Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Side 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Side 1
Fréttir og þjóðmál íslenskt dagsverk Fyrsta ávísunin afhent Forsvarsmenn söfnunar- innar „íslenskt dagsverk" hafa afhent fyrstu ávísun söfnunarinnar, rúmlega 4 millj- ónir króna. Ávísunin var afhent í móttöku námsmannahreyfing- anna í Kornhlöðunni síðdegis í gær. Það var John Winston, sem rekur skóla og sjúkrahús á veg- um United Christian Church of India, sem tók við þessu fyrsta framlagi. Á bak við „íslenskt dags- verk“ stendur 30.000 manna námshreyfing framhaldsskóla- nema. Nemarnir hafa safnað fé sínu með því að bjóða fyrirtækj- um víða um land starfskrafta sína í einn dag. Launin fyrir dagsverkið renna síðan í söfn- unina. United Christian Church of India eru önnur tveggja sam- taka sem forsvarsmenn söfnun- arinnar hafa ákveðið að styðja. AI Mynd: Hilmar Þór Samkynhneigðir Kirkjan veldur vonbngðum Skiptar skoðanir eru um málefni samkynhneigðra meðal presta. Hér ræða sarnan Mjöll Matthíasdóttir, sr. Þorgrímur Daníelsson og sr. Egill Hall- grímsson. Mynd: GS Talsmaður samkyn- hneigðra gagnrýnir kirkjuna fyrir að geta ekki tekið á staðfestri sambúð á prestastefnu. rátt fyrir að prestastefnan á Akureyri hafi varið næstum helmingi meiri tíma en upphaflega stóð til í að ræða um hvort blessa ætti sam- búð samkynhneigðra tókst ekki að ná niðurstöðu í málinu áður en stefnunni var slitið síðdegis í gær. Þar með er óuppgerður grundvallarágreiningur meðal presta um stöðu staðfestrar sambúðar samkynhneigðra. í gærmorgun var gerð tilraun til að sætta ólfk sjónarmið með því að leggja fram nýja tillögu varð- andi það orðalag sem mestum deilum hefur valdið, en þegar til kom var hið nýja orðalag um „bæn og blessun fyrir samkyn- hneigt fólk sem hefur staðfest samvist sína“ svo líkt því gamla að það náði ekki að höggva á hnútinn. Leggja á fram nýja áhtsgerð á næstu Prestastefnu. Percy vonsvikinn Formaður Samtakanna ’78, Percy B. Stefánsson, lýsir yfir vonbrigðum sínum með frest- unina en segir afstöðu kirkj- unnar ekki koma trúmálum mikið við. „Við lítum á kirkjuna sem stofnun og prest- ana sem starfs- menn þessarar stofnunar. Niður- staðan er þvf af- staða stofnunar- innar en snertir ekki trúmálin. í mínum huga er þetta tvennt aðskil- ið, annarsvegar kirkjan sem stofn- un og hinsvegar trúin og kærleiksboðskapurinn í Biblíunni. En auðvitað höfum við orðið fyrir vonbrigðum með kirkjuna; að hún skuli ekki geta tekið af skarið og boðið okkur velkomin." Samt bjartsýnn Um ár er liðið síðan samkyn- hneigðir í sambúð fengu laga- leg réttindi til jafns við gagn- kynhneigða í sambúð. Percy viðurkennir að honum þyki kirkjan heldur svifasein í þess- um málum. „Á sínum tíma fannst okkur að kirkjan, sem á að boða kærleika og skilning milli manna, hefði í raun átt að vera á undan Alþingi að gera eitthvað. En því miður, þetta er niðurstaðan og við verðum að bíða. En þetta kemur allt og er bara spurning um tíma. Ég er mjög bjartsýnn að á næsta ári fari þetta í gegn.“ Percy B. Stefánsson formaður Samtakanna ’78 „...auðvitað höfum við orðið jyrir vonbrigðum með kirkjuna; að hún skuli ekki geta tekið af skarið og boðið okkur velkomin. “

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.