Dagur - Tíminn - 04.09.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 04.09.1996, Blaðsíða 9
íDagur-'QItmttm Miðvikudagur 4. september 1996 - 21 Saga íslenska hestsins í hnotskurn s Ailmmtudagskvöld klukkan 21 verður haldin mikil skraut- sýning á vegum Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri. Á sýningunni verður saga íslenska hestsins sýnd í hnotskurn og munu 30 knapar með 40 hross sýna listir sínar. Með sýningunni, sem verður á flötinni fyrir neðan Leikhúsið, vilja hestamenn leggja sitt af mörkum til ferðamála á Akureyri og er sýningin haldin að ósk skipuleggjenda Vestnorden ferðakaupstefnunnar. Jón Hrói, ljósmyndari Dags-Tímans, kom við á æfingu hjá hestamönnunum.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.