Dagur - Tíminn - 31.10.1996, Qupperneq 2
14- Fimmtudagur 31. október 1996
Jlagur-'ðRmimt
„Okkur vantar
Ungmennalista“
rauninni réttast á vissum ald-
ursstigum að leggja fyrir börn
og unglinga þroskapróf, sem
myndi mæla hvort þau væru
reiðubúin að til dæmis vera
lengi úti, taka bílpróf, kaupa
áfengi og taka afleiðingum
gerða sinna... Margir glæpir or-
sakast af drykkju og eiturlyíja-
notkun unglinga og virðast
mörkin alltaf vera að færast
neðar. Þvf yngri sem þeir byrja
að drekka því meiri líkur eru á
því að þeir fari út í harða
neyslu ... í öllum þessum tilvik-
um væri hægt að nota þroska-
prófið til að skera úr um hvort
unglingurinn sé tilbúinn að
horfa á vissar gerðir kvik-
mynda, spila vissar gerðir
tölvuleikja, og hve lengi hann
má vera úti. En eins og þetta er
nú fá þeir sem eru seinþroska
að sjá og lifa sig inn í ýmsa
hluti, sem þeir ættu heldur að
láta ógert."
Setið fyrir svörum
Ráðamenn á Austurlandi sátu
fyrir svörum á málþinginu sl.
laugardag. Þeir voru Arngrímur
Blöndal bæjarstjóri í Neskaup-
stað og starfsbróðir hans Helgi
Halldórsson á Egilsstöðum,
Arnbjörg Sveinsdóttir á Seyðis-
firði, Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra og Puríður Bacli-
mann varaþingmaður. -sbs.
Hlustað af athygli á framsögur jafnaldranna.
Myndir: Marinó
Skeleggir austfirskir framsögumenn af yngri kynslóðinni.
sagði sig vera fullkomlega and-
víga því að stytta sumarfrí
skólanema. „Við þurfum á pen-
ingum að halda. Allt í þessu
þjóðfélagi kostar peninga - allt
of mikla,“ sagði Halla sem bætti
því við að unglingar vildu tolla í
tískunni - og það kostaði sitt.
Þá yrði margt betra ...
„Ef einn maður réði öllum
heiminum yrði margt betra,“
sagði áðurnefndur Rúnar Snær
Reynisson. Hann kvaðst sjá um
veröld víða verkefni sem brýnt
væri að leysa, svo sem að metta
hungraða munna, draga úr
vopnaframleiðlu og hjálpa
heimilislausum. Af verkefnum á
íslandi nefndi Rúnar að æskilegt
væri að draga úr atvinnuleysi.
Og áfram hélt Reynir Snær:
„Unglingum er misboðið að því
leyti að þeir sem þroskast fljótt
þurfa að sætta sig við reglur
sem settar eru fyrir meðalung-
linginn. Og þeir sem eru sein-
þroska fá að gera ýmsa hluti of
snemma, sem hvorki þeir né
aðrir hafa gott af. Pví væri í
Unglingar og jafnvel börn
hafa oft skoðanir á hlut-
um, en það er ekki oft
hlustað á okkur. Því ætti að
vera til Ungmennalistinn, alveg
eins og Kvennalistinn, sem
myndi berjast fyrir rétti ung-
linga, til dæmis til að kjósa.“
Þetta sagði Rúnar Snær Reynis-
son, ungur maður á Egilsstöð-
um, á málþingi um málefni
ungmenna í Austurlandskjör-
dæmi sem Umboðsmaður barna
hélt á Egilsstöðum um síðustu
helgi. Austfirsk ungmenni
höfðu framsögu, en ráðamenn
sátu fyrir svörum.
Er unglingaveikin
alvarleg?
Heiðdís Halla Bjarnadóttir á
Egilsstöðum var meðal þeirra
ungmenna sem töluðu á mál-
þinginu. Hún gagnrýndi fjöl-
miðla og þeirra umfjöllun um
málefni unglinga. Sagði fjöl-
miðlamenn um of beina sjónum
sínum - og þar með lands-
manna - að neikvæðum þátt-
um, svo sem drykkjulátum.
Þegar jákvæðir þættir í sam-
komu- og menningarlífi ung-
linga landsins væru að gerast
væri iðulega leitað þar eftir hin-
um neikvæðu atriðum í því
sambandi.
„Unglingaveiki verður alltaf
til staðar hjá unglingunum, en
er unglingaveiki svo alvarleg?
Eru unglingar alltaf neikvæðir, í
fýlu og höfum við ekki áhuga á
öðru en skemmtunum, hinu
kyninu og því sem ekki má?“
sagði Heiðdís Halla. Þessari
spurningu svaraði hún neitandi
og sagði að þessi umfjöllunarat-
riði væru að mestu leyti sett
fram af sérfræðingum.
Þurfum gjörólíkar
reglur
í tölu sinni gagnrýndi Heiðdís
Halla núgildandi reglur um úti-
vistartíma barna og unglinga.
Hún sagði að almennt þætti
Fjölsótt málþing um
málefni ungmenna í
A usturlandslgördœmi
var haldið á Egils-
stöðum sL laugardag
á vegum Umboðs-
manns barna.
„ Unglingar og jafnvel
börn hafa oft skoðanir
á hlutum, “ sagði ungur
framsögumaður.
börnum hann vera of stuttur og
æskilegt væri að lengja hann.
Þetta sjónarmið kom einnig
fram í erindi Rúnars Snæs
Reynissonar. Hann sagði fárán-
legt að sömu útivistarreglur
væru gildandi í 1.600 manna
samfélagi á Egilsstöðum eða á
Reykjavík þar sem íbúar eru
130 til 140 þúsund og glæpir
tíðir. „Því ættu að vera gerólík-
ar reglur hér en í Reykavík,"
sagði Rúnar Snær.
Heiðdís Halla Bjarnadóttir
Því vœri í rauninni
réttast á vissum
aldursstigum að
leggjafyrir börn og
unglinga þroskapróf
sem myndi mcela hvort
þau vœru reiðubúin
að til dœmis vera
lengi úti eða
taka bílpróf.