Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Blaðsíða 6
26 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981. Beltanuddtækin vinsælu frá V-Þýskalandi eru nú aftur fáanleg, tvær gerðir Getum ávallt útvegaö meö stuttum fyrirvara hina þekktu ,,Nordic Solarium" Ijósalækn- ingalampa. Viðurkenndir af Geisla- vörnum ríkisins. \\ EBRONsf. Vesturgötu 17a — Sími 17830. íþróttir íþrótt SKÖLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI2023S. SPARIÐ tugþúsundir Endurryðvörn á 2ja ára fresti RYÐVÖRN.SF. Smiðshöfða 1 Sími 30945 Sparið þúsundir króna með mótor- og hjólastillingu einu sinni á ári BÍLASKOÐUN &STILLING jjá.oy a 13 -10 0 Hátúni 2A Cll á Iþrótt Asgeir kom inn á fyrir Paul Breitner „Ég hefði varið þetta skot með frakkanum mínum” — sagði Pal Csernai, þjálfari Bayem Miinehen, sem mátti sætta sig við Frá Guðna Bragasyni i Miinchen. — Ásgeir Sigurvinsson lék með Bayern Miinchen gegn Borussia Mönchenglad- bach hér á ólympiuleikvanginum í Miinchen, þar sem 53 þús. áhorfendur voru saman komnir. Ásgeir tók stöðu Paul Breitner, sem meiddist á hné, og lék hann allan síðari liálfleikinn og skilaði hlutverki sinu vel, þegar liðin skildu jöfn 1:1. Leikurinn var mjög skemmtilegur og sóttu leikmenn Bayern nær allan leik- inn að marki Gladbach en þeir voru ekki á skotskónum. — Við lékum vel en nýttum ekki marktækifæri okkar, þannig að við urðum að sætta okkur við jafntefli, sagði Pal Csernai á fundi með fréttamönnum eftir leikinn. Það má segja að heppnin hafi verið með jaf ntef li gegn Gladbach leikmönnum Gladbach og þeir fögnuðu eftir leikinn eins og sigurvegarar. Leikmenn Bayern byrjuðu leikinn með miklum krafti og eftir aðeins 50 sek. skall knötturinn á þverslánni á marki Giadbach — það var Karl-Heins Rummenigge sem átti skotið. Rumme- nigge skoraði síðan mark Bayern á 6. mín. — með þrumuskoti af 12 m færi eftir að hafa fengið góða sendingu frá Barnd Durnberger. Eftir markið héldu leikmenn Bayern áfram að sækja en flestar sóknarlotur þeirra strönduðu á Wolfgang Kleff, markverði Gladbach, sem átti stórleik. Gladbach náði að jafna metin og var það mjög óvænt — það var Lothar Matthaus sem skoraði markið á 25 m færi. — Ég hefði varið þetta skot með frakkanum mínum, sagði Pal Csernai, þjálfari Bayern, eftir leikinn. Rummenigge var' maður ieiksins — var á fullri ferð allan tímann. Það er greinilegt að hann hefur aldrei verið betri. Rummenigge er alltaf sami heiðursmaðurinn, sem kom best fram þegar Frank Mili, leikmaður Gladbach, meiddist og félagi hans spyrnti knettin- um út af, til að þjálfarinn gæti hugað að meiðslum hans. Þegar leikurinn hófst aftur tók Rummenigge innkastið — hann kastaði knettinum til eins leik- manns Gladbach, þar sem honum þótti sanngjarnt að andstæðingarnir fengju knöttinn, sem þeir voru með þegar Mill meiddist. -GB/-SOS. Fyrrum lands- liðsþjálfari Brasilíu drukknaði Frá Viggó Sigurðssyni í Leverkusen. — Ciaudio Couthino, fyrrum landsliðsþjálfari Brasilíumanna — á árunum 1977—1980, sem er nú þjálf- ari S-Ameríkumeistara Flamengo, drukknaði á laugardaginn þegar báti sem hann var í hvolfdi við eina af baðströndum Brasiiíu. Þess má geta að Couthino var nýbúinn að taka til- boði frá S-Arabiu um að gerast landsliðsþjálfari. -Viggó/-SOS. Blakið um helgina: . y, Karl-Heinz Rummenigge á hvern stórleikinn á fætur öðrum með Bayern Múnchen þessa dagana. Vestur-þýzka knattspyrnan: Úrslit leikja i Bundesligunni urðu þessi á laugardaginn: Darmstadt-Duisburg 3—2 Bayern-Mönchengl. 1—1 Braunschw.-Núrnberg 4—2 Karlsruher-Köln 1—4 Dússeldorf-Frankfurt 2—2 Bremen-Hamburger SV 3—2 Leverkusen-Stuttgart 0—0 Dortmund-Kaisersl. 2—2 STAÐAN I Leifur Harðarson, einn besti leikmaður tslands, og bikarmeistarar Þróttar i blaki. Ljósmynd Friðþjófur. Þróttarar vöknuðu við vatnsgusuna Staðan er nú þessi í Bundesligunni l.FCKöln 15 9 4 2 31—12 22 Hamburger SV 15 8 4 3 42—19 20 Bayern 15 9 2 4 35—25 20 Mönchengl. 15 7 6 2 29—23 20 Frankfurt 15 8 2 5 40—27 18 Bremen 15 7 4 4 26—26 18 Braifnschw. 15 8 0 7 26—23 16 Bochum 14 5 5 4 27—24 15 Dortmund 15 6 3 6 25—20 15 Kaiserslaut 15 4 7 4 31—29 13 Stuttgart 15 4 5 6 19—24 13 Leverkusen 15 4 4 7 19—31 12 Karlsruhe 15 4 3 8 23—30 11 Dússeldorf 15 3 5 7 23—32 11 Núrnberg 15 4 3 8 20—30 11 Darmstadt 15 3 5 7 19—36 11 Bilefeld 14 3 4 7 13—21 10 Duisburg 15 4 2 9 23—39 10 ÍS og Þróttur eru nú einu ósigruðu liðin í 1. deild karla i blaki. ÍS hefur forystu i deildinni, með tólf stig að loknum sex leikjum en Þróttur hefur ÍS-Þróttur í kvöld Toppliðin tvö í blakinu, ÍS og Þróttur, keppa í Hagaskólanum í kvöld. Karlaliðin mætast kl. 20 en kl. 18.30 mætast kvennalið sömu félaga. Síðasti leikur kvöldsins verður viður- eign B-liðs Þróttar og HK i 2. deild. Leikir ÍS og Þróttar hafa jafnan verið baráttuleikir hinir mestu og að iíkum má búast við þvi að það sama verði uppi á teningnum i kvöld. -KMU. leikið helmingi færri leiki, eða þrjá og unnið þá alla. Er því ljóst að þessir erkifjendur munu enn eitt árið stinga önnur lið af í deildinni og koma enn til með að berjast um íslandsmeistaratitilinn. Önnur iið munu tæpast blanda sér í baráttu þeirra. Tveir leikir voru um helgina í 1. deild karla. Víkingar og Stúdentar áttust við í Hagaskólanum á laugar- dag og unnu Stúdentar með þremur hrinum gegn einni. Hrinuúrslit urðu, Víkingur á undan: 4—15, 12—15, 15— 6og 11 — 15. í gær unnu Þróttarar Eyfirðinga í Hagaskóla með þremur hrinum gegn einni. Þróttur vann fyrstu hrinu 15— 8 en Eyfirðingar þá næstu 14—12 eftir að hafa haft forystu 13—5 á tímabili. Þróttarar vöknuðu vel við þessa vatnsgusu og tóku næstu tvær hrinur nokkuð örugglega, 15—7 og 15—8 og þar með höfðu þeir unnið þrjár hrinur. Fyrir helgi tapaði Víkingur nokkuð óvænt gegn UMFL á Laugarvatni. Víkingur vann tvær fyrstu hrinur, báðar 15—10, en síðan ekki söguna meir. Laugdælirnir tóku leikinn í sínar hendur og hirtu bæði stigin, unnu þriðju hrinu snögglegal 5—4 og fjórðu og fimmtu báðar 15—11. Tveim dögum áður höfðu Stúd- entar heimsótt Laugdæli og hrein- lega tekið þá í karphúsið. Stúdentar þurftu aðeins 40 mínútur til að afgreiða andstæðinga sína en hrinu- úrslit urðu 8—15, 7—15 og 9—15. Staðan í 1. deild karla er nú þessi: ÍS 6 6 0 18—4 12 Þróttur 3 3 0 Víkingur UMFL UMSE 6 0 6 9—3 6 2 4 12—13 5 2 3 6-12 6 4 4 5—18 0 -KMU. Jóhannes ekki með Dicthelm Fcrner, þjálfari Hannover 96, vildi ekki láta Jóhannes Eðvaldsson leika með liði sínu gegn SpVgg Fúrth á laugar- daginn, en Hannover vann þá 4—2 á útivelli. Ferner sagði fyrir leikinn i viðtali við blað í V-Þýskalandi að Jóhannes væri nýkominn til félagsins, og væri rétt að láta hann koma sér almennilega fyrir, áður en hann léki sinn fyrsta leik. -SOS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.