Dagur - Tíminn - 31.10.1996, Síða 3
^Uagur-ÍErmími
Fimmtudagur 31. oktober 1996 -15
HUGSJONALIFIÐ
L A N D I N U
Blundar í þér
Hannes lítill Hólmsteinn?
Nýlega birtist í Stefni, blaði sambands ungra sjálf-
stœðismanna, stjórnmálapróf Þetta próf sker úr
um hvar þú stendur í stjórnmálum með þeim
tíu spurningum sem það telur. Eins og Stefnir bend-
ir á er erfitt að svara sumum spurningunum með
gefnum möguleikum; já, nei og ekki viss og má
virðast að allar forsendur skorti. Dagur■
Tíminn lét því eftir stjórnmálamönnunum
Jimm sem fóru í prófið að rökstyðja
svör sín þegar þeir óskuðu eftir
slíku. Auðvitað verður að taka
niðurstöðurnar með fyrirvara, - öllu gríni fylgir ekki
endilega alvara.
Það eru þau Halldór Blöndal, Kristín Ástgeirsdóttir,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Páll Pétursson og
Steingrímur J. Sigfússon sem hér spreyta sig á
prófinu og fá þar með fullvissu um hvar þau
eru stödd í pólitíkinni. Flest vilja þau miðju-
menn vera nema Steingrímur J. sem rétt
sleppur frá frjálshyggjunni þar sem
Halldór Blöndal hins vegar virðist
eiga heima. -mar
Halldór
Steingrímur J. Sigfús-
son er á einstigi
frjálshyggju og
vinstri stefnu
Fyrríhluti - frelsi i einkamálum
1. Ertufylgjandi frjálsri aðild að
félögum? Já
2. Finnst þér að ríkið eigi að
láta fjölmiðla; útvarpsstöðvar,
blöð og Internetið í friði? Nei
(Það er óhjákvæmilegt að setja
vissar leikreglur, t.d. um ofbeldi í
sjónvarpi og að flytja ærumeið-
ingar).
3. Ertu samþykkur því að kyn-
lífshegðun fullorðinna sé einka-
mál þeirra? Já
4. Finnst þér að fólk eigi að
hafa frelsi til að fara á milli
landa íJriðsömum tilgangi? Já
5. Ertu fylgjandi trúfrelsi og
aðskilnaði ríkis og kirkju? Já
Seinni hluti - efnahagsmál
1. Fyrirtœki eiga að starfa án op-
inberra styrkja. Já
2. Viðskiptafrelsi er betra en
viðskiptahindranir? Já (Frelsi
verður að vera innan ramma
þeirra leikreglna og marka sem
lýðræðislega kjörin stjórnvöld
setja viðskiptum annars snýst
það upp í andstöðu sína).
3. Lög um lágmarkslaun valda
atvinnuleysi. Nei
4. Lœkka þarf skatta og auka
kostnaðarþátttöku þeirra sem
þjónustu njóta. Nei
5. Fólk á að geta valið sér líf-
eyrissjóð. Ekki viss ( Ég held að
lífeyrissparnaður og afkomuör-
yggi fólks sé svo nátengt almanna
tryggingum og velferðarkerfinu
almennt að það sé ekki farsæl
niðurstaða að sparnaður verði
óskipuleg ófreskja.)
Kristín Ástgeirsdóttir
er miðjumaður.
(„Þetta hafa þeir verið að segja
mér vinir mínir í Framsóknar-
flokknum“)
Fyrrí hluti - frelsi I einkamálum
1. Ertu fylgjandi frjálsri aðild að
félögum? Já
2. Finnst þér að ríkið eigi að
láta fjölmiðla; útvarpsstöðvar,
blöð og Internetið í friði?
Nei (Það verður að setja þær
reglur að fjölmiðlar gæti velsæm-
is og standi vörð um börn.)
3. Ertu samþykkur því að kyn-
lífshegðun fullorðinna sé einka-
mál þeirra?
Nei (Menn verða að gæta þess
að ganga ekki á rétt annara,
menn hafa ekki leyfi til að brjóta
á hver öðrum.
4. Finnst þér að fólk eigi að
hafa frelsi til að fara á milli
landa í friðsömum tilgangi? Já
5. Ertu fylgjandi trúfrelsi og
aðskilnaði ríkis og kirkju? Já
Seinni hluti - efnahagsmál
1. Fyrirtœki eiga að starfa án op-
inberra styrkja. Já
2. Viðskiptafrelsi er betra en
viðskiptahindranir? Já
3 Lög um lágmarkslaun valda
atvinnuleysi. Nei
4. Lœkka þarf skatta og auka
kostnaðarþátttöku þeirra sem
þjónustu njóta.
Nei (Skattar á íslandi eru
lægri en í mörgum öðrum lönd-
um og við stöndum frammi fyrri
mikilli þörf fyirr aukna þjónustu
og því tel ég ekki forsendur til
skattalækkana.
5. Fólk á að geta valið sér líf-
eyrissjóð.
Já (Lífeyrissjóðir eru alltof
margir og dýrir en ég held að það
sé til góðs að fólk geti valið og
það sé einhver samkeppni á milli
þeirra.)
Páii
Ragnheiður Ásta
Jóhannesdóttir
er miðjumaður
Fyrrí hluti - frelsi í einkamálum
1. Ertu fylgjandi frjálsri aðild að
félögum? Já
2. Finnst þér að ríkið eigi að
láta fjölmiðla; útvarpsstöðvar,
blöð og Internetið í friði? Nei
(Það er ekki hægt að svara þessu
með svarmöguleikum sem gefnir
eru. Ég er stuðningsmaður ríkis-
útvarps en tel engu að síður að
ijölmiðlar eigi að vera óháðir rík-
isvaldinu.)
3. Ertu samþykkur því að kyn-
lífshegðun fullorðinna sé einka-
mál þeirra? Nei (Sérstaklega ekki
gagnvart börnum).
4. Finnst þér að fólk eigi að
hafa frelsi til að fara á milli
landa í friðsömum tilgangi? Já
5. Ertu fylgjandi trúfrelsi og
aðskilnaði ríkis og kirkju? Já.
Seinni hluti - efnahagsmál
1. Fyrirtœki eiga að starfa án op-
inberra styrkja.
Já. (Það væri gott ef það væri
hægt.)
2. Viðskiptafrelsi er betra en
viðskiptahindranir? Já.
3. Lög um lágmarkslaun valda
atvinnuleysi. Nei
4. Lœkka þarf skatta og auka
kostnaðarþátttöku þeirra sem
þjónustu njóta. Nei.
5. Fólk á að geta valið sér líf-
eyrissjóð.
Ekki viss.
Páll Pétursson er
miðjumaður til vinstri
Fytri hluti - frelsi i einkamálum
1. Ertu fylgjandi frjálsri aðild að
félögum? Já.
2. Finnst þér að ríkið eigi að
láta fjölmiðla; útvarpsstöðvar,
blöð og Internetið ífriði?
Nei (Þau tilvik geta engu að
síður komið upp að eðlilegt sé að
ríkið skipti sér að fjölmiðlum).
3. Ertu samþykkur því að kyn-
lífshegðun fullorðinna sé einka-
mál þeirra? Nei.
4. Finnst þér að fólk eigi að
hafa frelsi til að fara á milli
landa í friðsömum tilgangi? Já.
5. Ertu fylgjandi trúfrelsi og
aðskilnaði ríkis og kirkju?
Já og nei. (Ég er fylgjandi trú-
frelsi en ekki aðskilnaði ríkis og
kirkju).
Seinni hluti - efnahagsmál
1. Fyrirtœki eiga að starfa án op-
inberra styrkja.
Nei. (Það er ekki hægt að
svara spurningunni með já eða
nei. Þau tilvik geta komið upp að
eðlilegt sé að fyrirtæki séu styrkt
af almannafé og ríkisfyrirtæki
eiga tvímælalaust rétt á sér.)
2. Viðskiptafrelsi er betra en
viðskiptahindranir? Já.
3. Lög um lágmarkslaun valda
atvinnuleysi. Ekki viss. (Launin á
að skipa með samningum, ekki
með lögum.)
4. Lœkka þarf skatta og auka
kostnaðarþátttöku þeirra sem
þjónustu njóta.
Nei. (Að svo komnu máli eru
ekki skilyrði til að lækka skatta.)
5. Fólk á að geta valið sér líf-
eyrissjóð.
Nei (Með því móti er hætta á
enn meiri mismunun í lífeyris-
réttindum sem er alltof mikil
fyrir.)
Halldór Blöndal er
frjálshyggjumaður
Fyrri hluti - frelsi í einkamálum
1. Ertu fylgjandi frjálsri aðild að
félögum? Já.
2. Finnst þér að ríkið eigi að
láta fjölmiðla; útvarpsstöðvar,
blöð og Internetið í friði?
Nei. (En það er ekki hægt að
svara spurningunni, forsetninga-
liðurinn „í friði“ er merkingar-
laus í þessu samhengi.) Ég vil
ekki að ríkið haldi áfram að
borga Alþýðublaðið, en ríkið
hlýtur að setja almennar sam-
skiptareglur um fjarskiptaregur
o.s.frv.)
3. Ertu samþykkur því að kyn-
lífshegðun fullorðinna sé einka-
mál þeirra?
Já. (En þetta er líka spurning
sem ekki er hægt að svara. Af-
brigðileg kynlífshegðun er ekki
einkamál.)
4. Finnst þér að fólk eigi að
hafa frelsi til að fara á milli
landa ífriðsömum tilgangi? Já.
5. Ertu fylgjandi trúfrelsi og
aðskilnaði ríkis og kirkju?
Já. (En þetta eru tvær spurn-
ingar. Ég vil trúfrelsi en er á móti
aðskilnaði ríkis og kirkju.)
Seinni hluti - efnahagsmál
1. Fyrirtœki eiga að starfa án
opinberra styrkja.
Já. (íslensk fyrritæki eru ekki
samkeppnisfær ef hin erlendu
eru styrkt en ekki íslensk, spurn-
ingin er illa skilgreind.)
2. Viðskiptafrelsi er betra en
viðskiptahindranir? Já.
3 Lög um lágmarkslaun valda
atvinnuleysi.
Já (Lög um lágmarkslaun eru
vitleysa og ganga ekki upp, þau
geta vel valdið atvinnuleysi).
4. Lœkka þarf skatta og auka
kostnaðarþátttöku þeirra sem
þjónustu njóta. Já.
5. Fólk á að geta valið sér líf-
eyrissjóð. Já.