Dagur - Tíminn - 20.09.1996, Page 11
|DagurJ9lTOmttT
Föstudagur 20. september 1996 - 23
FÍNA FRÆGA FÓLKIÐ
Nýgift gella!
Naomi
Campbell
gifti sig í laumi
Ofurfyrirsætan Naomi
Campbell gifti sig í laumi
fyrr í þessum mánuði ef
marka má fréttir í breskum
blöðum. Sá heppni heitir Luca
Orlandi og er moldríkur ítalsk-
ur tískuhönnuður. Naomi, 26
ára og Luca, 32 ára, hafa verið
saman í tvo mánuði eða síðan
hún hætti með landa hans Gi-
anni Nunnari. Naomi sagði fyrst
frá leyndarmálinu fyrir tveim-
ur vikum þegar fyrirsætan Eva
Iferzigova og trymbillinn Tico
Torres gengu í það heilaga en
hún bað vinkonur sínar að
þegja yfir tíðindunum þar sem
hún og Luca hefðu ekki sagt
foreldrum sínum frá gifting-
unni. Vinur hennar A.J. Benza
gat þó ekki þagað. „Naomi
sagði mér að nú væri hún gift
kona og þyrfti að haga sér vel
og fara heim í faðm eigin-
manns síns,“ segir Benza. Sam-
kvæmt fréttum þá gengu þau
upp að altarinu á Mauritius.
Naomi var eitt sinn trúlofuð
Adam Clayton úr U2 en þau
slitu trúlofuninni fyrir tveimur
árum.
Hnefaleikakappinn Mike
Tyson gæti þurft að dúsa
fangelsi á ný eftir að
hann horfði aðgerðarlaus á fé-
laga sína berja starfsmann í
bílageymslu. Fréttir herma að
boxarinn ógurlegi hafi setið
glottandi í eðalvagni sínum á
meðan menn úr fylgdarliði
hans lumbruðu á bílavörslu-
manninum vegna rispu á BMW
bifreið sem einn félaga Tyson
á. Vegfarandi sem varð vitni að
atburðinum segir svo frá: „Peir
börðu og spörkuðu í hann
miskunnarlaust. Tyson var með
bjánalegt bros á vör, rétt eins
og hann væri hreykinn af félög-
um sínum.“ Fulltrúi lögreglu
segir að aðgerðarleysi boxarans
sé hreint og klárt brot á skil-
orði hans. Ef skilorðsfulltrúi
hans er þeim sammála þarf Ty-
son sennilega að klára sjö ára
dóm sinn bak við lás og slá en
hann hlaut þann dóm fyrir að
nauðga fegurðardrottningunni
Desiree Washington.
Tyson í vanda
Maðurinn með járnhnefann, Mike Tyson, er enn og aftur búinn að koma
sér í bobba.
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell er gengin út.
Harraleik-
urinn heldur
áfram
Gamla goðið Marlon
Brando hefur gengið í
gegnum ýmislegt og nú
er enn einn harmleikurinn
kominn upp í íjölskyldu leikar-
ans. Sonur hans, Christian, hef-
ur setið í fangelsi undanfarin
ár fyrir morð á elskhuga systur
sinnar, Cheyenne, fyrir nokkr-
um árum. Cheyenne framdi
sjálfsmorð á síðasta ári en hún
hefur þjáðst af þunglyndi síðan
ódæðið átti sér stað. Nú er það
kærasta Christians sem hefur
reynt að fremja sjálfsmorð. Fyr-
irsætan Christine Chapman, 34
ára, gleypti lófafylli af pillum á
dögunum en hún komst undir
læknishendur í tæka tíð og lífi
hennar var bjargað. Kunnugir
segja að Chapman hafi reynt að
svipta sig lífi vegna þess að hún
var búin að fá nóg af brjálæðis-
köstum kærastans. Christian
hefur nú látið sig hverfa og
ekkert til hans spurst. í nokkra
daga en Chapman hefur verið
útskrifuð af spítalanum.
Teitur Þorkelsson
skrifar
Frumkvæði
rátt fyrir breytt hlutverk
kynjanna eimir enn eftir
af þeirri hefðbundnu
skoðun að konur eigi ekki að
eiga frumkvæðið. Víst á ijöldinn
allur af karlmönnum líka erfitt
með að eiga frumkvæðið en
þeir þurfa þó allavega ekki að
yfirstíga hefðina því samkvæmt
henni á frumkvæðið að vera
þeirra.
Mannfólkið er alltaf að burð-
ast með hugmyndir um að
svona eigi ekki að gera og ótta
við hvað hann eða hún haldi
um þetta og hitt. En sannleikur-
inn er sá að aukið frumkvæði,
bæði að kynlífi og í kynlífi, að
gera það sem mann langar
virkilega til hefur undraverð
áhrif. Það á við bæði í ástarlíf-
inu og á dansgólfinu að best er
að frumkvæðið komi jöfnum
höndum frá báðum aðilum. í
stað þess að bíða eftir því að
einhver bjóði manni upp í dans
velur maður sjálfur sinn dans-
félaga og lagið sem dansa á við,
allt eins og maður vill hafa það.
Ef þú veist hvað það er sem
þú vilt og þorir að segja hvað
það er, fá þér það sem þig lang-
ar í, lyftir það kynlífinu upp á
æðra stig. Elskendur hljóta allt-
af að vilja leysa úr læðingi
leyndustu langanir hvors ann-
ars og njóta þeirra saman. Því
eru yfirgnæfandi líkur á því að
það veki ómælda hrifningu hins
aðilans ef þú gerir einmitt það
sem þig hefur alltaf langað til
að gera.
Stórstjarnan Marlon Brando stóð með Christian syni sínum þegar hann
var dæmdur fyrir morð. Nú er hann laus úr haldi og enn sami vandræða-
gemsinn.
Atvmna ■ AtvttHnt Mi/inna
Prentsmiðir!
Dagsprent hf. óskar eftir að ráða prentsmið í um-
brot.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu í Quark-
XPress.
Vaktavinna.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og prentsmiðju-
stjóri í síma 462 2422.
Starfskraftur óskast
Reglusamur og iðinn starfsmaður óskast f texta-
vinnslu og til afgreiðslu- og sendistarfa.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu blaðsins, Strandgötu
31, Akureyri, merkt „Textavinnsla" og þar eru veittar all-
ar nauðsynlegar upplýsingar.