Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 4
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Jólin hiá æðstu monnum i þjóðfélaginu Hvernig verja þingmenn og ráðherrar jóiunum? Tii að forvitnast litillega um það röttum við Bjarnieifur Ijósmyndari um Alþingi einn dag fyrir skömmu. Þennan dag var óveður mikið útifyrir en allt virtist með kyrrum kjörum innandyra við Austurvöllinn. Að vísu stóð yfir þingfundur en um leið og einhverjir læddust fram á gang voru þeir gripnir heljartaki. Þingmenn og ráðherrar eru i sjálfu sér ekkert öðruvisi en annað fólk. Allir h/akka til jólanna og það sama má segja um þá sem gegna æðstu störfum í þjóðfélaginu. Þeir voru þó allir á sama máli um það að nóg væri að gera hjá þingmönnum — þótt aðrir landsmenn eigi flestir gott fri þessa daga. -ELA. Jólmeðhefð- bundnum hætti „Jólin hjá mér verða að forfalla- lausu með hefðbundnum hætti,” sagði Eiður Guðnason, þingmaður Alþýðu flok ksins., .Fjölskyldan heim- sækir vini og ættingja. Ætli maður líti ekki á eitthvað af nýju bókun- um,” sagði Eiður. Hann var þá spurður hvað hann fengi gott að borða. ,,Ja,” svaraði hann „ætli það sé fullákveðið. Annars er þetta yfir- leitt svipað, hamborgarhryggur með. tilheyrandi á aðfangadag. Á jóladag er okkur venjulega boðið í hangikjöt hjá tengdaforeldrum mínum,” sagði EiðurGuðnason. -ELA Fríðrik Sophusson: ÆTLIEG VERDI EKKIÍÞVÍAÐ SKIPTA UM BLEIUR ,,Ég bíð eftir jólagjöfinni í ár, sem verður einstæð í sinni röð þar sem við hjónin eigum von á barni um jóla- leytið,” sagði Friðrik Sophusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Ætli tími minn um jólin fari því ekki í að skipta um bleiur,” sagði hann. Friðrik var þá spurður hvað hann myndi gera ef konan yrði fjarverandi sjálfa jóladagana. ,,Ja, ef ég get ekki eldað matinn sjálfur treysti ég á góð- vild skyldfólks og vina.” — Og hver er óskajólamaturinn? „Það eru rjúpur. Því miður hef ég ekki komizt á skytterí núna en ég hef stundum farið,” sagði Friðrik. Þá sagðist hann ætla að lesa nýju bæk- urnar. . . ,,og ætli maður noti síðan ekki tímann til að huga að málum i sambandi við atvinnuna og mitt áhugamál — pólitikina,” sagði Friðrik Sophusson. -ELA Pálmi Jónsson: Óskabókin er um Lárus íGrímstungu „Ráðherrarhafa nóguaðsinna um kjöt hjá mér,” sagði Pálmi. jólin sem aðra daga,” sagði Pálmi Eins og aðrir þingmenn hefur hann Jónsson landbúnaðarráðherra. „Ég hugsað sér að komast í einhverjar ætla að reyna að komast norður. Á jólabækur yfir hátíðirnar en ósk aðfangadag verður hjá mér ýmis Pálma er: „Ég myndi vilja lesa bók- heitur matur, ég held að það sé ekki ina um Lárus 1 Grímstungu, svo ég fastákveðið hvað það á að vera. Á sleppi öllum bókum um stjórnmála- jóladag er alltaf borðað kalt hangi- menn,” svaraði hann. -ELA Friðrik Sophusson: „Eidar kannski jólamatinn sjálfur. ” DB-myndir Bjarnlcifur. Pálmi Jónsson. „Vonast til að komast norður.” Eiður Guðnason: „Heimsóknir til vina og ættingja.” EidurGuðnason: Salöme Þorkelsdóttir: Salóme Þorkelsdóttir. „Vonast til að komast f leikhús.” Nógað gera yf ir jóla- háfíðina ,,Ég mun auðvitað verja jólunum með fjölskyldunni. Það er kærkomið að fá sér frí og tíma með henni, eftir að hafa haft svo mikið að gera. Það verður þó nóg að gera heimavið auk þess sem ég hef öðrum störfum að sinna sem oddviti Mosfellshrepps,” sagði Salóme Þorkelsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reykja- neskjördæmi. ,,Ég óska þess að ég hafi tíma til að komast í leikhús. Og ef gott veður verður mun ég fara í gönguferðir. Á aðfangadag förum við i kirkju og sið- an borðum við hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi,” sagði Salóme. Á jóladag sagðist Salóme hafa hangikjöt an annað væri ekki plan- lagt enn sem komið væri. ,,En ég mun örugglega þurfa að taka með mér einhverja- vinnu heim,” sagði hún. -ELA DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 5 Hjörleifur Guttormsson. „Reyni aó komast á skíði. ” Hjörleifur Gufformsson: FÆJÓLATRÉÐ ÚTIÍGARÐI „Eg ætla að reyna að komast heim og vona að það takist og eiga þar nokkra daga í ró og næði með fjöl- skyldunni,” sagði Hjörleifur Gutt- ormsson iðnaðarráðherra. „Jólin verða með svipuðu sniði og þegar ég ólst upp, með jólatrú, lifandi kerta- Ijósum og jólatré,” sagði Hjörleifur ennfremur. ,,Það vill svo skemmtilega til að jólatréð fæ ég úr garðinum minum. Ég plantaði nokkrum trjám árið 1972 og fékk í fyrsta skipti tré í fyrra. Nú, svo verður auðvitað litið í áhugaverð- ar bækur en venjulega fæ ég nokkrar í jólagjöf eða ég kaupi þær sjálfur. Ég hef bara ekki gefið mér tíma ennþá til að líta í bókaverzlanir,” sagði Hjörleifur. „Auvðitað fer ég á skiði. Ég á von á því að nægur snjór sé á mínum heimaslóðum. Venjulega get ég gengið á skíðunum beint út úr bíl- skúrnum. Ég kann mun betur við það heldur en auðu göturnar hér í höfuð- borginni með sandrokinu og öllu sem því tilheyrir. Jólamaturinn er venjulega hangi- kjöt á aðfangadag og góðar steikur í framhaldi af því með ýmsu tilheyr- andi. Konan mín er nefnilega ágæt í matreiðslu þö ég beri það kannski ekki utan á mér. Svo má búast við að ýmislegt falli til fyrir mig að gera um jólin og þá sérstaklega á milli jóla og nýárs,” sagði Hjörleifur Guttorms- son. -ELA. Guðmundur G. Þórarinsson: HelgiSeljan: Eyði tfmanum með fjölskyldunni , ,Ég ætla mér alla vega að hafa það gott yfir jóladagana. Að sjálfsögðu fer ég austur og þar verður fjölskyld- an öll samankomin. Ég mun eyða með henni mestum tíma mínum en einnig reynir maður að líta í nýjar bækur,” sagði Helgi Seljan, þing- maður Austfjarðakjördæmis fyrir Alþýðubandalagið. „Annars eru takmörk fyrir því hvað maður fær mikinn frítíma. Undanfarin ár hef ég verið beðinn að skrifa áramótagrein í vikublað og það hefur mér ekki þótt beint skemmtilegt verkefni. Þá verður tím- inn einnig notaður i fundahöld. Ég fer áallnokkra fundi i kjördæminu,” sagði Helgi. „Jólamaturinn? Ja, við höfum haldið við fastan sið að hafa rjúpur á aðfangadag og hangikjöt á jóladag. Nei, ég hef nú ekki skotið rjúpurnar sjálfur, enginn tími til þes's,” sagði Helgi. „En mér finnst eins og jóla- maturinn sé að breytast. Unga fólkið vill heldur einhvern jólamat og þá hafa læðzt inn hugmyndir um mat eins og kjúklinga og svínakjöt sem mér þykja nú frekar hvimleiðir réttir — hvorutveggja,” sagði_ Helgi Selj- Helgi Seljan: „Nokkuð um fundahöld i kjördæminu.” an. -ELA Geir Hallgrimsson. „Verð heima með fjölskyldunni.” Aldrei haft meira að gera „ Ja, það er nú svo að það fer lítið fyrir fríi hjá þingmönnum um jólin. Áður en ég fór á þing rak ég tvær verkfræðiskrifstofur og fannst ég hafa yfirdrifið nóg að starfa. Ég held þó að það hafi aldrei verið eins mikið að gera hjá mér og núna,” sagði Guðmundur G. Þórarinsson, þing- maður Framsóknarflokksins.’ Hann sagðist þó ætla að gefa sér tíma með fjölskyldunni og líta í jóla- bækur. „Ég hef mikinn áhuga á að lesa bókina hans Vilhjálms, Raupað úr ráðuneyti og bók forsætis- ráðherra. Einnig er bókin um Ólaf Thors ofarlega á vinsældalistanum. Ætli maður reyni ekki að slappa af og njóta samvista við fjölskylduna og borða góðan mat. Ég geri ráð fyrir að á aðfangadag verði hamborgarhrygg- ur með tilheyrandi á jólaborðinu og hangikjöt á jóladag,” sagði Guð- mundurG. Þórarinsson. -ELA GeirHallgrímsson: Langt kominn með Olaf Thors — og langarað lesa bókina aftur „Ég er ekki farinn að huga að jól- unum ennþá en ef að vonum lætur þá les maður bækur og borðar auk þess sem maður verður með fjölskyld- unni,” sagði Geir Hallgrímsson for- maður Sjálfstæðisflokksins. „Konan hugsar nú alltaf fyrir jóla- matnum. Ég veit ekki hvað hún býð- ur upp á núna en venjulega höfum við hangikjöt á jóladag og steikur þar á milli,” sagði Geir. Eins og aðrir þingmenn sagðist hann ætla að lita í jólabækurnar. „Ég er nú eiginlega langt kominn með ævisögu Ólafs Thors og gæti vel hugsað mér að lesa hana aftur um jólin. Ég man ekki eftir annarri bók sem ég hef sérstakan áhuga á að lesa,” sagði Geir Hallgrímsson. -ELA Guðmundur G. Þórarinsson. „Slappa af og verð með fjölskyldunni.” Jól geta orðið stutt hjá þing- mönnum, enda annir miklar og fyrirsjáanlegar efnahagsað- gerðir. Hér ganga þingmenn til Alþingishússins, með Vig- dísi Finnbogadóttur, forseta íslands, og Pétur Sigurgeirs- son biskup í broddi fylkingar. Á hœla þeim koma ráðherrar ríkisstjórnarinnar. D V-mynd Einar Ólason i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.