Dagur - Tíminn - 31.10.1996, Síða 5

Dagur - Tíminn - 31.10.1996, Síða 5
|Qagur-®mrám Fimmtudagur 31. október 1996 -17 VIÐTAL DAGSINS Þetta var martröð Sakfelldur án þess að vera ákœrður fyrir eitthvað sem hann gerði ekki! Þannig má lýsa lífsreynslu Frímanns Lúðvíkssonar, kassamanns hjá Esso, sem var sakaður á sínum tíma fyrir að hafa stolið peningatösku frá fyrirtœkinu ásamt félaga sínum. í Ijós kom að taskan festist í rennu úr öryggishólfi. En það var ekki fyrr en fjórum árum síðar að það uppgötvaðist. Þeirfélagarfengu greiddar sárabœtur sem þeir voru ekki ofsœlir af! Frímann Lúðvíksson bjó lengi í Vestmannaeyjum sem húsvörður á verbúð- um. Eftir að Frímann flutti á höfuðborgarsvæðið 1984 starfaði hann sem kassamaður hjá Esso í Mosfellsbæ. Hluti af starfi hans var að fara með peningatöskur í öryggishólf í útibú Búnaðarbankans í Mos- fellsbæ þar sem hann býr. Ein taskan með uppgjöri úr kassan- um, sem Frímann fór með í ör- yggishólfið, skilaði sér ekki að sögn bankans. í töskunni voru nokkrar milljónir króna. Frí- mann og félagi hans lágu undir grun um að hafa stolið pening- unum, án þess að vera form- lega ákærðir. „Þetta var martröð. Við höfðum farið með töskuna eins og venjulega en okkur var sagt að hún væri horfin. Við vorum kallaðir í yfirheyrslu hjá lög- reglunni. Hún rengdi okkur og sagði að taskan væri ekki í bankanum. Ég benti lögregl- unni á að einu sinni hefði frænka konu minnar týnt tösku sem hún hefði sett í öryggis- hólf. Taskan hefði fundist í rennukerfinu. Ég spurði þá tvisvar hvort leitað hefði verið í rennukerfinu. En í bæði skiptin var logið að mér og sagt að það hefði verið gert. Taskan fannst fyrir tilviljun Ijórum árum síðar. Þetta hvildi á okkur eins og mara allan þennan tíma, þetta var alveg ömurlegt,“ segir Frí- mann. Og það var enn grátlegra hvernig peningarnir fundust. Bróðir kunningja Frímanns var kallaður í Búnaðarbankann,til að setja upp reykskynjara. Þeg- ar hann fór upp í stigann sá hann töskuna í rennunni. Lög- reglan og bankinn höfðu því aldrei leitað í rennunni. „Mér fannst framkoma þeirra fyrir neðan allar hellur. Það gekk mikið á þegar taskan „hvarf‘ því strákurinn minn hafði lent í alvarlegu slysi á sama tíma. Þriggja sólarhringa uppgjör var í töskunni. Ég var mest gramur yfir því að lögregl- an skyldi halda að við værum svona rosalega heimskir að við myndum bara taka peninga- töskuna eins og ekkert væri,“ segir Frímann. í sárabætur greiddi Búnað- arbankinn Frímanni og félaga hans 200.000 kr. hvorum. For- stjóra Esso, Geir Magnússyni, fannst þetta heldur klént og bætti 100.000 kr. við upphæð- ina. En mestu máli skipti að sjálfsögðu fyrir Frímann að hafa endurheimt æruna... ÞoGu Eldgos í útlöndum Hlynur Hallsson skrifar Sæl veriði. f dag er himinn- inn heiðskír, þrátt fyrir að síðasti dagur sumarsins hafi verið í gær og samt ætla ég að segja ykkur frá þremur áhugaverðum málum. Þið kynnist muninum á dósabjór, flöskubjór og kranabjór, fáið að vita hvernig á að undirbúa jólin vandlega og einnig nokkuð tím- anlega og lesið líka um eldgos í útlöndum, sem hófst á samein- ingardeginum sem er frídagur hér í landi og á auk þess að vera nokkurskonar þjóðhátíðar- dagur Þjóðverja, en er það ekki. Það er ekki alltaf sem ísland fær jafn góða kynningu í íjöl- miðlum hér í landi líkt og síð- ustu vikur. Oftast er þó minnst á Skerið sem uppsprettu leið- indaveðurs, því að allar rign- ingarlægðir koma frá íslandi. Eldfjallaeyjan fagra hefur þó verið daglegur gestur frétta- tíma, þar sem þulirnir hafa fengið að spreyta sig á ómögu- legum tungubrjótum eins og Bárðarbungu og Vatnajökli, að vísu alltaf í nefnifalli. Nonna og Manna myndbandáspólur hafa rokið upp vinsældalistana, Kaldur sviti er komin aftur of- aní neðanjarðarbíóin og Björk er snúin við í sjónvarpið, allt eldgosinu ógurlega að þakka. Einni íslandsfrétt tókst samt að slá flóðið um síðustu helgi út, þegar litmyndir af flugvélar- flakssumarbústað prýddu síður hinna virtustu dagblaða, sem og sorpblaða. Já, nú er loksins gaman að vera íslendingur í útlöndum og þurfa að sökkva sér niður í um- ræður um stærð, legu, fólksfjölda, sögu og nútíma- myndlist á íslandi um leið og maður fær sesambrauðið yfir afgreiðsluborðið í bakaríinu útá horni. Jólin, jólin, jólin koma brátt, syngja kaupmennirnir. Það eru komnar jólakökur í hillurnar, kertastjakar á borðin, jóla- skraut í gluggana og kaffibúð- irnar slást um að spá í hvaða dót verði jólagjöfin í ár. Kaffi- búðir hér selja nefnilega ekki bara kaffi, heldur líka rakvélar, postulínsstyttur, rafmagnsbíla og bangsa. Allt á tilboðsverði. Á bókamessunni í Frankfurt, sem er í raun og veru bókasýn- ing í dulbúningi, voru samt engar dæmigerðar jólabækur í fremstu línu, heldur írlands- bækur. Það liggur við að þjóðar- stoltið bíði hnekki, enda liggur beint við að leggja aðaláherslu á íslandsbækur í tilefni af flóð- um og eldgosum. En írarnir fengu sína landkynningu að þessu sinni, enda alltaf að fá Nóbelsverðlaunin. Talandi um bækur þá er rétt að benda á að fyrir skiptingu landsins var Leipzig vagga bók- menntanna, en tapaði því eðli- lega þegar þar var hætt að prenta aðrar bækur en Ávarpið hans Karls Marx og Móritz. En nú á að endurvekja bókaborg- ina og búið að endurbyggja bókasafnið og sýningarhallirnar og allir eru glaðir. Næsta skemmtimessa verður samt í Köln í byrjun nóvember þar sem gallerí allra þjóða sameinast undir einu þaki. Og börnin fara að hlakka til. Svo líður að heimssýningunni EXPO 2000 í Hannover, þó að ekki sé enn búið að ákveða hvað eigi að sýna þar. Þetta með bjórinn verður bara að fá að bíða um íjórar vikur. Gleðileg jól og góðan vet- ur.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.