Dagur - Tíminn - 16.10.1996, Side 11
Ælitgur-Œittmtit
Miðvikudagur 16. október 1996 -11
Ársþing
Mjög skiptar skoðanir
um aðalmál þingsins
✓
Arsþing Landssambands
hestamannafélaga 1996
er að þessu sinni haldið í
Keflavík í boði Hestamannafé-
lagsins Mána. Þinghaldið fer
fram í Félagsheimilinu Stapa og
stendur föstudag 25. og laugar-
dag 26. október.
Aðalmál þingsins að þessu
sinni er sameining HÍS og LH.
Nefnd sem unnið hefur að
þessu máli leggur fram drög að
lögum fyrir nýtt hestamanna-
samband sem yrði innan ÍSÍ.
Pað þýðir í framkvæmd að
Landssamband hestamannafé-
laga yrði lagt niður og hesta-
mannahreyfingin felld undir
íþróttahreyfinguna. Fram til
þessa hefur Landssambandið
verið algerlega sjálfstæð sam-
tök og ekki öðru háð en eigin
samþykktum á sínum þingum.
Verði farið að þeim tillögum
sem nefndin leggur fram, verð-
ur starfsemin að vera sam-
kvæmt lögum ÍSÍ, enda myndu
lög hinna nýju samtaka ekki
hljóta staðfestingu fyrr en
stjórn ÍSÍ hefur samþykkt þau.
Um þá ákvörðun að leggja
LH niður eru mjög deildar
meiningar, enda finnst mönnum
Hestaíþróttasamband íslands
H E S T A R
LH1996
þjóna ágætlega þeim sem
hestaíþróttir stunda og því ekki
ástæða til að breyta því fyrir-
komulagi sem nú er. Stjórn LH
mun m.a. vera þeirrar skoðun-
ar. Tekist verður á um þetta á
þinginu. Framsögumenn verða
Haraldur Þórarinsson, fulltrúi í
sameiningarnefnd, og Guð-
brandur Kjartansson, varafor-
maður LH.
Að venju starfa allmargar
nefndir á þinginu og hafa þing-
fulltrúum verið sendar þær til-
lögur sem borist hafa.
Nýr formaður kjörinn
Guðmundur Jónsson, formaður
LH, gefur ekki kost á sér til
endurkjörs, enda búinn að
þjóna hestamannahreyfmgunni
með miklum ágætum sem
Hestamenn hafa á undan-
förnum árum haft leyfi til
að kaupa hey af bændum,
sem lent hafa í því að verða að
skera niður fé sitt vegna riðu-
veiki. Leyfilegt hefur verið að
flytja heyið milli svæða, en fylgja
hefur þurft ákveðnum reglum. í
fyrsta lagi verður að flytja
þurrkað hey í lokuðum bílum og
gæta verður þess að hirða upp
hey sem kann að detta af í flutn-
ingi. Þetta á einnig við um rúllu-
Frá Arsþingi LH á Hvolsvelli 1994.
stjórnarmaður í 13 ár, þar af
sem formaður í fjögur ár. Aðrir
sem ljúka kjörtímabih á þessu
baggahey. Þá þarf að gæta þess
að umhirðan sé með þeim hætti
að aðrar skepnur en hestar
komist ekki í heyið. Það sama
gegnir um skít frá hrossum sem
fóðruð eru á þessu heyi.
Því miður hefur nokkur mis-
brestur orðið á því að reglum sé
fylgt og hey jafnvel verið skilið
eftir á víðavangi þar sem skepn-
ur hafa átt frjálsan aðgang að
því. Verði reglum ekki fylgt eins
og til er ætlast, kann svo að fara
þingi eru Halldór Gunnarsson,
Norðurlandi eystra, Jón Bergs-
son, Austurlandi, og Krist-
að bönnuð verði kaup á heyi frá
riðubæjum, en það hefur oft
fengist á vægu verði og að því
leyti verið hagstætt fyrir hesta-
eigendur.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarstöðinni á Keldum er
nú í skoðun hvort aðeins verði
leyft að selja rúlluhey, þar sem
það inniheldur ekki heymaur, en
hann er talinn geta verið smit-
valdur. Ákvörðun um það hefur
þó ekki verið tekin.
mundur Halldórsson, Kópavogi.
Ekki er vitað hvort þeir gefa
kost á sér til áframhaldandi
stjórnarsetu.
Sú hefð hefur skapast innan
LH að heiðra félaga sem gegnt
hafa trúnaðarstöðum innan LH
eða verið hestamennskunni
lyftistöng að öðru leyti. Svo
mun einnig verða á þessu þingi.
Á laugardag sér Máni um
skoðunarferð fyrir maka þing-
fulltrúa. Nefnist hún Ævintýra-
ferð um Reykjanes og er í boði
Reykjanesbæjar og Hitaveitu
Suðurnesja.
Þinginu lýkur á laugardags-
kvöld með þingslitafagnaði,
sem jafnframt er árshátíð
Hestamannafélagsins Mána.
Hey firá riðusvæðum
Kúnstín að bæta
eigin hross
Isíðustu Kynbótahornum hef-
ur verið skrifað um hvernig
stofnað er til nýrrar kynslóð-
ar með það markmið að bæta
hrossin sem mest. Vikið var að
því síðast að kynbótabúið á Hól-
um hefði farið með hryssur und-
ir Orra frá Þúfu með það í huga
að auka enn gæði þeirra af-
kvæma sem þessar hryssur gæfu
af sér. Hólabúið hefur á undan-
förnum árum notað marga stóð-
hesta með þetta í huga, en horf-
ið var frá því að rækta eingöngu
austanvatnahross, eins og fyrri
samþykktir hljóðuðu upp á.
Það hefur sýnt sig að þessi
ríki austanvatnaþáttur í Hóla-
hryssunum, sem getið var um
síðast, hefur blandast vel íjar-
skyldara blóði. Nú eru t.d. í upp-
eldi á Hólum tryppi undan Kol-
fmni frá Kjarnholtum. Þar er
komin hestgerð sem ber nokkuð
annan svip en flestar Hólahryss-
urnar og kemur til með að skapa
nýja erfðavísa. Úr þessum hópi
verða svo valin hross til ásetn-
ingar, þau sem best falla að
þeim markmiðum sem ráða í
þessari ræktun. Með framhaldi í
þessa veru má vænta þess að á
Hólum fari að verða til álitleg
stóðhestaefni.
Kynbótamatið besta
hjálpartækið
Það, sem menn hafa við að styðj-
ast í dag í ræktuninni, er kyn-
bótamatið sem framkvæmt er
árlega. Eins og oft hefur verið
bent á hér í þessum pistlum, þá
byggir matið á einstaklingsdóm-
um og ætterni. Síðan koma til af-
kvæmin og þá er tekið tillit til
KYNBÚTAHORNHI
allra afkvæma sem í dóm koma.
Áður fyrr voru afkvæmadómar
byggðir á aðeins 6 afkvæmum til
1. verðlauna eða 12 til heiðurs-
verðlauna. Matið í dag ætti að
vera mun marktækara, þó það
megi að sjálfsögðu lengi bæta. f
vaxandi mæli .velja menn orðið
stóðhesta á hryssur sínar eftir
matinu. En þá þarf að gæta þess
að ekki er nóg að einblína á að-
aleinkunn matsins, heldur þarf
að skoða hvernig hver eiginleiki
kemur út, svo menn magni ekki
veikar hliðar hrossanna. Það
væri mjög til bóta varðandi kyn-
bótamatið, ef reiknuð yrði út
meðaleinkunn fyrir byggingu og
einnig fyrir hæfileika. I aðalein-
kunninni hafa það oftast verið
hæfileikarnir sem ráðið hafa
meiru. En væri meðaleinkunn
birt fyrir byggingu, myndu menn
gaumgæfa það betur.
Breytt val á
stóðhestum
Notkun stóðhesta hefur tekið
miklum stakkaskiptum á síðustu
tveimur áratugum. Áður fyrr var
það algengast hjá stóðbændum
að þeir notuðu einn hest í stóð-
inu og gekk hann þá gjarnan
með stóðinu allt sumarið. Sami
hesturinn var notaður ár eftir ár
og mótaði þá eðlilega hrossin
mikið. Nú er þetta á undanhaldi
og menn fara með hryssurnar
vílt og breitt. Þeir sem eiga stóð
skipta oftast um hest árlega, en
velja þó ekki nema hluta af
hryssunum til hans. Með þessu
eru menn að leita að mótparti
sem þeir ætla að henti hryssunni
sem best. Út úr þessu koma síð-
an afkvæmi sem menn nota svo
aftur í innræktun, það er nota
svo í sínu stóði. Við val á slíkum
gripum nota menn þá kynbóta-
matið sem fyrr segir.
Áður réð innsæi hrossabónd-
ans miklu um valið, svo og þekk-
ing hans á stóðinu og ættunum.
Auðvitað gat þar skeikað um
valið og hestar brugðist vonum. í
raun var þessi aðferð ekki
óskyld því að velja eftir kynbóta-
mati, því hvorutveggja byggir á
gæðum foreldranna, ættum og
afkvæmum. Kynbótamatið bygg-
ir hins vegar á mælingum, þ.e.
dómum á einstaklingum og af-
kvæmum auk ættar. Innsæi í
ræktun er mikil gáfa sem nauð-
synlegt er að þroska með sér.
Hún gerir það líka að verkum að
HESTA-
MÓT
Kári
Arnórsson
breytileiki helst meiri í stofnin-
um en ella, sem er forsenda fyrir
framförum.
Listin að bæta
eigin hross
Sé horft til þeirra ræktunar-
manna sem fremstir hafa staðið
á undanförnum árum, þá hefur
Kynbótamatið er orðið besta tækið í ræktuninni. Heiðursverðlaunahestur-
inn Kjarval frá Sauðárkróki með 131 kynbótastig. Knapi Einar Öder Magn-
ÚSSOn. Mynd: EJ.
þessi gáfa, sem þeir hafa náð að
þroska með sér, skilað sér vel.
En þeir hafa líka forðast að loka
sig inni í sérviskulegum reitum.
Þeir hafa stöðugt verið að leita
fyrir sér með hesta utan eigin
hrossahóps.
Það má í þessu sambandi
minnast á Svein Guðmundsson.
Hann hefur verið ötull við að
nota aðkomna stóðhesta með
það fyrir augum að bæta sín
hross. Síðan hefur hann ræktað
inn það sem honum finnst vera
til bóta. Hann hefur samt ekki
hvikað frá því að halda þeim eðl-
isþáttum í stofninum, sem hon-
um hafa þótt eftirsóknarverðast-
ir. Þessa þætti hefur hann reynt
að festa með skyldleikaræktun.
Sumt af því hefur heppnast vel,
annað miður, en út úr því eru
bestu einstaklingarnir valdir.
Ég býst við því að það komi
mörgum á óvart hve stóðhesta-
hópurinn, sem þeir feðgar hafa
notað undanfarin ár, er íjöl-
skrúðugur og hve margir hestar
það eru. Allt er það gert í því
augnamiði að styrkja þá þætti
sem þeim finnst á vanta í eigin
hrossum. Þessu ráða hins vegar
ekki tískustefnur, eins og verið
hefur hjá svo mörgum öðrum í
ræktun. En það er greinilega
tekið mið af þeim dómskala sem
notaður er, enda birtast þar
markmið hrossaræktar Bænda-
samtakanna í landinu.
Þegar skoðaður er sá hópur
stóðhesta, sem þeir feðgar hafa
fengið að, þá er greinilegt að
kynbótamatið er grandskoðað
áður. Þessir hestar eru allir með
hátt mat og má t.d. nefna þann
hest sem þeir notuðu á þessu
ári, Páfa frá Kirkjubæ, sem er
með 134 stig í kynbótamati og
með 150 stig fyrir fótagerð sem
greinilega er verið að sækja í.
Kannski hafa Hólamenn sótt
sína fyrirmynd til Sauðárkróks-
ræktunarinnar þegar þeir hættu
stofnræktuninni, en fóru að leita
eftir bestu hestunum.