Dagur - Tíminn - 17.09.1996, Blaðsíða 4
4 - Þriðjudagur 17. september 1996
|Dagxar-®ímmn
F R É T T I R
Vinnumarkaðurinn
Lýðskólinn
Miðstýring VSÍ
er tímaskekkja
Ari Skúlason, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir
að áhugi sé fyrir því innan
verkalýðshreyilngarinnar að
semja við fleiri aðila innan at-
vinnulífsins við gerð næstu
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
■J . 5 af 5 0 3.672.723
2.4„íd 638.730
3,4.t5 85 7.430
4. 3af5 2.516 580
Samtals: 2.602 6.402.283
Upplýsingar um vinningstðlur fást einnig í símsvara
568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og I textavarpi
á siðu 451.
kjarasamninga en einhverja þrjá
menn hjá VSÍ. Hann segir að
þetta sé einn möguleikinn til að
bæta kjör launafólks og í því
sambandi þurfa menn að komast
nær „uppsprettunni", sem ekki
er að flnna í höfuðstöðvum VSÍ
að Garðastræti 41. Semi dæmi
bendir framkvæmdastjóri ASÍ
m.a. á að geta atvinnulífsins til
að taka á sig launahækkanir hef-
ur ávallt miðast við stöðu flsk-
vinnslunnar, gengisþróun o.s.frv.
hjá samkeppnis- og útflutnings-
atvinnuvegum þótt bullandi upp-
gangur geti verið í öðr-
um atvinnugreinum.
Hann segir að þessi
hefðbundna viðmiðun
og njörvun við fisk-
vinnsluna geti skaðað
eðlilega starfsemi á
vinnumarkaðnum. Til
marks um hvað þetta
getur virkað „absúrd" í
þeirri uppsveiflu sem
verið hefur í efnahags-
lífinu, þá gæti staðan í
. fiskvinnslunni þýtt að
rekendur mundu fara
Ari Skúlason segir að ætli VSf
sér að fylgjast með tímanum þá
verður sambandið að skipta um
skoðun og hætta að halda sig við
gamlar miðstýringar-hugmyndir.
í því sambandi bendir hann á að
þessi miðstýring kjarasamninga
sé algjörlega á skjön við það sem
gengur og gerist hjá samtökum
atvinnurekenda í öllum nálægum
löndum þar sem menn vilja
dreifa þessu meira. Fram-
kvæmdastjóri ASÍ segir að fram-
kvæmdastjóri VSÍ skilji ekki mik-
ið ef hann telur að nýju lögin um
Ari Skúlsason
framkvæmdastjóri ASÍ
Einn möguleikinn til að
bœta kjör launafólks er
að semja við Jleiri aðila
innan atvinnulífsins.
Uppsprettuna fyrir
bœttum kjörum er ekki
að finna í höfuðstöðv-
um VSÍ.
atvinnu-
fram á
samdrátt í launum hjá verkafólki
í stað launahækkana við gerð
næstu kjarasamninga. Á það
mundi verkalýðshreyfingin að
sjálfsögðu aldrei fajlast, enda
slíkt alveg út úr öllum kortum.
stéttarfélög og vinnudeilur hvetji
ekki til að gerðir verði starfs-
greinasamningar. Hann segir að
lögin séu alveg hrein og klár að
það sé í verkahring einstakra
stéttarfélaga að gera svonefndar
viðræðuáætlanir. -grh
Sauðárkrókur
Veiddu tvö-
faldan kvóta
LEIKFÉLA6 AKUREYRAR
Sigrún
Astrós
frumsýning föstudaginn
27. sept. kl. 20.30.
2. sýning laugard. 28. sept.
kl. 20.30.
3. sýning föstud. 4. okt.
kí. 20.30.
4. sýning laugard. 5. okt.
------kl. 20.30.-----
Aðrar sýningar leikársins:
Dýrin í Hólsaskógi
frumsýning 19. október kl. 14.00.
Undir berum himni
frumsýning 28. desember kl. 20.30.
Kossar og kúlissur
frumsýning 23. janúar kl. 20.30.
Vefarinn mikli fró Kasmír
frumsýning 21. mars kl. 20.30.
Markúsarguðspjall
forsýningar á Kirkjulistaviku
22. og 24. apríl kl. 20.30.
MuniS kortasöluna okkar
VerS áskriftarkorta:
5. sýninga kort 5.850.
4 sýninga kort 5.040.
3 sýninga kort 4.050.
VerS frumsýningakorta:
5. sýninga kort 6.500.
4 sýninga kort 5.600.
3 sýninga kort 4.500.
Leikhúskortin eru nýiung sem
hentar vel klúbbum og fyrirtækjum.
KynniS ykkur kjörin.
MiSasalan er opin alla virka daga
kl. 13.00-17.00.
Sími í miSasölu: 462 1400.
Sumir leggja sig ekki
eftir ýsunni en aðrir
geta ekki veitt hana
vegna skorts á þorsk-
kvóta, segir Gísli Svan
Einarsson, útgerðar-
stjóri FISK
Gísli Svan Einarsson, út-
gerðarstjóri Fiskiðjunnar-
Skagfirðings hf. (FISK),
segir að togarar útgerðarinnar
hafi veitt 2.200 tonn af ýsu á sl.
fiskveiðiári en hafi aðeins haft
1.100 tonna ýsukvóta, svo segja
megi að sóknarmunstur þeirra
hafi verið töluvert frábrugðið
margra annarra útgerða. FISK
hafi leigt liðlega 1.200 tonn af
ýsukvóta af öðrum og raunar
nokkuð meira til að geyma
fram á nýbyrjað kvótaár. Gísli
Svan segir að FISK hafí lagt sig
eftir ýsunni og hana hafi víða
verið að fá þó um árstíða-
bundna veiði hafl verið að
ræða, en ef útgerðirnar eigi
ekki líka þorskkvóta með geti
orðið erfitt að ná „hreinum"
ýsuholum, nánast ómögulegt.
Spurningin sé um betra heild-
arskipulag á veiðunum allt fisk-
veiðiárið. Verð á ýsukvóta er
mjög lágt í ljósi þeirra stað-
reynda hversu lítil eftirspurnin
er, eða 5 til 7 kr/kg, meðan leig-
an á þorskkóta fer í 95 kr/kg
þrátt fyrir að sama verð fæst
fyrir þorsk og ýsu á erlendum
mörkuðum.
„Hluti af skýringunni á því af
hverju ekki veiðist meiri ýsa er
sá að kvótinn er einfaldlega of
mikill, menn leggja sig ekki eft-
ir henni, eða það að sumir geta
ekki veitt hana vegna skorts á
t.d. þorskkvóta vegna þess að
alltaf fæst þorskur með. Það er
áreiðanlega nóg til af ýsu í haf-
inu til að réttlæta það magn
sem leyft er að veiða, þ.e. ekki
er um ofveiði að ræða. Það er
25% aukning á þorskkvóta á
þessu fiskveiðiári á meðan ýs-
an, ufsinn og grálúðan er skert
svo við hjá Fiskiðjunni-Skag-
firðingi horfum fram á heildar-
skerðingu upp á 600 tonn. Við
fáum 560 tonnum meira af
þorski, 250 tonnum minna af
ýsu, .670 tonnum minna af ufsa
og 250 tonnum minna af grá-
lúðu,“ sagði Gísli Svan Einars-
son.
Á fiskveiðiárinu 1996/1997
er heildarýsukvótinn skertur
um 25% milli ára, er nú 45 þús-
und tonn og ætti það magn að
nást skv. aflatölum sl. fiskveiði-
árs. Rannsóknir Hafrannsókna-
stofnunar benda til að stóru
árgangarnir frá 1989 og 1990
muni senn hverfa úr stofninum
en stór árgangur frá 1995 bæt-
ist í veiðistofninn 1998. GG
Frá útskrift í Lýðskólanum í vor.
RQd eða borg vilja ekki
borga rekstur Lýðskólans
Framtíðarhorfur Lýðskól-
ans sem rekinn var fyrir
20 unglinga í Norræna
Húsinu á síðustu vorönn virðast
ekki bjartar.
Skólastjórinn, Oddur Alberts-
son, segist í haust hafa gert til-
raunir til að fá menntamála-
ráðuneytið, síðan félagsmála-
ráðuneytið og Reykjvíkurborg til
að nýta sér áhugann fyrir þessu
skólamódeli sem kynnt var s.l.
vor og gafst afskaplega vel að
allra mati. En enginn hafí lofað
neinum peningum í reksturinn.
„Við erum því líklega í þeim
sporum að þurfa að loka sjopp-
unni, nema að eitthvað gerist á
næsta borgarráðsfundi, þar sem
við leggjum fram okkar síðustu
tilraun í bréfi“.
Oddur segir félagsmálastjóra
borgarinnar, Láru Björnssóttur,
með málið á sínu borði. „Sam-
kvæmt nýrri skýrslu Félags-
málastofnunar eru á hennar
borði um 400 tilfelli sem mundu
skilgreinast til þess hóps sem ég
var að sinna síðasta vor. Svo
vera kann að hún vilji nota sér
módelið fyrir skjólstæðinga sína
— sem í rauninni eru á svipuðu
róli og þeir sem sátu í Lýðskól-
anum s.l. vor.“
Samkvæmt því sem hann hafi
heyrt frá menntamálaráðuneyt-
inu segir Oddur vitað mál að
það séu á milli 500 og 1.000
unglingar sem dottnir eru út úr
skóla og jafnframt án atvinnu.
„En í ráðuneytinu gera menn
ekkert í þessu að fyrra bragði.
Þeir eru ekki með neitt leitar-
starf eða útideild svo það virðist
enginn taka ábyrgð á þessum
hópi“.
Kostnað við rekstur lýðskóla
fyrir 20 nemendur segir Oddur
um 5 milljónir á hverja önn
(250.000 kr. á nemanda). Um
helmingur fjárins sé framlag
Norræna Hússins og vestnor-
rænn styrkur. Þannig að tæpar
3 milljónir þurfi til að halda
áfram skólarekstrinum á næstu
önn. Kennara sagði Oddur 3
auk náms- og félagsráðgjafa.
Framtíðar draumaplan Lýð-
skólafélagsins segir Oddur það
að færa út kvíarnar og búa til
framtíðarskóla í öðru húsnæði.
„Við leitum því að viðurkenn-
ingu á þessari hugmynd og
mönnum sem vilja bakka okkur
upp og geta síðar í framtíðinni
verið stoltir af því að í Reykjavík
sé rekinn einn skóli í viðbót fyr-
ir þann stóra hóp sem ekki hef-
ur fengið að njóta sín í því
skólakerfi sem boðið er upp á —
nefnilega lýðskóli með nám-
skeið fyrir ýmsa markhópa en
Oddur Albertsson.
ekki bara atvinnulausa ung-
linga.
Dalvík
Bæjarmála-
punktar
Bæjartæknifræðingur gerði
á fundi bæjarráðs 1. ágúst
sl. grein fyrir fundi með
fulltrúum Skógræktarfélags
Eyjafjarðar um að gera Ilánefs-
staðareit að útivistarsvæði. í
drögum að samningi kemur
fram að reiturinn verður útivist-
arsvæði í umsjá Skógræktarfé-
lagsins en kostnaður greiðist af
sveitarfélögum. Bæjarráð telur
verkefnið áhugavert en engan
veginn tímabært að ráðast f
framkvæmdir af hálfu Dalvíkur-
bæjar.
• Félagsmálaráð fjallaði um um-
sðkn frá Friðriki Gígja um vín-
veitingaleyfi vegna opnunar
kaffihúss og telur ástæðu til að
vekja athygli bæjaryfirvalda á
fjölda veitingastaða á Dalvík og
spurningin sé hvort ástæða sé til
að takmarka Ijölda þeirra. Fé-
lagsmálaráð samþykkir umsókn-
ina en leggur til að um tfma-
bundna leyfisveitingu verði að
ræða.
• Skipulagsnefnd lagði til á
fundi 5. september sl. að leitað
verði umsagnar stjórnar Hafna-
samlags Eyjafjarðar á álitsgerð
Finns Birgissonar arkitekts um
skipulag á hafnarsvæði. Jafn-
framt leggur skipulagsnefnd til
að gert verði deiluskipulag af
hafnarsvæðinu. Jafnframt leggur
l-innur Birgisson til í álitsgerð að
ekki verði leyfð bygging íbúðar-
húsa austan Svarfaðarbrautar.
GG