Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Qupperneq 11
gkgur-®ímímt
Fimmtudagur 24. október 1996 -11
B í L A R
Blaðamaður Dags-Tímans undir stýri á Opel Vectra langbak við Ashford kastala á írlandi.
I;rakkur og eggjandi
Bíll vikunnar
Opel
Vectra
Opel Vectra langbakur er
hreinlega stórfallegur bíll
sem búast má við að sjá-
ist á götunum hérlendis upp úr
áramótuniun. Það verður að
viðurkennast og er sannarlega
hægt að segja að Opel haíl tekið
breytingum í tímans rás, því
fyrr á árum var varla með góð-
um vilja hægt að tala um hann
sem sérlega fallegan bfl. En það
er ekki nóg með að Vectran sé
stórfalleg, hún er líka bráð-
skemmtileg á margan hátt.
Rúmgóð og trúlega með rúm-
betri bflum í þessum stærð-
arflokki og greinilegt að nostr-
að hefur verið við hönnunina á
bflnum. Ljósin að framan, sem
mjókka niður á við inn að
miðju, svolítið píreyg, og út-
stæður framendinn gefa Opel
Vectra dálítið frakkan og eggj-
andi svip.
Samvaxnar augabrýrnar eða
heila óslitna h'nan sem er dreg-
in frá endum hliðarspeglanna
og kemur saman undir miðju
grillinu gerir líka sitt til að
draga fram þennan frakka svip
á bflnum. Hlið bflsins er ekki
síður svipmikil og einkennist af
mjúkum sveigðum og sportleg-
um línum. Gluggarnir mjókka
eftir því sem aftar dregur og
toppurinn sveigist niður á við.
Fyrir aftan afturhjólin sveigist
botninn á bflnum upp á við.
Auk þessa eru bogar á toppn-
um sem geta borið 100 kg.
Þetta allt, ásamt afturhall-
andi framrúðu, gefur langbakn-
um merkilega sportlegt yfir-
bragð, í rauninni ótrúlega
sportlegt þar sem um langbak
er að ræða. Enda hefur sýnt sig
að vindmótstaða bflsins er með
því minnsta sem gerist í þess-
um stærðarflokki. Þessi lang-
bakur er ekki einfaldlega stall-
bakur sem hefur verið lengdur
eins og oftar en ekki er raunin,
heldur glæsilega hannaður og
vel heppnaður langbakur sem
hefur greinilega verið hugsaður
sem slíkur frá upphafi.
Þjóðverjinn á sannarlega
skihn plús fyrir fallegan bfl.
Innandyra ber bfllinn vönd-
uðrnn vinnubrögðum einnig
gott vitni. Ýmis öryggisbúnaður
er í Opel Vectra, læsivörn á
hemlum (ABS), tölvustýrð spól-
vörn, líknarbelgir fyrir bæði
framsæti og strekkjarar á ör-
yggisbeltum svo nokkuð sé
nefnt. Líknarbelgir í hliðum eru
væntanlegir. Stillingar fyrir
miðstöð eru nýstárlegar, þ.e.a.s.
stflling hitastigsins kemur fram
sem gráður á celsíus, þannig að
óræðar bláar og rauðar línur og
ágiskunarstillingar eru úr
sögunni, nú veit sá sem er að
stilla miðstöðina í bflnum ná-
kvæmlega hvað hitastig blást-
ursins er. Stillingar fyrir útvarp
eru í stýrinu þannig að bflstjór-
inn þarf aldrei að taka hend-
urnar af stýrinu tfl að hækka,
lækka eða skipta um stöð. Opel
Vectra langbakur er boðinn
með ijórum gerðum bensínvéla
auk díselvélar. Blaðamaður
Dags-Tímans reynsluók dísel-
bflnum og bflnum með 2,5 lítra
bensínvélinni góðan dagpart og
tók stutta spretti á bflum með
2,0 og 1,6 lítra vél, en reynslu-
aksturinn fór fram á írlandi.
Auk þessara vélastærða er
Vectran boðin með 1,8 h'tra vél.
Reynsluaksturinn:
Dísellinn kom á óvart
Dieselvélin kom skemmtOega á
óvart, en um er að ræða nýja
vél frá Opel með fjórum ventl-
um á hvern strokk og tölvu-
stýrðri innspýtingu. Vélin var
óvenju hljóðlát af díselvélum að
vera og seiglan kom á óvart.
Vélin er ágætlega spræk, og
jafnast alveg á við 1,6 h'tra
bensínvélina í snerpu. Seiglan,
eða togið, í vélinni kom hins
vegar skemmtilega á óvart, því
eins og sjá má á ireðfylgjandi
töflu er hröðun díselvélarinnar
úr 80 í 120 km. hraða sambæri-
leg hröðuninni n.eð 1,8 lítra
bensínvélinni, þar nig að í raun-
inni bætti díselvélin hlutfalls-
lega við sig í vinnslu eftir því
sem hraðinn jókst, borið saman
við bensínvélarnar. Díselbfllinn
vakti t.d. mikla undrun og
hrifningu hjá bflablaðamönnum
frá Dubai í Mið-Austurlöndum
en þar er h'til reynsla fyrir dís-
elvélum í fólksbflum. Fjöðrun
díselbflsins er frekar stíf en á
móti kemur að bfllinn liggur vel
á vegi og svarar vel hvort held-
ur er stýri eða hemlum. Veg-
hljóð var áberandi mest í dísel-
bflnum af þeim bflum sem
blaðamaður Dags-Tímans
reynsluók. Þetta er hins vegar
bfll sem hentar vel sem leigubfll
og mundi bæði henta mjög vel
sem íjölskyldubfll og vera hag-
kvæmur sem slflcur hérlendis ef
ekki kæmu til okkar sérkenni-
legur reglur um þungaskatt af
díselbflum. MerkOeg og þjóðfé-
laginu dæmalaust dýr þessi
neyslustýringarárátta íslenskra
stjórnvalda. Verðið hér er tæp
2,1 miOjón fyrir beinskiptan en
um 2,2 mOljónir fyrir sjálfskipt-
an dísel.
V-6, þvílíkur bíll!
Orkubúrið í hópnum er með 2.5
lítra V-6 vél. Þvflíkur bfll! Það
er eiginlega ekki hægt að segja
annað. Þennan bfl skorti aldrei
afl og þó komið væri í 170 km
hraða átti hann greinflega heil-
mikið eftir og vinnslan var
fantagóð. Veggrip og svörun var
beinlínis frábær, það virtist vera
sama hvað þessum bfl var boðið
(ofboðið) á krókóttum og óslétt-
um vegum írlands sem slógu
Hvalljörðinn rækilega út, alltaf
svaraði bfllinn stýrinu og rás-
festan var fullkomin. Það er
sjaldgæft að finna það beinlínis
að hafa bflinn svona öruggann.
Eini veikleikinn var ef slegið
var af á mikflli ferð í erfiðum
beyjum, þá fann maður fyrir því
að það losnaði örh'tið um aftur-
endann, en það er fullkomlega
eðfilegt þegar um framdrifsbfl
er að ræða. Öllu meira var lagt
í' þennan bfl innandyra en hina
bflana sem vár reynsluekið.
Mælaborð var t.d. viðarklætt og
annað í þeim dúr.
Þegar öllu er saman jafnað
þá hefur blaðamaður Dags-
Tímans ekki sest undir stýrið á
öllu skemmtilegri bfl en þessum
langbak af tegundinni Opel
Vectra með 2,5 h'tra V-6 vél
þegar um aksturseiginleika er
að ræða, fallegri bflum kannski
en það má ekki misskilja sem
svo að Vectran sé ekki fallegur
bfll, síður en svo. Það er aðeins
einn galli á gjöf Njarðar - ís-
lenskt vegakerfi og reglur um
hámarkshraða henta þessum
bfl engan veginn. Þetta er bfll
sem ekki nýtur sín í rauninni
fyrr en komið er á annað
hundraðið, enda eru menn fljótt
komnir yfir löglegan 90 láló-
metra hámarkshraða án þess
Opel Vectra
langbakur
Nokkrar stærðir
Heildarlengd: 4,49 m.
Heildarbreidd: 1,70 m.
Heildarhæð: 1,44 m.
llleðslurými: 460 - 1.490 lítrar
Mesta lengd hleðslurýmis
1.712 mm.
Hæð hleðslurýmis: 850 mm.
Breidd afturhleraops: 1.110 mm.
Snúningar stýris borð í borð: 2,97
Eldsneytistankur: 60 lftrar.
að gera sér grein fyrir því. En
frábær og vel heppnaður bfll
sem hentar vel hvort heldur er
á hraðbrautum eða krókóttum
vegum. Verðið hér tæpar 2,4
milljónir fyrir beinskiptan og
um 2,5 milljónir fyrir sjálfskipt-
an.
Stuttir sprettir
Blaðamaður Dags-Tímans tók
stutta spretti á sjálfskiptum bfl
með 2,0 lítra vél og beinskipt-
um bfl með 1,6 lítra vél. Bíllinn
með 2,0 lítra vélinni var mjög
skemmtOegur, vinnslan góð og
átti töluvert upp á að hlaupa tO
að taka frammúr á íslenskum
hámarkshraða. Fjöðrunin ekki
eins stíf og á öflugri bflnum,
meira í átt við hefðbundinn fjöl-
skyldubfl. Mjög eigulegur bfll
sem kostar hér um 2.150 þús-
und beinskiptur en tæpar 2,3
milljónir sjálfskiptur.
Bfllinn með 1,6 lítra vélinni
var sístur af þeim sem prófaðir
voru, enda aflminnsti bfllinn.
Það kom reyndar á óvart hvað
fjöðrunin var ólflc því sem hún
var í hinum bflunum. Þessi bfll
jaðraði við að vera laus á hól-
óttum vegi, rejmdar á töluverð-
um hraða og MJÖG hólóttum
vegi. Vélin var þokkalega spræk
upp fyrir 80 km. hraða með
létthlöðnum bfl, en gera má ráð
fyrir að hann verði svoh'tið lat-
ari með hleðslu. Sennilega er
þessi bfll nokkuð ódýrari en
hinar gerðirnar, þannig að séu
menn sem vilja Opel Vectra
langbak tilbúnir að sætta sig við
minni kraft og lausari fjöðrun
fyrir lægra verð er þetta ágætur
valkostur. Verðið á honum hing-
að komnum liggur ekki fyrir.
-ohr
Pínudísill
PínúdísOl er lfldega rétt-
nefni fyrir þennan BeUier
VX „AtoU“ 4kw diesel.
Þetta er einn af Qölmörgum
smábflum sem sjá mátti á Bíla-
sýningunni í París nú í október.
Þessi Bellier VX hefur verið
framleiddur í tvö ár og er mjög
vinsæU í Frakklandi og S-Evr-
ópu. Verðið er 70. 270 frankar,
eða sem svarar rúmum
900.000 krónum. Bfllinn hefur
verið fluttur út til S- Evrópu-
ríkja, Ítalíu, Spánar og Portú-
gal. Væri mjög hagkvæmur og
ódýr í rekslri hérlendis ef ekki
kæmu til fornaldarlegar furðu-
reglur um þungaskatt af dísel-
bflum búnar til af alltum-
vefjandi alvitrum stjórnvöldum.
Ef til vill ekki fallegasti eða
snarpasti bfll í heimi, en hvað
um það. Mynd: ohr
Opel Vectra langbakur:
Afl og eyðsla
Vélargerð: l,6i 1,6 1,6 1,8 1,8 1,8 -sport 2,01 -dísel 2,0 2,0 2,0 -sport 2,5 2,5
Gírk. (b=beinsk, s=sjálfsk): 5b 5b 4s 5b 4s 5b 5b 5b 4s 5b 5b 4s
Hestöll: 75 ^ 100 100 115 115 115 82 136 136 136 170 170
kW: 55 74 74 85 85 85 60 100 100 100 125 125
Kíló á hestafl: 17,1 13,2 13,5 11,8 12,1 11,8 17,5 10,3 10,5 10,3 8,7 8,8
Kíló á kW. 23,3 17,8 18,2 16 16,4 16 23,9 13,1 14,3 13,1 11,8 11,9
Hámarkshraði: 167 180 170 ’ 195 188 195 170 207 200 207 222 215
Hröðun 0-100 í sek.: 17 13,5 15,5 12 13,5 12 17 10,5 11,5 10,5 9 10
Hröðun 80-120 í 5. gír: 25,5 21 - 20 - 16,5 20 17,5 - 15,5 12,5 -
Eyðsla í lítrum á 100 km: Á 90 km/klst hraða: 5,2 5,4 5,8 5,7 5,9 6,0 4,2 6,1 5,9 6,2 7,1 6,8
lnnanbæjarakstur: 9,2 8,8 10,4 9,2 10,5 9,5 6,2 10 10,5 10,1 11,6 12,4
Blandaður akstur: 7,0 7,0 7,9 7,4 7,9 7,7 5,3 7,9 7,9 8.0 9,2 9,2