Dagur - Tíminn - 27.11.1996, Side 6

Dagur - Tíminn - 27.11.1996, Side 6
18 - Miðvikudagur 27. nóvember 1996 íDagur-Œútrám MENNING O G LISTIR Spila tetris og hlusta á ástarljóð Davíðs er hann enginn. „Geisladiskur- inn ræður skattlagningunni en ekki hvað er á honum. Á þessu formi er verkið skattað upp í topp, en þetta er náttúrulega ekkert annað en lesin bók. En auðvitað er hægt að vera með endalausar hártoganir í þessu. Ég gæti gefið út ljóðadisk sem ég syng en haldið því fram að ég væri bara að raula.“ Fyrir alla? í huga margra eru hljóðbækur sjálfsagt einkum hjálpartæki fyrir sjóndapra og blinda. Gísli Helgason leggur hins vegar áherslu á að þær séu fyrir alla. „En við vitum að fólk sem kom- ið er um og yfir fimmtugt kaup- ir frekar hljóðbækur. Svo er fólk sem vinnur þannig störf að því hentar mjög vel að hlusta á hljóðbækur. Ég veit til þess að bflstjórar sem keyra á löngum leiðum hafa nýtt sér þetta.“ Að sögn Atla er markhópur- inn aðallega eldra fólk. Vanda- málið hingað til hafi verið að tækjagleði þess hefur ekki verið eins mikil og hjá þeim yngri en nú sé hins vegar að verða æ al- gengara að eldra fólk eigi geislaspilara. „Þetta er að mörgu leyti sniðugt því fólk get- ur verið að nýta hendurnar á meðan það er að hlusta. Ég hafði nú ekki pælt í þessu áður en þú getur t.d. verið í tetris og hlustað á Davíð,“ sagði Atli að lokum, lagði á og lauk við tet- ris-spilið. LÓA Nýju hljóðjólabækurnar fyrir sjóndapra, torlæsa, sendibfl- stjórana, fiskverkunarfólkið, ræstitæknana og alla hina: Hljóðbóka- klúbburinn: • Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson. 10 klst. á 6 snældum. • Furðulegt ferðalag eftir Að- alstein Ásberg Sigurðsson en hún er einnig að koma út á bók fyrir jólin. 3 klst. á 2 snældum. • Útlendingurinn eftir Albert Camus. Fjórar og hálf klst. á 3 snældum. Hljóðbókasería ís- lendingasagnanna: • Bárðar saga Snæfellsás. 2 klst. á 2 snældum. • Hrafnkelssaga og Fljóts- dælasaga. 5 klst. á 4 snæld- um. • Kjalnesinga saga og Jökuls þáttur Búasonar. 2 klst. á 2 snældum. • Fóstbræðra saga. 5 klst. á 4 snældum. • íslandsförin eftir Guðmund Andra Thorsson sem er líka að koma út á bók. • íslenskur aðall eftir Þórberg Þórðarson í styttri útgáfu í samvinnu við Mál og menn- ingu. Hljóðsetning: • Afi og Dolli, þeirra Arnar Árnasonar og Sigurðar Sig- urjónssonar. • Smásögur. Sögur eftir Strindberg, Ingvar Orre, Na- bokov, John O’Hara og Hein- rich Böll. • Lífið er Ijóð. Safn ljóða eftir Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi. • Vaski grísinn Baddi. (Babe). Það hafa ekki allir glimrandi sjón. Ekki allir hafa tíma til að leggjast í sófann með bók í hönd, teppi ofan á sér og kakóbolla við hlið. Nú hafa útgáfur eygt möguleika til að koma bókverkum til þessa fólks með öðrum hætti en tíðkast hefur - á snældum og diskum. fyrir hlustendur. „Þá hafa menn frjálsar hendur til að túlka sjálfir." Þannig séu t.d. íslend- ingasögurnar fluttar óstyttar og án umhverfishljóða. Á smásagnadisk Hljóðsetn- ingar er stemmningin hins veg- ar aukin aðeins með umhverfis- hljóðum. „Ekki mikið þó. í ljóð- unum erum við bara með rödd- ina. Við prófuðum hitt en okkur fannst það ekki ganga alveg upp. Ljóðin eru samt leiklesin og Arnar túlkar þau á sinn hátt,“ segir Atli. Hvenær er bók bók? Skattakerfið er flókið ferlíki og menn oft ósáttir við skilgrein- ingar þess. Atli benti á að virð- isaukaskatturinn af bókum er 14%, af hljóðbókum 24,5% en þegar bókverkið er fært á svið Hljóðbækur svokallaðar hafa verið á markaði hérlendis um nokkurra ára skeið. Mest hefur borið á barnaspólum með lesnum sög- um en minna hefur farið fyrir hljóðbókum fyrir hina læsu full- orðnu. Blindrafélagið átti frum- kvæði að útgáfu hljóðbóka en síðan hefur Hljóðbókaklúbbur- inn tekið við. Hann gefur út 8 titla á þessari jólavertíð og fara þeir allir, fyrr eða síðar, á al- mennan markað. „Við leitumst við að hafa verðið á hljóðbókum svipað og á prentuðum bókum. Það er okkar óskadraumur að allar bækur komi samtímis út á hljóðbók og prentuðu máli. Þró- unin virðist vera sú sérstaklega í Bandaríkjunum, Bretlandi og á hinum Norðurlöndunum,“ segir Gísli Helgason hjá Hljóð- bókaklúbbnum. Markaðurinn hér er lítill, og kannski enn minni fyrir hljóð- bækur þegar miðað er við þjóð- ir þar sem stór hluti fólks neyð- ist til að keyra langar vega- lengdir í og úr vinnu. Gísli segir markaðinn þó ekki of lítinn enda standi útgáfa hljóðbókar undir sér seljist hún í um eða yfir 300 eintökum. Það hef- ur tekist. Metsalan á hljóðbókinni, Góði dát- inn Svejk eftir Jaroslav Hazek, sem hefur selst í á annað þúsund eintök- um, bendir einnig til þess að býsna margir kunni vel við þennan miðil. Tilvonandi seríur Fjórir kunnir leikarar, Jóhann Sigurðarson, Örn Árnason, Sig- urður Sigurjónsson og Stefán Hjörleifsson, stofnuðu fyrir ári Hljóðsetningu ehf. og nú fyrir jólin gera þeir m.a. út á hljóð- bókamarkaðinn. Ólíkt Hljóð- bókaklúbbnum sem flytur bók- verk á snældur, hafa þeir leik- arar gefið út 2 hljóðbækur, Smásögur og Lífið er Ijóð, þar sem textar eru sérstaklega valdir til flutnings á geisladisk- unum. Þeir hafa þannig opnað möguleika á óendanlegum ser- íum, enda mun ætlunin að halda útgáfunni áfram verði þessum fyrstu vel tekið, því eitt er víst að nóg er af ljóðunum og smásögunum í heiminum. Fyrstu vísar þessara tilvon- andi sería er safn helstu ljóða Davíðs Stefánssonar sem Arnar Jónsson tók saman og svo 5 smásögur eftir ýmsa erlenda höfunda. „Hugsunin er að dæla út lifandi og dauðum skáldum. Það er t.d. á döfinni að fá Þor- stein frá Hamri til að Iesa eigin ljóð,“ sagði Atli Geir Grétarsson hjá Hljóðsetningu. Flýti fyrir hrakandi læsi? Meðal hljóðbókanna sem koma út fyrir jólin er Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson en hún hefur verið lesin til samræmdra prófa í 10. bekk. Þegar vikið er frá þeirri reglu að bókmennta- textar berist njótendum af pappír vakna sígildar áhyggjur um að frávikin geti ílýtt fyrir hrakandi læsi. Gísli segir hljóð- bók eins og Gauragang hins vegar kærkomna hjálp fyrir þann fjölda nemenda sem eiga erfitt með lestur. Enda hafi Gauragangur verið settur á snældur m.a. fyrir áeggjan kennara og nemenda í skólum landsins. Túlkun Hljóðritaðir diskar/snældur og prentaðar bækur eru eðlisólfldr miðlar. Um leið og maður flytur texta, en ekki pappír, andar hann túlkun sinni í eyru hlust- enda með hljómfalli og áhersl- um. Auk þess hafa hljóðritarar ýmsa möguleika á að auka stemmningu eða jafnvel breyta með tónlist og umhverfishljóð- um. Gísli segir stefnu Hljóðbóka- klúbbsins að vera með vandað- an lestur og túlka ekki um of

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.