Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Blaðsíða 9
|Dagxtr-'3Imtmn Fimmtudagur 24. október 1996 - 9 PJÓÐMAL VöDinn upp úr pollunum Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir skrifar Nú hefur samgönguráð- herra loksins tekið á sig rögg eftir áralangt að- gerðaleysi og lýst því yfir að nú verði að hefjast handa við end- urbætur á Reykjavíkurflugvelli. Ég fagna þessum afgerandi yfirlýsingum ráðherrans og vonast til að hann láti athafnir fylgja orðum sínum og sjái til þess að nægt ijármagn fáist til þess að heíja strax fram- kvæmdir við flugvöllinn. Ástand vallarins afleitt Flugvöllurinn hefur verið í af- leitu ástandi lengi. í fram- kvæmdaáætlun flugmálanefnd- ar frá árinu 1986 var gert ráð fyrir að endurnýja slitlag á flug- brautum vallarins og að reisa nýja flugstöð. Ekkert varð úr þeim framkvæmdum. Þetta var fyrir tíu árum og lítið hefur ver- ið gert síðan. Flugstöðin sem enn er mest notast við er frá því á stríðsárunum. Farþegaaf- greiðsla fer fram á fleiri en ein- um stað við flugvöllinn og hefur það oft valdið óhagræði og óþægindum fyrir þá sem um völlinn fara. Á hættumörkum í skýrslu frá flugmálastjórn frá því í fyrra kemur fram að það vanti 70 þúsund fermetra upp á að flugvöllurinn uppfylli skilyrði um breidd brauta. Þar kemur einnig fram að öryggissvæði og axlir uppfylh ekki lágmarks ör- yggisskilyrði, halli sé ófullnægj- andi fyrir afvötnun, sléttleiki óviðunandi, merkingum áfátt og ljósabúnaður rangt staðsett- ur. Þar er einnig getið um að malbikið sé í slæmu ástandi og steypa víða illa brotin. Það hefur einnig komið fram að flugmenn, sem þurfa að lenda á vellinum, veigra sér við því við vissar aðstæður, vegna ástands vallarins, og telja hann vera á hættumörkum. Reykjavíkurflugvöllur - hvað ber að gera? Framkvæmdir strax - hagur allra Nú er gert ráð fyrir í flugáætlun að 127 milljónir komi til fram- kvæmda á Reykjavíkurflugvelli árið 1997. Ég tel að samgöngu- ráðherra verði að gera gott bet- ur ef hann meinar það sem hann hefur sagt undanfarið, að gera þurfi gagngerar endurbæt- ur á flugvellinum og ljúka því verki á næstu þremur árum. Um þrettán hundruð milljónir er áætlað að kosti að endur- byggja flugbrautir vallarins. Ég tel að það sé vilji þorra borgarbúa og í anda stefnu Reykjavíkurlistans að farið verði í framkvæmdir við upp- byggingu Reykjavíkurflugvallar „í skýrslu frá flugmálastjórn frá því ífyrra kemur fram að það vanti 70 þúsund fermetra upp á að flugvöllurinn uppfylli skilyrði um breidd brauta. “ Um 350 þúsund farþegar fara um Reykjavík- urflugvöll á ári hverju, en það eru 90% allra farþega sem ferðast innan- lands flugi. með „Það er furðulegt að í hvert sinn sem framkvœmdir á Reykjavíkur- flugvelli koma til tals þá þeysir borgarfulltrúinn Guðrún Ágústs- dóttir fram á völlinn og finnur þeim allt tilforáttu. Þannig hefur hún tal- að gegn framkvœmdunum, en til þess hefur hún ekkert umboð. “ Áralangt fjársvelti I ár voru aðeins 18 milljónir ætlaðar í framkvæmdir á flug- vellinum á meðan tugum millj- óna er varið til framkvæmda á flugvöllum úti á landi. Sem dæmi má nefna að 66 milljónir fara í Akureyrarflugvöll, 43 milljónir í flugvöllinn á Egils- stöðum og 33 milljónir í flug- völlinn á ísaflrði. Ég veit að þessum flugvöllum hefur ekki veitt af þessum íjárveitingum, en í ljósi hins bága ástands á Reykjavíkur- flugvelli, sem er fjölfarnasti innanlandsflug- völlurinn, og þeirra 18 millj- óna sem komu til framkvæmda þar, finnst mér forgangsröðin sérkennileg. Guðrúnar þáttur Ágústsdóttur Það er furðulegt að í hvert sinn sem framkvæmdir á Reykjavík- urflugvelli koma til tals þá þeysir borgarfulltrúinn Guðrún Ágústsdóttir fram á völlinn og finnur þeim allt til foráttu. Þannig hefur hún talað gegn framkvæmdunum, en til þess hefur hún ekkert umboð. Það er ekki á stefnuskrá Reykjavíkurhstans að flytja flugvöllinn eða leggja hann niður. Reykja- víkurlistinn hefur aftur á móti á stefnu- skrá sinni að efla atvinnulíf í Reykjavík, vinna gegn at- vinnuleysi og efla ferðaþjón- ustu í borginni, svo fátt eitt sé nefnt. Málflutn- ingur borgar- fulltrúans vinn- ur gegn öllum þessum stefnu- miðum og er ekki í þágu hagsmuna borgarbúa. Flugvöhurinn er inni á skipulagi borgarinnar og það er hlutverk ríkisins að sjá um að hann sé í viðunandi ástandi. Framkvæmdir við flugvöllinn eru arðbærar framkvæmdir, sem efla munu atvinnuUfið í borginni. Það er mikilvægt, sér- staklega þegar horft er til þess að atvinnuleysi í borginni hefur staðið í stað. í lok ágústmánað- ar s.l. voru 3000 manns skráðir atvinnulausir í Reykjavík, sem er sami fjöldi og á sama tíma í fyrra. / lok ágústmánaðar s.l. voru 3000 manns skráðir atvinnulausir í Reykjavík, sem er sami fjöldi og á sama tíma ífyrra. “ „Ég tel að það sé vilji þorra borgar- búa og í anda stefnu Reykjavíkurlist- ans að farið verði í framkvœmdir við uppbyggingu Reykjavíkurflugvallar strax. Ekki er hœgt að búa við það ófremdar- og jafnvel hættuástand sem ríkir í innanlandsflugi með völl- inn í slíkri niðurníðslu, “ strax. Ekki er hægt að búa við það ófremdar- og jafnvel hættu- ástand sem ríkir í innanlands- flugi með völlinn í slíkri niður- níðslu. Umhverfissjónarmiða gætt Efling atvinnustarfsemi á Reykjavíkurflugvelli er í þágu allra borgarbúa og reyndar landsmanna aUra. Vissulega þarf að taka tillit til margvís- legra þátta við það verk, eins og hljóðmengunar, vatnsbú- skapar á svæðinu og annarra umhverfissjónarmiða. En verði flugvöllurinn fluttur úr borg- inni, mun það hafa alvarleg áhrif á atvinnulíf, ferðaþjónustu og tekjur borgarsjóðs. Reykjavíkurborg mun verða af umtalsverðum tekjum, sem hún hefur af þeirri starfsemi sem nú fer fram á flugvellinum, flytjist hann eða starfsemi hans burt úr borginni. Höfundur er alþingismaður. Heilbrigðisþjónusta er mannréttindi Methúsalem Þórisson skrifar s msar blikur eru á lofti í heilbrigðisþjónustunni um þessar mundir. Verið er að loka deildum. Fólk, sem fer í grandaleysi með lyfseðlana sína í apótek, kemst að raun um að einmitt þetta lyf fæst ekki út á sjúkrasamlag, þannig að það þarf að greiða miklu hærri upphæð fyrir lyfið en það gerði ráð fyrir. Gjaldtaka fyrir læknisþjónustu er orðin nötur- legur raunveruleiki; fyrir 15-20 árum var hún nær óþekkt nema vegna tannlækninga og augn- lækninga. Fleira mætti upp telja sem dynur á fólki, sem þarf að leita á náðir heilbrigðiskerfis- ins. Lögbrot? Samkvæmt lögum nr. 97 frá 28. október 1990 eiga allir lands- menn kost á fullkomnustu heil- brigðisþjónustu, sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði. Það er því spurning hvort það er ekki lög- brot að láta fólk, sem þarf að fara í t.d. bakaðgerðir, bíða eft- ir aðgerð í allt að tvö ár. Ég veit að viðkvæðið er að það séu ekki til peningar, en á meðan verið er að byggja Hæstaréttarhús og endurbyggja Bessastaði, svo einhver dæmi séu nefnd, er ekki hægt að segja að ekki séu til peningar. Þetta er spurning um hvað er sett í forgang. Allir, sem hafa verið veikir, vilja að það sé sett í forgang að lækna þá sem fyrst og þetta er sjálf- sögð og eðlileg krafa, vegna þess að það er eðlilegt að vilja ekki kveljast. Aldraðir á hrakhólum Stjórnvöld hafa nú um nokk- urra kjörtímabila skeið verið að brjóta niður heilbrigðiskerfið sem það fólk, sem nú er orðið aldrað, byggði upp. Og nú er svo komið að margt gamalt fólk á verulega um sárt að binda, vegna þess að það er ekki pláss fyrir það á hinum ýmsu sjúkra- stofnunum. Lögleiðing biðlista Fram að þessu væri áreiðan- lega hægt að standa á því að ýmsar aðgerðir, sem stjórnvöld hafa staðið fyrir í heilbrigðis- kerfinu, eru lögleysa miðað við lögin frá 28. október 1990. Það virðist því að frumvarpi því, sem hggur nú fyrir þinginu, sé ætlað að lögleiða biðlista og fleira sem kemur niður á sjúk- linguin, en þar eru eftirfarandi ákvæði: „Tryggja skal sjúklingum sem sambærilegasta heilbrigð- isþjónustu. Sjúklingur á rétt á fullkomnustu meðferð sem á hverjum tíma er völ á að veita innan þess ijárhagsramma sem heilbrigðisþjónustunni er snið- inn á hverjum tíma. Sjúklingur á rétt á meðferð og aðbúnaði sem miðast við ástand hans, aldur og horfur á hverjum tíma. Réttur tryggður í stjórnarskrá Allir, sem eitthvað hafa fylgst með þróun mála, hljóta að vera búnir að gera sér grein fyrir því að það verður að snúa þróun- inni við. Þess vegna hefur Húm- anistahreyfingin á íslandi stað- ið fyrir undirskriftasöfnun með yfirskriftinni „Heilbrigðisþjón- usta er mamiréttindi“. Söfnun- inni er ætlað að stuðla að því að réttur fólks til heilbrigðisþjón- ustu sé tryggður í stjórnarskrá, þannig að slík grundvallar- mannréttindi verði ekki afnum- in eða skert með lagasetningu á hverjum tíma. Mörg félög og samtök vinna að undirskrifta- söfnuninni, svo sem Verka- mannafélagið Dagsbrún, Starfs- mannafélagið Sókn, Félag ís- lenskra bókagerðarmanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, samtök aldraðra, Sjálfs- bjargarfélögin, námsmannafé- lög o.íl. Allir eru hvattir til að skrifa undir og sýna á þann hátt vilja sinn í verki. Á degi Sameinuðu þjóðanna Á degi Sameinuðu þjóðanna 24. októþer n.k. verður svo bar- áttufundur á Ingólfstorgi undir kjörorðinu „Heilbrigðisþjónusta er mannréttindi". Mjög áríðandi er að sem flestir mæti þar, því ef núverandi þróun fær að viðgangast óátalið geta stjórn- völd álitið að fólk sé sammála niðurskurði, lokun sjúkradeilda og fleiru því sem dynur á þeim, sem minnst mega sín í þjóðfé- laginu. Höfundur er talsmaður Húmanista- hreyfíngarinnar á íslandi.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.