Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Qupperneq 7
ÍOagur-ÍEmmm Laugardagur 28. júní 1997 - 7 IU i ■ . ■ j F R É T T I R mm- ... mtm F=======^^===== ■. ITSM Raflínur í Mosfellsdal hverfa ofan í jörðina Raflínur, sem farið hafa I taugarnar á náttúru- verndarfólki, munu á næstu árum hverfa úr Mos- fellsdal. Bæjarstjóri hefur undirritað samkomuiag við Rafmagnsveitu Reykjavíkur um legu Nesjavallalínu gegn- um Mosfellsbæ. Bæjarstjóri segir að hér sé um að ræða tímamótasamning. „Það hefur náðst samkomu- lag um legu línunnar um bæ- inn. Hún mun koma niður í Mosfellsdalinn og fer í jörðu við svokallaðar Bringur og liggur þaðan í kapli meðfram Þing- vallaveginum og síðan Vestur- landsveginum gegnum bæinn,“ sagði Jóhann Sigurjönsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, í sam- tali við Dag-Tímann. Jóhann sagði að svo heppi- lega vildi til að línulögnin við Vesturlandsveg passaði vel við tilflutning vegarins um bæinn, en þær framkvæmdir heíjast í haust og halda áfram næsta sumar. Óþarfa jarðrask ætti því ekki að verða vegna Nesjavalla- línu. í Mosfellsdal eru fleiri rafhn- ur. Þar er Sogslína eitt á staur- um, en hún verður tekin niður og sett í jörðu. Sama er að segja um Akraneshnuna, sem þarna liggur. Má því segja að talsverð hreinsun verði á daln- um og hún góð fyrir augað. Markvisst verður unnið að því að koma rafmagni í jörð í bæn- um á næstu árum. „Sogslína eitt hefur gengið beint í gegnum sveitarfélagið og verið skipulagslegt vandamál. í samkomulaginu skuldbindur Rafmagnsveitan sig til að taka línur niður og setja í jörðu á svæðum sem bærinn tekur til skipulags. Það þýðir að þegar á að framkvæma verða línurnar grafnar í jörð. Nú getum við hætt að skipuleggja kringum línurnar, eins og gert hefur ver- ið,“ sagði Jóhann Sigurjónsson. -JBP Katrín Eymundsdóttir. Húsavík Forseti bæjar- stjórnar hættir Afundi bæjarstjórnar Húsavíkur sl. fimmtudag tilkynnti Katrín Ey- mundsdóttir, annar bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins og for- seti bæjarstjórnar, að hún væri hætt störfum sem bæjarfulltrúi. Persónulegar ástæður lægju að baki þessari ákvörðun en alls ekki pólitískar. Katrín hefur gegnt starfi bæjarfulltrúa með hléum í Qölda ára við mjög góðan orð- stír og er sjónvarsviptir af henni í bæjarmálapólitík á Húsavík. Þriðji maður á D-lista, Ása Jónsdóttir, hafði fengið leyfi sem 1. varamaður í bæjarstjórn út kjörtímabilið, þannig að 4. maður listans, Friðrik Sigurðs- son, tekur sæti Katrínar í bæj- arstjórn og verður forseti bæj- arstjórnar. 1. varamaður D- listans nú er því Arnar Sigurðs- son. js Kirkjusókn Guðhræðsla í Garðabæ Igögnum frá nýliðinni presta- stefnu kemur í ljós að fæstar urðu guðsþjónustur í fyrra í Árnesprestakalli í Húnavatns- prófastsdæmi eða aðeins 7 alls. Hríseyingar fengu litlu stærri skammt, þar var messað átta sinnum í fyrra. Á hinn bóginn eru menn iðnastir við messu- hald í Víðistaðaprestakalli í Kjalarnesi (Garðabær). Þar voru alls 306 guðsþjónustur í fyrra. Stór-Reykjavíkursvæðið sker sig eðlilega nokkuð úr í þessum tölum en sem dæmi um mikinn fjölda guðsþjónusta í dreifbýlinu má nefna Skálholts- prestakall, þar sem 122 messur voru í fyrra. Þá var messað 127 sinnum í Eyrarbakkaprestakalli sem er athyglisvert og 150 sinnum í fsaíjarðarprestakalli. Á Akureyri urðu guðsþjónustur 126 í Glerárprestakalli og 111 í Akureyrarprestakalli. BÞ Fræðilegur möguleild á heimsmeistarasæti Þrátt fyrir stórsigur á Frökkum í gær eru horfurnar ekki góðar á að íslenska landsliðinu í opnum flokki takist að spila sig upp í 5. sætið á Evrópumótinu í bridge sem lýkur í Montecatini, ftalíu, í dag. Þó eru líkurnar einhverjar en allt snýst um 5. sætið, þar sem 5 efstu Evrópuþjóðirnar fara á heimsmeistaramótið í Túnis í haust. Þegar Dagur-Tíminn fór í prentun stóð yfir viðureign íslendinga og Tyrkja, en fyrr um daginn höfðu íslendingar tapað fyrir Eistum, 14-16, en unnu svo sem fyrr segir góðan sigur á Frökkum, 24-6. Samkvæmt stöðumati Jakobs Kristinssonar, bridgespilara og framkvæmdastjóra BSÍ, voru Frakkar í gær helstu and- stæðingar íslendinga í baráttunni um 5. sætið þrátt fyrir að færri stig skildu ísland og Danmörk að. Danir eiga nefnilega afar „létta" andstæðinga í dag. Staða efstu liða þegar þrjár umferðir voru eftir var þannig að ítalir voru efstir með 613,5 stig, Pólverjar höfðu 599,5, Noregur 591, Frakkar voru í 4. sæti með 579, þá Danir með 571 og ísland var í 6. sæti með 563,5. Ilolland var í 7. sæti með 556 stig. ísland leikur í dag við Ungverja og Tékka og dagskipun Björns Ey- steinssonar landsliðsþjálfara hlýtur að vera um 40 stig af 50 mögulegum. Tékkar eru neðarlega í mótinu en Ungverjar í miðjunni. Skellurinn gegn Líbanon í fyrradag, 7-23, reynist e.t.v. dýrkeyptur og það er ekki í fyrsta skipti sem Líbanir skjóta ísland í kaf á viðkvæmu augnabliki. Samkvæmt upplýsing- um Dags-Tímans var mikill heppnisstimpill á sigri Líbana, m.a. fóru þeir í tvær mjög vondar slemmur sem unnust. Annað var alslemma þar sem ás vantaði, en eftir óheppilegt útspil vannst spihð. Þess má geta að fyrir leikinn gegn Líbanon stóðu Jón Baldursson-Sævar Þorbjörnsson sig best af íslensku pörun- um skv. íjölsveitaútreikningi. Voru í 6. sæti en Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson voru í 16. sæti. Aðal- steinn Jörgensen og Matthías Þorvaldsson hafa ekki verið að spila sinn besta bridge í mótinu, sem er e.t.v. eðlilegt þar sem samhæfing þeirra er minni en hinna paranna tveggja. Kvennakeppninni lauk í gær og áttu íslensku konurnar mjög góðan endasprett eftir slakt gengi í mótinu. Þær luku mótinu með 21-9 sigri á Frökkum sem voru í öðru sæti fyrir lokaumferðina! BÞ Fjölmiðiar HP-upplýsingar verði rannsakaðar Jón Ólafsson segist ekki una því lengur að hann og fyrirtæki hans séu sökuð um stór- fellda glæpastarfsemi. Jón Ólafsson, stjórnarfor- maður Stöðvar 2 og forstjóri Skífunnar, óskaði í fyrradag eftir að rMssaksóknari láti fara fram opinbera rannsókn á sakargiftum á hendur sér og fyrirtæki sínu, sem birtar hafa verið í þrem blaðagrein- um í Helgarpóstinum. Jón Ólafsson sagði í gær að hann útilokaði ekki að fara í mál við ritstjóra Helg- arpóstsins. Það yrði ákveðið síðar. Jón Ólafsson sagðist óhræddur við rannsókn á sér og fyrirtæki sínu. Hann hafi ekkert að fela. Páll Vilhjálmsson, ritstjóri HP, sagði í gær að blað sitt hefði aðeins sagt frá vinnu sem unnin var í lögreglurann- sókn, sem blaðið hefði góðar heimildir fyrir. Þar hefði nafn Jóns komið upp í rannsókninni og lögreglan kannað hugs- anlega aðild að stóra fíkniefnamálinu. „Við höfum ekki haft uppi neinar sakargiftir á hendur Jóni Ólafssyni, aðeins skýrt frá staðreyndum,“ sagði Páll Vilhjálmsson í gær. í yfirlýsingu Jóns Ólafssonar segir hann að hann pers- ónulega og fyrirtæki hans hafi æ ofan í æ verið bendluð við stórfellda glæpastarfsemi í HP. Þessu vilji hann ekki una lengur. Fjölskylda sín, kona og ung börn, hafi orðið illilega fyrir barðinu á þessum skrifum í Helgarpóstinum. „Meiðyrðamál er kannski algengasta leiðin í málum af þessu tagi og kemur til álita, þó að ég sjái ekki mikinn til- gang í því að fá æruna dæmda af þeim sem enga hefur,“ segir Jón Ólafsson. -JBP Páll Vilhjálmsson: - höfum ekki sakað Jón um neitt.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.