Dagur - Tíminn - 20.09.1996, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn - 20.09.1996, Blaðsíða 7
jBagur-'CEmúmt Föstudagur 20. september 1996 -19 MENNING O G LISTIR Hólar, nýtt bók- námshús Mennta- skólans á Akureyri, verður tekið í notk- un á sunnudag. Húspláss skólans tvöfaldast og verður það nú í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru. Miðrými Hóla er alls 600 m! og verður það m.a. nýtt sem samkomusalur skólans. Erum himmglöð með Höla Við erum himinglöð með Hóla,“ segir Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Nýtt og veglegt bóknámshús MA verður tekið í notkun á sunnu- dag og hefur það hlotið nafnið Hólar. Með því er skírskotað til hins forna Hólaskóla í Hjalta- dal, sem skólinn rekur forsögu sína aftur til. Nafngiftir með sögu- legri skírskotun Byggingaframkvæmdir við Hóla hafa staðið yfír í rösklega tvö ár og að sögn Tryggva Gíslasonar bætir húsið úr brýnni þörf. Kennslurými um það bil tvöfaldast; fer úr 2.700 m2 í um 5.400 m2 - og mun fyrst nú fullnægja þeim viðmiðunar- reglum sem gerðar eru um fer- metrafjölda á hvern nemanda. Einsog síðustu vetur verða um 600 nemendur við MA - og verður sá nemendafjöldi óbreyttur áfram. Hólaskóli hinn forni var stofnsettur árið 1106 af Jóni Ögmundssyni biskupi, og er annar af forverum MA. Hinn er Möðruvallaskóli í Hörgárdal og eitt þriggja bóknámshúsa MA heitir einmitt Möðruvellir. Þess- ar nafngiftir eru í samræmi við orð Tryggva Gíslasonar; að í Menntaskólanum á Akureyri vilji fólk tengja saman bæði gamla og nýja tímann. Einfalt og stílhreint Fyrsta skóflustungan að Hólum var tekin 17. júní 1994. Arki- tektar að byggingunni eru Ak- ureyringarnir Gísli Kristinsson og Páll Tómasson. Aðalverktaki Iðnaðarmenn voru í gær að leggja síðustu hönd á framkvæmdir við Hóla, en húsið verður formlega tekið í notkun næstkomandi sunnudag. ávarp. Tryggvi Gíslason flytur setningarræðu sína sem skóla- meistari og séra Bolli Gústavs- son vígslubiskup blessar húsið. Að athöfn lokinni verður gest- um boðið að skoða Hóla og fræðast um byggingasöguna. -sbs. við þessa framkvæmd var SS- byggir, en íjölmargir aðrir eiga hlut að máli í sérhæfðum verk- þáttum. Heildarbyggingakostn- aður er um 300 millj. kr. Segir Tryggvi Gíslason að það sé vel sloppið og kostnaður per. fer- metra sé í engu óhófi. Það sé í samræmi við að byggingin sé; „...einföld, stflhrein og með engum íburði," einsog hann orðar það. Hólar eru 2.700 fermetrar að flatarmáli og tengigangur er yfir í aðalbyggingu MA. Alls níu 60 m2 kennslustofur eru í Hól- um, 300 m2 bókasafn, þar sem verða fullkomnar margmiðlun- artölvur og miðrými byggingar- innar er 600 m2. Þá verður í skólanum góð aðstaða fyrir kennara - og fyrst nú fær hver og einn þeirra sérstaka starfs- aðstöðu. Skólasetning og vígsluathöfn Skólasetningin á sunnudag - og þá um leið vígsla Hóla - hefst kl. 14:00. Knútur Otterstedt, formaður bygginganefndar, af- hendir Birni Bjarnasyni, ráð- herra menntamála, húsið góða - og ráðherra flytur síðan Maren Eik Vignisdóttir er nemi við Menntaskóiann á Akureyri og hefur einnig unnið við byggingaframkvæmdirn ar. Hér sést hún að störfum. Tengibygging er milli Hóla og aðalbyggingar Menntaskólans á Akureyri og hér sést eftir langhala þeim. Myndir: gs. HRÍS/VI.UNDUR - lyrir þig! Qtíýr&ra en þíg grtmar Tilboð Þvottaoffli i k|. kr- Í00 pb. Oxíord sukkuláúikex kr. 100 pk.. 1/1 *>s kr. 100 100 á100

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.