Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Side 3

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Side 3
|Dagur-‘®mrám Miðvikudagur 20. nóvember 1996 - 3 F R É T T I R Bókaútgáfa t;., , 'y !:. ■ Lögskráning Forsetinn feitasti bitinn í jólabókaflóðinu AUs er von á þremur bók- um sem tengjast nafni Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta íslands, nú á næstunni. Herra forseti sem Pálmi Jónasson hefur ritað, Bessastaðabækur sem hafa birst í Alþýðublaðinu að undan- förnu og er n.k. gríndagbók Berts og í þriðja lagi Forseta- bókin sem stuðningsmenn Ólafs Ragnars hafa staðið að til að grynnka á 18 millj. kr. skuldum framboðsins. Karl Th. Birgisson og Einar Karl Haraldsson hafa tekið þá bók saman. Er eins- dæmi að þrír aðilar með ólíkum formerkjum sjái sér hagnaðar- von í skrifum um forseta ís- lands og það strax á fyrsta stjórnarmisseri hans. Bók stuðningsmanna Ólafs Ragnars fjallar einkum um kosningabarátfuna sjálfa og mun hún kosta 7.900 kr. stykk- ið og fylgir árituð mynd með og barmmerki. Vilyrði mun þegar liggja fyrir að kaupendur henn- ar verði um 3000 þannig að ætla má að velta hennar borgi upp skuldir framboðsins og e.t.v. gott betur. Dagur-Tíminn spurði Pálma Jónasson hvort ekki væri verið að bera í bakka- fullan lækinn með þremur bók- um um Ólaf Ragnar Grímsson? „Ég efast um það og þessi út- gáfa mín er ekki stíluð gegn einum né neinum. Þessar þrjár bækur eru mjög ólíkar að eðbs- fari þótt þær íjalli um sama manninn og höfði að vissu leyti til sama kaupendahóps. Ef menn vilja vita um eitthvað annað en kosningabaráttuna þá kaupa þeir bókina mína.“ Pálmi segir „Herra forseti“ Er einsdæmi að þrír aðilar með ólíkum formerkjum sjái sér hagnaðarvon í skrifum um forseta íslands og það strax á fyrsta stjórnar- misseri hans. HERRA ^ FORSETI ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON ekki hreina og klára sagnfræði, enda hafi hann starfað á blöð- um undanfarin 7 ár og bókin sé ekkert síður skrifuð út frá aug- um blaðamannsins. „Ég notast mikið við blaðaskrif, ummæli í tímaritum og Alþingistíðindum. Það er öðruvísi að skrifa um mann sem stendur í stjórn- málabaráttu nútímans en t.d. á 19. öld.“ Hefur höfundurinn fengið viðbrögð frá forsetaniun sjálf- um? „Óbeint. Hann fékk sent bréf strax í sumar um að þessi vinna væri í gangi og honum var boðin öll samvinna um hana. Síðan fékk hann handrit- ið til yfirlestrar og útgefandinn talaði við hann. Mér skilst að engar athugasemdir hafi verið gerðar. Ég hef unnið þessa bók í samvinnu við marga sem hafa lesið hana yfir, bæði vini hans og reyndar andstæðinga líka. Þeir hafa verið sáttir, hvort sem þeir koma úr röðrnn samherja Ólafs Ragnars eða ekki. Ég ótt- ast ekki að bókin ýfi upp nein sár eða skapi einhver leiðindi. Sjálfur hef ég engar skoðanir í þessari bók,“ segir Pálmi Jón- asson sagnfræðingur. Bók Pálma sem bókaforlagið Una gefur út mun koma til með að kosta um 3.400 kr. en Dag- ur-Tíminn hefur ekki heimildir um verðlagningu Bessastaða- bókanna. BÞ Lögum frestað í annað sinn Ríkisstjórnin hyggst fresta í annað sinn gildistöku laga um lögskráningu sjó- manna. Samkvæmt þessum lög- um er það sett sem skilyrði fyr- ir lögskráningu að sjómenn hafi sótt námskeið hjá Slysavarna- skóla sjómanna. Ástæðan fyrir frestiminni mun vera trassa- skapur sjómanna að sækja þessi námskeið í tíma og því fyrirséð að margir mundu verða reknir í land að öllu óbreyttu. ' Samgönguráðherra kynnti frumvarp til breytinga á gildis- töku laga um lögskráningu sjó- manna á fundi ríkisstjórnar í gær. Upphaflega stóð til að lög- in kæmu til framkvæmda í árs- byrjun í ár en því var slegið á frest af sömu ástæðu og nú er gert. Samkvæmt áformaðri frestun er stefnt að því að lögin taki gildi 1. janúar 1998. Til- gangur og markmið þessara laga er viðleitni til að draga úr slysum sjómanna og auka þekkingu þeirra og færni til að bregðast rétt við þegar óhöpp verða á sjó. „Á sama tíma í fyrra voru yfirfull námskeið í desember og núna keyrir um þverbak. Það eru allir að hringja og glóandi línur,“ segir Halldór Olesen yfir- vélstjóri á Sæbjörgu, skólaskipi Slysavarnaskóla sjómanna. -grh Akureyri Jafnaðarmenn Umferð hleypt á göngugötu Langar umræður urðu í Bæjarstjórn Akureyrar í gærkvöld um tillögu bæjarráðs þegar samþykkt var að verða við erindi kaup- manna við göngugötuna, um að gerð verði tilraun með um- ferð bifreiða um göngugötuna tímabundið fram til aprílloka 1997. Hreinn Pálsson (A) taldi til- raunina allt of dýra og að hún bjargaði engu, allra síst nú þeg- tir nær drægi jólum og búast mætti við aukinni umferð um miðbæinn og t.d. sölutjöldum í göngugötuna. Valgerður Hrólfs- dóttir (D) spurði hver ætti að meta tilraunina, það væri ágætt að gera tilraun en hún ætti ekki að vera án markmiðs. Þröstur Ásmundsson (G) taldi nauðsyn á takmörkun umferðar um Gró- fargil og Guðmundur Stefáns- son (B) spurði hvort það væri óeðlilegt að sinna óskum meiri- hluta kaupmanna við göngugöt- una um bílaumferð. Þórarinn B. Jónsson (D) vildi láta skoða það hvort hagkvæmt væri að fela hagsmunaaðilum framkvæmd bflaumferðar um göngugötuna og hann varpaði fram þeirri hugmynd hvort ekki væri rétt að fylla upp í Skátagilið norðan Oddagötu og gera það að bif- reiðastæðum sem væru án gjaldskyldu næst Oddeyrargötu. Það leysti nokkuð skort á bfla- stæðum í miðbæ Akureyrar í stað þess að byggja þar rándýr- an skrúðgarð sem óvíst væri hverjum kæmi að notum. Sigurður J. Sigurðsson (D) taldi rétt að skoða hvort ekki væri rétt að koma einnig upp Rétl að athuga hvort hagkvæmt er að fylla upp í Skátagiiið og gera þar bflastæði í stað rándýrs skrúð- garðs sem óvíst væri hverjir nýttu, sagði Þórarinn B. Jónsson, bæjarfulltrúi. eftirágreiddum bflastæðum handan Skipagötu, það lengdi dvöl viðskiptavina í göngugöt- unni. Hann taldi að eftir breyt- ingar á Ráðhústorgi í núverandi mynd hefði dregið úr umferð gangandi fólks inn í göngugöt- una. Þórarinn E. Sveinsson (B) vakti athygli á því að greinar- gerð skipulagssstjóra Akureyr- arbæjar um bflaumferð um göngugötuna væri fjarri því að vera hlutlaus eins og gera ætti kröfu til um greinargerðir frá embættismönnum bæjarins. Af þeim sökum skorti á að hún væri eins fagleg og eðilegt væri. Tillaga um tilraun með um- ferð um göngugötuna var svo samþykkt með 7 atkvæðum gegn 2 en 2 sátu hjá. GG \ ; '| Þeir höfðu um margt að ræða Hafnfirðingarnir Ingvar Viktorsson, Magnús Árnason og Akureyringurinn Gísli Bragi Hjartarson. Mynd: Pjetur Um 440 fleiri atvinnulausir Skráð atvinnuleysi sam- svarar tæplega 5.000 manns án vinnu allan októbermánuð, eða 3,7% mannaflans. Fjölgunin var rúmlega 440 eða um 10% milli mán- aða, sem skiptist nokkuð jafnt mifli kynja og lands- hluta. Atvinnuleysi er enn mest á höfuðborgarsvæðinu, eða 4,4% borið saman við 2,8% á landsbyggðinni. Meðal karla er munurinn mjög mikill, þar sem 3,1% karla á höfuðborgarsvæðinu vantar vinnu en aðeins 1,4% á landsbyggðinni (frá 0,9% til 1,8%). Konur eru hins vegar hlutfallslega flestar (7,7%) án vinnu á Suðurnesjum og næstflestar (6,1%) á höfuð- borgarsvæðinu. Ný tíma- bundin atvinnuleyfi voru nærri 140 í október, eða 2-3 sinnum fleiri en aðra mán- uði ársins. Formlegur sairniinga- fundur Þetta var góður og gagnleg- ur fundur og þessu verður haldið áfram,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi Al- þýðubandalagsins í viðræðum stjórnarandstöðuflokkanna um samstarf í næstu kosningum. Fyrsti fundurinn var í gær og var farið yfir stöðu mála og ákveðið að hittast aftur fljót- lega. Á fundinn mættu auk full- trúa Alþýðubandalagsins, fólk úr Alþýðuflokki, Kvennalista og Þjóðvaka.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.