Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 9
jDctyur-Œmtmrt Mtðvikudagur 20. nóvember 1996 - 9 Lýðræði duttlunganna í s veitar stj órnum Sveínn Guðmundsson skrifar Eftir því sem tíminn færist nær nútímanum þá verða öll stjórnunarstörf flóknari og tölvurnar eru að kaffæra allt í pappírsflóði. Nú þarf að hafa bréf upp á allt, enda er enginn maður með mönnum nema að hann hafi bréf upp á það. Ungur vinur minn spurði mig hvort ég taiaði ensku og ég kvað nei við því. Ungi maðurinn horfði á mig og spurði hvernig ég gæti taiið mig menntamann og tala ekki einu sinni ensku. Ég sagði að ég hefði ekki talið mig í þeirra hópi. Hann hefur sniðgengið mig síðan. Frá því ég var ungur og fram á ehiár hef ég komið náiægt sveitarstjórnarmálum og hef frekar haft ánægju af þeim fé- lagsskap en leiðindi. En ef mað- ur starfar með því hugarfari að vænta aldrei þakklætis fyrir þau störf, þá geta þau gefið dálitla þekkingu og gleði. Nú eru störfin orðin flóknari, vegna þess að pappírsflóðið hefur aukist og vegna lágþrýst- ings í stjórnkerfinu og afstöðu mánans. Sú tilhneiging hefur færst í aukana að stækka sveitarfélög- in og þá hefur fylgt í kjölfarið að fjölga mönnum í hrepps- nefndum. Petta gerir störf við- komandi hreppsnefndar sein- virkari og árangurinn eykst ekki við ijöida nefndarmanna. Hreppsnefndir ráða sér sveit- arstjóra, sém stundum vill verða þannig að þeir stjórna hrepps- nefndum og hreppsnefndir viija svo kenna sveitarstjóranum um alit sem aflaga fer. Hvað er þá til ráða? Pað er tvennt sem í hugann kemur. Fækka sveitarstjórnarmönn- um í sveitum, bæjum og borg. Byrja á að haida námskeið „Fækka sveitarstjórnar- mönnum í sveitum, bæjum og borg. Byrja á að halda námskeið eftir hverjar sveitarstjórnar- kosningar, svo að verð- andi sveitarsfjórnarmenn viti hvað þeir eigi að gera. Það þarf að kenna þeim að taka sjálfstæðar ákvarðanir og geti þeir ekki lært það, þá eiga þeir ekkert erindi í sveitarstjórnir.“ eftir hverjar sveitarstjórnar- kosningar, svo að verðandi sveitarstjórnarmenn viti hvað þeir eigi að gera. Það þarf að kenna þeim að taka sjáifstæðar ákvarðanir og geti þeir ekki lært það, þá eiga þeir ekkert er- indi í sveitarstjórnir. Sumir haida að það sé lausn- in að fá sér sveitar- eða bæjar- stjóra og þá sé aiiur vandi leystur. Ef svo er, þá þurfum við ekki sveitarstjórnir og kjósum bara sveitar- eða bæjarstjóra, sem velur sér starfsmenn. Hvert er þá hlutverk sveitar- stjóra, bæjarstjóra eða borgar- stjóra? Undir þeirra stjórn er gerð fjárhagsáætlun fyrir nýtt ár. Hlutverk sveitarstjórna er að sjá um að þeirri áætlun sé framfylgt eins vel og kostur er. Auðvitað þarf að vera liður fyrir óvæntum útgjöldum, en sá liður viil oft gleymast. Sveitarstjórnarmenn verða að hafa það hugfast að þeir eru fulltrúar alira í viðkomandi byggðariagi. Þá skiptir engu hvort meirihlutinn telur að við- komandi hafi kosið þá eða ekki. Nú eru listakosningar í tísku og kýs þá meirihlutinn sér odd- vita og ræður sveitarstjóra. Sveitarstjórnarmenn eru full- trúar ákveðins hóps, sem valdi þá í framboð. Ef sundurþykkja kemur upp í meirihluta, þá er það orðin venja að hlaupa í fangið á minnihlutanum og mynda nýjan meirihluta. Sé litið á máhð frá siðrænu sjónarmiði, þá er þetta alröng leið, sem komin er frá gamaldags stjórnunarsýki. Dæmi: Hópur fólks býr til lista með ákveðinni stefnuskrá og þessi hópur nær meirihluta. í skjóh þess að fólk muni vart fram yfir kosningar um hvað „Nú kemur upp ósætti. Þá er það vepjan að þeir óánægðu fara í fýlu og hlaupa í fangið á and- stæðingnum og mynda nýjan meirihluta.“ það var að kjósa, þá vinnur hreppsnefndarfólk eftir sínum geðþótta. Nú kemur upp ósætti. Þá er það venjan að þeir óánægðu fara í fýlu og hlaupa í fangið á andstæðingnum og mynda nýj- an meirihluta. Ef komið er upp ósætti í meirihluta, hvað er þá tU ráða? Svar: Kalla saman fund með þeim, er að framboði Ustans stóðu, og ræða þar fyrst málin. Náist ekki sættir, þá ber hinum óánægða eða óánægðu að biðj- ast lausnar. Það eru bara svik við kjós- endur að hlaupa yfir tU and- stæðinganna án þess að tala við þá sem studdu þá til framboðs. Hér þarf að skerpa á sveitar- stjórnarlögum. Auðvitað ber meiri- og minnihluta að taka tillit hvorum til annars, en meirihluti má aldrei vera ábyrgðarlaus. Hins vegar getur aldrei ráðið duttl- ungalýðræði í sveitarstjórnar- málum. Með auknum verkefnum verður sveitarstjórn að ráða sér sveitarstjóra, bæjarstjóra eða borgarstjóra. Hlutverk þeirra er að undirbúa fundi og vinna að verkefnum, sem sveitarstjórnir hafa markað. Ef sveitarstjórnir nenna ekki eða geta ekki tekið ákvarðanir, þá eiga þær að átta sig á vanhæfni sinni og annað hvort taka sig á og fara að hugsa rökrétt eða taka sér frí frá sveitarstjórnarstörfum. Veist þú, lesandi góður, hverju var lofað fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar? Hvar „Það eru bara svik við kjósendur að hlaupa yfir til andstæðinganna án þess að tala við þá sem studdu þá til framboðs. Hér þarf að skerpa á sveitarstjórnarlögum.“ eru Shkir loforðalistar til sýnis? Áttu þinn loforðalista? Skoðanir innan hóps geta verið skiptar og eiga að vera skiptar, en hópurinn getur aldrei brugðist þeim heitum sem hann gaf fyrir kosningar og ætlaði að vinna eftir, kæmist hann til valda. Höfundur er fyrrum bóndi, kennari og sveitarstj órnarmaður. Úrræði í áfengismálum Halldór Kristjánsson skrifar Af ýmsum tilefnum hef ég í blaðagreinum bent á hve mikill aflvaki kúl- túrs áfengi er meðal vestrænna þjóða og harma þá firru sem gripið hefur suma ábyrgustu menn að leyfa sér að kalla áfengi fíkniefni eins og væri það kókaín eða annað verra eitur- lyf. Slíkt er eingöngu til þess falhð að rugla fólk og ekki síst ungmenni." Þessi orð eru tekin upp úr grein sem dr. Gunnlaugur Þórð- arson birti í Morgunblaðinu 14. ágúst s.l. í sömu grein segir að „vín er mannasættir, ef vel er með það farið“. Hér er komið að undirstöðu- atriðum og rætt um það sem ræður afstöðu og viðhorfum margra til áfengis. Því þykir mér gott að halda umræðunni áfram frá þessum tilvitnunum. Áfengi og fíkniefni Það er langt gengið að neita því að áfengi sé fíkniefni. Nærri liggur við að segja megi að allir viti að áfengi er fíkniefni. Sam- einuðu þjóðirnar, heilbrigðis- stofmm þeirra, mun naumast telja svo forhertan mann við- talshæfan. Áfengi og tóbak eru fíkniefni. En svo skikir með þeim að áfengi er vímuefni, sem tóbakið er ekki. Ekki langar mig til að hæla tóbakinu, en ég hlýt að játa að engar fréttir berast af því að kallað sé á lögreglu í heimahús þó að þar sé verið með tóbak. Hins vegar eru mörg dæmi þess ’að lögregla sé kvödd til vegna ófriðar þar sem áfengis er neytt. Um svo alkunnar stað- reyndir þarf ekki fleiri orð. Áfengi er óþarfi Ég hef sagt það áður og segi það enn að ég hef aldrei séð mig hafa ástæðu til að öfunda nokkurn mann af áfengi eða neyslu þess, en hins vegar vor- kennt þeim og aumkvað. Svo marga glaða stund hef ég átt með bindindismönnum, að ég hef mikla reynslu af því að áfengi er engin nauðsyn á gleðistundu. Auðvitað hef ég séð menn hýra og hressa yfir áfengi, en það breytir ekki þeirri skoðun minni að áfengi sé óþarfi. „Aflvaki kúltúrs" Mér er ekki ljóst hvað átt er við þegar talað er um „aflvaka kúl- túrs“. Ég held þó að orðið kúl- túr sé þarna notað fyrir orðið menning. Og mörg munu vera til dæmi þess að menning þrífist og blómgist áfengislaust. Dokt- orinn veit líka að til eru „skít- buxar“ og „vanmetagemsar“ „sem koma óorði á áfengi“. Mannskæður óþarfi Áfengið er ekki bara óþarfi, það er hættulegur óþarfi, mann- skæður óþarfi. Þess vegna erum við á móti því. Við viljum sneiða hjá því manntjóni sem það veldur. Frá því sögur hófust hafa menn vitað að áfengi var við- sjált. í Hávamálum er sagt að ekkert sé verra veganesti en of- drykkja öls. Svo mætti lengi telja. Menn hafa verið að reyna að fara „með áfengi á mannsæm- andi hátt“ eins og dr. Gunn- laugur segir. Þær tilraunir hafa jafnan tekist misjafnlega og alltaf verið áfallasamar. í umgengni við áfengið er tryggast og farsælast að láta það afskiptalaust. Það sýnir löng reynsla. Mannasættir íslensk tunga hefur sitt að segja um áfengi, sættir og samkomu- lag. Ilún hefur, studd aldagam- alli reynslu, búið til orðið saup- sáttir um þær sættir sem áfeng- ið gerir. Orðið saupsáttur merk- ir ófrið og ósamkomulag. Reynsla íslensku þjóðarinnar af áfengi gagnvart sáttum og sam- komulagi speglast öll í orðinu saupsáttur. Um það þarf ekki fleiri orð. Hvað er framundan? Dr. Gunnlaugur segir að áfengi verði „ekki útrýmt úr þjóðfélög- um vestrænnar menningar“. Víst eru engar horfur á að svo verði í bráð. Hins vegar vitum við að mjög er misjafnt hvernig er farið með áfengi, hve oft og hve mikið er drukkið, hversu mörg heimili og félög hafna áfengi. Á vissum svæðum og vissum tímum hefur náðst tölu- verður árangur í bindindisátt. Svo gæti enn orðið. Mér virðast meiri líkur til þess að fólk hafni áfengi alveg en allir gæti hófs í meðferð þess. Við getum náð árangri Við Gunnlaugur vitum báðir að sitthvað mætti betur fara í áfengismálum hér á landi. Hann talar um „vanmeta- gemsa“ og „skítbuxa" sem komi óorði á áfengið. Ekki veit ég gjörla hvort hann kann einhver ráð þessum aumingjum til hjálpar. Ég sannfærðist ungur um það að eitthvað í líkamlegri gerð manna ylli því að áfengi næði misjöfnum tökum á þeim. Fíknin yrði misjafnlega sterk. Menn sem ekki neyttu áfengis slyppu við ámæli eins og skít- buxanafn meðan svo væri, ef þeir drukku var friðurinn úti. Þegar páfinn stóð fyrir al- þjóðlegri ráðstefnu um áfengi og önnur vímuefni, mætti þar þáverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann benti á að baráttan gegn áfenginu yrði að ná inn á heimilin og skólana og margskonar félög og hvar- vetna stefna að því að eyða eft- irspurninni. Þessu er ég sammála. Vörn gegn vímuefnunum er bindind- ishreyfing sem nær inn á heim- ilin og mótar félagsskap ungra manna. Þannig má ná árangri sem mörgum verður að liði, þó að áfengi verði ekki útrýmt að fullu. Bindindishreyfing getur bjargað mörgum. llöfundur er skáld.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.