Dagur - Tíminn - 20.09.1996, Síða 10
22 - Föstudagur 20. september 1996 jDitgur-X&nrám
Mynd: GS
Skólasetning MA
Menntaskólinn á Akureyri verður settur í 117. sinn á sunnudaginn
kl. 14. Við þetta tækifæri verður nýtt og veglegt skólahús formlega
afhent. Húsið hefur hlotið nafnið Hólar enda rekur Menntaskólinn
sögu sína til hins forna Hólaskóla. Skólasetningin verður á sal nýja
hússins og mun Knútur Otterstedt, formaður bygginganefndar, af-
henda Birni Bjarnasyn.i menntamálaráðherra, nýja húsið.
Að lokinni skólasetningu verður gestum boðið upp á veitingar og
þeim einnig gefinn kostur á að skoða sig um á Hólum og fræðast
nánar um byggingasögu hússins.
kastalanum 24. september, sem
bera nafnið „Bít-slag 96“.
Trommuleikur verður í aðal-
hlutverki.
Laugardagskaffi
Kvennalistans
Á morgun, 21. sept., heldur
Kvennalistinn fyrsta Laugar-
dagskaffi vetrarins að Austur-
stræti 16, 3. hæð (gengið inn frá
Pósthússtræti). Yfirskrift fund-
arins er „Börn, klám og kyn-
ferðisofbeldi" og mun Kristín
Jónasdóttir segja frá nýlokinni
ráðstefnu um það efni í Svíþjóð.
Laugardagskaffi eru öllum opin
og þeir sem láta sig velferð og
réttindi barna einhverju varða
ættu ekki að láta fundinn fram-
hjá sér fara.
Ólöf Oddgeirsdóttir sýn-
ir í Gallerí Horninu
Á morgun, laugardag, kl. 17
opnar Ólöf Oddgeirsdóttir sýn-
ingu á olíumálverkum í Galleríi
Horninu að Hafnarstræti 15.
Sýningin ber yfirskriftina „Að
nefna til sögunnar“. Sýning Ól-
afar stendur til 9. október og
verður opin alla daga kl. 11-
23.30. Á milli kl. 14 og 18 er
gengið um sérinngang gallerís-
ins, en á öðrum tímum í gegn-
um veitingahúsið Hornið.
Þrjár nýjar sýningar
í Nýlistasafninu
Á morgun, laugardag, kl. 16
opna Ólöf Nordal og Gunnar
Karlsson sýningar í Nýlistasafn-
inu, Vatnsstíg 3b í Reykjavík.
Ólöf sýnir gifsskúlptúra í
neðri sölum safnsins og á efri
hæð málverk unnin úr sandi.
Gunnar sýnir málverk á efstu
hæðinni, unnin á þessu ári.
Pýski listhópurinn Kunstcoop
setur upp internetverk í Setu-
stofunni og er yfirskrift þess
„ARTWARPEACE sculpture
plan“. Verk þeirra er einnig að-
gengilegt gegnum netið á
heimasíðunni: http:// www.foe-
bud.org/kcoopawp/
lisland/isla.thm
Sýningarnar eru opnar dag-
lega frá kl. 14-18 og þeim Iýkur
sunnudaginn 6. október.
St. Matteus kórinn
St. Matteus kórinn frá Stokk-
hólmi heimsækir ísland og
heldur hér þrenna tónleika, í
Skálholti laugardaginn 21.
september, Akureyrakirkju
mánudaginn 23. september og í
Digraneskirkju þriðjudaginn
24. september. Tónleikarnir
heflast kl. 20:30.
Módei á Kaffi
Karólínu
Á Kaífi Karólínu er til sýnis
ijögur módelmálverk eftir Guð-
mund Ármann. Mannslíkaminn
hefur ætið verið miklvægt yrkis-
efni myndlistarmanna, segir í
fr éttatilkynningu.
Flóamarkaður hjá
Hjálpræðishernum
Líkt og aðra föstudaga verður
fióamarkaður Hjálpræðishers-
ins við Hvannavelli opinn í dag
kl. 10-17.
Morgunfundur
jafnaðarmanna
Á laugardagsmorguninn kl.
10:00 ætla jafnaðarmenn að
hittast í Deiglunni og rabba um
pólitíska stöðu.
Skákfélag Akureyrar
Skákfélag Akureyrar heldur at-
skákmót í dag og á morgun til
að minnast 10 ára afmælis
Skákheimilisins. Mótið hefst kl.
20:00 í kvöld.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist að
Fannborg 8 (Gjábakka) í kvöld,
föstudag, kl. 20.30. Húsið öllum
opið.
Hana-nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga
Hana-nú í Kópavogi er á morg-
un. Lagt af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað
molakaffi.
Risaeðlur
Sýningin „Risaeðlur- leit að
horfnum heimi“, verður opnuð í
dag kl. 18. Sýningin er haldin á
1. hæð í tollhús-
inu í Reykjavík
(húsnæði
Kolaportsins)
og er
gengið inn
um sér-
inngang
frá Hafn-
arbakk-
anum.
ingin
stendur til 25. októbers og er
opinn öllum frá klukkan 16:00-
22:00 en um helgar frá 10:00-
22:00. Sýnd verða hreyfilíkön af
forsögulegum risaeðlum sem
sýningarfyrirtækið Óravíddir
ehf. hefur fengið hingað til
lands frá bandaríska fyrirtæk-
inu Dinamation International
Inc.
Styrktarfélags-
tónleikar
Á laugardaginn verða styrktar-
félagstónleikar íslensku óper-
unnar kl. 15:30 en þar koma
þær Lia Frey-Rabine sópran-
söngkona og Selma Guðmunds-
dóttir fram. Á efnisskrá er tón-
list eftir Richard Wagner auk
þess sem ílutt verða fimm söng-
lög eftir Giuseppi Verdi og fimm
eftir Béla Bartok.
Kvennalistinn
Á laugardaginn heldur Kvenna-
listinn fyrsta laugardagskaffi
vetrarins að Austurstræti 16, 3.
hæð. Yfirskrift fundarins er
Börn, klám og kynferðisof-
beldi“, og mun Kristín Jónas-
dóttir segja frá nýlokinni ráð-
stefnu í Svíþjóð.
Samspil og Rúrek
Hljóðfæraverslunin Samspil í
samvinnu við Rúrek jasshátíð-
ina mun halda tónleika í Loft-
Mynd: GS
Hjóladagur fjölskyldunnar
*
Asunnudaginn er jafndægur á hausti og þá standa landssam-
tökin íþróttir fyrir alla fyrir hjóladegi íjölskyldunnar. Er fólk
kvatt til þess að nýta sér hjóla- og göngustíga borgarinnar
og fólk getur byrjað að hjóla hvenær sem er á milli 11:00-14:00.
Uppl. s-5813377.
JPk TL jr einhornsritara finnst hvimleitt þegar
\/| pastaréttir sem fást í búðum eru
r J. ▼ ióætir vegna sósu- og majóneslöðurs.
Bakkarnir litlu sem Matur og mörk eru með eru svo
sannarlega þessu marki brenndir. Væri ekki ráð að
hafa sósuna sér?
fH-J
ngir sjálfstæðismenn vilja selja alla
skapaða hluti...
Þekkja, spara, má ei mergð,
manneskjan skal vera,
hver annarrar hrís og sverð,
hún er bara til þess gerð.
...Þeir hljóta að hafa ort þetta, græðgin er svo mikil.
Snúumst til
varaar
Sá sem þetta skrifar sat
nýlega aðalfund Samtaka
sveitarfélaga á Norður-
landi vestra. Ýmis málefni
héraðsins voru þar rædd
og kom m.a. fram að hér-
aðshöfðingar Norðlendinga
vestra telja að frekari at-
vinnuuppbygging við Faxa-
flóa þýði byggðaröskun í
dreifbýlinu almennt. Því sé
fullt tilefni til að snúast til
varnar og sóknar í allar
áttir. Voru á fundinum
þjóðþrifamál í atvinnumál-
um nefnd til að standa
stóriðjuverum á sporði.
Efling landbúnaðar, iðnað-
ar og fiskvinnslu var nefnd
- sem handverksiðnaður.
Góðra gjalda vert
„Þetta er allt góðra gjalda
vert og vissulega eru hug-
myndir margar og fjöl-
breytilegar. En oft skortir á
að þær séu ígrundaðar eða
hugsaðar til enda - þannig
að þeim megi hrinda í
framkvæmd,“ sagði Jón
Magnússon forstöðumaður
Byggðastofnunar á Sauðár-
króki á þessum fundi.
Sagði hann ennfremur að
brýnt væri að sveitarstjórn-
ir mörkuðu sér stefnu með
hvaða hætti standa skyldi
að atvinnuuppbyggingu á
þeirra vegum.
Byggöastefnan er
vandamál
Þegar sveitarstjórnarmenn
á Austurlandi komu saman
nýlega sagði Trausti Vals-
son arkitekt að eitt stærsta
vandamál dreifbýlisins á
íslandi fælist í orðinu
byggðastefna. Það ofnotaða
orð stuðlaði að úlfúð milli
borgar og byggða og
skemmdi fyrir. Nauðsyn
væri að gefa spilin uppá
nýtt. Ennfremur sagði
Trausti að fráleitt væri að
vinna gegn byggðaröskun,
því eðlilegasti hlutur í
heimi væri að fólk veldi sér
búsetu eftir aðstæðum og
kröfum tímans.
Að tálga tréhesta
Svo segist pistlahöfundi
dagsins að margir vilji í
laumi kveða Lilju Trausta
Valssonar. Það er ekkert
eðlilegra en að fólk velji
sér búsetu eftir aðstæðum
og kröfum tímans og því er
venjubundið málæði um
byggðaröskun heldur hjá-
róma. Það er jafnframt
augljóst að fá meðul lands-
byggðar standa ofurkrafti
höfuðborgar á sporði,
hvort heldur er litið til at-
vinnu- eða félagslegra yfir-
burða hennar. Að minnsta
kosti er handverksiðnaður
kvenna í dreifbýli léttvæg-
ur á metum samanborið
við stóriðjuframkvæmdir.
Það bjargar ekki lands-
byggðinni að tálga út tré-
hesta.
Umsjón:
Sigurður Bogi Sœvarsson.