Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.08.1997, Blaðsíða 1
jnagur-CEtmtmt
ISLENDINGAÞÆTTIR
Laugardagur 9. ágúst 1997 - 80. og 81. árgangur -147. tölublað
Endalokin á Grænlandi
ístendmgum
útrýmt í bardaga
Hver urðu örlög norrænna
manna á Grænlandi um mið-
bik 16. aldar er ráðgáta, sem
margir freistast til að ráða,
en lausnirnar eru oftast get-
gátur einar. Margt bendir til að versn-
andi tíðarfar og mannfækkun hafl valdið
því að mjög dró úr þrótti byggðanna og
að lokum hafi slegið í brýnur milli nor-
rænna manna, sem illa gekk að læra að
lifa á landsins gæðum, og Inúíta, sem
voru fyrir löngu búnir að aðlaga lífshætti
sína að náttúrufari heimskautslanda.
Norrænir menn hlutu að lúta í lægra
haldi fyrir óblíðri náttúru og fyrir ná-
grönnum sínum að norðan þegar í odda
skarst á milli þeirra.
Um þau viðskipti eru til brotakenndar
heimildir, sem varðveist hafa meðal Inú-
íta og einnig eru til gamlar íslenskar
sagnir sem benda til hver urðu endalok
landnáms íslenskra manna á Grænlandi.
Líklegt er að síðustu landnemarnir
hafi dáið um 1550, en spurnir voru af
fólki af íslensku bergi brotið á dögum
Ögmundar biskups Pálssonar, sem
gegndi embætti Skálholtsbiskups á árun-
um 1520-1540. En undir lok aldarinnar
þegar Evrópumenn komu næst til Græn-
lands, hittu þeir enga norræna menn fyr-
ir, en aftur á móti Inúíta, sem tekið höfðu
sér bólfestu á þeim slóðum sem íslend-
ingarnir námu land. Var þá lokið nær
fimm alda búsetu Evrópumanna í land-
inu og liðu meira en tvær aldir þar til
Danir tóku að ílytjast til Grænlands til að
kristna Inúíta og versla við þá.
í íslandingaþáttum er birt grein um
endalok norrænnar byggðar á Græn-
landi, sem óvíst er um hvaða heimildir
eru fyrir, en frásögnin var færð í letur
fyrir rúmum 150 árum.
Grænlenski mynd-
listarmaðurinn Aron,
sem uppi var á fyrra
helmingi 19. aldar
teiknaði og málaði
margar myndir af
þjóðlífi og túlkaði
sagnir í verkum sín-
um. Meðal annars
teiknaði hann bar-
dagamyndir milli
norrænna manna og
Inuita og koma þær
vel og heim saman
við íslenskar frá-
sagnir af síðustu við-
skiptum norrænna
manna og inn-
fæddra, þar sem síð-
ustu afkomendur ís-
lensku iandnemanna
féllu fyrir vopnum. Á
þessari mynd sést
hvar bogaskyttur
reyna að hæfa mann
á húðkeip, sem rær
út þröngan fjörð,
sem vel gæti verið
Veiðifjörður, sem
aetið er nánar um.