Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.07.1997, Qupperneq 1
Fréttir og þjóðmál
íslendingaþættir
Akureyri
Tækjaóð-
ir bjart-
sýnis-
menn
s
Islendingar eru bjartsýnir og
tækjaóðir, taka öruggt starf
fram yfir góð laun, hafa
dregið úr fituneyslu og vilja
herða refsingar við skattalaga-
brotum. Þetta er meðal þess
sem lesa má úr nýjustu neyslu-
og lífsstflskönnun Gallups.
Á 70% íslenskra heimila er
til örbylgjuofn og er þetta hlut-
fall óvíða í heiminum hærra.
Fleiri heimili eiga myndbands-
tæki eða nærri 83% og um það
bil íjóröungur landsmanna á
myndbandsupptökuvél.
Athygli vekur einnig að á rxf-
lega þriðjungi íslenskra heim-
ila, eða 35,6%, eru 2 bílar. Um
helmingur á einn bfl, en aðeins
7,4% aðspurðra segja engan bfl
á heimilinu. Það er kannski
engin furða þótt treglega hafi
gengið að íjöiga strætisvagna-
farþegum.
Á þremur af hverjum fjórum
heinúlum er til reiðhjól, en
væntanlega er þar í flestum til-
fellum um að ræða krakkahjól.
Meira um tœkjaóða
íslendinga á bls. 6.
Akureyrarbær verðlaunar Islandsflug fyrir lágu fargjöldin. I gær afhenti Sigfús Sigfússon frá Islandsflugi Jakob Björnssyni, bæjarstjóra, 100 flugfarmiða
á nýju, lágu fargjöldunum. Bæjarstjórinn stæðilegi ferðast nú fyrir aðeins 6.900 krónur þegar hann rekur erindi suður. Fleiri sáu sér leik á borði; hinir
stæðilegu Samherjabræður keyptu líka 100 miða til að reka erindi sín. Myn&. g:
Hafnarfjörður
Ingvar klýfuor flokkinn!
Flest bendir til að nýr
meirihluti Alþýðu-
flokks og Alþýðu-
bandalags fæðist
andvana.
Alger ldofmngur virðist
vera kominn upp á milli
bæjarfulltrúa Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði. Skiptast
þar í tvær fylldngar annars veg-
ar Ingvar Viktorsson, bæjarstjóri
og með honum þeir Árni Hjör-
leifsson og Ómar Smári Ár-
mannsson og svo hins vegar
Tryggvi Harðarson og Valgerður
Guðmundsdóttir. Ágreiningur er
um núverandi meirihlutasam-
starf með klofiúngsbroti Jóhanns
G. Bergþórssonar úr Sjálfstæðis-
flokknum en Ingvari, Árna og
Ómari Smára er mjög í mun um
að halda samstarfinu áfram. í
kjallaragrein í DV í fyrradag
gagnrýndi Ómar Smári Guð-
mund Árna fyrir hans fram-
göngu í málinu og taldi hana til
vansa. í sjónvarpsfréttum í
fyrrakvöld talaði Árni Hjörleifs
svo um fimmmannaklíku sem
stæði á bakvið uppnámið í nafni
sameiningar A-flokkanna.
Tryggvi og Valgerður sendu í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem
þau segja skoðun sína á meiri-
hlutasamstarfinu.
Magnús Jón og Ingvar kljást.
í yfirlýsingunni er lýst yfir
óánægju með núverandi meiri-
hluta og að þau telji að mynda
eigi nýjan með Alþýðubandalagi
vegna framtíðarhagsmuna jafn-
aðarmanna á íslandi. Þrátt fyrir
óánægju sína með meirihluta-
samstarfið taka Tryggvi og Val-
gerður fram að því verði ekki
slitið nema að nýr meirihluti
liggi fyrir. „Við gefum í raun
frest fram í september en þá
kemur bæjarstjórn saman en
það á eftir að íjalla um málið í
flokknum og því ómögulegt að
segja hvað gerist,“ sagði Tryggvi
Harðarsson í gær.
Magnús Jón: Kratar
svari!
Ljóst er að mikillar óánægju og
óþolinmæði er farið að gæta
innan Alþýðubandalagsins með
seinagang Alþýðuflokksins.
Magnús Jón Árnason, oddviti
Alþýðubandalags, segir liggja
ljóst fyrir að Alþýðubandalag
fari ekki í neinar viðræður á
meðan meirihluti liggur fyrir.
„Hvort að meirihlutinn er fall-
inn, það er hlutur sem Alþýðu-
flokkurinn verður að svara og
það er mál til komið að Alþýðu-
flokkurinn svari því hvaða bæj-
arfulltrúar eru talsmenn hans.“
Það má því ljóst vera að
slitni ekki upp úr meirihlutan-
um nú á næstu dögum þá muni
hann halda fram að næstu
kosningum. Áreiðanlegar heim-
ildir segja að Alþýðubandalagið
muni ekki bíða fram í septem-
ber til að mynda nýjan meiri-
hluta. Alþýðuflokksmaður í
Hafnarfirði segir mikinn vilja
fyrir því í Alþýðuflokknum að
slíta samstarfinu en Ingvar
standi harður gegn því: „Hann
klýfur flokkinn frekar en að
slíta meirihlutanum." rm
Bls. 9
Er
Sighvatur
Blair?
Lífið í landinu
lllugi um
Hæstarétt
•BUCK&DECKER!
Handverkfæri
SINDRI^
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024