Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Síða 4
4 - Þriðjudagur 24. september 1996
íDítgur-©nttrat
F R É T T I R
vís
Það er engin
panik á okku r
Bfönduós
Bæjarmála-
punktar
• Bæjarráð Blönduóss hefur
samþykkt að taka tilboði
Steypustöðvarinnar vegna urð-
unarreinar upp á 500 þúsund.
• Fegrunarnefnd hefur veitt
eigendum Urðarbrautar 14,
þeim Hrefnu Kristófersdóttur
og Jakobi Svavarssyni, viður-
kenningu fyrir fallega og vel
hirta lóð. Einnig fékk leikskól-
inn Barnabær viðurkenningu
fyrir öflugt starf að umhverfls-
fræðslu hjá yngstu kynslóðinni.
• Bygginganefnd hefur sam-
þykkt að vinna við deiliskipu-
lag fyrir gamla bæjarhlutann
hefjist sem fyrst og að auglýst
verði eftir skipulagsarkitekt til
samstarfs.
• Bygginganefnd hefur sam-
þykkt að sækja ekki um leyfi til
bygginga á félagslegum íbúð-
um.
• Erling Ólafsson, skólastjóri,
mætti á fund bæjarráðs á dög-
unum. Upplýsti hann m.a. að
nemendur grunnskófans í vet-
ur verða 166 og að sórkennslu-
þörf í skólanum er um 55
stundir á viku. Á fundinum var
rætt um þörf á meira samstarfi
milli leikskóla og grunnskóla.
• Bæjarstjórn hefur samþykkt
að setja upp þrjár hraðahindr-
anir og er byggingafulltrúi að
vinna að málinu, m.a. að afla
upplýsinga um reynslu ann-
arra sveitarfélaga af gerð
þeirra og staðsetningu.
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
e 5 af 5 0 6.724.179
2.W4 132.670
3.4afS 117 7.820
4. 3af5 3.810 560
Samtals: 10.303.399
Upplýsingar um vinningstölur fást einnig i simsvara
568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og i textavarpi
á síðu 451.
að er engin panik á
okkur“, sagði Örn Gúst-
afsson markaðsfulltrúi
hjá Vátryggingafélagi íslands,
spurður hvort hann gæti ekki
reiknað með talsverðri fækk-
un viðskiptavina þegar FÍB er
nú farið að bjóða þriðjungs
lækkun á ábyrgðartrygging-
um bifreiða.
„Við eigum engin afgerandi
svör við þessu að svo komnu,
enda var maður rétt að fá þetta
í hendur. Þetta er auðvitað
veruleg breyting frá því sem
verið hefur miðað við þau dæmi
sem þeir sýna. En við munum
bara fara yfir þetta og skoða
það í rólegheitunum og átta
okkur á því hvernig það blasir
við okkur og okkar viðskipta-
mönnum," sagði Örn.
Margir viðskiptavinanna
geta t.d. staðið frammi fyrir því
að missa þann afslátt sem
Mjölverksmiðja hefur
verið rekin undanfarin
15 ár á Hvammstanga
Tjónatíðni í ábyrgðar
tryggingum hér um
10% á ári eða um
tvöfalt meiri en víða
annars staðar.
tryggingafélögin veita af heild-
arpökkum ef þeir taka bílana út
úr dæminu, því bíllinn sé mikill
lykill í öllum svona pökkum.
Hjá VÍS segir Örn að slíkur af-
sláttur geti t.d. numið allt að
35% af heildariðgjöldum í F +,
eða jafnvel tugum þúsunda
króna. Þannig að niðurstaðan
gæti hugsanlega farið í mínus,
þegar allt væri upp gert. „Þetta
er því flókið mál sem þarf að
skoða,“ sagði Örn.
Það breytist heldur ekki mik-
ið í bílatryggingum á næstu vik-
og reksturinn gengið heldur
brösulega. Kari Sigurgeirs-
son, framkvæmdastjóri, segir
að í upphafi hafi verið tekin
röng stefna með því að ætla
að vinna bæði fiskimjöl og
kjötmjöl, eða sláturúrgang,
því þegar á reyndi fengust
ekki vinnsluleyfi.
„Framleiðslan hefur verið
allt að 60 tonn á mánuði af
mjöli sem er vinnsla úr allt að
300 tonnum en nýtingin er um
20%. Nú fáum við rækjuhrat frá
aðeins tveimur verksmiðjum,
Hvammstanga og Blönduósi,
því aðrar verksmiðjur eru ekki
með vinnslu. í verksmiðjuna
voru í upphafi keyptar vélar úr
bræðsluskipi og eru orðnar
nokkuð gamlar og um gufu-
þurrkun að ræða. Um síðustu
áramót gerðum við samning við
RARIK mn kaup á umframorku
og framleiðum nú gufuna með
rafmagni. Það jók raforkunotk-
un á Hvammstanga um 50%,“
sagði Karl Sigurgeirsson.
Reiknað er með að verk-
smiðjan skili hagnaði á yfir-
standandi ári, en hagnaðurinn
verður notaður til frekari upp-
byggingar. Þörf er á húsi yfir
hráefnismóttökuna, allt að 300
fermetrum, sem einnig gæti að
hluta til orðið mjölgeymsla.
um. Þótt endurnýjun trygginga
sé farin að jafnast nokkuð yfir
árið þá sé aðalendurnýjunin
ennþá 1. mars. „En það eiga
margir eftir að hringja í okkur
og spyrja hvað við ætlum að
gera. Ög við gerum eitthað.“
Örn segir það ekkert svo
marga einstaklinga sem valdi
öllum þeim milljarðatjónum
sem verða í umferðinni ár
hvert. „Tjónatíðnin í ábyrgðar-
tryggingum er að meðaltali um
10% á ári, þ.e.a.s. 10. hver bfll
sem lendir í árekstrum eða
slysum - sem er svona tvisvar
sinnum meira en maður sér
víða erlendis. Enda kalla menn
það árekstur eða umferðar-
óhapp ef þeir setja smá bólu á
stuðarann. Menn virðast hér
búnir að gleyma því af hverju
hann er kallaður stuðari. En
þessu er öðruvísi farið víða í
Evrópu."
Siglfirðingum, Hólm-
víkingum og Drang-
nesingum boðin hirð-
ing á rækjuhrati í stað
þess að varpa því í
höfnina, segir Karl
Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri.
Karl segir að rækjuverksmiðj-
unni Pólum hf. á Siglufirði
ásamt Hólmvíkingum og
Drangsnesingum hafi verið
boðið samstarf um hirðingu
hratsins, en öllu hrati á þessum
stöðum er varpað í höfnina, en
um er að ræða verksmiðjur sem
framleiða úr 10 þúsund tonnum
af hráefni á ári, þ.e. um 3.500
tonn fara beint í höfnina. Vegna
mikillar íjarlægðar verksmiðj-
anna frá Hvammstanga, eða
allt að 200 km, getur verk-
smiðjan ekki staðið ein undir
hráefniskostnaði, en flytja verð-
ur hráefnið annan hvern dag til
að viðhalda ferskleikanum.
Verkmiðjunum var boðin afnot
af skiljum til að aðskilja hratið
frá vatni en engin viðbrögð
hafa enn orðið við tilboðinu. GG
Akureyri
Sólveig
fær
vinnustofu
Samkvæmt samningi
hafnarstjórnar og
Eimskips skal húsið
fjarlægt eftir 24
mánuði.
Menningarmálanefnd Ak-
ureyrar hefur samþykkt
að styrkja Rafveitu Ak-
ureyrar um 80 þúsund krónur
til að innrétta vinnustofu fyrir
höggmyndlistarmanninn Sól-
veigu Baldursdóttur. Um er að
ræða gömlu toppstöðina á Odd-
eyri norðan vörugeymslu Eim-
skips, en gera þarf nokkrar
ráðstafanir, t.d. að ryk berist
ekki út af vinnustofunni.
Nokkrar umræðiu' urðu um
ágæti þess að styrkja Rafveit-
una til þessa verks, ekki síst í
ljósi þess að Hafnarstjórn Akur-
eyrar og Eimskip hafa undirrit-
að samning um afnot Eimskips
af umræddu svæði til bygginga-
framkvæmda og skal gamla
toppstöðin íjarlaigð fyrir árslok
1998. Þórarinn B. Jónsson (D)
sagði þessa ákvörðun menning-
armálanefndar í hæsta máta
óeðlilega, betra væri að verja
þessu fé til varanlegrar vinnu-
aðstöðu og með þessu væri Qár-
mimum skattborgaranna kast-
að á glæ. GG
íslensk málnefnd
Enska í
auglýsingum
✓
slensk málnefnd biður fjöl-
miðla og auglýsendur að at-
huga sinn gang varðandi
auglýsingar um kvikmyndasýn-
ingar eða leigu myndbanda.
Nefndin segir að svo virðist
að þessar auglýsingar séu birt-
ar að mestu eða öllu leyti á er-
lendu máli, langoftast ensku.
Einnig virðist það vera venja að
heiti kvikmynda séu látin
óþýdd. Vísar nefndin í sam-
keppnislög þar sem segir:
„Auglýsingar, sem höfða eiga til
íslenskra neytenda, skulu vera
á íslenskri tungu.“ HA
Athuga-
semd
Beðist er velvirðingar á því
að nafn Ara Skúlasonar,
framkvæmdastjóra ASÍ,
féll niður við grein í blaðinu á
laugardag. Ari skrifaði um Kór-
eu, mannréttindamál og ís-
lenska viðskiptasendinefnd.
A
Kópavogsbær
Umsóknir um félagslegar
W íbúðir fyrir aldraða
Auglýst er eftir umsóknum um félagslegar íbúðir
fyrir aldraða. Um er að ræða 2ja og 3ja herbergja
íbúðir í fjölbýlishúsi.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftirfarandi skil-
yrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan tekju- og eignamarka Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
3. Sýna fram á greiðslugetu sem miðast við að
greiðslubyrði lána fari ekki yfir viðmiðunarmörk sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 58 1995 og reglugerðar
sem í gildi verður þegar úthlutun fer fram.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu Húsnæð-
isnefndar Kópavogs, að Fannborg 4, sem er opin frá
kl. 9-15 mánudaga-föstudaga.
Umsóknarfrestur er til 10. október 1996.
Allar frekari upplýsingar veitir húsnæðisfulltrúi mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga, frá kl. 11-12 í síma
554 5700.
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
Mjölverksmiðjan ehf. á Hvammstanga. Mynd. kb '
Reiknað með rekstrarhagnaði