Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 4
4 - Miðvikudagur 20. nóvember 1996 íliigur-®tmmn F R É T T I R Tryggingabætiir í takt við laun Mynd: Pjetur Viðsemjendum BSRB svarafátt um annað en það sem lýtur að niðurskurði og rétt- indamissi. Viðbótar- Qaun á kostnað grunn- iauna og þeirra lægstlaunuðu Bandalagsráðstefna BSRB krefst þess að bætur elli- og örorkulífeyrisþega og atvinnulausra verði látnar fylgja almennri launaþróun en séu ekki háðar geðþóttaákvörð- un stjórnvalda hverju sinni. En samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að almennar launabreytingar verði um 3,5% á næsta ári en tryggingabætur hækki um 2%, eða í samræmi við áætlaða verðlagsþróun. Á annað hundrað manns taka þátt í bandalagsráðstefnu BSRB þar sem farið er yfir stöð- una í samninga- og réttinda- málum aðildarfélaga banda- lagsins. Ráðstefnunni sem hófst í gær lýkur í dag með ályktun um kjaramál þar sem áhersla Sýslumaðurinn á Húsavík Utgarði 1,640 Húsavik, sími464 1300 Uppboð Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Garðarsbraut 13 efri hæð og ris, Húsavík, þingl. eig. Svavar Krist- mundsson, gerðarbeiðendur Sam- skip hf. og Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 28. nóvember 1996 kl. 13.00._____________________ Hallgilsstaðir I, Þórshafnarhreppi, þingl. eig. Jónas Lárusson, gerðar- beiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Stofnlánadeild landbúnaðarins, föstudaginn 29. nóvember 1996 kl. 14.30._________________________ Hálsvegur 3, Þórshöfn, þingl. eig. Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, föstudaginn 29. nóvember 1996 kl. 15.00. er lögð á hækkun launataxta og aukinn kaupmátt. Mikil umræða var um þessi mál á þinginu í ljósi þess að töluverðrar stífni hefur gætt hjá viðsemjendum opinberra starfsmanna í rétt- indamálum og þá ekki síst um áformaðar breytingar hins opin- bera á launakerfi starfsmanna. „Því miður verður mönnum svarafátt um allt nema það sem horfir til niðurskurðar og rétt- indaskerðingar," segir Ögmund- ur Jónasson formaður BSRB aðspurður um hvernig miðar í sameiginlegum viðræðum BSRB, BHM og kennarafélag- anna við ríki, borg og launa- nefnd sveitarfélaga um rétt- indamál opinberra starfs- manna. Formaður BSRB segir það sérstakt áhyggjuefni hvað borg- in virðist ætla að verða sam- stíga ríkinu í áherslum er miða að því að auka völd forstjóra og Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur í búijárrækt, segir að í ræktun kúa- stofnsins séu menn greinilega á réttri leið en vilji þó alltaf sjá meiri árangur. „Við höfum mælt verulegan árangur í afurðaþátt- um enda væri þetta starf til h't- ils ef maður sæi hann ekki. Ég tel að sjálfsögðu eðlilegt að velta fyrir sér spurningum um nýjan kúastofn.“ Jón Viðar segir að það hafi orðið miklar og góðar umræður um þetta á meðal bænda upp á síðkastið en margar hliðar séu á málinu. „Það er alveg ljóst að við get- um í sumum tilfellum sótt okk- ur verulegan ávinning með inn- flutningi. Við vitum alveg fyrir víst að við getum fundið erlent kyn sem stendur íslenska kyn- inu langtum framar og hefur Frá bandalagsráðstefnunni í gær. forstöðumanna til að ákvarða um svokölluð viðbótarlaun á kostnað grunnlauna. alla tíð gert það. Það er hins vegar ekkert gefið fyrirfram að þær komi frá Noregi. Ástæða þess að umræðan um kýr frá Noregi hefur verið ráðandi er einkum sú að eini samanburðm- íslenskra gripa sem gerður hef- ur verið er við norskt kúakyn.“ Jón Viðar segir að ef nýtt kúakyn verður flutt inn sé um tvennt að velja, svartskjöldóttar kýr sem séu ráðandi í Norður- Ameríku og Evrópu eða rauðu kjmin sem t.d. séu meginuppi- staðan í kúm á flestum Norður- landanna. „Rauðu kynin eru minni þótt þær séu verulega miklu stærri en þær íslensku. Stökkið yrði miklu meira ef far- ið yrði í þær svartskjöldóttu því þær eru gríðarlega miklu stærri. í afurðum virðist bilið aftur ekki mikið á milli þessara kynja." „Við erum sannfærð um að þetta muni auka launamisréttið á kostnað þeirra lægstlaunuðu. „Það er alveg Ijóst að við getum í sumum tilfellum sótt okkur verulegan ávinning með innflutningi. Við vitum fyrir víst að við getum fundið erlent kyn sem stendur ís- lenska kyninu langt- um framar og hefur alla tíð gert það.“ Ýmislegt þarf að athuga þeg- ar þessi mál eru annars vegar svo sem sjúkdómavarnir, stækkun og breyting íjósa auk þess sem fóðurgjöf yrði mún meiri með stærri kúm. „Mér Það er algjörlega óásættanlegt," segir Ögmundur Jónasson for- finnst afskaplega flókið að segja til um hver eigi að taka ákvörð- un um þetta. Staðreyndin er sú að það er mótstaða hjá einhverjum hluta bænda, mað- ur verður greinilega var við það í umræðunni. En menn verða að ganga að því sem möguleika þegar þessi mál eru rædd að við skiptum alveg um kúakyn í landinu. Við getum ekki séð niðurstöðuna fyrir en ef yfir- burðirnir eru algerir þá er raunhæft að ætla að á tiltölu- lega stuttum tíma myndi inn- flutta kynið yfirtaka allan stofn- inn. Ef menn sæju hins vegar kosti og galla sitt á hvað þá væri möguleiki að mynda nýtt kyn með blöndun. En þetta er einfaldlega hlutur sem að mínu viti er útilokað að svara með fullri vissu fyrirrfram. Hvort sem er gæti orðið niðurstaðan.“ maður BSRB. -grh Landbúnaður Innflutt kúakyn myndi hugsan- lega yfirtaka allan stofninn Raufarhöfn Jökull hf. með 20 milljón króna hlutafjárútboð Lindarholt 2, Raufarhöfn, þingl. eig. Eyrún Guðmundsdóttir og Óskar Óskarsson, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður verkamanna, föstudag- inn 29. nóvember 1996 kl. 13.00. Lóð úr landi Knútsstaða, Aðaldæla- hreppi, þingl. eig. Harpa Jóna Jón- asdóttir og Guðmundur K. Jóhann- esson, gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður ríkisins húsbr. Húsnæðiss. og Vífilfell hf., fimmtudaginn 28. nóvember 1996 kl. 14.00. Pálmholt 3, Þórshöfn, þingl. eig. Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, föstudaginn 29. nóvember 1996 kl. 15.30. Sunnuvegur 8, Þórshöfn, þingl. eig. Björgvin Axel Gunnarsson, gerðar- beiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sparisjóður Þórshafnar og nágr., föstudaginn 29. nóvember 1996 kl. 16.00. Sýslumaðurinn á Húsavík, 18. nóvember 1996. Halla Bergþóra Björnsdóttir, fulltrúi. Gert er ráð fyrir nær 50 milljón króna hagnaði af reglulegri starfsemi á árinu 1997 en um 13 milljón króna tapi á þessu ári. Nýtt hlutafé að nafnvirði 20 milljónir króna, hefur verið boðið út hjá útgerðarfyrirtæk- inu Jökli hf. á Raufarhöfn. Gengi bréfanna verður 5,0 á forkaupsréttartímabili sem stendur til 29. nóvember nk. og einnig á fyrsta degi eftir að al- menn sala hefst. Tilgangur söl- unnar er fyrst og fremst sá að styrkja eiginfjárstöðu Jökuls hf. og fjölga hluthöfum, en hún nam um 100 milljónum króna í milliuppgjöri eftir fyrstu átta mánuði þ.á. Fyrirtækið var rek- ið með 23 milljón króna tapi fyrstu átta mánuði ársins en að teknu tilliti til reksturs dóttur- fyrirtækjanna, þ.e. rækjuverk- smiðjunnar Geflu hf. á Kópa- skeri og meirihluta í Fiskiðju Raufarhafnar hf., er tapið lið- lega 8 milljónir króna. Gert er ráð fyrir 13 milljón króna tapi á reglulegri starfsemi á þessu ári en 22 milljón króna hagnaði að teknu tilliti til reksturs dóttur- fyrirtækja. Á árinu 1997 er gert ráð fyrir nær 50 milljón króna hagnaði af reglulegri starfsemi. Jökull hf. á ijölveiðiskipiö Arn- arnúp ÞH-272, togbátinn Sléttunúp ÞH-110, rækjubátinn Öxarnúp ÞH-162 og ískfisktog- arann Rauðanúp ÞH-160 sem er á söluskrá með hugsanlega endurnýjun í huga. Hlutabréf Jökuls hf. eru skráð á Opna tilboðsmarkaðn- um en sótt verður um skrán- ingu fyrir félagið á Verðbréfa- þingi íslands þegar hluthafar eru orðnir 200 talsins. Umsjón með útboðinu og skráningu hef- ur Kaupþing Norðurlands hf. Raufarhafnarhreppur á 83% hlutabréfa í fyrirtækinu, GG

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.