Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
24
FREEPORTKLÚBBURINN
heldur fund í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju fimmtudaginn 3. desember nk.
Gestur fundarins og frummælandi verður
Ólafur Ólafsson landlæknir.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Stjórnin.
Sendið mér
□ upplýsingar um veski og dagbók fyrir árifl 1982.
Nafn...............................................
Heimíisfang.......................................
Póstnúmer..........................................
Pöntunarsími 21090
Kirkjufell
Klapparstíg 27,121 Reykjavík.
íþróttir íþróttir íþró
„Féllum ofan í
þá gryfju að
vanmefa Norðmenn”
— sagði Ólaf ur Jónsson, fyrirliði íslenzka
landsliðsins, sem tapaði 20-21
— Við féilum ofan í þá gryfju að vanmeta Norðmenn. Við
vorum lengi í gang og réðum ekki við þann hraða sem við
keyrðum upp, sagði Ólafur Jónsson, fyririiði íslenska lands-
liðsins, sem mátti þola tap (20—21) fyrir Norðmönnum f Laug-
ardalshöllinni í gœr. — Við munum sýna betri leik þegar við
mætum Norðmönnum á mánudagskvöldið, sagði Óiafur.
— Ég er að sjálfsögðu óánægður
I með þennan leik. Fyrri hálfleikurinn
var mjög lélegur en strákarnir léku
þokkalega í seinni hálfleiknum. Við
fengum þá tækifæri til að gera út um
leikinn en nýttum okkur þau ekki,
sagði Hilmar Björnsson, þjálfari lands-
liðsins.
Léleg byrjun
íslenska liðið byrjaði mjög illa —
það vantaði alla yfirvegun í sóknarleik
liðsins og þá var varnarleikurinn lé-
legur og markvarslan eftir því.
Norðmenn komust yfir4—Oog þeim
mun héldu þeir út fyrri hálfleikinn.
Staðan var 13—9 fyrir Norðmenn í
leikhléi en þeir komust síðan yfir 15—
Njarðvík
vann
íslandsmeistarar Njarðvikur í
körfuknattleik heimsóttu Akureyri um
helgina og léku þar við styrkt lið Þórs,
sem var undir stjórn Gylfa Kristjáns-
sonar,” hins nýja Bob Starr í
'dslenskum körfuknattleik”, eins og út-
varpið sagði á laugardag.
Tim Higgins frá Keflavík lék með
Þór á laugardag og sigraði Njarðvík þá
73—62. Á sunnudag lék Higgins og
Danny Shouse með Þór. Ekki var eins
mikil alvara yfir þeim leik og Njarðvík
sigraði einnig þá, með 88 stigum gegn
77. -klp-
10 og þegar staðan var 17—12 fyrir
Norðmenn, fóru leikmenn íslenska
liðsins í gang.
Góður kafli
Páll Ólafsson tók þá Tore Helland úr
umferð, en Helland hafði þá skorað 8
mörk — var potturinn og pannan í
sóknarleik Norðmanna. Leikmenn ís-
lenska liðsins jöfnuðu metin 17—17,
síðan 18—18, 19—19 , 20—20. Ekki
tókst íslensku leikmönnunum að
komast yfir þrátt fyrir mörg góð tæki-
færi til þess. Það var Terje Andersen
sem skoraði sigurmark Norðmanna
1,03 mín. fyrir leikhlé.
Leikmenn íslenska liðsins náðu ekki
góðum leik gegn Norðmönnum —
mættu of sigurvissir til leiks og því fór
sem fór. Þorbergur Aðalsteinsson og
Páll Ólafsson voru bestu leikmenn liðs-
ins og svo Kristján Sigmundsson mark-
vörður sem varði þrjú vítaköst í
leiknum. Kristján varði mjög vel i
seinni hálfleiknum — alls 10 skot.
Varnarleikur íslenska liðsins var
mjög slakur og þá var sóknarleikurinn
ekki nógu yfirvegaður. Leikmenn
gerðu sig seka um mörg mjög slæm
mistök.
Þeir leikmenn sem skoruðu mörkin í
leiknum voru:
Þorbergur 7, Sigurður Sveinsson
5(3), Páll Ólafsson 3, Þorgils Óttar 2,
Þorbjörn Jensson 1, Alfreð 1 og
Steindór 1.
Norska liðið var ekkert sérstakt.
Besti leikmaður liðsins var Helland,
sem skoraði 8 mörk, og Terje Ander-
sen. -SOS.
Stew með
í næsta
leik KR
„Ég verð með í næsta leik KR,”
sagði Stew Johnson, körfuknatt-
leiksmaðurinn snjalli, sem slasaðist
illa á hendi með KR liðinu i haust.
„Við eigum leik við Njarðvik og
ÍS á næstu dögum og þá verð ég
með. Ég hef hlaupið og æft allan
tímann sem ég hef verið frá en ég
hef ekkert átt við boltann svo það
verða kannski einhver vandræði
með hann fyrir mig svona í
byrjun,” sagði Bandaríkja-
maðurinn stóri.
-klp-