Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Síða 6

Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Síða 6
6 - Fimmtudagur 24.október 1996 (fflagixr-®tmirm FRÉTTASKÝRING ’ *'t *T '* * ^ * v, •. m 'áÍM l - fSfifttíS - # Óvissuástand ríkir nú um framhald meirihlutasamstarfs í bæjarstjórninni á Húsavík eftir ein- hvern stormasam- asta bæjarstjórnar- fund í langan tíma, sem fram fór í fyrrakvöld. * Afimdinum klofnaði meiri- hlutinn í afstöðu sinni til sameiningar Fiskiðju- samlags Húsavíkur og útgerð- arfyrirtækisins Höfða. Nýr meirihluti myndaðist í málinu en engu að síður töluðu menn um það fyrst eftir fundinn að halda samstarflnu áfram. í gær voru hins vegar komnar vöflur á menn varðandi samstarfið og sögðust þurfa að íhuga fram- haldið. Deilan á Húsavík á sér talsverðan aðdraganda og er að ýmsu leyti snúin. Dagur-Tíminn var á bæjarstjórnarfundinum í fyrrakvöld og útskýrir þessa deilu og baksvið hennar. Meirihlutasamstarf Eftir síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar mynduðu Framsóknar- flokkur annars vegar og Al- þýðubandalag og óháðir hins- vegar, meirihluta í bæjarstjórn Húsavíkur. í samstarfssamningi þessarra aðila er gert ráð fyrir að fiskvinnslufyrirtækið Fisk- iðjusamlag Húsavíkur og út- gerðarfyrirtækið Höfði hf. yrðu sameinuð og stefnt að því að klára máhð fyrir þann 1. sept. 1996. Bærinn á meirihluta í út- gerðarfyrirtækinu Höfða og stóran hlut í Fiskiðjusamlaginu. Ljós var að eftir sameiningu irtækjanna þess efnis að óskað var eftir kaupum á 13% af nafnverði hlutafjár í hinu sam- einaða fyrirtæki á genginu 1,71. Afstaða til þessa erindis varð tii þess að enn kemur fram ágreiningur meirihlutaflokk- anna þar sem Kristján vildi vísa erindinu frá en framsóknar- mennirnir vildu selja til nýja fyrirtækisins en á hærra gengi, 1,95. Þessi tillaga var samþykkt með atkvæðum sömu manna og greiddu sameiningunni atkvæði sitt. Framsóknarmenn ósannindamenn? Það hrikti því verulega í stoðum meirihlutans og ásakanir Krist- jáns í garð framsóknarmanna harðar og óvægnar, þar sem hann taldi þá ganga erinda annarra hluthafa í Fiskiðjusam- lagi Húsavíkur en bæjarins. Alþýðuflokkur á einn fulltrúa í bæjarstjórn Húsavíkur og sat hann hjá við afgreiðslu samein- ingarmálsins en lagði fram til- lögu um sölu á hlutabréfum þar sem lagt var til að selt yrði á genginu 2,0, 5% af nafnverði til sameinaðs fyrirtækis og 3% á sama gengi þar sem bæjarbú- um væri gefinn kostur á kaup- um hlutabréfa. Verður áfram sami meirihluti? Af þessu má sjá að meirihlutinn í bæjarstjórn Húsavíkur klofn- aði í tvígang við afgreiðslu þessarra mála á miklum átaka- fimdi s.l. þriðjudag. Fjöldi Hús- víkinga fylgdist með fundinum og kom fram í máli margra eftir að honum lauk að erfltt væri að sjá það fyrir sér að óbreyttur meirihluti gæti starfað áfram og áttu menn þá við að erfitt yrði fyrir framsóknarmennina að kyngja ásökunum og stórum orðum sem til þeirra var beint á fundinum frá samstarfsmanni þeirra í meirihlutanum Krist- jáni Ásgeirssyni. GKJ __ Kristján Ásgeirsson oddviti Alþýðubandalags segist ekki bundinn af samstaifssamningi meirihlutans hvað varðar sameiningu fyrirtœlganna Stefán Haraldsson oddviti framsóknarmanna heldur til streitu markmiðum sem sett voru í samstarfssamningi Sigurjón Benediktsson oddviti sjálfstœðismanna hljóp undir bagga svo markmið samstarfssamnings pólitískra andstœðinga nœðust yrði hlutur bæjarins í samein- uðu fyrirtæki meira en helm- ingur, þannig að ákvæði voru sett í samstarfssamning flokk- anna um að ekki væri heppilegt að bærinn ætti meirihluta í fyr- irtækinu. Þennan meirihluta bæjar- stjórnar skipa Stefán Haralds- son, Arnfríður Aðalsteinsdóttir og Sveinbjörn Lund úr Fram- sóknarflokki, og Kristján Ás- geirsson, fráfarandi fram- kvæmdastjóri Höfða hf., Val- gerður Gunnarsdóttir og Tryggvi Jóhannsson af lista Al- þýðubandalags og óháðra. Nýr framkvæmda- stjóri Undirbúningur að sameining- unni leiddi til þess að starfs- lokasamningar voru gerðir við framkvæmdastjóra þessara fyr- irtækja og er Kristján Ásgeirs- son oddviti Alþýðubandalagsins og einn aðalgerandinn í þessari deilu annar þeirra. Annar því hvort rétt sé að sameina fyrirtækin eða ekki og við af- greiðslu bæjarstjórnar í fyrra- kvöld um sameininguna var Kristján Ásgeirsson á móti, en samflokksmenn hans, þau Val- gerður og Tryggvi, sátu hjá. Sameiningin var samþykkt með atkvæðum Framsóknarmann- anna og fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, þeirra Katrínar Ey- mundsdóttur og Sigurjóns Benediktssonar. Fram kom í máli Kristjáns og annarra Al- þýðubandalagsmanna á bæjar- sjórnarfundinum, að þeir teldu forsendur samstarfssamnings breyttar hvað varðar samein- ingu fyrirtækjanna og því væru þeir óbundnir af honum að þessu leyti. Húsavíkurbær á meirihluta Við sameininguna eignaðist Húsavíkurbær meirihlutann í fyrirtækinu eða 53% og fyrir lá erindi frá stjórnum beggja fyr- Guðrún Kristín Jóhannsdóttir Húsavík, skrifar framkvæmdastjórinn hefur þeg- ar látið af störfum og Kristján hættir um næstkomandi ára- mót. Sem framkvæmdastjóri „væntanlegs" sameinaðs fyrir- tækis hefur Einar Svansson ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri og tók hann til starfa nú í haust. Höfði hf. er útgerðarfyrirtæki sem hefur gengið vel og er stöndugt en Fiskiðjusamlag Húsavíkur hefur átt í erfiðleik- um og hefur oft komið til kasta Framkvæmdalánasjóðs bæjar- ins, að koma fyrirtækinu til hjálpar svo halda megi rekstrinum áfram. Ágreiningur er því mjög mik- ill innan starfandi meirihluta á

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.