Dagur - Tíminn - 15.11.1996, Qupperneq 2
14 - Föstudagur 15. nóvember 1996
jDagur-Símutn
H E L G A RLÍFIÐ í LANDINU,
Á sveitaheimsókn nærist ég best
Yflrleitt eru helgarnar skemmtilegar
hjá mér. Best nærist ijölskyldan á
að fara í heimsókn í sveitina og þar næ
ég að gleyma öllum verkefnum og
áhyggjum líðandi stundar,“ segir Sol-
veig Pálmadóttir, hágreiðslumeistari í
Hveragerði, aðspurð um draumahelg-
ina.
„Segjum nú sem svo að ég komi heim
úr vinnunni um kvöldmatarleytið á
föstudegi, þá finnst mér ágætt að halla
mér síðla kvölds og horfa á einhverja
hugljtifa bíómynd, sem maður fellir tár
yfir. En auðvitað endar myndin vel.
Á laugardegi sefur Solveig fram að
hádegi. í eftirmiðdaginn fer öll fjöl-
skyldan, mamma, pabbi og synirnir
Auðvitað er Mundi minn
sofnaður áður en mynd-
in endar.
tveir, Pálmi og Hannes, sem eru átta og
tveggja ára, saman til Reykjavíkur.
Byrjað er í Árbæjarlauginni og buslað
þar, og síðan farið í heimsókn til skyld-
menna. Synirnir tveir verða svo eftir hjá
ömmu og afa um kvöldið, á meðan for-
eldrarnir fara út að borða og í fram-
haldi af því í kvikmyndahús eða leikhús.
Síðla kvölds er svo brunað aftur austur
fyrir íjall, heim í Hveragerði.
Sunnudagurinn er sveitadagur. Þá er
farið í heimsókn að Hvammi í Land-
sveit, þar sem Solveig á ömmu eða afa,
eða þá að Ósabakka á Skeiðum. Þar var
hún í sveit frá átta ára aldri og fram á
unglingsár. -sbs.
Hjá bændum eru allir dagar jafnir
Hjá mér sem bónda eru
laugardagar virkir dagar,
en sunnudagurinn er frídagur.
Því vandist óg sem barn að á
sunnudögum mætti til að
mynda ekki stinga út úr haug-
húsi eða slá tún. Hinsvegar var
leyfilegt að bjarga heyi, ef rign-
ing vofði yfir. En annars finnst
mér verklagið í sveitum nokkuð
gott, þegar allir dagar eru til-
tölulega jafnir. Þá eru hlutirnir í
nokkuð góðu
samhengi," segir
Atli Vigfússon,
bóndi á Laxa-
mýri í Aðaldal.
„Þau helstu
haustverk sem nú
liggja fyrir hjá
bændum um sveit-
ir eru til dæmis
sauðíjár-
rúning-
ur.
Það sem liggur hinsvegar fyrir
hjá mér á laugardaginn er til að
mynda að losa hey og færa til,
og þá er ég jafnframt að létta
undir hjá mér fyrir næstu viku.
Á sunnudag fer ég í skemmti-
legt verkefni; að undirbúa
kennslu í Borgarholtsskóla á
Húsavík alla
næstu viku
- þar sem
nemend-
ur verða
landbúnað og helstu þætti því
viðvíkjandi," segir Atli, og held-
ur áfram:
„Á mánudag förum við með
nemendur í heimsókn á bæi í
Reykjahverfi og hyggjumst þar
skoða flestar tegundir húsdýra
og sem flest annað í sveitinni. Á
þirðjudag tekur við í skólanum
ýmiskonar verkefnavinna um
þessi efni, s.s. með myndmennt,
ullarvinnslu, sögu- og ljóða-
gerð. í þessu verðum við út vik-
una,“ segir Atli. - Talandi um
skemmtanalífið þá segist hann
hafa um síðustu helgi brugðið
sér á ágætt harmónikkuball
sem haldið var að Breiðumýri
í Reykjadal og því verði helgin
róleg á vettvangi skemmtana-
lífsins hjá sér. -sbs.
Solveig
Sigurjónsdóttir.
Lummur, pönnukökur
og kleinur
Hugguleg helgi í
Uppskrift að góðri helgi? Ja, það fer nú fyrst og
fremst eftir því hvaða árstíð við erum að hugsa
um. Ef við miðum við haustið, sem nú er, þá get ég
sagt fyrir mig að góð helgi felst í því að komast í
kyrrð og ró út í sveit. Ég og konan mín værum þá
búin að hafa samband við kunningjafólk og bjóða
því til helgardvalar á Grund í Vesturhópi, sem er
sveitasetur ijölskyldunnar," segir Skúli Þórðarson,
bæjarstjóri á Blönduósi.
„Á föstudagskvöldi myndi ég fara og kynda upp
húsið og svo á laugardagsmorgni myndum við hitt-
ast þar. Við færum í stutta gönguferð með börnin og
fengjum okkur heitt kakó á eftir. Eftir hádegið fær-
um við karlarnir í stuttan rjúpnatúr og kæmum svo
dauðþreyttir heim síðla dags. Þá myndum við elda
saman og borða góðan mat. Kvöldið væri svo nota-
leg stund með léttum veitingum og rabbi um allt
mögulegt."
Skúli segir að á sunnudegi myndi mannskapur-
inn áfram vera í afslöppun; með gönguferðum, spil-
um og öðru skemmtilegu fyrir börnin. „Seinnipart- ]
inn færum við að taka okkur til og huga að heim- Ijjf;
ferð. Fyrir mér er þetta uppskrift að fullkominni Liíkfj
helgi, ekki síst ef við gætum skotið nokkrar rjúpur í k /\
jólamatinn.“ -sbs. W33Bt
þetta námskeið fram á laugar-
dag. Þá tekur við aðalfundur 5.
deildar Félags íslenskra leik-
skólakennara, en sú deild innan
félagsins starfar á Norðurlandi
vestra,“ Segir Helga.
Hún kveðst glöð vilja
komast á skemmti-
kvöld Sambands
skagfirska kvenna,
sem haldið verður í
fólagsheimilinu
Skagaseli á föstu-
dagskvöldið. En áður-
nefnt námskeið setur
þar strik í reikning-
inn og raskar áætlun-
um.
Væntanlegur sunnu-
dagur er án mikilla
fyrirætlana í lífi
Helgu Sigurbjörns-
dóttur. Samvera með
íjölskyldunni eða eitt-
hvað á slíkum nótum
kemur þó vel til
greina. - Um störf á
vettvangi kvenfélags-
ins segir hún að
framundan sé í byrjun desember
samverustund þeirra kvenna
sem í fólaginu starfa, þegar þær
koma saman og borða góðan
mat og eiga notalega stund.
Ónefnt er að um síðustu helgi
sáu þær um kaffiveitingar á
samkomu þar sem rithöfundsins
Guðrúnar frá Lundi var minnst.
I boði voru rúsínulummur,
pönnukökur og kleinur, en slíkt
bakkelsi var tíðum á borðum og
í munni sögupersóna skáldkon-
unnar. -sbs.
Vesturhópi
Námskeið og fundur
á laugardag, en sunnu-
dagur án fyrirætlana.
skínandi fínt að safna orku fyrir
amstur vinnandi daga,“ segir
Helga Sigurbjörnsdóttir á Sauð-
árkróki, leikskólakennari og for-
maður Kvenfólags Sauðárkróks.
„Á föstudag byrja óg á nám-
skeiði um sorg barna og stendur
Uppskrift að góðri helgi hjá
mér er til dæmis að vera
með íjölskyldunni eða fara eitt-
hvað í gönguferð út í náttúruna.
Með þeim hætti finnst mér alveg
Helga Sigurbjörnsdóttir.