Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Blaðsíða 8
ÞJÓÐMÁL
JOagur-tlItmtrat
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Hörður Blöndal
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri,
Garðarsbraut 7, Húsavík
og Brautarholti 1, Reykjavik
Símar: 460 6100 og 563 1600
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
Hvað kostar Húsavík?
í fyrsta lagi
Á bæjarstjórnarfundi Húsavíkur voru tvö mikilvæg fyr-
irtæki sameinuð í nýju félagi. Það félag vildi kaupa
hluta af eign bæjarins - óg þar með yrði Húsavíkurbær
ekki lengur meirihlutaeigandi. Bæjarfulltrúar lentu í
hörkudeilum um verðið á þessari almenningseign -
ijöreggi Húsavíkur - sem þarna var færð nýjum eig-
endum. Tilboð í þessi bréf var gengið 1.71. Tillaga
kom fram á fundi um að samþykkja 1.95. Önnur til-
laga um sölugengið 2 kom fram (og að bæjarbúum yrði
gefin kostur á kaupa hluta bréfanna). Svo voru þeir
sem töldu að í öllum tilfellum væri verið að hlunnfara
bæjarbúa. Staðreyndin er þessi: Enginn í bænum hefur
hugmynd um hvert rétt verð er!
Rétt ’ærð á hlutabréfum fæst í sölu og kaupum, en ekki
í illdailum bæjarfulltrúa. Hvers vegna var málið ekki
und rbúið í tíma og bréfunum komið í verð með eðli-
legi ,m hætti? Það grátbroslega við málið er að bærinn
vih.i losa nýja félagið undan pólitískum deilum í fram-
tífinni með því að koma sér úr meirihlutaeign. Og
hvaða aðferð var notuð til þess að ná því markmiði?
l.inmitt sú sem talin var óhæf! Rifrildi á bæjarstjórnar-
undi!
í þriðja lagi
Utó
Skv. skoðanakönnun Gallup vill meirihluti ungs fólks
að „mamma sé heima“. Hvað segir þetta okkur um
kvenréttindabaráttu síðastliðinna áratuga?
Elsa
Þorkelsdóttir
framkvœmdastjóri
Skrifstofu
jafnréttismála
*
Imínum huga er þetta
fyrst og fremst niður-
staða um íslenska fjöl-
skyldupólitík. Þegar maður
horfir á þessar tölur þá er
það rétt að fleiri telja betra
að annað foreldrið sé
heima, langoftast mamm-
an, en hins vegar er munur
á svörum fólks eftir því
hvort það hefur gengið
menntaveginn eða ekki.
Aðstæður fjölskyldufólks
eru erfiðar og ef þær yrðu
bættar yrði viðhorfsbreyt-
ing á.
Flosi
Ólafsson
leikari
Ef það er rétt að tæp-
lega 65% ungs fólks
telji það æskilegra að
húsmóðirin sé heimavinn-
andi frekar en á vinnu-
markaði þá sýnir það enn
einu sinni að það er ekkert
að marka skoðanakannan-
ir. Þær endurspegla aðeins
óskhyggju þeirra sem
svara. Eins og ástandið er í
dag hafa heimilin ekki ráð
á þessum lúxus sem er að
hafa húsmóður heima.
Fjölskyldurnar verða víst
að hafa salt í grautinn.
♦
♦
Ragnhildur
Vigfúsdóttir
jafnréttis- og
frœðslufulltrúi hjá
Akureyrarbœ
Niðurstaðan kemur
mér á óvart, fólk á
öllum aldri virðist
meira gamaldags en ég
hugði en sennilega er skýr-
ingin sú hve konur eru illa
launaðar og erfitt að fá
dagvistunarpláss. Þátttak-
endur skoðanakönnunar-
innar ganga eflaust út frá
veruleikanum eins og hann
er, en ekki eins og hann
ætti að vera.
Ásta R.
Jóhannesdóttir
alþingismaður
S
Eg skil það vel að
krakkarnir vilji að
mamma sé heima, en
e.t.v. hefur okkur mistekist
að koma þeim skilaboðum
til barnanna okkar að það
geti verið allt eins gott að
pabbi sé heima eða einhver
annar til að taka á móti
þeim þegar skólatíma lýk-
ur.
I 1
s :ucví+-
Bærinn var búinn að setja sjálfum sér það markmið að
losa nýja félagið undan pólitískri stjórn fyrir aðalfund í
desember svo það yrði rekið á hreinum viðskiptalegum
forsendum. Málið allt var komið í tímaþröng. Eftir sit-
ur spurningin: Ilversu miklum viðskiptalegum hags-
munum hins almenna Húsvíkings var fórnað til að ná
því markmiði að losna við áhrif bæjarstjórnar í fyrir-
tækinu? Miðað við frammistöðu hennar í málinu í
heild má e.t.v. segja að engin fórn sé of stór!
Stefán Jón Hafstein.
V_____________________________________________________J
Viö nánari kynni
„Við Davíð þekktumst ekki neitt
í upphafi samstarfs okkar.
Ósættið stafaði af því að ég
kynntist honum. Hann er eini
maðurinn í íslenskri pólitík sem
hefur komið mér á óvart.“
Jón Baldvin Hannibalsson í Alþýðublaðinu í
gær um Davíð Oddson, forsætisráðherra.
Hvar eru mörkin
„Kristján Ásgeirsson lét hörð
orð falla í garð samstarfsflokks-
ins. Hann talaði um svik og að
verið væri að blekkja fólk, en
Stefán Haraldsson sagði við lok
umræðunnar að það hefði verið
á mörkunum að hægt hefði
verið að sitja undir aðdróttun-
um Kristjáns.
Morgunblaðið í gær um pólitík á Húsavík.
íslenskt já takk
„Ég ætla að höfða til sjálfstæðra
íslenskra kvenna að nú láti þær
til skarar skríða og stofni sam-
tök, sem hafa á stefnuskrá
sinni að sinna svona verkum
sjálfar og láta ekki útlendar
konr ryðjast fram á völlinn. „
Margrét Jóhannsdóttir í DV í gær, sem vill ís-
lenskar nektardansmeyjar á íslenska
skemmtistaði.
Ekki alvont
„íslensku liðin sleppa við löng
og ströng ferðalög"
Fyrirsögn í Degi-Tímanum í gær.
Þeir rauðu á grænu ljósi
Sú dýra hugsjón að sameina stjórn-
málaöfl sem ekki vilja tolla saman
er orðin svo illkynjaður kækur, að
sameiningarpostularnir fremja pólitískt
harakiri hver af öðrum til að aðrir láti
drauminn rætast. Þeir sem fyrir nokkr-
um árum flengdust um landið á rauðu
ljósi og boðuðu framtíðarríki jafnaðar-
manna draga sig út úr stjórnmálum til
að flækjast ekki fyrir þegar enn harðari
hugsjónamenn taka til við að grunn-
múra sameiningarþrána.
Ólafur Ragnar er orðinn sameining-
artákn um þjóðarátak til vegabóta á
Barðaströnd og Jón Baldvin býður fram
starfskrafta sína og hæfni til allra ann-
arra hluta en stjórnmálaafskipta. Strák-
arnir stoppuðu nefnilega á rauða ljós-
inu og komust ekki lengra.
Jóhanna reyndi að sameina Al-
þýðuflokkinn gegn Jóni Baldvini, en
sameinaðist svo Svanfríði sem klauf sig
út úr Alþýðubandalagi og er nú komin í
þingflokk með Össuri, sem sér engan
mun á Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi
og Evrópusainbandi. Hann vill sameina
þetta allt saman og taka Kvennalistann
og Nató með í púlíuna.
f Ilafnarfirði stofna kratar hvert jafn-
aðarmannafélagið af öðru til að samein-
ast svo jafnaðarílokknum stóra í fyll-
ingu tímans.
Sundrað til að sameina
Þegar kratar klofnuðu í fyrsta sinn var
búinn til Sameiningarflokkur alþýðu.
Svo klofnuðu kratar aftur og bjuggu til
Alþýðubandalag, sem klofnaði til að búa
til Samtök frjálslyndra og
vinstri manna, sem klofn-
uðu aftur til að styrkja alla-
balla og krata, sem enn
klofnuðu til að búa til
Bandalag jafnaðarmanna,
sem aftur sameinaðist Alþýðuflokknum
til að styrkja hann til sameiningar fé-
lagshyggjuaflanna.
Stundum heldur Framsókn sig vera
félagshyggjuflokk og fer þá mikinn í for-
ystu vinstristjórna og fer létt með að
skjóta sér vinstra megin við allaballana.
Og stundum brýtur maddaman upp á
miklum kærleikum við íhaldið, sem þá
verður að taka á honum stóra sínum til
að halda hægri kantinum hreinum.
Jafnaðarmenn eiga oft í miklu basli
með Framsókn, sem þeir halda ýmist
vera hægri eða vinstri flokk eftir því
hvaðan vindurinn blæs. Nú er hann tví-
átta, því framsóknarkona fer með póli-
tíska forystu R-listans og maður hennar
gegnir lykilhlutverki í stjórn sem leidd
er af Sjálfstæðisflokki. Svona eru vegir
félagshyggjunnar órannsakanlegir.
Fylgið óbreytt
Þegar sameiningaráráttan
greip gamla
kommaflokkinn og gamla
krataflokkinn fyrir nær 60
árum, skrapp fylgi þeirra
niður í svo sem tíu prósent per flokk.
Síðan hafa vinstrimenn klofnað og sam-
einast með reglulegu millibili og fylgi
flokkanna verið eitthvað í kringum tíu
prósentin, stundum svolítið meira og
stundum dálítið minna, og skiptir þá
litlu hvort verið er að sundra eða sam-
eina. Árangurinn er sá sami.
Ein af skýringum Jóns Baldvins á af-
sögn sinni nú er, að hann segist ekki
vilja flækjast fyrir samrunaferlinu, sem
nú kvað vera á fidlri ferð. Sighvatur,
Rannveig og Guðmundur Árni ætla aft-
ur á móti að fara í formannsslag. Jó-
hanna glottir, Davíð fagnar í útvarpinu
og Ingibjörg Sólrún telur að nú sé
brautin bein og greið fyrir ný bandalög,
þegar pólitíkusinn Jón Baldvin er allur.
Fæstum blandast hugur um að fram-
undan er „spennandi" tíð með miklum
heitstrengingum um stóra vinstri
flokkinn, jafnaðarmannaflokk allra jafn-
aðarmanna, sem allir þrá að stofna og
kjósa. Þá verður hugljúft að sjá kratana
Hjörleif og Steingrím J. rugla reitum
með Sighvati krónprinsi, Ágústi hinum
hagspaka og öðrum vinstrisinnum.
Þrautagöngu jafnaðarmanna í öllum
flokkum er nú loks að ljúka, þökk sé
Jóni Baldvini og Ólafi Ragnari, sem nú
eru hættir að flækjast fyrir samrunaferl-
inu. Við taka gamalkunnar ásjónur enn
eldri stjórnmálarefa, margreyndra í
innbyrðis átökum og flokkaflakki í nafni
sameiningar. Það er engin hætta á að
áhugafólki um stjórnmál leiðist á næst-
unni. OÓ