Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Side 6
6 - Laugardagur 28. júní 1997
Jkgur-‘9Itmmn
Samgöngubylting
EmkabíLlinn sigrar enn í
samkeppni við flug og rútu
Jón Birgir
Pétursson
skrifar
Engu skal spáð um fram-
vindu fargjaldabyltingar-
innar sem íslandsflug
efndi til í gær. En vitað er að
flugrekstur er dýr. Ekki aðeins
eru tækin hundruða milljóna
fjárfestingar, heldur er launa-
kostnaður gífurlegur. Flugstjóri
hjá Flugleiðum sem flýgur 400
flugtíma á ári, sem mun nálægt
því að vera meðalflugtími
áhafna, er að fá 17.500 krónur
í greiðslu fyrir hvern floginn
tíma! Launin hjá hinu nýja
Flugfélagi íslands verða hin
sömu. Fljúgi þessi flugstjóri að
morgni til Egilsstaða og þaðan
til Reykjavíkur - en eftir hádegi
til Færeyja, er væntanlega kom-
inn heim til sín um líkt leyti og
aðrir launþegar landsins. Hann
hefur á vinnudegi sínum unnið
sér inn fyrir á annað hundrað
r þúsund krónur, verkamanns-
, laun á einum degi.
Aðstoðarflugmaður kostar
■ sitt, en er hvergi nærri foringja
sínum í vinstra sætinu í laun-
um.
, Flugfreyjan sem selur fólki
, kaffi og prinspóló er líka dýr og
verðleggur sig á annan hátt en
stelpur sem afgreiða sömu vöru
í sjoppum, laun hennar geta
verið á bilinu 2,5 til 3 milljónir
á ári.
Varahlutir og allar rekstrar-
vörur í flugrekstri eru kostnað-
arsamur Uður. Og ekki má
gleyma viðhaldsvinnu og eftir-
liti, sem er geysidýr liður í
rekstri flugfélaga, enda reglur
mjög strangar.
Vitað er að starfsfólks ís-
landsflugs sættir sig við laun
sem eru til muna lægri en þau
sem Flugfélag íslands mun
verða að greiða.
Flugleiðir hafa hvað eftir
annað látið í minni pokann
gagnvart launþegum sínum,
sem hafa alþjóðlegt launakerfi
, meðan aðrir hópar njóta ekki
, aiþjóðlegrar viðmiðunar.
r
r Mikið ánægjuefni fyrir
neytendur
i „Aukin samkeppni leiðir hér til
Iægri fargjalda og það er okkur
auðvitað mikið ánægjuefni.
Þetta hefur verið afar óeðlilegt,
( þegar það hefur verið dýrara
I að fljúga til dæmis til Þórshafn-
r ar á Langanesi, nærri tuttugu
j þúsund krónur, en að fara í
[ íjögurra td flmm daga ferð að
I hausti til London, þar sem inni-
falið hefur verið lúxushótel og
' morgunverður,“ sagði Þuríður
I Jónsdóttir, lögfræðingur og
[ skrifstofustjóri Neytendasam-
[ takanna.
„Nú vonum við að þetta verði
tU frambúðar, en ekki tilboðs-
1 verð í byrjun. Ástandið hefur
verið sérstakt. Mörg mál vegna
Ódýrt innanlandsgjald i fiugi mun auka ferðalöngun landsmanna og líkur á „skreppitúrum" fara vaxandi.
fargjalda Flugleiða á ýmsum
leiðum hafa borist Neytenda-
samtökunum. Fólk skilur ekki
hvers vegna íslendingar eiga að
borga miklu meira í fargjöld en
útlendingar," sagði Þuríður
Jónsdóttir.
Rútubíllinn, einkabíll-
inn og flugvélin eru
komin í enn harðari
samkeppni en nokkru
sinni fyrr á innan-
landsmarkaði. Far-
gjaldasprenging ís-
iandsflugs í gær end-
urómar um allan
samgöngugeirann. ís-
landsflug lætur sér
fátt um finnast, þegar
keppinauturinn kvart-
ar yfir stórfelldum
taprekstri á innan-
landsfluginu.
Flugið nýtur
forréttinda
„Við höfum nú lengi verið í
bullandi samkeppni við flugið.
Núna er nánast verið að lækka
verðið niður að rútuverðunum.
Á því er afskaplega einföld
skýring. Menn vilja komast inn
á markaðinn, og þeim er gert
það auðvelt á ýmsan hátt,“
sagði Gunnar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Bifreiðastöðvar
íslands, í gær. Hann sagði að
eftir sem áður væri einkabíllinn
helsti keppinautur sérleyfíshaf-
anna.
„Samkeppnisstaðan er allt
önnur varðandi tollalega með-
ferð á okkar tækjum og flugvél-
um. Þessi mismunun gerir flug-
inu auðvelt að lækka fargjöldin.
Það er kannski allt í lagi með
toll og vörugjald. Fólksflutning-
ar eru ekki innan VASK- kerfis-
ins. Þar af leiðandi leggjum við
engan útskatt á. Og að öllu
venjulegu eigum við ekki að fá
að draga neinn innskatt frá. En
hvað gerist í flugrekstri? Ef þú
kaupir nýja flugvél og kaupir
ákveðnar rekstrarvörur, þá
leggur flugið að sjálfsögðu eng-
an útskatt á, en það fær að
draga frá 24,5% innskatt. Það
er erfitt að keppa við þetta,“
sagði Gunnar.
Rútubílaeigendur hafa að
sjálfsögðu bankað upp á í íjár-
málaráðuneyti og samgöngu-
ráðuneyti og viljað leiðréttingu
mála. Nú munu þeir banka enn
á ný á dyr ráðherranna og
knýja á um eðlilegt viðskipta-
umhverfi.
Ný rúta kostar á bilinu 25-30
milljónir króna. íslandsflug og
Flugfélag íslands eru með
snöggtum dýrari farkosti, en af-
köstin eru líka margföld. Tollur
sem greiddur er af rútubíl er
frá 5-20%.
Flugfélögin fá til viðbótar
stórkostlega fyrirgreiðslu hins
opinbera sem heldur uppi og
byggir dýra flugvelli, flugstöðv-
ar, flugumferðarstjórn og fleira.
„Við höfum nú lengi
verið í bullandi sam-
keppni við flugið.
Núna er nánast verið
að lækka verðið niður
að rútuverðunum. Á
því er afskaplega ein-
föld skýring. Menn
vilja komast inn á
markaðinn, og þeim
er gert það auðvelt á
ýmsan hátt,“ sagði
Gunnar Sveinsson.
Einkabíllinn
hagstæðastur
Hvaða kosti á ferðalangur sem
er að fara norður í land í veð-
urblíðuna þar? Flug? Rútubíll?
Einkabíll?
• Flugið, velji ferðamaðurinn
íslandsflug, kostar 6.900
krónur fram og til baka.
• Rútubfll frá Norðurleið kostar
hann 3.850 krónur aðra leið,
- fram og til baka kostar það
6.930, - þrjátíu krónum
meira en að skutlast með ís-
landsflugi. Fargjöld fengust í
vetur fyrir 3.850 krónur - á
vegum verkalýðsfélaganna,
50% afsláttur, takmörkuð
sæti í hverri ferð.
• Einkabfll af venjulegri gerð, 8
lítra eyðsla á hverja 100 kfló-
metra, eyðir trúlega 70 lítr-
um á 434 kflómetra langri
leið frá Reykjavík til Akureyr-
ar og til baka. Lítrinn af
bensíni kostar ca. 77.50
þannig að norðurferðin kost-
ar nærri 5.500 krónur, auk
minni háttar kostnaðar til
viðbótar.
En vel að merkja. í einka-
bflnum sitja fleiri en bflstjórinn.
Þar eru makinn og börn. Einka-
bfllnum stjórna ferðalangar
sjálfir og haga ferð sinni ná-
kvæmlega eftir eigin geðþótta.
Sá sem kemur norður með rútu
eða flugi, stendur eins og illa
gerður hlutur á endastöðinni og
verður að reiða sig á rándýra
bflaleigubfla, leigubfla, eða
postulana tvo. Einkabfllinn á
því leikinn eins og sjá má.
Hins vegar mun ódýrt innan-
landsgjald í flugi verða til þess
að menn munu fara skreppi-
túra út á land, án þess að
blikka auga. Slík fargjöld munu
leiða til mun meiri hreyfings á
íslendingum sem vilja heim-
sækja íslendinga. Vissum átt-
hagafjötrum hefur verið aflótt.