Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Qupperneq 3
,íDctgur-(Etmmn
Þriðjudagur 24. september 1996 - 3
F R É T T I R
Stöð 3
Dæmið gekk ekki upp
Forráðamönnum Stöðv-
ar 3 tókst ekki það ætl-
unarverk sitt að safna
300 miljónum króna í
hlutafé fyrir framhalds-
aðalfundinn sem hald-
inn var í gær. Af þeim
sökum var ekki kjörinn
ný stjórn eins og stefnt
hafði verið að. Hinsveg-
ar kláruðu menn aðal-
fundinn eins og til stóð.
að tekur bara lengri tíma
fyrir suma að vinna úr
sínum málurn," segir
Gunnar M. Hansson stjórnar-
formaður Stöðvar 3 aðspurður
um ástæður þessa. Hann segir
allt opið varðandi nýja hluthafa
og telur allt eins líklegt að
menn muni leita að nýjum íjár-
festum á öðrum miðum en
menn hafa verið á. Hann segir
að næstu dagar verði nýttir til
hins ítrasta til að klára dæmið
og í framhaldi af því verða
gerðar þær breytingar sem
taldar eru nauðsynlegar um
leið og nýir hluthafar koma inn.
Hann vill ekki gefa upp hversu
mikið vantar uppá 300 miljón
króna hlutafjársöfnunina að
öðru leyti en því að það sem á
vantar er aðeins „brot af heild-
arupphæðinni."
Stjórnarformaðurinn sagði
að það hefði ekkert
komið upp sem gefur
tilefni til að ætla að
hugsanlegir hluthafar
hefðu einhverja van-
trú á því að fjárfesta í
sjónvarpsstöðinni.
Hann segir að þegar
menn eru búnir að
vinna sína heima-
vinnu, þá verður boð-
að til hlutahafafundar
hjá Stöð 3. -grh
GunnarM. Hansson
stjórnarformaður Stöðvar 3
„ Vil ekki gefa upp
hversu mikið vantar
uppá 300 miljón
króna hlutafjársöfn-
unina
„Ljótt mál“
Benóný Ásgrímsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, segir að
þeir sem frömdu skemmdarverkið á Ijósabúnaði við þyrlupallinn utan við
Sjúkrahús Reykjavíkur um helgina, ættu að gera sér grein fyrir því að pall-
urinn hafi bjargað mannslífum og að ekki sé hægt að lenda þyrlunni af ör-
yggisástæðum fyrr en Ijósabúnaðurinn hefur verið lagfærður.
„Ljótt mál, maður er alveg gáttaður á þessu. Þetta hefur áður verið gert
og þá gátum við ekki lent fyrr en búið var að gera við. Það stendur til að
setja upp eftirlits- og öryggiskerfi fyrir framan spítalann til að reyna að
sporna við skemmdarverkum af þessu tagi, en það er sárt til þess að vita
að menn þurfi að leggja út í slíkan kostnað fyrir jafn sjálfsagðan hlut og
að fá að hafa öryggisljós í friði,“ sagði Benóný. -BÞ/Mynd: Gva
Verkalýðsmál
Sameiníng samtaka
launafólks ekki útilokuð
Ögmundur Jónasson
formaður BSRB og þingmaður AB
og óháðra
Nái verkalýðshreyjing-
in saman um slefnu í
atvinnu-, skatta- og
velferðarmálum mun
það hafa mjög mikil
áhrif á alla stjórn-
málaþróun í landinu.
Forystumenn í Alþýðu-
sambandi íslands, Banda-
lagi starfsmanna ríkis og
bæja, Bandalagi háskóla-
manna og Kennarasam-
bands íslands telja mikil-
vægt að efla og stuðla að
áframhaldandi samvinnu
þessara samtaka launa-
fólks og útiloka ekki sam-
einingu þeirra síðar meir.
Þetta kemur m.a. fram í
BSRB-tíðindum.
• •
gmundur Jónasson, for-
maður BSRB, segir að
það sem verið sé að ræða
á þessu stigi máls sé m.a. um
þá vinnu sem unnin er á vegum
þessara samtaka, hin ýmsu
tæki sem einstök samtök hafa
til ráðstöfunar og umræður og
vettvang þar sem hugsanlega
verða teknar sameiginlegar
ákvarðanir í ýmsum stórum
málum. Auk þess sé þetta
spurning um rekstur, en með
aukinni samvinnu og sameigin-
legri nýtingu á að vera hægt að
ná fram sparnaði og hagræð-
ingu.
..Ég er sannfærður um að ef
verkalýðshreyfingin nær saman
um stefnu í atvinnu-, skatta- og
velferðarmálum, þá er mikið
unnið fyrir allt uppbyggingar-
starf félagsailanna í landinu
fyrir næstu ár. Nái menn saman
um grundvallarstefnu í þessum
efnum, þá mun það hafa mjög
mikil áhrif á alla stjórnmála-
þróunina í landinu,“ segir for-
maður BSRB og þingmaður Al-
þýðubandálags og óháðra.
Hann Ieggur þó þunga áherslu
á að markmiðið með því að efla
og styrkja samvinnu samtaka
launafólks þar sem sameining
er ekki útlokuð, sé ekki að sam-
eina einhverja pólitíska flokka.
Þaðan af síður um ýmislegt sem
kann að gerast í „te-
bollanum þennan eða
hinn daginn" eða
„hver sé með hverjum
inní í einhverjum
þingflokkum eða eitt-
hvað af því tagi.“
Ögmundur telur
einnig brýnt fyrir lýð-
ræðisþróunina í land-
inu að efla verkalýðs-
hreyfinguna sem mót-
vægi við vald atvinnu-
rekenda og til að veita stjórn-
völdum hverju sinni nauðsyn-
legt aðhald. Hann segir að
þessar þreifingar eigi ekkert
með miðstýringu að gera vegna
þess að það sé sjálfstæð ákvörð-
un hverju sinni hvernig menn
beita sér í kjarasamningum og
verkfallsvopninu. -grh
Ifoss
Bæjarmála-
punktar
• Meirihluti bæjarráðs Sel-
foss samþykkti á fundi fyrir
helgi að hefja undirbúning
framkvæmda við sundhöll-
ina í bænum. Stefnt er að
því að gera nýja 25 metra
útilaug, vaðlaug og heita
potta, rennibraut, gufubað
og sólbaðs- og leikaðstöðu
úti við. Meirihlutinn sam-
þykkti að skipa byggingar-
nefnd og stefnir að því að
bjóða verkið út. Bæjarráð
vill að verkinu verði lokið í
maí á næsta ári, en þá verð-
ur hálfrar aldar afmæhs
bæjarins minnst.
• Bæjarráð samþykkti að
fela starfshópi að undirbúa
byggingu nýs grunnskóla á
Selfossi. Starfshópinn skipa
bæjarstjóri, formaður skóla-
nefndar og skólastjóri
Sandvíkurskóla.
• Samþykkt að leggja bund-
ið slitlag á veg um lóðina við
Austurveg 11, eins og bæn-
um er skylt að gera sam-
kvæmt samkomulagi við
eigendur Austurvegar 11.
Húsavík
Framhaldsskólar undír
niöurskuröarhnílinn
Heimdallur
Einka-
væðing
strax!
Heimdallur, félag ungra
Sjálfstæðismanna í
Reykjavík vih að ríkis-
stjórnin einkavæði ríkisbankana,
ÁTVR, Póst og síma og fleiri rík-
isfyrirtæki sem fyrst. Þetta kem-
ur fram í ályktun, sem sam-
þykkt var á aðalfundi félagsins
nýlega. Heimdallur leggur sér-
staka áherslu á að skyldugreiðsl-
ur almennings til Ríkisútvarps-
ins verði afnumdar og stofnunin
síðan seld einkaaðilum, fyrst Rás
2 og Rfldssjónvarpið.
Eina rétta leiðin að jafnrétti
kynjanna felst í frjálsri sam-
keppni einstaklinga á markaði,
segir einnig í ályktun Heimdall-
ar.
Niðurskurður er boðaður í
rekstri þriggja lítilla
framhaldsskóla á lands-
byggðinni, én með þeim hætti
hyggst menntamálaráðuneytið
ná fram 15 millj. kr. sparnaði.
Það eru skólarnir á Húsavík,
Laugum í Reykjadal og á Nesj-
um í Austur-Skaftafellssýslu
sem eru undir komnir undir
niðurskurðarhnífinn.
„Við hugsum ekki afleiðing-
arnar af þessu til enda og mun-
um berjast gegn þessu á hæl og
hnakka. Nóg er búið að skera
niður samt og þessu verður
mótmælt," sagði Guðmundur
Birkir Þorkelsson, skólameist-
ari á Húsavík í samtali við Dag
Tímann. Fyrirhugað er að
skerða framlög til
skólans á Laugum nið-
ur um 20%, sem þýðir
fækkun um tvo í kenn-
araliði skólans. Þá
mun kennslustundum
nemenda fækka um
tvær á viku, en í skól-
anum eru ahs um 100
nemendur. Skóhnn á
Nesjum er ámóta fjöl-
mennur og niðurskurður verð-
ur svipaður umfangs. Á Húsa-
vík verður skorið niður sem
nemur þremur kennarastöðum
- og kennslumagn verður skert
um 18,50%.
Skólameistarar þriggja áður-
nefndra skóla voru kallaðir á
fund hjá menntamálaráðherra í
síðustu viku, þar sem þeim var
kynntur niðurskurður þessi.
Guðmundur Birkir Þorkelsson
sagði að á fundi þessum hefði
hann nefnt að ef til viU væri af-
farsælla að skera niður í stofn-
framkvæmdum menntamála og
kvaðst halda fast í þá skoðun
sína, enda hefðu ráðuneytis-
menn sagt að slíkar fram-
kvæmdir væru allar samnings-
bundar. Guðmundur Birkir tel-
ur það ekki vera rétt, þar sem
framkvæmdir og samningar um
íjárveitingar byggist aUir á fjár-
lögum sem afgreidd eru fyrir
eitt ár í einu. -sbs.
Niðurskurður er boðaður í
rekstri þriggja framhalds-
skóla, en með þeim hætti á
að ná fram 15 millj. kr.
sparnaði.