Dagur - Tíminn Reykjavík - 31.05.1997, Blaðsíða 12
3n^tgitr-©iitttttt
Laugardagur 31. maí 1997
í Þ R Ó
T T I R
HANDBOLTI
Handbolta
lýkur
Islendingar léku í morgun
síðasta leik sinn á heims-
meistaramótinu í Kumam-
oto. Lesendur vita nú hvernig
leikurinn fór, en það vissum við
ekki þegar blaðið fór í prentun.
Hvernig sem gekk er ljóst að
frammistaða liðsins er a) sú
besta frá upphafi, hafi það unn-
ið í morgun og lent í fimmta
sæti, eða b) jafn góð og best
hefur gerst áður, sjötta sæti,
hafi leikurinn við Egypta tapast.
Rússar og Svíar leika til úrslita
á morgun (spá Dags-Tímans).
Dagur-Tíminn óskar íslenska
liðinu, þjálfara og fararstjórn til
hamingju með glæstan árangur
og þakkar fyrir góða skemmt-
un. -sjh.
Leiftur leikur heima
Leiftur lék heima í
fyrsta skipti á leiktíð-
inni í fyrrakvöld, eða
næstum því heima, það var
næsti bær við: Dalvík.
Framarar komu og fóru aft-
ur með stigin (1:0) því þótt
stuðningur væri í góðu lagi
þá dugði það einfaldlega
ekki í þetta skipti. Eins og
sjá má geta Leiftursmenn
búist við íjöri á vellinum í
sumar. Stuðningur við liðið
er ekki bundinn við Ólafs-
fjörð og Stór-Svarfaðardals-
svæðið - Akureyringar, inn-
sveitarmenn og útfjarða-
persónur hafa áhuga á
framgangi liðsins - enda það
eina norðlenska sem leikur í
aðaldeildinni (eða hvað hún
heitir) á þessari tíð.
Myndir: GS
eilsuhúsið
Skólavörðustíg & Kringlunni
VI M
einbeitmquna
66
QQOtl 1
Gericom'plex inniheldur yfir 20 vítamín og steinefni
og hið öfluga Ginseng þykkni Ginseng G115.
Hrafn Áki Hrafnsson
margmiðlunarhönnuður