Dagur - Tíminn - 25.09.1996, Blaðsíða 16
jnagur-ítttmttt
Miðvikudagur 25. september 1996
Borgarhólsskóli
einsetinn
Miklar byggingafram-
kvæmdir hafa staðið yf-
ir við Borgarhólsskóla á
Húsavík um nokkurra ára
skeið. Fyrir örfáum árum var
viðbygging tekin í notkun sem
hýsir bókasafn og stjórnunar-
aðstöðu auk rýmis ætlað Tón-
listarskóla Húsavíkur en mikið
og náið samstarf hefur verið
milli þessarra tveggja skóla,
Borgarhólsskóla og Tónlistar-
skólans og það fyrirkomulag að
þeir séu í sama húsnæði auð-
veldar samstarfið mikið.
Nú hefur enn verið byggt við
og er efsta hæð þeirrar nýbygg-
ingar tekin í notkun á þessu
hausti. Á hæðinni eru sex
kennslustofur og með tilkomu
þeirra er í fyrsta sinn nægjan-
legt rými í skólanum til að ein-
setja hann. Þá hafa þær breyt-
ingar á eldra húsnæðinu verið
gerðar að nýtt og fullkomið
skólaeldhús var innréttað og
leysir það af hólmi gamla eld-
húsið sem var frá 1960 þegar
elsti hluti skólans var byggður.
Halldór Valdimarsson skóla-
stjóri segir að nú á þessu hausti
hafi verið brotið blað í sögu
skólans þar sem einsetning hafi
orðið að veruleika í fyrsta sinn.
Sú breyting á störfum ræstinga-
fólks, sem gerð var í fyrra, að
sjá jafnframt um gangavörslu
og aðstoð við nemendur segir
Halldór að skipti verulegu máli
svo að einsetningin geti gengið
vel fyrir sig. Alls m'u manns í
slíkum blönduðmn störfum eru
nú auk kennara við vörslu bæði
inni og úti þannig að aðstæður
hafa gjörbreyst hvað þetta
varðar. Alls eru 426 nemendur í
Borgarhólsskóla á þessum vetri
í 20 bekkjardeildum. GKJ
Húsavík
Sex nýjar kennslustofur voru teknar í notkun á þessu hausti og er ein þeirra búin 14 tölvum, sem gjörbreytir að-
stöðunni við tölvukennslu. Mynd: gkj
Gestum á „Opnu húsi“ í matvöruversluninni Matbæ K.Þ. var boðið upþá
kaffi og kökur meðan spjallað var um kosti og galla í rekstri verslunarinn-
ar. Mynd: GKJ
Húsavík
Hvað segir viðskiptavmuriim?
Sú nýbreytni átti sér stað á
dögunum að matvöruversl-
un Kaupfélags Þingeyinga,
Matbær, boðaði til almenns
fundar í versluninni sjálfri utan
opnunartíma þar sem fólk átti
þess kost að spyrja verslunar-
stjóra og markaðsfulltrúa um
hvaðeina svo og koma sínum
skoðunum á framfæri við þá.
Um þrjátíu manns mættu á
fundinn og þótti viðstöddum
hafa vel til tekist og framtakið
gott. Ásgeir Baldurs markaðs-
stjóri upplýsti viðstadda um til-
ganginn með kaupum Kaupfé-
lags Þingeyinga á versluninni
Þingey fyrr á árinu, en mark-
miðið væri að vera þar með
takmarkaða þjónustu en halda
verði í lágmarki, aftur á móti
yrði þjónusta í Matbæ eins og
hún hefur alltaf verið og þar af
leiðandi alla jafna hærra verð
en í K.Þ. Þingey. Tilboð sem af
og til eru í gangi í Matbæ yrðu
áfram eins og verið hefur og
þess vegna gætu verð í Matbæ
stundum verið lægri tímabund-
ið.
Allmargir fundargestir báru
fram fyrirspurnir og komu
skoðunum og kvörtunum sínum
á framfæri. Ásgeir Baldurs
sagðist ánægður með fundinn
og kvartanir hefðu að sínu mati
ekki verið margar. Hann sagði
hugmyndina að „Opnu Húsi“ í
Matbæ komna frá formanni
Húsavíkurdeildar K.Þ., Hafliða
Jósteinssyni, sem hann bar upp
á deildarfundi í fyrra og nú
hefði hugmyndinni verið hrint í
framkvæmd og menn hefðu al-
mennt verið ánægðir með út-
komuna. GKJ
Þrj ár undir
sama þaki
Umhverfisráðherra, Guð-
mundur Bjarnason, tók
formlega í notkum sl.
sunnudag nýtt húsnæði að
Hafnarstræti 97 á Akureyri fyr-
ir embætti Veiðistjóra og setur
Náttúrufræðistofnunar íslands
á Akureyri, sem heyra undir
umhverfisráðuneytið, og skrif-
stofu CAFF á íslandi, sem er al-
þjóðleg stofnun, með því að
klippa á borða utan inngangs-
ins við Gilsbakkaveg. Með opn-
un húsnæðisins opnast um leið
gönguleið frá göngugötunni í
Hafnarstræti upp á Skessunef,
þ.e. við inngang hússins við
Gilsbakkaveg. Upphaflega hafði
verið gert ráð fyrir gönguleið af
þessu tagi gegnum hús sem risi
við Hafnarstræti 103, en af
þeim byggingarframkvæmdum
hefur enn ekki orðið.
Úr þessu nýja húsi hefur ver-
ið gerð göngubrú yfir í húsnæði
Heilsugæslustöðvarinnar á Ak-
urcyri og þar með tryggt betra
aðgengi að stöðinni en verið
hefur, ekki síst með tilliti til
nýrrar lyftu í húsinu. Umhverf-
isráðherra gat þess að árið
1991 var undirritað á Ítalíu
samkomulag átta þjóða um um-
hverfisvernd á Norðurslóðum,
en einn þáttur þess er verndun
gróðurslífs á Norðurslóðum, en
CAFF er fastanefnd sem sett
var á laggirnar og lagði ísland
fram boð um að hýsa skrifstof-
una, sem var tekið, en fyrst um
sinn verður skrifstofan í eitt ár
hérlendis, en gangi reksturinn
vel eru allar líkur á að starf-
semi skrifstofunnar verði áfram
á Akureyri. GG
Akureyri
Hörður Kristinsson, grasafræðingur og forstöðumaður seturs Náttúrufræðistofnunar íslands á Akureyri, Ásbjörn
Dagbjartsson, líffræðingur og veiðistjóri, og Snorri Baldursson, líffræðingur og framkvæmdastjóri skrifstofu
CAFF, sýndu með táknrænum hætti að gott samstarf mun verða með þessum stofnunum með því að taka lagið
saman, og m.a. sungu þeir „Siggi var úti með ærnar í haga“. Mynd-.GG