Dagur - Tíminn - 31.10.1996, Page 10
^Dagur-'STmmm
■ff
22 - Fimmtudagur 31. október 1996
Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri
Fordæmi forseta-
efna í fj ármálum
Guðmundur
Rafn Geirdal
skrifar
Nú hefur komist í hámæli
að forsetaefnin sem flest
fengu atkvæðin hafa
halla á sínum íjármálum. Á
meðan á kosningabaráttunni
stóð voru gefin út fögur fyrir-
heit í fjármálum og aðhalds og
sparnaðar skyldi gætt; einnig í
forsetaembættinu. Niðurstaðan
var önnur. Nýkjörinn forseti
reyndi að lagfæra hallann með
því að bjóða myndir af sér til
sölu, við lítinn fögnuð sýslu-
manna landsins. Pétur tók lán
og Guðrún Agnarsdóttir vill að
ríkið greiði að hluta til baka. Á
meðan óráðsían er að birtast
hjá þeim sem hvað helst ættu
að sýna fordæmi, hefur ríkis-
stjórnin kynnt hallalaus fjárlög,
og meira en það, það skal vera
afgangur!
Og nú er það síðast í fréttum
að hinn nýkjörni forseti og fyrr-
um forsetaefnin telja að of mik-
ið hafi farið í vaskinn og ætla
að biðja yfírvöld um að vaska
það upp fyrir sig. Ég segi; Nei
takk! Það er komið nóg af
bruðli. Þjóðin er orðin full upp í
háls af eyðslu fyrri ára og nú
eru æ fleiri aðilar að átta sig á
mikilvægi þess að hafa sín íjár-
mál á hreinu. Forsetaefnin áttu
að vita fyrirfram að hverju þau
gengu, og ef eytt var umfram
efni þá er það þeirra að borga
það upp.
Það hjákátlega er að aðeins
tveir forsetaframbjóðendur
hafa greitt sína reikninga og
það eru þeir sem minnst fengu
fylgið. Annars vegar forsetaefn-
ið Ástþór Magnússon og hins
vegar ég sem væntanlegt for-
setaefni. Margur er knár þó
hann sé smár.
Ég sé ennþá ekki hvers
vegna forsetaefnin þurftu að
verja svo miklu fé. Það eina
sem þurfti að gera fyrir 24. mai
var að safna 1.500 meðmæl-
endum sem hægt hefði verið að
gera með sjálfboðavinnu, láta
lista liggja frammi og hafa þá
með á kosningafundi. Kostnað-
ur við þetta hefði verið vel und-
ir milljón með góðu skipulagi.
Það er til fullt af fólki að safna
undirskriftum fyrir fullt af mál-
efnum. Ekki tóic lengri tíma en
4 daga að safna um 1.500 nöfn-
um í Langholtskirkjusókn um
svipað leyti. Ekki hefði þurft að
auglýsa, því þá þegar var kom-
in af stað umtalsverð ijölmiðla-
kynning.
Og sömuleiðis hefði ekkert
fíin kirkjulega
ferming er ein-
göngu manna
tilskipun
✓
g leyfi mér að gera
athugasemd við það,
sem séra Ragnar Fjal-
ar Lárusson skrifar í grein,
sem heitir „Til varnar vorri
kirkju“ í Degi-Tímanum
þann 22. október sl. Þar
segir hann, að fermingin sé
kristileg athöfn. Þetta er
alrangt. Þessa athöfn er
ekki hægt að rekja til boða
Jesú Krists, þess vegna er
hún ekki kristileg, frekar en
barnaskírnin, sem verið er
að staðfesta í fermingunni.
Báðar þessar athafnir eru
eingöngu mannaboðorð. í
guðspjalli Matteusar 28:19
bauð Drottinn Jesús að
skíra lærisveinana. Líka má
fræðast um það í Orði Guðs,
Biblíunni, hvernig hin bibl-
íulega skírn var fram-
kvæmd, sbr. Postulasöguna
8:38.-39.
Jesús Kristur sagði í
Lúkasar guðspjalli 6:46:
„Hví kallið þér mig Herra,
Herra, en gjörið ekki það,
sem ég segi?“
Sóley Jónsdóttir,
Akureyri.
pjyjjy^ iii si“| mir_
þurft að auglýsa eftir 24. maí,
því þá hófst öflug kynning á for-
setaefnum í Ríkisútvarpinu,
Ríkissjónvarpinu og Stöð 2. Ól-
afur Ragnar Grímsson var
landsþekktur íyrir, auk þess að
vera doktor í stjórnmálafræði
og fyrrum prófessor og ráð-
herra, og hlaut strax mikið
fylgi. Hann hefði því ekki þurft
að auglýsa sig upp. Það hefði
helst átt að gilda um Pétur og
Guðrúnu Agnarsdóttur. En þá
kemur upp spurningin: Til
hvers að auglýsa sig upp langt
umfram sjóði?! Var þarna
gamla Mammonsdýrkunin búin
að gleypa forsetaefnin sjálf,
sem manna helst ættu að vera
vönd að sinni virðingu meðal
þjóðarinnar? Því hver er það á
endanum sem velur sér for-
seta? Svar: það er fóikið í land-
inu en ekki auglýsingastofurn-
ar! Það ætti ekki að kaupa fólk
til fylgis við sig, þegar um er að
ræða eitt virðulegasta embætti
landsins, sem gengur út á að
túlka æðstu siðagildi okkar sem
þjóðar.
Ég lagði áherslu á að
viðhalda andlegu jafnvægi í
gegnum þessa kosningakynn-
ingu o£ sneið mér stakk eftir
vexti. Eg eyddi innan við hálfri
milljón og hef greitt hverja
krónu. Ég fékk ágæt tækifæri til
að kynna mig og var þakklátur
fyrir þá athygli sem ég fékk. Ég
er enn stoltur yfir að hafa feng-
ið yfir 500 meðmælendur fyrir
að skrifa upp á að telja mig
hæfan sem forsetaefni. Hvað
meira gæti ég beðið um frá
þjóðinni en það sem hún veitir
mér? Þegar sá tími kemur að
fólki lærist að vera þakklátt fyr-
ir það sem það hefur þá mun
skína sól í sinni. Það er kominn
tími á að fjáraustri linni.
1
J JKeiníiounu)
"I ^ ámennt sveitarfélag í landnámi Ingólfs
|H leitar eftir sameiningu við íjölmennan
A nágranna vegna þrenginga en neitaði
" hins vegar að sameinast í almennri atkvæða-
greiðslu fyrir nokkrum misserum.
f-L
ð póstur skuli ekki borinn út á sama
tíma á hverjum degi er alveg ótrúlega
prirrandi og lítilsvirðandi við skipu-
lagt fólk.
aunamisrétti í landi jókst er héraðs-
dómarar fengu orlof á óunna yfirvinnu
aftur í tímann meðan sauðsvartur al-
múginn fær alls enga yfirvinnu.
f'D
anskir launþegar fá tvöföld laun á við
Mörlandann miðað við 8 tíma vinnu
þar en 10 tíma vinnu hér, sem jafn-
framt er atlaga að öllu eðlilegu heimilislífi.
>
4
Furðuleg lög
í útlöndum er margt skrýt-
ið, ekki síst í hertni Amer-
íku. Fyrir skömmu rak ritari
S&S augun í tímaritið Úrval
og þar var að finna yfirlit yf-
ir furðuleg lög sem eru í
gildi í hinum ýmsu ríkjum
Bandaríkjanna. Hér koma
nokkur dæmi:
í Indiana má athuga alkó-
hólinnihald í andardrætti
bílstjóra gegn vilja hans
vegna svohljóðandi laga:
„Eftir að andardrátturinn
yfirgefur líkamann hættir
hann að vera eign þess sem
hann kom frá.“
í Little Rock í Arkansas,
heimabæ Bill CUntons, er
hundum bannað með lögum
að gelta eftir sex á kvöldin
(ekki er tekið fram hvort hið
sama gildi um mannfólkið).
f Harlan í Kentucky er
bannað að henda kolum í
annað fólk ef kolamolinn er
meira en þrír þumlungar í
þvermál.
Ekki skánar það
Stúlkum er bannað með
lögum að mæta á ball án
þess að vera í lífstykki í
Norfolk í Virginíu. (Þætti
sjálfsagt mörgum gaman að
vera dyraVerðir þar og fá
að þreifa eftir lífstykkjun-
um??)
f Sterling í Colorado verða
kettir að vera með afturljós
til að mega ganga lausir
(það er spurning hvort
borgar sig ekki að skella á
þá stefnuljósum líka, svona
fyrst byrjað er að lýsa þá
upp?)
í Cold Springs í Pennsyl-
vaníu má ekki selja giftum
manni áfengi án skrifiegs
samþykkis konu hans.
(Heyr, heyr!)
Lögum samkvæmt er
óheimilt að eiga eintak af
alfræðiorðabókinni Britann-
ica í Texas þar sem í henni
er að finna áfengisuppskrift.
Rökurum í Elkhart í Indi-
ana er bannað með lögum
að hóta að skera eyra af
barni (ekki fylgir sögunni
hvort í lagi sé að skera eyru
af, án þess að hóta fyrst!)
í Oregon er Iögum sam-
kvæmt bannað fyrir látinn
kviðdómanda að sitja í kvið-
dómi.
Matarreglur
Ekkert er óviðkomandi hin-
um háttvirtu mönnum og
konum sem lögin semja,
ekki einu sinni hvað fólk
borðar.
í Massachusetts er lögum
samkvæmt bannað að nota
tómata í skelfisksúpu.
Þeir sem ganga um með ís í
formi í vösunum hafa fram-
ið lögbrot ef þeir eru svo
óheppnir að vera staðsettir í
Lexington í Kentucky.
f Spades í Indiana er bann-
að að opna dós af niður-
soðnum mat með því að
skjóta á hana.
í Tennessee er bannað með
lögum að taka fisk af ann-
ars manns öngli.
Þar höfum við það!
Umsjón:
Auður Ingólfsdóttir.