Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Page 10
10 - Fimmtudagur 24. október 1996
;I1iigur-®mTtrm
/ Þ R Ó T T I R
• Enski golfkennarinn Phil Hunter
hefur látið af störfum hjá Golf-
klúbbi Suðurnesja og hyggst reyna
fyrir sér í Þýskalandi. Phil fer utan
á næstunni, en ennþá er ekki ljóst
hver tekur við kennarastöðunni
hjá GS, en staðan var nýlega aug-
lýst laus til umsóknar.
• Rögnvaldur Ingþórsson,
langhlaupari náði mjög góðum ár-
angri á mótum í Sviþjóð í síðasta
mánuði. Rögnvaldur varð í 6. sæti í
tíu kílómetra hlaupi, sem haldið
var í Umea um miðjan mánuðinn,
þar sem hann hljóp á 31,43 mínút-
um. hremur dögum síðar hljóp
Rögnvaldur síðan 5000 metra
brautarhlaup undir fímmtán mín-
útunum.
• Franska vinstrihandarskyttan
Stéphane Stoecklin, sem leikur við
hlið Sigurðar Bjarnasonar hjá Min-
den, er markahæstur í þýsku úr-
valsdeildinni í handknattleik.
Stoecklin hefur skorað 43 mörk úr
fyrstu fimm leikjunum. Patrekur
Jóhannesson, sem leikur með Tu-
sem Essen, hefur skorað mest ís-
lensku leikmannanna, 28 mörk,
þar af sjö vítaköst og hann er nú í
15. sætinu yfír markahæstu menn.
• ítalski skíðamaðurinn Alberto
Tomba, meiddist í vikunni þegar
hann var við æfingar á jökli í Norð-
urhluta Ítalíu. Tomba flaug eina
fimmtán metra og meiddist á
vinstra hné og hægri olnboga og
búist er við því að hann stígi ekki á
skíði næsta mánuðinn. Skíðavertíð-
in hefst um næstu helgi með móti,
sem fram fer í Solden í Austurríki.
• Peter Shilton, sem lengi var
markvörður enska landsliðsins í
knattspyrnu, er farinn að leika
með 3. deildarliði Cambridge. Shil-
ton er 47 ára gamall og því lang-
elsti leikmaður deildakeppninnar.
Hann gæti náð að leika sinn 1000.
deildarleik á næstunni. Shilton hef-
ur undanfarin misseri leikið með
varaliði West Ham.
Haukaliðið sótti tvð sUg á Hliðarenda
íslandsmeistarar Vals máttu sætta sig við enn eitt tapið í 1. deildinni f gærkvöldi, þegar liðið lék
gegn Haukum. Á myndinni má sjá Valsmanninn Valgarð Thoroddsen svífa inn úr horninu. M,nd. bg
íkvöU
Handbolti
1. deild karla:
UMFA-KA ..............kl. 20
Stjarnan-ÍBV..........kl. 20
Körfubolti
Úrvalsdeildin:
UMFG-Skallagrímur ... kl. 20
Njarðvík-Keflavík ....kl. 20
ÍR-KFÍ................kl. 20
KR-Haukar.............kl. 20
UBK-Tindastóll........kl. 20
Síðasti leikur umferðarinnar er
viðureign fA og Þórs sem fram
fer á sunnudag klukkan 20.
GLÍMA
Glimukóngurinn
skiptir um félag
Glímukóngur íslands, Ingibergur Sigurðsson, hefur ákveðið
að hætta að keppa fyrir glímufélagið Ármann og hefur
þess í stað gengið til liðs við sitt gamla félag Víkverja.
Ingibergur verður keppandi á fyrstu Landsglímu GLÍ á vetr-
inum sem fram fer að Laugarvatni nk. laugardag. Þar verða
mættir til leiks allir sterkustu gb'mumenn landsins eins og KR-
ingurinn Orri Bjömsson og Þingeyingurinn Arngeir Friðriksson.
í unglingaflokki mæta einnig mikil glímutröll til leiks þar
sem eru Þingeyingarnir Yngvi Hrafn Pétursson og Ólafur Krist-
jánsson. gþö
HANDBOLTI
Úrslit leikja í 1. deild
karia í handknattidk
/ gærkvökli
FH-Grótta 24:22
Selfoss-Fram 31:22
ÍR-HK 29:24
Valur-Haukar 18:24
Staðan er nú þessi:
UMFA 5 4 0 1 135:122 8
Selfoss 6 3 1 2 161:162 7
Fram 6 3 1 2 136:140 7
Stjarnan 5 3 0 2 134:125 6
ÍBV 5 3 0 2 120:113 6
KA 4 3 0 1 109:103 6
Haukar 6 2 2 2 146:144 6
FH 6 3 0 3 145:151 6
ÍR 6204 141:144 4
Valur 6 1 2 3 132:136 4
Grótta 5 113 110:111 3
HK 6 1 1 4 134:152 3
KNATTSPYRNA
Enski deildarbikarinn:
Leeds-Aston Villa 1:2
Sharpe 69. - Taylör 70.,
Yorke vsp. 77.
Charlton-Liverpool 1:1
Whyte 18. - Fowler 21.
Man. Utd.-Swindon 2:1
Poborsky 19., Scholes 72. -
Thorne 52.
West Ham-Nott. For. 4:1
Dowie 16, 15, Portfirio 67.,
Dicks vsp. 73 - Cooper 29.
Middlesbro-Huddersfield 5:1
Junihno 17., Emerson 42.,
Ravanelli 72., 76., Beck -
Stoke-Arsenal 1:1
Sheron 26. - Wright 78.
Tottenham-Sunderland 2:1
Armstrong 71., Campbell 90. -
Ball 31.
Newcastle-Oldham 1:0
Béardsley vsp. 25.
Southampton-Lincholn 2:2
Le Tissier 46., Van Gobbel 54 -
Howe 21, Pinsworth 85.
Undankeppni HM:
Slóvakía-Færeyjar 3:0
KNATTSPYRNA • England
Er Alan Shearer virkilega
1600millióna króna virði?
Margir fótboltasþekingar
velta því fyrir sér hvort
nokkur knattspymumaður
geti verið 1.5 miiljarða króna
virði, en það var sú upphæð sem
Kevin Keegan mátti punga út fyrir
Alan Shearer, dýrasta leikmann í
sögu breskrar knattspyrnu.
Hvað keypti Keegan þá fyrir
i 1 □ □
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
þessar 1600.000.000 króna? Kikj-
um á nokkrar staðreyndir um
kappann.
Nafn: Alan Shearer
Fæðingard: 13. 08. 1971.
Fæðingarst.: Newcastle - on - Tyne.
Hæð: 180 cm. Þyngd: 71 kg.
Fyrri lið: Southampton 1987 - 1992.
Blackburn Rovers: 1992 - 1996.
Seldur frá South. fyrir £3,3 millj.
Seldur frá Blackburn fyrir £16 millj.
Alan Shearer hóf ferill sinn 17
ára gamall hjá Southampton árið
1987. Það ár lék hann 5 leiki með
liðinu og skoraði 3 mörk. Þegar
Danny Wallace var seldur frá
Southampton til Man. United árið
1989 losnaði pláss fyrir Shearer í
liðinu sem hann hélt óslitið þar til
Kenny Dalglish keypti hann til
Blackburn Rovers fyrir 3,3 millj-
ónir punda árið 1992. Margir telja
að hann hafi verið lykilinn að vel-
gengni Blackburn og verið sá sem
leiddi þá til sigurs í ensku úrvals-
deildinni árið 1994.
Shearer varð fyrstur manna til
að skora 100 mörk í ensku úrvals-
deildinni og þessi mörk skoraði
hann í 124 leikjum sínum með
Blackburn. Sá sem næst honum
kom er núverandi félagi hans hjá
Newcastle Les Ferdinand sem þá
hafði skorað 79 mörk. Þessi mikli
markahrókur hefur skorað 7
þrennur í deildinni, þar af er
ein vítaspyrna í þremur af
þessum þrennum.
Þá er meðalskor
Shearers það hæsta í
deildinni en hann skor-
ar að meðaltali 8 mörk
í 10 leikjum. Þeir sem
næstir koma eru
Andy Cole með 6,4
mörk og Robbie
Fowler með 6 mörk
í hverjum 10 leikj-
um.
Það má því ljóst
vera að pakkinn
sem Kevin Keeg-
an keypti á 1600
milljónir króna í
Blackburn var stór
en það er alltaf spurning
hvort innihaldið sé fúlgunnar
virði.
gþö