Dagur - Tíminn - 20.09.1996, Síða 2

Dagur - Tíminn - 20.09.1996, Síða 2
14 - Föstuudagur 20. september 1996 / ^Dagitr-Œhmmi HELGARLÍFIÐ í LANDINU Uppskrift að góðri helgi - hvemig viltu hafa helgina? Þorsteinn Kragh lifir og hrœrist í poppheiminum, hefur atvinnu af umboðs- mennsku fyrir hljómssveit- ir og tónleikahaldi. Hann er með eigið fyrirtœki á Klapparstíg í Reykjavík, sem heitir Lotion promoti- on. S g vinn alltaf meira eða minna um helgar, það er mest að ger- ast um helgar en þegar ég á frí þá finnst mér best að stinga af með dömimni út úr bænum, þangað sem enginn veit.“ Þorsteinn „filar“ það vel fara út á land en gerir sér að góðu Heiðmörk- ina ef hann kemst ekki lengra. „Toppurinn er að komast út úr bænum, fara í einhvern bústað, leggjast í fullkomna og heilaga leti og lesa góðar bækur.“ Hann tekur jafnan staflann með sér af allskonar bókum, er núna t.d. að lesa Stríð og Frið eftir Tolstoj. Aðspurður segist hann ekki vilja fara í mjög frumstæðan bústað en að sjónvarp og steríógræjur megi alveg missa sín, hann vilji frekar hlusta á kyrrðina og fugla- söng. Hins vegar sé hann það mikið nautnadýr að haim sætti sig ekki við annað en heitt rennandi vatn og góðar eldunarað- stæður svo að hægt sé að matreiða góðan ítalskan mat. „Það verður að vera nóg af góðu hráefni til að búa til ekta ítalska rétti og að sjálfsögðu gott rauðvín, t.d. gianti classico eða bella vista." Stinga af með dömunni út úr bænum, þangað sem eng- inn veit... en hafa nóg af heitu rennandi vatni og öðrum lúxus. Flosi Jónsson er kraftlyft- ingarmaður og gullsmiður. Hann er með verkstœði og verslun, Gullsmíðastofuna Skart í Hafnarstrœti áAk- ureyri. M ér þykir ákaflega notalegt að vera heima hjá mér, borða góðan mat og hafa það með fjölskyld- •huggulegt unni.“ Um helgar byrjar Flosi dag- inn, líkt og aðra daga á því að fara í sund. Þar syndir hann 200 metrana og ræðir við félag- ana um daginn og --- veginn, jafnt heimsmáhn sem innanbæjarmál. Börnin sofnuð, búið að redda pössun, leiðast út með frúnni og taka göngutúr um bæinn. Flosi segist vera hættur að æfa lyftingar um helgar, hann sé raunar búin að saxa þær niður í þrjú kvöld í viku í stað 5, „maður þarf ekki meira þegar maður er orðin svona gamall." Á sunnudögum tekur hann oft lau- fléttan bíltúr ásamt íjölskyldunni, þ.e. frúnni og tveimur börnum, 4ra og 6 ára. Flosi segir það til- -.... ......... - heyra að gera dagamun í mat um helgar. Lambið standi alltaf fyrir sínu, hvort heldur úr ofninum eða af grillinu en hann er að eigin sögn mjög duglegur að grilla. Eftir kvöldmat finnst honum voða notalegt að taka göngutúr um bæinn með frúnni, þ.e. þegar þau fá pössun. Bára Sigurjónsdóttir hefur selt kvenfatnað í áraraðir, er með verslun sína Hjá Báru á Hverfisgötu í Reykjavík. Jafnframt sér hún um rekstur Bíóbarsins á Klapparstíg. Um helgar vil ég helst vera heima og njóta fullkominnar hvfldar, hlusta á óperur og aðra klass- íska tónlist, lesa bækin-, skáld- sögur eða ævisögur, hitta íjölskylduna og gera huggulegt í kringum mig.“ Bára á tvo syni og fimm barnabörn, þannig að þegar allir koma í heimsókn þá er hún með níu til ti'u manns hjá sér. Fjölskyldan hittist ekki á ákveðnum tímum en þó er alltaf vinsælt að koma í sunnudagssteik öðru hverju og þá stendur hefðbundið lambalæri, að hætti mömmu, alltaf fyrir sínu. Bára segir stressið fyrir helgarnar mikið, það þarf að kaupa inn fyrir Bíó- barinn og standa í Qármálaútréttingum. „Sem betur fer er stutt á milli verslunar- innar og barsins, þannig að ég get hlaupið á milli.“ Eftir öll hlaupin á föstudögum þá er Báru kærkomin hvfld í helgunum. Hún hefur aldrei stundað ákveðið félags- líf eða annan reglulegan félagsskap enda umgengst hún það marga í gegnum starf- ið, „ég fæ nóg af slíku í vinnunni og vil þess vegna hafa helgar og annan frítíma lausan.“ Loka sig af, lesa góða bók og hlusta á fallega tónlist. Drífa Hjartardóttir er for- seti Kvenfélagasambands íslands og bóndi á Keldum í Rangárvöllum, þar sem hún, ásamt eiginmanni sínum, er með kúabúskap. Mér þykir náttúrulega alltaf best að fjölskyldan sé saman um helgar. Ég er mikið í félags- málum en ég reyni að hafa laugardagana og sunnudagana lausa fyrir Qölskylduna." Drífa og maður hennar eiga þrjá syni, sá elsti er fluttur að heiman en hinir tveir eru í námi á Laugarvatni og í Reykjavík. „Það eru allir svo uppteknir á virkum dögum að okkur finnst það skipta miklu máli að geta verið saman um helgar. Við höfum haldið þeim gamla sið að vera með sunnudagsmat, þá gerum við vel við okk- ur í mat og sitjum lengi yfir borðum og spjöllum.“ Fjölskyldan horfir gjarnan saman á sjónvarpið um helgar og sú hefð hefur skapast að poppa og borða popp- korn með sjónvarpinu á föstudagskvöld- um. Það er farið Memma á fætur um helgar, rétt eins og aðra daga, til að mjólka kýrnar. Drífa segir kýr vera viðkvæmar fyrir ókunnugum þess vegna fari hún og bóndi hennar ekki í burtu nema synir þeirra geti tekið að sér mjaltirnar. „Við megum ekki við að kýrnar missi niður nyt þar sem við höfum okkar lifibrauð af mjólkurbú- skapnum.“ Það verður ekki rólegt helgarlífið hjá fjölskyldunni á Keldum nú um helgina. Á morgun er nefnilega réttað í Reiðavatns- réttum og þangað fara allir sem komast, sveitungar, ættingjar þeirra og brottflutt- ir. „Það verður mikill mannfagnaður og ball fram eftir nóttu.“ Njóta samvista við fjölskyld- una, fara í bfltúr og fá sér ís. Borða saman sunnudagsmál- tíð og horfa á góða mynd í sjónvarpinu með fulla skál af poppi.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.