Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 23
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
23
Mlðað við hryHingsmyndimar am raunvanHagar styrfakHr oft sýndar sam vinalagasta fyrirbœri. Hér ar tH
dæmis ungur harmaður á ferð í fögrum dai. Sumir teija að þannig sijóvgist fóik og verði andvaralaust gagnvart
vigbúnaði.
Friður á jörðu
—almenninghungrarogþyrstir, ekkieftirkærleiksboðskap
Krists, heldureftirhryllingsmyndum á kassettum
Jólin nálgast. Og
friður ríkir á jörðu
Er annars ekki friðarhugsjón og
kærleiksboðskapur Krists órafjar-
lægur? Ekki aðeins nú fyrir jólin
heldur yfirleitt.
Ég rakst nýlega á nokkrar greinar i
danska blaðinu Samvirke, þar sem
fjallað er um þá staðreynd, að hvers
konar hryllingur og ofbeldi virðist
eiga sifelldum vinsældum að fagna í
fjölmiðlum. í Svíþjóð er jafnvel
gengið svo langt að sýna sakamála-
myndir á jólakvöldið í sjónvarpinu.
Ennþá einkennilegra er þó að
myndbandakassettur til heimilisnota
virðast því vinsælli eftir þvi sem þær
sýna meira blóð og fleiri brjálæð-
inga.
Hér á eftir verða raktir nokkrir
punktar úr þessum dönsku greinum
— til umhugsunar og samanburðar
við aðstæðurnar hjá okkur hér
heima.
Meðan Hollywood-
myndir voru sætar og
penar..
Það er ekkert fjarska langt síðan
Hollywood var kölluð verksmiðja
fyrir ameríska drauminn. Vel klætt
fólk hjalaði í hvíta síma, og siðgæðis
var svo vandlega gætt að ekki einu
sinni hjón máttu sjást saman undir
sæng.
Þá forðuðust framleiðendur bölv,
ruddaskap, klám, pyntingar og
ógeðsleg atriði. Ef talað var um
hryllingsmyndir var átt við menn eins
og Hitchcock. Myndir hans virðast í
dag eins saklausar og þær væru ætl-
aðar leikskólabörnum, ef frá er talið
morð-atriðið í sturtuklefanum í
Psyko, sem er meistaralega ógeðs-
legt.
En ef til vill hefur draumurinn
breytzt í martröð. Að minnsta kosti
hafa kvikmyndaframleiðendur upp-
götvað að eftirspurn eftir myndum
virðist því meiri sem ofbeldið er
hrottalegra.
Axarmorðingjar og
geðsjúklingar vinsælir
Þess vegna er nú framleidd mynd
eftir mynd þar sem geðsjúklingar og
axarmorðingjar leika lausum hala og
blóðið rennur í stríðum straumum.
Það gusast yfir sófasett sem eru alveg
eins og þau í stofunni hjá mér eða
þér. Beittum hnífum er fimlega
brugðið til að sníða burt líkamshluta
eins og hendur, fætur og höfuð. Af-
skornir bútarnir eru sýndir áhorfend-
um frá öllum hliðum, áður en þeir
sveiflast út í horn á stofunni — eða
kannski ofan í vatnsbúrið hjá forviða
gullfiskunum.
Nöfn myndanna eru að sjálfsögðu
í sama stíl: Fjöldamorðin í næturlest-
inni, Föstudagurinn þrettándi, eða
Varúlfarnir. Þeirri síðastnefndu lýk-
ur með því að fögur sjónvarpsfrétta-
kona breytist í úlfynju í beinni út-
sendingu. Það er ekki hægt að kveða
hafia niður með öðru móti en því að
skjóta hana til bana með silfurkúlu.
Hugljúfasta heimilis-
skemmtunin
Hákarlinn er ein þessara mynda.
Hún varð svo vinsæl að það voru
gerðar tvær í viðbót um sama efni.
Loks gerðu Ítalir þá fjórðu, fyrir
sjálfa sig sérstaklega.
En aðalfyrirmyndin er samt mynd-
in Maður sér rautt, gerð 1975 eða 6.
Hún greinir frá því að óaldarflokkur
unglinga ræðst hrottalega á eigin-
konu arkitekts nokkurs i New York
,og unga dóttur þeirra hjóna. Eigin-
sem ræða má frá mörgum hliðum.
Sumir vilja halda því fram að hryll-
ingsmyndir af þessu tagi fullnægi
djúpstæðum frumkenndum í mann-
eskjunni. Með því að horfa á þær fái
fólk útrás fyrir hættulegar hvatir á
saklausan hátt.
Aðrir hafa áhyggjur af því að hin
sífellda mötun eða neyzla á myndum
af þessu tagi sé slævandi í lengdina.
Sérstaklega verði börn sem alast upp
við þetta gjörsamlega forhert þannig
að þau hætti að kippa sér upp við
Hugljúfasta heimHisskemmtun Svia um þossar mundir er að horfa á kassettu
með myndinni Vólsagarmorðinginn. Þar er engu leynt fyrir auga kvikmynda-
válarinnar sem hrylling má skapa. AOalleikarinn mun vera af íslenzkum
ættum, Gunnar Hansen, efíaust mesta góðmenni. D V-mynd Ragnar TH.
maðurinn (Charles Bronson) verður
ævareiður. Hann kaupir sér byssu,
lærir að skjóta og fer síðan út á göt-
urnar til að salla niður unglinga sem
minna hann á árásarhópinn.
Sumir gizka á að vinsældir þessar-
ar myndar byggist á vaxandi vantrú
amerísks almennings á því að lög-
reglan sé starfi sínu vaxin.
En hæpið mun vera að draga slíkar
ályktanir. í Svíþjóð, sem oft er talin
andhverfa Bandarikjanna i þjóðfé-
lagsskipan, eru hryllingsmyndirnar á
hraðri uppleið. Ein allra vinsælasta
myndbandakassettan er Vélsagar-
morðinginn. (Okkur er sagt að aðal-
leikari hennar, Gunnar Hansen, sé af
íslenzkum ættum).
Þessi mynd er gædd öllum þeim
eiginleikum sem eina mynd mega
prýða til þess að barnaverndarnefnd-
ir og sjónvarpsráð láti banna hana
þegar í stað. Dvalið er lengi og
ósmekklega við blóðugar limlesting-
ar. Auk þess kemur kynferðislegur
kvalalosti mjög sterkt fram.
En það er einmitt þetta sem sænsk-
ar fjölskyldur velja sér að horfa á
þegar þær að loknum vinnudegi ætla
aðeiga notalega og hugljúfa stund.
Og kannski verður raunin alveg sú
sama hér á landi?
Útrás eða forherðing?
Þetta er mjög furðulegt fyrirbrigði
nokkurn hlut. Þau geri þá heldur
ekki greinarmun á raunverulegum
hryðjuverkum og kvikmyndum.
Finnist þetta allt vera einhvers konar
tilbúningur.
Kannski undirbúningur
fyrir nýja heimsstyjöld
Enn aðrir óttast að sljóleikinn fyrir
þessu ógeði geri mannkynið sáttara
við tilhugsunina um nýja heimsstyrj-
öld. Geri það ónæmt fyrir skelfileg-
ustu hryðjuverkum.
Og ýmsir benda á að miðað við
hryllingsmyndir af ofangreindu tagi
séu myndir af raunverulegum styrjöld-
um fegraðar. Þar sé viðbjóðurinn,
limlestingin og þjáningarnar ekki
dregnar fram. Flestar myndir um
styrjaldir eru fullar af bröndurum.
Eða þá aðaláherzlan er lögð á eyði-
leggingu hergagna og mannvirkja,
ekki kvalir hermanna og borgara.
{ tvö þúsund ár höfum við verið
kristin. í tvö þúsund ár hefur hver
styrjöld verið hræðilegri en sú næsta
á undan. Og sú styrjöld sem sennilega
bíður okkar nú verður hryllilegust
þeirra allra.
Er ekki kominn tími til að losa sig
út úr þessum vitahring og hugleiða
friðar- og kærleiksboðskap Krists i
fullri alvöru?
ihh
Miðvangi 41 — Hafnarfirði Sími 52004
ATOMIC skíðavörur í úrvali
Svigskíði — gönguskíði, skíðastafir,
bindingar, skíðaskór.
Ath. Ódýr barnaskíðasett.
Stærðir: 70 cm til 170 cm.
Verð frá kr. 277,- til 1.080,-.
Tilvalin jólagjöf.
Hvergi betra verð á skíðavörum
opið til kl. 22.00
PÓSTSENDUM
GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290
abecita^
Útsölustaðir
á Austur- og Vesturlandi
Ósk, Akranesi Elís Guðmundsson Eskifirði
Þóra, Óiafsvík Kf. A-Skaftfellinga
Hólmskjör, Stykkishólmi Höfn
Kf. Hvammsfjarðar, Búðardal ,
™~pwa4 SÆNSK-ISLENSKA
Sölumenn: 83599og 83889 SUNDABORG 9 REYKJAVIK