Dagur - Tíminn - 06.12.1996, Qupperneq 11

Dagur - Tíminn - 06.12.1996, Qupperneq 11
4Uagnr-ÖItmtmt Föstudagur 6. desember 1996 - 23 SKuað &c að genaat unt (keígina? Húsavík Dagskrá um engilinn „Engillinn", fjöllistasýning í Deiglunni 30. nóv. tU 9. des. ’96 Föstud. 6. des. kl. 14-18. Sýningin opin. Kl. 20.30. „Himnesk tónlist á blásturshljóð- færi“/Iitskyggniir eftir Jörgen og Evu Maríu Max. Laugard. 7. des. kl. 14-18. Sýningin opin. Kl. 15. Barnadagskrá: Tónleikar fyrir h'til börn. Almennur söngur. 2-4 ára nemendur undir stjórn Önnu Richards. sýna spunadans um engla. Jacqueline Fitz Gibbon og nemendur hennar leika og syngja um engla. Kl. 16. Ævintýri á að- ventunni eftir Iðunni Ágústsdóttur. Aðalsteinn Bergdal les. Sxmnud. 8. des. kl. 14-18. Sýningin opin. Kl. 15. Tjarnarkvartettinn: Fjölskyldudagskrá. Mánud. 9. des. kl. 14-18. Sýningin opin. í lok sýningarinnar verður hóphugleiðsla kl. 18 með Michael Willcocks. Þangað geta allir mætt! Opið hús í vinnustofu Ingu Arnar Helgina 7. til 8. desember verður Inga Arnar, fatahönnuður, með opið hús að Eikarlundi 21 á Akureyri, í tilefni opnunar vinnustofu sinnar. Inga sýnir vesti, kjóla og handmálaðar silkislæður og er sýningin hluti af sýningu Ingu í hornstofu Heimilisiðnaðarfélagsins í Reykjavík í nóvember. Fötin á sýningunni eru öll til sölu og verður Inga framvegis með sölu á fatnaði sínum í vinnustofunni sem og í Galleríinu Sunnuhlíð. Hægt er að sérpanta fatnað hjá Ingu. Vinnu- stofan er opin laugaraaginn 7. og sunnudaginn 8. des. frá kl. 14 til 18 og eru allir hjartanlega velkomnir. áhuga á að fara á myndlistar- námskeið geta notað tækifærið í leiðinni og innritað sig á nám- skeið á næstu önn. Málstofa heilbrigðis- deildar Háskólans á Akureyri Ákveðið hefur verið að bjóða upp á mánaðarlega málstofu yf- ir vetrartímann. Fyrsta málstof- an verður föstudaginn 6. des. kl. 12-13 í húsakynnum skólans við Þingvallastræti. Dr. Mary Farley, Fulbrightprófessor deildarinnar flytur fyrsta fyrir- lesturinn. Aðgangur er ókeypis. Næstu málstofur heilbrigðis- deildar verða föstudagana 7. febrúar, 7. mars, 4. apríl og 2. maí 1997 kl. 12-13 og verða þær auglýst nánar síðar. Myriam Bat Yosef í Listasafninu Laugardaginn 7. desember kl. 16 opnar Myriam Bat Yosef myndlistarsýningu í miðsal Listasafnsins á Akureyri. Mynd- ir Myriam eru seiðmagnaðar og gefa innsýn inn í óvenjulegan og töfrandi hugarheim. Myriam Bat Yosef er fædd í janúar 1931 í Berlín. Síðan 1980 hefur hún aðallega búið í París og unnið að list sinni og hugmyndum. Hún hefur haldið yflr 60 einka- sýningar víðsvegar um heim- inn. Núna á bókamarkaði fyrir jólin er komin út bók um lífs- hlaup þessarar merku konu sem Oddný Sen skráir. Guðspekifélagið á Akureyri Jólafundur Guðspekifélags- ins á Norðurlandi verður hald- inn sunnudaginn 8. des. kl. 14 að Glerárgötu 32, 4. hæð. Séra Gunnlaugur Garðarsson flytur erindi um helgimyndir ikona og verður með hugleiðingu. Ath. breyttan fundartíma. Umræður, tónlist og kaffi í lok fundar. Ókeypis aðgangur. Allir vel- komnir. Síðdegisstund í Skálholtsskóla Síðdegisstund verður í Skál- holtsskóla sunnudaginn 8. des. nk. og hefst kl. 15. Fjallað verð- ur um mannlíf í Skálholti á 17. öld. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfimdur og Sigurður Péturs- son lektor flytja erindi. Að því loknu verður boðið upp á kaffi, jólaglögg og smákökur. Síðan verða fyrirspurnir og almennar umræður. Verð er kr. 800 og eru veitingar innifaldar í því. Jólahlaðborð ömmu og jólaglögg Á laugardaginn verður boðið upp á jólaborðið hennar ömmu í hlöðunni á Öngulstöðum. Gestir kvöldsins verða séra Pétur og Inga á Laufási. Þau munu flytja hugvekju og lesa upp úr nýútkominni bók sinni. Húsið er opnað kl. 19.00 og jólaborðið kostar kr. 1.600. Borðapantanir í síma 463-1380 og 463-1227. í kvöld verður jólaglögg með piparkökum og léttri tónlist í umsjá Ingólfs Jóhannssonar. Húsið er opnað kl. 21.00. Laugardaginn 14. des. verður síðan Áðventukvöld með Tj arn ar kvarte ttinum. Leikfélag Húsavíkur: „Sölumaður deyr“ Leikfélag Húsavíkur sýnir leikritið „Sölumaður deyr“ eftir Art- hur Miller í leikstjórn Guðrúnar Alfreðsdóttur. Sýningar verða nk. föstudags- og laugardagskvöld í Samkomuhúsinu á Húsavík kl. 20. Miðaverð er kr. 1.500,- en 1.200,- með afslætti. Teitur Þorkelsson skrifar Munnstærð Enn vitna ég í hina frábæru bók, Listin að kyssa, sem Handbókaútgáfan gaf út í Reykjavík árið 1946. Vafalaust hefur bókin bætt úr brýnni þörf og selst eins og heitar lummur því karlpeningurinn hefur allt viljað gera til að bæta sig í sam- keppninni við bæði dáta og aðra karlmenn. Hvernig kyssa á hinar ýmsu munnstærðir: Það er mjög áríð- andi að gefa munnstærð stúlk- unnar gaum. Þegar munnur hennar er eins og ofurh'till rós- rauður blómhnappur, þá er vandinn vitanlega enginn. Þá má fara eftir hefðbundnum að- ferðum. En margar stúlkur hafa varir, eins og t.d. Joan Crawford. Þá er aðferðin allt önnur. Ef þér þrýstið vörunum á miðjan munn hennar og hafið þær þar kyrrar, þá verður eftir stórt svæði af vörunum sem þér snertið aldrei. Þess í stað þarf karlmaðurinn að lyfta vörunum öðru hvoru svolítið frá munni stúlkunnar, færa sig eftir vörum hennar, nema staðar öðru hvoru og kyssa hana fast. Þegar hringferðinni er lokið á hann að færa sig aftur á miðjan munn hennar og nema þar staðar og njóta sælunnar. Dreypið svo á hunanginu. Eins og býflugan sem sest á hinn örlitla frjó- geymi blómsins og bergir á bik- ar hunangsins, þannig eigið þér að bergja á varabikar unnustu yðar. Og það eru sannkallaðar guðaveigar. Aðventukvöld í Akur- eyrarkirkju Sunnudagskvöldið 8. desember verður árlegt aðventukvöld í Akureyrarkirkju. Þar ætlar söfnuðurinn að safnast saman í nánd jóla til að hlusta eftir þeim sem í vændum er, frelsar- anum Jesú Kristi. Fjölbreyttur tónlistarflutn- ingur verður á aðventukvöld- inu. Jón Halldór Finnsson leik- ur á básúnu og Sigríður Elliða- dóttir syngur. Barna- og ung- lingakór kirkjunnar kemur fram. Félagar úr Æskulýðsfé- lagi Akureyrar flytja helgileik, en ræðumaður verður Trausti Ólafsson, leikhússtjóri. Dag- skráin hefst kl. 20.30. FAASAN Fundur verður haldinn hjá FA- ASAN, félagi áhugafólks og að- standenda sjúklinga með Alz- heimersjúkdóm og skylda sjúk- dóma á Akureyri og nágrenni, laugardaginn 7. desember kl. 13 í Dvalarheimilinu Hlíð. Fjallað verður um hvernig og hvar hægt er að leita aðstoðar fyrir Alzheimersjúklinga á Ak- ureyri. Myndlistaskóli Arnar Inga Nemendur í Myndlistarskóla Arnar Inga munu um helgina sýna afrakstur vinnu sinnar á haustönn. Sýningin verður að- eins opin á sunnudag frá klukk- an 14-18 og verður til húsa í Klettagerði 6. Alls sýna 14 manns myndir úr olíu og pastel og er efnisval ijölbreytt. Allir velkomnir og þeir sem hafa Landið Akureyri

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.