Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Blaðsíða 4
4 - Fimmtudagur 24. október 1996
iD^ignr-Œmmm
Sjávarútvegur
Grænlenskur togari til
Dalvíkur um áramótin
Matlhías Jakobsson
aður
„Bliki EA er of lítill
til til veiða á
Jjarlœgum miðum
en á þau verður að
sœkja í auknum
mœli “
S
tgerðarfyrirtækið Bliki
hf. á Dalvík hyggst festa
kaup á grænlenskum
togara og fóru eigendur fyrir-
tækisins nýverið til Nuuk á
Grænlandi til að skoða þar átta
ára gamlan togara. Hann er
systurskip togarans Júh'usar
Havsteen ÞH-1 frá Húsavík sem
byggður var í Danmörku árið
1987, 423 brt. að stærð og 42
metra langur. Fyrir á útgerðin
Blika EA-12, sem byggður var í
Svíþjóð árið 1988 og er 216 brt.
að stærð og 34 metra langur.
Bliki EA verður settur á sölu-
skrá í þessari viku en þegar
munu hafa borist fyrirspurnir
vegna fyrirhugaðrar sölu, m.a.
frá Noregi.
„Bliki EA er of lítill til veiða á
Qarlægum miðum, en á þau
verður að sækja í auknum
mæli.. Friðun á þorski hefur
staðið í 14 ár og enn dettur
engum í hug að fara heilan túr
til að veiða eingöngu þorsk. Svo
þykjast þessir fiskifræðingar
geta sagt til um veiði á úthalds-
dag í þorski meðan enginn ein-
beitir sér að þeim veiðum því til
íjölda ára hefin- þurft
að veiða aðrar teg-
undir með. Nú finnst
enginn fiskur á rann-
sóknarskipinu Bjarna
Sæmundssyni og rækj-
an er að hverfa í
Kolluál um leið og
þorskurinn gengur
þar á slóðina. Ég hef
enga trú á því að
þorskurinn komi aftur
upp í verði, fólk er
farið að borða allt annað en
þorsk, neysluvenjur að breytast
og fólk að flytja sig yfir í ódýrari
tegundir.
Við fáum skipið um næstu
áramót ef þetta gengur eftir og
því verður haldið á rækjuveið-
um,“ sagði Matthías Jakobsson,
útgerðarmaður. GG
Júlíus Havsteen ÞH, systurskip þess skips sem Bliki hf. hyggst kaupa.
Bliki EA, sem nú verður líklega seldur úr landi. Mynd:aa
Vélstjórafélag
íslands
Vélstjóra-
talí
fimm
bindum
Vélstjórafélag íslands
hefur í samvinnu við
Þjóðsögu gefið út
fyrstu tvö bindin af fimm af
vélstjóra- og vélfræðingatah.
Áætlaður heildarkostnaður
vegna útgáfunnar er talin
nema um 10 miljónum
króna.
Þessi rit hafa að geyma
æviskrár yfir 7 þúsund vél-
stjóra- og vélfræðinga með
ljósmyndum og ítarlegum
upplýsingum um ættir, nám
og störf. Þessu til viðbótar
eru í vélstjóratalinu ætt-
fræðiupplýsingar um tug-
þúsundir íslendinga. Stefnt
er að því að hin þrjú bindin
komi út að sama tíma að ári.
Ritstjóri verksins er Franz
Gíslason sagnfræðingur og
kennari við Vélskóla íslands
en Þorsteinn Jónsson sá um
ritstjórn ættfræðiefnis.
„Það er von mín að að ís-
lenskir vélstjórar kunni vel
að meta metnaðinn sem
lagður hefur verið í verkið
og að bækurnar megi prýða
sem flest heimili til vitnis um
sjálfsvirðingu, menningu og
samheldni stéttarinnar fyrr
og nú,“ segir Helgi Laxdal
formaður Vélstjórafélagsins.
Hann segir að hefði þótt rík
ástæða til að taka saman
ættir og æviferil félags-
manna sem margir hverjir
voru á sínum tíma braut-
ryðjendur í íslensku at-
vinnuh'fi. í því sambandi
minnir hann á að stétt vél-
stjóra gengdi lykilhlutverki
þegar segl og árar viku fyrir
vélaraflinu og orka vatnsafla
var beisluð og veitt inn á
heimili landsmanna. -grh
ísafjarðarbær
Gunnvör hf. vildi styrkja stöðu
sína í nýja útgerðarrisanum
Þorsteinn Jóhannesson
forseti bæjarstjórnar isafjarðarbæjar
„Ekkert víst að bœjar-
félagið verði hluthafi í
nýju útgerðarfélagi
um aldur og œvi en við
töldum rétt að hvetja
til áframhaldandi
sameiningar í
óbreyttri mynd"
Utgerðarfyrirtækið Gunn-
vör hf. á ísafirði, sem
rekur togarann Júlíus
Geirmundsson ÍS-270, he*úr
sýnt áhuga á að kaupa hlut ísa-
íjarðarbæjar í Togaraútgerð
Ísaíjarðar hf., sem er um 15%,
til þess að auka hlut sinn í nýju
sameinuðu útgerðarfyrirtæki í
fsaíjarðarbæ, Útgerðarfélagi
ísafjarðar, þegar til stofnunar
þess kemur í ársbyrjun 1997.
Fyrir á Gunnvör hf. um 16%
hlut í Togaraútgerð ísafjarðar
hf. nú þegar, og segir Kristján
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Gunnvarar hf., að hann ásamt
stjórnarformanni fyrirtækisins
hafi mætt á fund bæjarráðs fyr-
ir liðlega viku síðan en bæjar-
ráð ekki verið tilbúið til að
selja.
„Við vildum reyna að hafa
sterkari stöðu inni í
Togaraútgerð ísafjarð-
ar hf. í sambandi við
þessa sameiningu
þess við Rit hf., Bása-
fell hf., Sléttanes hf.
og Norðurtangann hf.
í nýju, öflugu félagi.
Þessi afneitun bæjar-
ins hefur þó engu
breytt hvað varðar
okkar afstöðu til sam-
einingarinnar,“ sagði
Kristján Jóhannsson.
Þorsteinn Jóhannesson, for-
seti bæjarstjórnar ísafjarðar-
bæjar, segir að bæjarstjórn sé
ekki tilbúin til að selja sinn hlut
í Togaraútgerð ísafjarðar hf.
vegna þess að hafið sé ákveðið
sameiningarferli og gangi ísa-
fjarðarbær úr skaftinu nú gæti
það tafið alla undirbúnings-
vinnu að þeirri sameiningu sem
framundan er, heldur sé rétt að
hvetja til áframhaldandi sam-
einingar í óbreyttri mynd. •
„Þó bæjarráð hafa verið ein-
huga um að leggja til við bæjar-
stjórn að hlutabréfin yrðu ekki
seld að sinni sé ekki þar með
sagt að við verðum hluthafar í
nýja fyrirtækinu um aldur og
ævi, enda er það meginstefna
núverandi meirihluta að bærinn
skipti sér ekki af atvinnurekstri.
Með sameiningu sveitarfé-
laga á norðanverðum Vestfjörð-
um fengum við líka um 25% í
útgerðarfyrirtækinu Sléttanesi
hf. á Þingeyri, en það er fullur
vilji innan bæjarstjórnar að
selja hluta í atvinnufyrirtækjúm
og nota þá peninga til að
styrkja aðrar atvinnugreinar
sem við vildum koma á stofn,
eða eiga í rekstrarerfiðleikum
og berjast í bökkum. Þannig
styður bæjarfélagið best við at-
vinnulífið og hindrar atvinnu-
leysi,“ sagði Þorsteinn Jóhann-
esson. GG
Landbúnaður
Lambið er á uppleið
Sauðárkrókur
Atvinnusýning
næsta sumar
Jónas Þór í Gallerí
Kjöt segir að salan á
lambakjöti sé að stór-
aukast með bættri
markaðssetningu
innanlands.
Heimamarkaður bænda er
og verður langmikilvæg-
asti markaðurinn. Eg
held að mönnum sé núna farið
að skiljast það. Markaðssetn-
ingin hér innanlands á lamba-
kjötinu hefur farið batnandi, og
þar með eykst neyslan," sagði
Jónas Þór Jónasson, kjötverk-
andi og kjötkaupmaður í Gallerí
Kjöt í Reykjavík í samtali við
Dag-Tímann í gær. Jónas hefur
verið þekktur fyrir vinnslu á
nautakjöti, en nú hefur lamba-
kjötið tekið við sér og hyggst
hann stækka verslun sína til
muna, einkum vegna aukningar
í sölu á lambinu.
„Hérna í mínu fyrirtæki er
um að ræða mörg hundruð pró-
sent aukningu á sölu lamba-
kjöts á tiltölulega stuttum tíma.
Öll aukning í búðinni stafar af
sölu lambsins," sagði Jónas Þór
í gær. -JBP
Stefnt er að því að efna í
júlíbyrjun á næsta ári til
sýningar á vörum og þjón-
ustu fyrirtækja á Sauðárkróki
og í Skagafirði. Fjölmörgum að-
ilum hefur verið boðin þátttaka
í væntanlegri sýningu, en und-
irbúningur vegna hennar er að
fara af stað.
Væntanleg sýning er hugsuð
sem framlag atvinnumála-
nefndar Sauðárkróks og fyrir-
tækja í bænum tii hátíðahalda í
kaupstaðnum sem hófst í júlí á
þessu ári. Þau standa til jafn-
lengdar næsta sumar, en tilefni
þeirra er 50 ára kaupstaðaaf-
mæli Sauðárkróks, 90 ár frá því
byggðarlagið varð sórstakt
sveitarfélag, 140 ára verslunar-
afmæli og þá eru um þessar
mundir liðin 125 ár frá því
fyrsta byggð reis þar.
Að sögn Páls Snævars Brynj-
arssonar, starfsmanns afmælis-
nefndar Sauðárkróks og full-
trúa í atvinnumálanefnd, var
um 100 fyrirtækjum á Sauðár-
króki og í Skagafirði boðin þátt-
taka. -sbs.