og Sigríður ljósmóðir, voru einstakir höfð- ingjar og öðlingar. Þetta svipmót æskuheimilisins einkenndi allt hennar líf í Hvammi. Ilversu oft hittu gestir og gangandi ekki Eyjólf úti á hlaði eða úti á túni með þau orð á vör, að fara nú inní bæ og heilsa uppá konuna, fá kaflfi, hann kæmi rétt bráðum inn. Eyjólfur heitir í höfuðið á afa sínum Eyjólfi Guðmundssyni, oddvita Landmanna í hálfa öld og sýslunefndarmanni Rangæ- inga jafn lengi. Eyvi var Uka sýslunefndarmaður, í anda afa síns, og dáði hann mjög. Eyjólfur eldri lifði afar viðburðarríka ævi. Fæddur í Hvammi, en foreldrar hans skildu, þegar hann var ung- ur að árum. Móðir hans var frá Gunnarsholti, þar sem hann ólst upp að hluta hjá móðurbróður sínum. Faðir hans var frá Eyði- Sandvík í Sandvíkurhrepp, en bjó seinna að Sólheimum í Gríms- nesi, þar sem hann stundaði iðn sína, en hann var orðlagður smiður. Eyjólfur eldri var vitni að því á unglingsárum að Gunnarsholt- ið fauk upp og iðagrænir Rang- árvellirnir voru að breytast í sandauðn. Hann réði sig til sjó- róðra í Eyrarbakka, þaðan sem hann hafði áður róið og hugðist gleyma landbúnaðinum. Árið 1882 fær hann bréf frá móður sinni í Hvammi, þar sem hún grátbænir hann að koma heim, húsin séu hrunin og jörðin að flúka upp. Hann sinnir þessu kalli, þau tjalda yfir heimilisfólk- ið um sumarið og endurreisnin hefst. Eyjólfur eldri byrjaði að hlaða garða fyrir sandfokið og varð að athlægi um allt land fyrir, en ekki lengi, því sandurinn datt niður skjólmegin og plönturnar gátu dafnað. Hann er upphafsmaður Sandgræðslunnar á Islandi, sem núna heitir Landgræðslan, með höfuðstöðvar einmitt í Gunnars- holti. Hann byggði upp bæinn í Hvammi, sem stendur enn og þoldi landskjálftana 1896. Hann beitti sér, ásamt Gesti á Hæli, fyrir samningum sunnlensku sveitafélaganna við vin sinn Ein- ar Benediktsson og Titanfélagið, að vatnsréttindi Þjórsártungna- svæðisins yrðu seld félaginu með stórvirkjanir í huga. Einar var með breskt og norskt fjármagn og fengu sveitarfélögin stórfé fyr- ir. Þegar Titanfélagið fór svo á hausinn, runnu öll þessi vatns- réttindi frítt til íslensku þjóðar- innar og er sú eign grundvöllur- inn að Landsvirkjun ásamt virkj- ununum í Soginu. Eyjólfur eldri beitti sér líka fyrir viðlagasjóði sveitarinnar, sem styrkti bændur til sjálfbjarg- ar, sem voru að flosna upp og gékk svo vel að engir þurftu styrk úr kreppulánasjóði íslenska ríkisins í Landsveit. Hann stofn- aði fóðurfélag bændanna, rjóma- bú og búnaðarfélagsdeild og styrkti Guðmund skólaskáld frá Hrólfstaðaheldi til náms. Þessar hugsjónir bjargarlaus fólks í örvasa sveit, sem braut af sér ok örlaganna, komst til bjargálna og þáði að lokum frels- ið sjálft þjóð sinni til handa drakk Eyjólfur yngri í sig með móðurmjólkinni. Ein helsta frels- ishetja íslendinga, Björn í fsa- fold, faðir Sveins, fyrsta forseta lýðveldisins, gaf afa hans og fóst- bróður sínum, Eyjólfi oddvita, heiðursnafnbótina Landshöfð- ingi. Þeim titli þótti Eyva mínum í Hvammi vænt um, ekki síður en Fálkaorðu gamla mannsins og Dannebrog og hafði ekkert á móti því að bera Landshöfðingja- titilinn með réttu sjálfur. Eyjólfur var við fyrstu sýn lukkunnar pamfíll í lifínu. Átti yndislega foreldra, Ágúst Krist- inn bónda og kennara í Hvammi og Sigurlaugu Eyjólfsdóttur hús- freyju í Hvammi og seinna versl- unarkonu hjá Sláturfélagi Suður- lands í Reykjavík. Honum auðn- aðist að lifa tuttugu ár með afa sínum Landshöfðingjanum, sem hann dáði mjög og tók síðan við glæsilegri kostajörð, Hvammi, að föður sínum látnum. Hann eign- aðist yndislega konu og sex gull- falleg börn og fjölda barnabarna. Allt var eins og best var á kosið, ekki síst fyrir frændgarðinn, sem átti endalaust skjól heima hjá honum og Dúnu. Margt braut þó á Eyjólfi, sem hann bar aldrei á torg. Fyrir hann var lífið fyrst og fremst spurning um að standa sig og sjá sínum farboða. Það gerði hann svo sannarlega, en drottinn ræð- ur lífi okkar. Enginn má sköpum renna. Við getum aðeins beðið um það að fá að skilja, - þótt við alltaf lútum hinum heilaga vilja. Harmar af missi tveggja ynd- islegra sona og heilsubrestur varð höfðingjanum, glæsimenn- inu og vini svo margra, Eyva í Hammi, að fjörtjóni. Þessir at- burðir allir í vetur eru svo óvæg- ir, hörmulegir, óvæntir og þung- bærir, að fólkið er sem lostið nið- ur, má sig ekki hræra og biður guð almáttugan um miskunn. Eins og átt hefði sér stað sjóslys, sem heggur niður heilt byggðar- lag eða snjóflóð, landskjálftar eða eldgos með glóandi hraun- straum, sem steypist yfir heimil- ið. Við biðjum algóðan guð um styrk fyrir Dúnu, börnin og barnabörnin, sem líka höfðu áður svo mikið misst. Kærleikans guð gefi þeim von, trú og styrk og leggi Eyjólf minn í Hvammi sér að hjarta. Guðlaugur Tryggvi Karlsson

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.