Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Page 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.06.1997, Page 9
4- jOagur-ÍEmttrat Laugardagur 28. júní 1997 - 9 RITSTJÓRNARSPJALL Birgir Guðmundsson skrifar Hver stal kökunni úr krús- inn í gær“, er nafn á vin- sælum krakkaleik sem flestir hafa eflaust einhvern tíma tekið þátt í. í stuttu máli gengur leikurinn út á að þátt- takendum eru gefin númer, en síðan segja allir þessa þulu í kór um leið og þeir klappa sam- an lófum og skella sér á lær: „Hver stal kökunni úr krúsinni í gær? Númer X stal kökunni úr krúsinni í gær.“ Þá segir X: „Ha, ég?!“ Þá svara allir í kór: „ Já, þú!“ Þá segir X: „Ekki satt!“ Og allir hinir spyrja: „Hver þá?“ Þá svarar X: „Númer Y stal kö- kunni úr krúsinni í gær!“ Síðan hváir Y og segir „ha ég“, og leikurinn heldur svona áfram út í hið óendanlega eða þar til ein- hver fullorðinn gefst hreinlega upp á að leika hann áfram vegna þess hve endurtekningin verður leiðigjörn. Það er í rauninni frekar ein- kennilegt hversu leiðinlegur fullorðnu fólki þykir þessi leik- ur, því hann er að mörgu leyti mjög svipaður því þjóðfélagi og þeim alþjóðasamskiptum sem tíðkast á allt of mörgum svið- um. Enginn vill sitja uppi með ásökun af einu eða neinu tagi og því vísar hver á annan. Eng- inn ber ábyrgðina, það er alltaf einhver annar. Hnattræn hugsun Þetta á ekki hvað síst við á þeim sviðum þar sem þörf er á hnattrænni hugsun, eins og í umhverfismálunum. Það er ekki lengra síðan en nú í vik- unni að menn viðurkenndu í löngum röðum, þar á meðal Guðmundur Bjarnason, íslenski umhverfisráðherrann, að mark- miðin frá Ríó hefðu hvergi nærri náðst og væru mörg hver nánast jafn fjarlæg og þau voru fyrir fimm árum. Þjóðir heims- ins hafa sterka tilhneigingu til að segja „ha ég - ekki satt“, þegar kemur að því að sporna við mengandi starfsemi í hnatt- rænu samhengi. Afgreitt fyrir þinglok En það er ekki bara í stóru málunum sem menn lenda inni á þessari braut. Ólík sjónarmið og skoðanir togast víða á þar sem „ha ég - ekki satt“ heyrist tónað háum tónum þegar kem- ur að því að skera úr um hver hafi hafi rangt fyrir sér í ákveðnum, kannski flóknum málum. Þá velkjast málin áfram án niðurstöðu og oftar en ekki magnast vandinn eftir því sem lengra líður og ekkert er gert. Það verður t.d. fróðlegt að fylgjast með því hvort bæn og blessun á staðfestri sambúð samkynhneigðra verði eitthvað auðveldari viðfangs á næstu prestastefnu eftir að ágreining- ur hefur náð að gerjast og magnast meðal manna í heilt ár. Menn þekkja það úr störfum Alþingis hvernig viðkvæm og erfið mál sem menn hafa heilan vetur til að vinna og jafna ágreining í rúlla nánast ómelt í gegnum þingið nokkrum nótt- um fyrir jól eða sumarfrí. Lars Emil og Thule Lars Emil Johannsen kom Grænlendingum heldur betur inn í heimsumræðuna með því að lýsa sig reiðubúinn til að geyma aftengd kjarnavopn í ör- uggum byrgjum sem komið yrði upp í Thule í norðurhluta Grænlands vesturstrandarmeg- in. Johannsen sagðist leggja þetta til í þágu heimsfriðar, en áður hafði Rand-stofnunin bandaríska komið með tillögur um að Thule yrði slíkur kjarna- vopna-öskuhaugur, og fengið vægast sagt dræmar undirtektir bæði hjá dönskum (öðrum en Uffe Elleman Jensen) og græn- lenskum stjórnmálamönnum. Nú hins vegar hefur orðið alger stefnubreyting hjá grænslensku landstjórninni eða í það minnsta hjá formanni hennar, Lars Emil Johannsen, sem þyl- ur ákveðinn fyrir munni sér „já ég - alveg satt“. Breytt afstaða Það er ekki gott að ráða í ástæður þessarar stefnubreyt- ingar hjá Lars Emil og raunar fleirum, en málið ber hins veg- ar að með talsvert öðrum hætti en það gerði í vetur. Frum- kvæðið kemur nú frá Grænlandi og útfærslan er sett í hnattrænt samhengi. Staðreyndir málsins eru í raun nokkuð einfaldar. Það er til fullt af kjarnavopnum í heiminum sem enginn veit al- mennilega hvað á að gera við. Af þessum vopnum stafar gríð- arleg hætta ef ekkert er að gert og sú hætta steðjar ekki síst að norðrinu - Barentshafi - vegna óhugnanlega mikils og niður- nýdds kjarnavopnabúrs á Kóla- skaga. Hitt er Ijóst að aðstæður í Thule eru þannig að fá svæði á jörðinni bjóða upp á hentugri geymslustaði fyrir þessi vopn vegna hita- og rakastigs. Til þessa hefur hefur staðan með kjarnavopnin verið sú að allir þátttakendur hins alþjóðlega samfélags hafa að bragði svar- að „ha ég - ekki satt“ þegar kemur að spurningunni um hvort þeir séu ekki einmitt rétti aðilinn til að geyma kjarna- vopnin sem búið er að semja um að taka úr notkun. Einmitt þess vegna er það stórveldun- um svo verðmætt að finna ein- hvern til að geyma þennan ógn- vænlega úrgang. Einmitt þess vegna er það mannkyninu svo verðmætt að finna einhvern sem er tilbúinn að geyma þenn- an ógnvænlega úrgang á þann hátt að sæmilega öruggt sé. Grænlenskt sjálfstæði Grænlendingum bjóðast skilst manni þetta 50 milljarðar á ári ef þeir settu upp kjarnavopna- öskuhauga í Thule. Það er nægjanlega há upphæð fyrir þá til að sleppa landfestum við Danmörku og gerast sjálfstæðir. Slíkt kitlar augljóslega, enda hefur Jónatan Mozfeldt, einn aðalkeppinautur Lars Emils í Siumutflokknum, ekki tekið þessum öskuhaugahugmyndum íjarri. Auðvitað fylgdi þessu fórn- arkostnaður fyrir Grænlend- inga. Grundvöllur efnahagslífs- ins þar er sala á sjávarafurðum frá Royal Greenland sem grundvallast á hreinleika- ímyndinni. Fyrir slíkt fyrirtæki gæti það auðvitað reynst erfitt ef Grænland yrði í hugum manna ælubakki kjarnorku- sjúks heims, en einhvern veg- inn kæmi ekki á óvart þótt nóg framboð yrði af markaðsmönn- um sem myndu treysta sér til að selja grænlenskar afurðir þrátt fyrir það. Brýnar áhyggjur íslendingar hafa eðlilega áhyggur af þeim hugmyndum sem nú bærast í hugum græn- lenskra forystumanna. Enda eigum við að hafa áhyggjur vegna þess að það eru talsverð- ar líkur á að Thule verði fram- tíðarheimili afdankaðra kjarna- vopna. Rétt eins og leikurinn um kökuna f krúsinni er svo einhæfur og leiðigjarn að menn endast ekki til að leika hann mjög lengi, þá er þulan um hver eigi að geyma aftengdu kjarnavopnin ekki þess eðlis að hægt sé að þylja hana til eilífð- arnóns - allra síst þegar ein- hver hefur sagt „já ég“ og gefið merki um að hann sé tilbúinn að taka við þeim. Krefst undirbúnings Leysi kjarnorku-norðrið af hólmi ímyndina um hið hreina norður, getur það skipt veru- legu efnahagslegu máli fyrir okkur hér á Islandi. Þess vegna hljótum við ekki einungis að hafna kjarnavopnaöskuhaugum á fslandi heldur mótmæla harð- lega að þeir verði settir upp á Grænlandi. Líkurnar eru ein- faldlega svo miklar og þrýsting- ur stórvelda og umheimsins það kröftugur á að kjarnavopn- in endi í Thule, að íslendingar þurfa strax að fara að huga að viðbrögðum við þeirri niður- stöðu og að reyna að hafa áhrif á hvernig þessi þróun öll yrði. Hér er ekki á ferðinni mál sem hægt er að afgreiða „í andar- teppustfl" nokkrum nóttum fyr- ir jól. Þetta er mál sem krefst undirbúnings og rannsókna sem markaðsmenn, líffræðing- ar, jöklafræðingar, jarðfræðing- ar, haffræðingar, siglingaverk- fræðingar og fleiri og fleiri hafa unnið í hendurnar á samninga- og stjórnmálamönnum landsins þegar þeir verja hagsmuni okk- ar. Við getum einfaldlega ekki leyft okkur að vera svo upptek- in við að segja „ha ég - ekki satt“ eða „ha Grænland - ekki satt“, að við gleymum að undir- búa okkur fyrir, að leikunum ljúki einmitt þegar stendur upp á númerið sem Grænlendingar fengu.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.