Dagur - Tíminn - 24.09.1996, Síða 11
Þriðjudagur 24. september 1996 -11
l
LYFJAMÁL
Finnur dæmdur i
tveggja ára bann
Finnur Jóhannsson, hand-
knattleiksmaður úr Sel-
fossi var dæmdur í tveggja
ára bann frá þátttöku á íþrótta-
mótum af sérskipuðum dóm-
stóli ÍSÍ í gær. Finnur féll á
lyíjaprófi sem tekið var eftir
Bikarkeppnina í frjálsum íþrótt-
um sem haldin var í síðasta
mánuði en þar keppti Finnur
fyrir Ármenninga.
Rannsókn leiddi í ljós að
hann hafði neytt amfetamíns og
kókaíns og viðurkenndi hann
brot sitt, segir í fréttatilkynn-
ingu sefti íþróttasambandið,
sendi frá sér í gær.
Dómstóllinn taldi brotið al-
varlegt, þar sem um var að
ræða ólöglegt fíkniefni. Vegna
þess að sýnt þótti að þeirra
hafði ekki verið neytt í þeim til-
gangi að ná betri árangri í
íþróttum, var þó ákveðið að
beita lágmarksrefsingu, sem er
tveggja ára keppnisbann, segir
ennfremur í fréttatilkynning-
unni.
Samkvæmt dómsúrskurðin-
um er Finnur útilokaður frá
þátttöku í íþróttamótum á veg-
um allra sérsambanda ÍSÍ í 24
mánuði og tók bannið gildi 9.
þessa mánaðar.
KNATTSPYRNA • Akureyri
Úvíst hvort Pétur
og Hói verði áfram
Formenn knattspyrnu-
deilda KA og Þórs segjast
ekki getað svarað því
hvort þjálfarar liðanna nú, þeir
Pétur Ormslev hjá KA og Nói
Björnsson hjá Þór, verði áfram
þjálfarar meistaraflokksliða fé-
laganna, en ýmsar sögur hafa
verið á kreiki um væntanleg
þjálfaraefni hjá félögunum.
„Við erum ekki búnir að út-
loka neitt, en ég á alveg eins
von á því að málin komist á
hreint fyrir vikulokin,“ sagði
Árni Jóhannsson, formaður
knattspyrnudeildar KA á
sunnudaginn.
Peter Jones, formaður knatt-
spyrnudeildar Þórs, sagði
einnig að málin væru stutt á
veg komin. „Nói (Björnsson)
stjórnar æfingum til 1. október
og við ræðum við hann fyrst.
Við munum vinna nauðsynlega
undirbúningsvinnu, en teljum
ekki rétt að skrifa undir samn-
ing við nýjan þjálfara, nema við
verðum alhr í stjórn. Það væri
ekki rétt af okkur að binda
hendur nýrrar stjórnar."
HANDBOLTI • Þýskaland
Þriðji sigurínn hjá Essen
Tusem Essen, liðið sem
Patrekur Jóhannesson
leikur með, heldur sig-
urgöngu sinni áfram í þýsku úr-
valsdeildinni. Liðið tók á móti
TV Niederwurzbach á heima-
velli sínum á sunnudagskvöldið
og sigraði 27:24. Patrekur Jó-
hannesson skoraði eitt mark
fyrir Essen, sem er á toppi
deildarinnar eftir þrjá sigur-
leiki, en þess ber að geta að
ílest lið deildarinnar hafa að-
eins leikið tvo leiki.
Minden, liðið sem Sigurður
Bjarnason leikur með, sigraði
Schuttervald á útivelli með
þriggja marka mun á sunnu-
daginn. Sigurður skoraði þrjú
marka Minden en Róbert Sig-
hvatsson tvö mörk fyrir Schutt-
ervald.
ÍBA áfram i fyrstu deild
IBA og Reynir Sandgerði áttust við í síðari leik liðanna um
sæti í 1. deild á næsta keppnistímabili. Leikið var á Akureyr-
arvellinum á laugardaginn og það var ÍBA sem fagnaði sigri,
2:1, með mörkum Rósu Sigbjörnsdóttur og Karenar Friðriks-
dóttur. ÍBA heldur því sæti sínu í deildinni og Reynisstúlkur
verða áfram í 2. deild. Mynd: Jón Hrói
KR-ingum nægir jafntetti á Skaganum
Úrslit íslandsmótsins í knattspyrnu ráðast ekki fyrr en næst-
komandi sunnudag þegar ÍA og KR mætast í lokaleik 1. deildar-
innar. Myndin er úr fyrri viðureign liðann á mótinu. KR hafði
betur í þeim leik en liðinu dugir jafntefli til hreppa íslands-
meistarabikarinn í fyrsta sinn frá árinu 1968, eða í 28 ár. Mynd.Gs
HANDBOLTI
Fram með fuitt hús
Framliðið er eitt með fullt
hús stiga eftir tvær fyrstu
umferðirnar í 1. deild
karla, en önnur umferð deildar-
innar var leikin á sunnudags-
kvöldið og urðu úrslit þessi.
FH-KA 26:23
HK-Haukar 3:23
Grótta-Fram 24:25
ÍR-ÍBV 20:23
Valur-Selfoss 27:27
Afturelding-Stjarnan 20:21
Fram hefur hlotið 4 stig, Val-
ur 3, Afturelding, Grótta, ÍR,
ÍBV, Stjarnan, KA og FH hafa 2
stig og Haukar, HK og Selfoss
reka lestina með eitt stig.
Næstu leikir fara fram annað
kvöld, en að þeim loknum tekur
við hálfsmánaðarhlé á deildar-
keppninni vegna landsleikja ís-
lands og Grikklands og leikja
félagshðanna í Evrópukeppn-
inni.
KNATTSPYRNA
KR-ingar á toppnum
Úrslit leikja í 17. og næst
síðustu umferð 1. deildar
karla urðu þessi:
Fylkir-Leiftur 3:2
Grindavík-Keflavík 4:0
ÍBV-ÍA 3:2
Breiðablik-Valur 1:1
KR-Stjarnan 1:1
Staðan er nú þessi:
KR 17 11 4 2 37:12 37
ÍA 17 12 1 4 42:18 37
Leiftur 17 8 5 4 33:27 29
ÍBV 17 8 1 8 30:32 25
Stjarnan 17 6 4 7 22:29 22
Valm 17 6 3 8 18:23 21
Fylkir 17 5 3 9 24:25 18
Grindavík 17 4 4 9 22:34 16
Keflavík 17 3 7 7 15:28 16
Breiðabl. 17 3 6 8 17 32:15
Leikir lokaumferðinnar:
Stjarnan-Breiðablik, Kefla-
vík-ÍBV, Leiftur-Grindavík,
Valur- Fylkir, ÍA-KR.
HANDBOLTI
„Kaffibombu“ fíeygl i Eríing
Einn áhorfandi í fþrótta-
húsinu í Kaplakrika á leik
FH og KA í 1. deild karla í
handknattleik fleygði bréfpoka
fullum af kaffi yfir Erling Krist-
jánsson, fyrirliða KA-manna.
Lokað var fyrir pokann sem
sprakk á Erlingi með þeim af-
leiðingum að hann fékk kaffi yf-
ir sig allan.
Atvikið átti sér stað á átj-
ándu rnínútu síðari hálfleiksins,
en Erlingur var þá að sitja af
sér tveggja mínútna brottvísun
á varamannabekk KA-liðsins.
Gísli Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson, dómarar leiksins,
stöðvuðu leikinn í stutta stund,
en eftir stutta reikistefnu við
tímaborðið var leikurinn flaut-
aður á að nýju. Það vakti at-
hygli að engin tilraun var gerð
til að finna áhorfandann og vísa
honum út úr húsinu.
Bjamibestur
hjáKA
Meistaraflokkur KA í knatt-
spyrnu hélt uppskeruhátíð
sína í KA- heimilinu sl.
föstudagskvöld, eftir leikinn
við ÍR. Bjarni Jónsson,
miðjumaður og fyrirliði hðs-
ins, var valinn besti leik-
maður sumarsins og Steinn
Viðar Gunnarsson, sem bæði
lék í vörn og á miðjunni, var
valinn sá efnilegasti. Þor-
valdur Makan Sigbjörnsson
varð markakóngur KA-hðs-
ins í sumar, en hann skoraði
tólf mörk í 2. deildinni.
Fjölmenn
grillveisla
Sigurður Arnórsson, stuðn-
ingsmaður Þórsliðsins í
knattspyrnu, sem búsettur
er í Reykjavík bauð öllum
leikmannahópnum og að-
standendum Þórsliðsins í
veglega grillveislu eftir loka-
leik Þórsliðsins á föstudags-
kvöldið, sem var gegn Leikni
í Reykjavík. Á milli 30-40
manns voru í veislunni sem
haldin var á heimili Sigurð-
ar.
Landslið
valiðídag
Þorbjörn Jensson, íslenski
landsliðsþjálfarinn í hand-
knattleik, mun að öllum lík-
indum velja landslið sitt
gegn Grikkjum í dag. Liðið
mætir Grikkjum í tveimur
leikjum í undankeppni HM, í
KA-heimilinu 2. október og
ytra fjórum dögum síðar.
Frissi bestur hjá
Skallagrími
Friðrik Þorsteinsson, mark-
vörður, var valinn besti leik-
maðm SkaUagríms, sem
vann sér sæti í 1. deildinni á
föstudagskvöld. Friðrik, eða
„Frissi fríski" eins og hann
er stundum kahaður, gekk
til liðs við Skallagrímsliðið
sl. vor eftir nokkurra ára
dvöl hjá Leiftri.
Gunnar aðstoðar
hjáÞór
Gunnar Sverrisson hefur
verið ráðinn aðstoðarþjálfari
úrvalsdeildarliðs Þórs í
körfuknattleik. Hann mun
aðstoða hinn bandaríska
þjálfara hðsins, Fred WiUi-
ams, en Gunnar var áður
aðstoðarþjálfari John Rho-
des lijá ÍR-liðinu.
Sigurður tekur
viðafVöndu
Sigurður Þórir Þorsteins-
son, sem verið hefur aðstoð-
arþjálfari Vöndu Sigur-
geirsdóttir hjá íslands- og
bikarmeisturum Breiða-
bliks, mun taka við þjálfun
liðsins. Vanda hefur þjálfað
liðið sl. þrjú ár en gaf ekki
kost á sér áfram.
I