Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.09.1997, Qupperneq 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.09.1997, Qupperneq 2
Jlagur-®íntmn 14 - Föstudagur 19. september 1997 LIFIÐ I LANDINU Fjölmeimasti háskólinn Viltu lœra hvernig taka má á áfengis- vandamálum á vinnustöðum, að meta Ijóð, um jjár- skipti hjóna eða œtlarðu kannski á Njálunámskeið sem telur yfir 400 manns? Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands hefur nú sent inn á flest heimili námskrá fyrir veturinn og eru námskeiðin sem mönnum standa til boða vægast sagt fjöl- Margrét Björnsdóttir forstöðu- maður Endurmenntunarstofnunar segir áhugann sífellt aukast. breytt. Skólinn er enda ótrúlega íjölmennur. í fyrra voru þátt- takendur um 8000 og í vetur lítur út fyrir að þeir verði fleiri. Margrét Björnsdóttir hefur verið forstöðumaður Endur- menntunarstofnunar frá því starfsemin fór af stað árið 1983. „Við erum að bjóða upp undir 500 námskeið á hverju ári og stærstur hlutinn eru 10- 12 klukkustundir. Síðan erum við með lengra nám sem þá er hugsað með starfi og tekur frá einu og upp í tvö ár. Ef tímarnir eru taldir saman þá er þetta lengra nám orðið um 40% starfseminnar og hefur unnið verulega á allra síðustu árin.“ Enginn rígur á milii skóla Að Endurmenntunarstofnun standa auk Háskólans, Tækni- skólinn og fimm samtök há- skólamanna. Framan af var um tilraunastarfsemi að ræða, eng- in hefð var fyrir því að bjóða fræðslu af þessu tagi þótt ein- staka deildir háskólans biðu upp á endurmenntun. Hvað greinar eru það sem menn fara helst í? „Petta lengra nám er á rekstrar- og markaðssviði, hjúkrunar- og félagssviði, sjáv- arútvegssviði og það nýjasta er nám í opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Hvernig er þetta lengra nám hjá gkkur í samanburði við hefðbundið nám á háskólastigi? „Munurinn er fyrst og fremst sá að þarna er lögð áhersla á hagnýta þætti. Þetta eru starfs- tengd viðfangsefni. Framan af höfðu menn áhyggjur af því hjá Viðskiptadeild Háskólans að rekstrar- og viðskiptanáminu væri ruglað saman við kandi- datspróf í viðskiptafræðum. Síð- an hafa menn áttað sig á því að þetta er miklu styttra og hag- nýtara eða vandamálatengdara nám og þær raddir hafa hljóðn- að. Þetta eru heldur ekki há- skólagráður því þær getur eng- inn veitt nema deildir Háskól- ans.“ Eru reglur um próf þœr sömu? Já, nemendur taka próf og lúta sömu reglum. Kennararnir Langflest námskeið Endurmenntunarstofnunar eru gríðarlega vel sótt. eru líka oft þeir sömu og á próf- skírteininu kemur fram hvað námskeiðið var langt og síðan einkunnir með hefðbundnum hætti.“ Bók bóka Aðal sprengjan enn eitt árið í röð er námskeið Jóns Böðvars- sonar um Njálu. Þetta námskeið átti fyrst að vera tvö kvöld í viku en stút- fylltist og því varð að bæta við tveimur kvöldum í viðbót. Núna eru um eða yfir 400 manns búnir að skrá sig í Njálunámskeið og Jón verður að kenna mánudags-, þriðju- dags-, miðvikudags- og fimmtu- dagskvöld og er ánægður með þróun mála. „Almennt eru þessi námskeið okkar vel sótt. Síðustu daga erum við búin að skrá inn á námskeið hjá okkur um 2000 manns.“ En þessi sér- tœku námskeið sem eingöngu eru œtluð hjúkr- unarfrœðingum eða lögfrœðingum svo dœmi séu tekin? „Þau eru vel sótt og ég get tekið dæmi um námskeið sem er nýhafið og er um hagnýtingu Internetsins í heilbrigðisþjón- ustu og menntun heilbrigðis- stétta, þar eru 74 skráðir.“ Er fólk sátt við verðið sem þessi menntun kostar? „Já, ég held að fólk sé búið að sætta sig við að þessi fræðsla er ekki niðurgreidd en á kostn- aðarverði. Fólk er að borga all- an tilkostnað. Þeir einu sem ekki borga eru kennarar því ríkið setur mikla peninga í end- urmenntun þeirra. Vinnustaðir borga líka námskeiðin hjá mjög mörgum.“ -mar Aðal sprengjan enn eitt árið í róð er námskeiðJóns Böðvarssonar um Nfálu. Um eðayfir 400 manns hafa skráð sig á Njálu- námskeið. lesendum... HeÍmUtsfaugÍð <*r. Dagur-Tírotnn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri eóa ÍHerholti 14 Reykjavík. Nerfang: Htstjori@dagur.is, Fax: 460 6171 Úthafsveiðar og mannréttmdi Islenskar útgerðir hafa á undanförnum árum haslað sór völl í veiðum utan fisk- veiðilögsögu landsins, enda um- talsverður verkefnaskortur hjá flotanum, vegna lélegs ástands sumra nytjastofna og sífellt aukinnar tækni og þar með af- kastagetu skipanna. Vissulega hefur þessi sókn á fjarlæg mið skapað verulegar viðbótartekj- ur í þjóðarbúið og í sumum til- fellum bætt rekstrarstöðu við- komandi útgerðarfyrirtækja umtalsvert. Þetta eru hins veg- ar áhættusamari veiðar en hin- ar hefðbundnu veiðar í fisk- veiðilögsögunni, vegna þess hve löng sigling er oft á tíðunr á veiðisvæðin og afli þar oftast tímabundinn og ótryggur. Því eru mörg dæmin um, að í stað þess að veiðiferð yrði lyftistöng íyrir útgerð og áhöfn, hafa sjó- menn komið heim tekjulitlir efftir langa útiveru og útgerðin haft fjárhagsbyrðar einar upp úr krafsinu. Kjarasamningar sjómanna lausir Alltaf þarf að taka einhverja áhættu og menn verða að h'ta á það með opnum huga. í byrjun ætluðum við íslendingar að verða ríkir á því að gera út á opin hafsvæði og keyptum til veiðanna gamla ryðkláfa sem legið höfðu um árabil ónotaðir í erlendum höfnum. Voru þeir að sjálfsögðu fahr fyrir htið fé, þar sem förgun á slíkum döllum kostar eigendur stórar fjárhæð- ir. Því miður varð reynslan af þessu ekki góð, en nokkuð lær- dómsrík og nú er okkur kapps- mál að gleyma sem fyrst þess háttar útgerðarævintýrum, þótt þeir sem töpuðu verulegum íjármunum á viðskiptum við þessi útgerðarfyrirtæki, sem gjarnan skráðu skip sín í fjar- lægum heimshlutum, eigi kannski í erfiðleikum með að þjálfa upp gleymskuna. Eins mun eflaust vera um ýmsa þá sjómenn, sem dvöldu mánuðum saman í Smugunni í Barents- hafi, við misjafnlega góðar að- stæður um borð og létu sér leið- ast fiskileysið. Kjarasamningar sjómanna eru nú lausir og hafa verið það mánuðum saman. Gildandi kjarasamningar taka ekki nema að litlu leyti á þeim vandamál- um, sem við blasa vegna sóknar vinnsluskipa í íjarlægar smug- ur. Ljóst er í mínum huga, að þeir kjarasamningar sem von- andi nást áður en langt um hð- ur, verða að taka af skarið varðandi lengd veiðiferða. Það eru sjálfsögð mannréttindi, að áhafnir þeirra skipa, sem send eru á íjarlægar veiðislóðir, fái að vita hvenær veiðiferð lýkur í síðasta lagi og setja verður ákveðin tímamörk á það hve slík veiðiferð má vera löng, án þess að skipt sé um áhöfn. Mannréttindi til handa sjómönnum Verður að telja mánaðarlanga veiðiferð algjört hámark. Vissu- lega þrengir þetta nokkuð sóknarmöguleika íslenskra skipa, t.d. Smuguna í Barents- hafi, sérstaklega vegna þess ófriðar sem landinn á í við Norðmenn, út af þeim veiðum. Vonandi takast hins vegar samningar fljótlega við Rússa og Norðmenn um þessar veiðar, svo íslensk skip sem stunda veiðar á þessu hafsvæði, geti fengið eðlhega fyrirgreiðslu og aðstöðu nærri veiðislóðinni. Hins vegar er það deginum ljós- ara, að almenn mannréttindi þeirra sjómanna, sem þessar veiðar eiga að stunda, hljóta að eiga að hafa forgang fyrir hag- kvæmnissjónarmiðum. Núver- andi ástand, sem byggir á því að lagt er í veiðiferðir, án þess að nokkuð sé vitað um heim- komutíma er óþolandi fyrir við- komandi sjómenn og aðstand- endur þeirra. íslenskir útgerð- armenn hljóta að hafa þann metnað, að þeir vilji að starfs- menn þeirra búi við mann- eskjulegar aðstæður í hvívetna og hafi möguleika til að skipuleggja sinn frítíma og samskipti við sínar íjölskyldur. Þótt shkar skorður yrðu settar við hámarkslengd veiðiferða, búa sjómenn á þeim skipum sem sækja á djúpslóð, við mikl- ar fjarverur frá heimilum sín- um. Sem betur fer, hafa sjó- menn yfirleitt góðar tekjur, þótt í sumum tilfellum megi deila um það hve hátt tímakaupið er, ef tekið er tillit til þess tíma sem þeir eru bundnir á vinnu- stað sínum. Hitt er grundvallar- atriði, að mannréttindi séu ekki brotin með óhóflegri útivist skipa, eða skipshafna. Sé rekstrargrundvöllur ekki fyrir veiðunum, ef slík lágmarks- mannréttindi eru virt, verða shkar veiðar einfaldlega ekki stundaðar til langframa. Kristján Magnússon.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.