Dagur - Tíminn - 04.09.1996, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn - 04.09.1996, Blaðsíða 4
16 - Miðvikudagur 4. september 1996 Ptgur-SIímmu Umíhídaíauót í imimingu Dags Kristín Árnadóttir kennari skrifar að er hreint ekki auðvelt að vera innfæddur akur- eyrskur brekkusnigill af kaupfélagsættum. íhaldssemin rótgróin, kaupfélagsmerkið runnið saman við DNA-keðj- una og þorpið, innbærinn, eyr- in og Giljahverfið utan marka hins byggilega heims. Ég hef þó, af andlegu þol- gæði (enda að hluta af þing- eyskum ættum eins og Stefán Jón), látið mér fátt um finnast þótt kaupfélagsapótekið mitt hafi orðið undir í samkeppn- inni við markaðstorg Böðvars og horft nokkuð saknaðarlaust á skiltin um það að héðan í frá yrðu menn að keyra út fyrir bæjarmörkin vildu þeir kaupa sér sleif, hvað þá heldur eitt- hvað stærra, eftir að kaupfé- lagsyfirvöld ákváðu að félags- mönnum og öðrum bæjarbúum yrði miklu betur þjónað með rekstri útgerðarfyrirtækja í öðrum landshlutum en versl- unarekstri á Akureyri. Ég hef sömuleiðis tekið því af stakri ró að búið sé að reisa Legóhús í fjörunni, allt í kringum glerslys- ið, búið sé að rífa húsið hans Tóbaks-Steina, risin sé ný út- gáfa af Bláa bandinu utan í einu fallegasta húsi brekkunn- ar, Menntaskólanum, Skáta- garðurinn orðinn óræktarflag og Ráðhústorg einhver stein- runnasti staður í byggð á ís- landi og þó víðar væri leitað. Allt þetta er þolanlegt, enda ut- an daglegrar snertingar og hefur því engin teljandi áhrif á sálarlíf mitt, allra síst á morgn- ana. En með síðustu breytingiun í fjölmiðlaheiminum er farið að sverfa allverulega að kaupfé- lagsgenunum og hrikta í akur- eyrsku frumeindunum. Ég fæ nefnilega ekki lengur Dag, blaðið sem ég hef samvisku- samlega keypt síðan ég flutti aftur á æskustöðvarnar fyrir 11 árum, blaðið sem flutti mér fréttir af sauðburði og hey- skaparhorfum í Eyjafirði, afla- brögðum á Kópaskeri, mannlífi á Raufarhöfn, leiksýningum á Húsavík og óspektum utanbæj- armanna á Akureyri. Aðal Dags heitins var að vera staðbundið mótvægi við blað allra landsmanna, Morg- unblaðið, og þjónaði átthaga- þörfum mínum með notalegum smástaðarsvip sem gaf mér sömu öryggistilfinningu og veð- urfréttirnar, dánarfregnirnar og jarðarfarirnar á gömlu gufunni (þessi innbyggða þörf fyrir að taka skeytin ku reyndar líka vera sér norðlensk). Nú er það öryggi fyrir bí og við mér blasa frásagnir af kosningabaráttu Clintons, skilnaðarraunir Karls og Díönu, pólitískar raunir Knúts Bruun í Hveragerði og óánægja jafnt starfsmanna sem neytenda með nýtt leiðakerfi SVR í nútímaútgáfimni af Degi. Einhvern veginn fara þessar umheimsfréttir illa saman við morgunstundirnar hjá mér og morgunmaturinn meltist sýnu verr nú en í síðustu viku, þegar helstu fyrirsagnirnar snerust um mér öllu nærtækari mál- efni. Nú má ekki skilja orð mín sem svo að nýja blaðið sé slæmt, síður en svo. Það er bara ekki blaðið mitt lengur, heldur einhvers konar lands- byggðarbensínstöðvarútgáfa af Morgunblaðinu, en ég tel mig alls ekki þurfa annað slíkt um- heimsfréttablað, þó í sauðalit- unum sé. Og mér er alls ekki grunlaust um að ýmsir aðrir en ég, hvort heldur þeir eru innfæddir eða aðfluttir og hvort sem í þeim eru kaupfélagsgen eður ei, syrgi gamla, góða Dag og þyki þeir hafa misst vin sinn í tryggðum. Þessa staðreynd verða aðstandendur hins nýja blaðs að horfast í augu við og gera upp við sig hvort þeir hyggjast þjóna áfram dyggum akureyrskum lesendum eða láta Akureyrarsíðu Morgun- blaðsins þá þjónustu eftir í framtíðinni. UórVient M* J „vnlandi® ferð I sv?r*w*w"ro va%' au i oríf on f,n " / I P/9G/V/)P /Þ#Ó7T/9G/)ÆPOK, PA/P& VP/r£XX&?TLJMÞ£WH/yAL P//V/Ð P/Z//PPO' 'l Við sjáum ekki Guð og Hermann Sögur gengu fyrr á tíð um vinsældir Hermanns Jón- assonar fyrrum forsætis- ráðherra í kjördæmi hans á Ströndum. Hann varð þingmað- ur Strandamanna á fjórða ára- tug aldarinnar og síðar Vest- firðinga allt fram til 1967, eftir breytingar á kjördæmaskipan landsins árið 1959. í síðara bindi ævisögu Ilermanns, Ætt- jörð mín kæra, sem Indriði G. Þorsteinsson skráði segir svo um vinsældir þingmannsins í kjördæmi hans. „Margar sögur gengu um vinsældir Hermanns Jónasson- ar á Ströndum. Ein var á þann veg, að eitt sinn fyrir kosningar hafi biðin eftir þingmanninum INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON HERMANN IÓNASSON Ævisaga Hermanns Jónassonar forsœtisrádherra verið orðin í lengra Iagi. Vatt þá ónefndur sjálfstæðismaður á Hólmavík sér að Ragnari Valdimarssyni, bílstjóra á sama stað, og sagði ; Jæja, hvernig er það með hann Hermann, held- urðu að nokkur kjósi hann fyrst hann lætur ekki sjá sig? Ragnar svaraði að bragði: Við trúum nú á Guð þótt við sjáum hann ekki. Þessi orð voru auðvitað sögð í gamni, en bflstjórinn vissi nú hvað hann söng. Það sannaðist líka í kosningunum að Stranda- menn treystu þingmanni sínum sem jafnan áður og traustið var gagnkvæmt og varanlegt." Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson. Loksins landsfundur Forsetakosningarnar eru nú afstaðnar og flokks- bundnir sjálfstæðismenn um land allt eru hættir að velta fyrir sér hvort Davíð Oddsson formaður ætlar í for- setaframboð eða ekki. For- maðurinn hefur heldur ekki gefið út að hann hyggist hasla sór völl á neinum öðrum vett- vangi eftir að þetta varð ljóst með forsetaframboðið og því telja menn óhætt að drífa í því að halda landsfund. Flestir muna hvers vegna landsfundin- um var frest- að í fyrra en trúlega eru þeir mun færri sem muna hvað átti að ræða á þeim fundi, enda ekki von því til stóð að ræða um stöðu kvenna í flokknum en það er fyrir margra hluta sakir ekki minnisstætt mál. Móðurlegu og gáfu- legu konurnar Fyrir það fyrsta eru eiginlega engar konur í áberandi hlut- verkum í ílokknum. f öðru lagi þá hefur þeim konum sem eitthvað reyna að sprikla í flokks- pólitíkinni ver- ið komið vand- lega fyrir í skúmaskotum flokksappar- atsins, þar sem þær láta lítið á sér bera. Fylkingar kvenn- anna eru tvær og báðar álíka skaðlausar strákunum í for- ustunni. Annars vegar eru það móðurlegu týpurnar sem sjá um basara og kökubakst- ur á mannamótum á vegum flokksins. Mæðraveldi köku- gerðarinnar hefur skipulagt sig í Landssambandi sjálf- stæðiskvenna. Hins vegar eru það dragtklæddu gáfulegu týpurnar með gullspangar- gleraugun, sem vilja ekki gera greinarmun á stöðu karla og kvenna í flokknum. Þessar konur hafa sérhæft sig í að tala með spekingslegum svip um landsmálin og listirn- ar og hafa jafnvel skoðanir sem búið er að handera fyrir þær á hinum ýmsu málum. Þetta eru hinar pólitísku borðdömur strákanna í flokknum og bráðnauðsynleg- ar til uppfyllingar á fundum og mannfögnuðum. Borð- dömufélagið í Sálfstæðis- fiokknum gegn- ur undir nafn- inu „Sjálfstæðar konur" og er, líkt og Lands- sambandið, áhrifslaus sögn í setningafræði sjálfstæðisstefn- unnar. Friðrik sterkasta konan Landsfundurinn sem nú hefur verið blásið til á einmitt að ræða jafnréttið í flokknum og þá staðreynd að konur virðast ekki eiga auðvelt með að ná þar frama. Eðli málsins sam- kvæmt mun ekkert nýtt ger- ast í þessum málum, ekki síst vegna þess að móðurlegi armur kvennablómans er staðfastlega þeirrar skoðunar að gáfulegi armurinn eigi að drífa sig í köku- bakstur en gull- spangarkonurn- ar vilja að þær móðurlegu ger- ist borðdömur. Ofan á innbyrðis kritur af þessu tagi bætist svo það, að viðvarandi áhrifaleysi og und- irgefni hefur fælt áræðnari konur frá flokknum. Þar finnst því einfaldlega engin sem sker sig úr sem ótvírætt leiðtogaefni og ga:ti t.d. ógnað Friðriki Sophussyni í varafor- mannsstóli - jafnvel þó konur í flokknum telji eðlilegt að varaformaðurinn sé kona. Niðurstaðan verður því ein- faldlega sú að Friðrik er lang sterkasta konan í flokknum og því sjálíkjörinn í það emb- ætti. Garri.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.