Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.05.1997, Blaðsíða 16

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.05.1997, Blaðsíða 16
28 - Laugardagur 24. maí 1997 Híigitv Címfatu LIF OG LAND JOHANNESARSPJALL Dvöl á óamerískri sjúkrastofiiun Jóhannes Sigurjónsson skrifar Pistlahöfundur upplifði það í fyrsta skipti á æfinni á dögunum að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. Og þar sem ég hef einfaldan smekk og vel aðeins það næst besta, þá varð Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri fyrir valinu- en ekki Sjúkrahús Þingeyinga. Ekkert stóðlíf ganga- stúlkna og ræsti- tækna! Að sjálfsögðu var ég í meira lagi eftirvæntingarfullur að fá að kynnast heimi sjúkrahússins, ekki síst eftir að hafa horft á svona 7123 bandaríska sjón- varpsþætti um ástir og örlög, líf og dauða í heilsugæslugeiranum þar vestra. Ég átti sem sé von á skrautlegu mannlífi á ystu nöf, morðum, framhjáhöldum, líkn- armorðum, læknamistökum, frjálsum ástum sjúklinga og sér- fræðinga, stóðlífi gangastúlkna og ræstitækna, endalausum ruglingi á þvagprufum með geigvænlegum afleiðingum, osfrv. osfrv. En raunveruleikinn á Fjórðungssjúkrahúsinu var annar en á sambærilegum sjón- varpsstofnunum í USA. Þarna upplifði ég ekkert nema yndis- legt starfsfólk sem allt vildi fyrir mann gera og annaðist mig og aðra kranka af einstakri alúð og velvild. Nú skil ég allar gömlu kveðj- urnar í óskalögum sjúklinga til starfsfólks sjúkrahúsanna og sendi hér með starfsfólki á minni deild mínar kærustu kveðjur. Og héðan í frá mun ég styðja allar kaupkröfur starfs- fólks á sjúkrastofnunum - það á allt gott skilið og meira til. Af geðdeild eða Húsvíkingur? Eins og gefur að skilja þegar maður er nýgræðingur á einhverju sviði, þá er maður ekki alveg öllum hnútum kunn- ugur. Ég t.d. hafði ekki hug- mynd um að maður ætti að mæta með inniskó og slopp til innlagnar á sjúkrahús. Og raun- ar áttaði mig ekki á því fyrr en fólk fór að gefa mér undirfurðu- legt hornauga á rölti mínu um ganga stofnunarinnar. Þá tók ég sem sé eftir því að flestir sam- sjúklingar mínir voru í slopp og inniskóm. Ég aftur á móti gekk um á hvítri Iangbrók með víð- áttumikilli buxnaklauf að fram- an, á svörtu spariskónum mín- um og í grárri og þykkri hettu- peysu yfir sjúkraskyrtunni. Seinna frétti ég að það hafi almennt verið álit ókunnugra að þarna færi annað hvort sjúk- lingur af geðdeild ellegar þá Húsvíkingur, nema hvortveggja væri - og var auðvitað ekki ijarri sanni. Táknfræði í risalunga Flest sem ég kynntist þarna á stofnuninni var til fyrirmyndar. Starfsfólkið náttúrlega fór fremst í flokki, tækjabúnaður var ekki lakari en á Bráðavakt- inni ef mér skjöplast ekki því meir og súpurnar runnu ljúflega niður næringarveginn. En það sem mér þótti þó mest til koma var hin útspegúleraða sýkóló- gíska hönnum á réykingaher- berginu í kjallaranun. Reykingar eru náttúrlega ekki vel séðar á sjúkrahúsum og skylda starfsfólksins auðvitað sú að letja menn í smóknum svo sem helst er kostur. Og reyk- ingaklefinn, afdrep okkar lungnasóðanna, virtist sérhann- aður í því skyni. Veggirnir voru tóbaksgulir og skellóttir og manni leið eins og maður væri staddur í risastóru sýktu reyk- ingalunga. Á veggnum voru þrjár samstæðar inyndir. Á þeim öllum vorum tveir blóma- vasar með blóm í öðrum vasa en hinum tómum. Táknrænt og þurfti engan Umberto Eco til að túlka að blómalausu og líflausu vasarnir stóðu fyrir reykinga- menn en þeir með lifandi blóm- unum í fyrir þá reyklausu. Gólfdúkurinn kórónaði sköp- unarverkið. Annað hvort hefur hann verið notaður í 40 ár á einhverri hafnarkránni í Ham- borg, ellegar að sjúkrahús- starfsfólk hefur vísvitandi slökkt í svona 347 sígarettum á dúkn- um til að gera hann sem ókræsilegastan. Eftir dvöl í þessu herbergi var varla hægt annað en að taka ákvörðun um að að hætta að reykja og eru áform um slíkt komin vel á veg hjá mér og í stöðugri framþróun.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.