Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.06.1997, Page 1
Fréttir og þjóðmál
íslenskt dagsverk
Fyrsta
ávísunin
afhent
Forsvarsmenn söfnunar-
innar „íslenskt dagsverk"
hafa afhent fyrstu ávísun
söfnunarinnar, rúmlega 4 millj-
ónir króna. Ávísunin var afhent
í móttöku námsmannahreyfing-
anna í Kornhlöðunni síðdegis í
gær. Það var John Winston, sem
rekur skóla og sjúkrahús á veg-
um United Christian Church of
India, sem tók við þessu fyrsta
framlagi.
Á bak við „íslenskt dags-
verk“ stendur 30.000 manna
námshreyfing framhaldsskóla-
nema. Nemarnir hafa safnað fé
sínu með því að bjóða fyrirtækj-
um víða um land starfskrafta
sína í einn dag. Launin fyrir
dagsverkið renna síðan í söfn-
unina. United Christian Church
of India eru önnur tveggja sam-
taka sem forsvarsmenn söfnun-
arinnar hafa ákveðið að styðja.
AI
Mynd: Hilmar Þór
Samkynhneigðir
Kirkjan veldur vonbngðum
Skiptar skoðanir eru um málefni samkynhneigðra meðal presta. Hér ræða
sarnan Mjöll Matthíasdóttir, sr. Þorgrímur Daníelsson og sr. Egill Hall-
grímsson. Mynd: GS
Talsmaður samkyn-
hneigðra gagnrýnir
kirkjuna fyrir að
geta ekki tekið á
staðfestri sambúð
á prestastefnu.
rátt fyrir að prestastefnan
á Akureyri hafi varið
næstum helmingi meiri
tíma en upphaflega stóð til í að
ræða um hvort blessa ætti sam-
búð samkynhneigðra tókst ekki
að ná niðurstöðu í málinu áður
en stefnunni var slitið síðdegis í
gær. Þar með er óuppgerður
grundvallarágreiningur meðal
presta um stöðu staðfestrar
sambúðar samkynhneigðra. í
gærmorgun var gerð tilraun til
að sætta ólfk sjónarmið með því
að leggja fram nýja tillögu varð-
andi það orðalag sem mestum
deilum hefur valdið, en þegar til
kom var hið nýja orðalag um
„bæn og blessun fyrir samkyn-
hneigt fólk sem hefur staðfest
samvist sína“ svo líkt því gamla
að það náði ekki að höggva á
hnútinn. Leggja á fram nýja
áhtsgerð á næstu Prestastefnu.
Percy vonsvikinn
Formaður Samtakanna ’78,
Percy B. Stefánsson, lýsir yfir
vonbrigðum sínum með frest-
unina en segir afstöðu kirkj-
unnar ekki koma trúmálum
mikið við.
„Við lítum á kirkjuna sem
stofnun og prest-
ana sem starfs-
menn þessarar
stofnunar. Niður-
staðan er þvf af-
staða stofnunar-
innar en snertir
ekki trúmálin. í
mínum huga er
þetta tvennt aðskil-
ið, annarsvegar
kirkjan sem stofn-
un og hinsvegar
trúin og kærleiksboðskapurinn í
Biblíunni. En auðvitað höfum
við orðið fyrir vonbrigðum með
kirkjuna; að hún skuli ekki geta
tekið af skarið og boðið okkur
velkomin."
Samt bjartsýnn
Um ár er liðið síðan samkyn-
hneigðir í sambúð fengu laga-
leg réttindi til jafns við gagn-
kynhneigða í sambúð. Percy
viðurkennir að honum þyki
kirkjan heldur svifasein í þess-
um málum. „Á sínum tíma
fannst okkur að kirkjan, sem á
að boða kærleika og skilning
milli manna, hefði í raun átt að
vera á undan Alþingi að gera
eitthvað. En því miður, þetta er
niðurstaðan og við verðum að
bíða. En þetta kemur allt og er
bara spurning um tíma. Ég er
mjög bjartsýnn að á næsta ári
fari þetta í gegn.“
Percy B. Stefánsson
formaður Samtakanna ’78
„...auðvitað höfum við
orðið jyrir vonbrigðum
með kirkjuna; að hún
skuli ekki geta tekið af
skarið og boðið okkur
velkomin. “