Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 11
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 11 HOFUM m UFAÐ ÁÐUR? — Indverskur sálf ræðingur telur sig hafa f undið nýjar sannanir sem styðja kenninguna um endurfæðingu Þekktur indverskur sálfræðingur, dr. Statwant Pasricha, hefur safnað saman nýjum sönnunum sem styðja kenningu manna um endurfæðingu. Sagðist hún hafa verið full efa- semda sjálf er hún hóf starfið, en eft- ir að hafa kannað 45 tilfelli til hlítar er erfitt að neita þeim sönnunum er þar komu fram. Hún ræddi aðallega við börn sem lýstu fyrra lífí sínu í slíkum smáatrið- um að um uppspuna gat ekki verið að ræða. Sunita Sharma var aðeins 2 1/2 árs gömul er hún sótti markað með ömmu sinni. Þetta var mikið ævin- týri fyrir telpuna, sen skyndilega hvarf brosið af vörum hennar. Hún benti skelfingu lostin á konu sem leið átti fram hjá og sagði: — Húndrepurmigaftur. Amma Sunitu flýtti sér heim með hana og þar sagði telpan hina undar- legu morðsögu sína: — Tengdadóttir mín lét myrða mig. Hún fékk leigumorðingja til að drepa mig með hnífi. Dr. Pasricha komst að því að kona í sama þorpi og Suntia hafði verið drepin á nákvæmlega sama hátt og telpan lýsti því árið 1%1 — sex árum áður en Sunita fæddist. Það undarlegasta við málið var þó að Sunita var með Ijóta, rauða fæð- ingarbletti á brjósti og hægr.a hand- legg — sem pössuðu nákvæmlega við stungurnar á líkinu er það fannst. Auðugur kaupmaður og telpa sem drukkn- ar í brunni Þegar eldri bróðir Rams Prakashs, sem þá var fjögurra ára, bað dreng- inn um að sækja fyrir sig glas af vatni, svaraði drengurinn: — Ég er ekki Ram. — Ég er hr. Jain. Síðan taldi hann upp atriði úr fyrra lifi sínu, nöfn ættingja, skólagöngu sína og nefndi hofið sem hann studdi með peningagjöfum. Fjölskylda hans komst að raun um að þetta var saga auðugs kaupmanns í nágrenninu, sem lést 10 mánuðum áður en Ram fæddist. Fjölskylda hins látna frétti af drengnum og heimsótti hann. Þekkti hann þá samstundis sem ættingja sína. Enda heimtar hann að ganga undir sinu gamla nafni og fjölskylda Larli Saran: Dóttir hans drukknaði 1 brunni. kaupmannsins hefur haldið sam- bandinu við hann. Malti Shanker var aðeins 2 ára þeg- ar hún sagði: — Ég á heima í Camoha, en það var þorp í fjögurra mílna fjarlægð frá heimili hennar. — Ég var send eftir vatni, sagði hún svo sorgmædd. — Ég missti jafnvægið, datt í brunninn og drukknaði. Dr. Pasricha segir að foreldrarnir hafi komist í uppnám yfir sögu barnsins, en reynt að skrifa hana á reikning fjörugs ímyndunarafls. Næst gerðist það að telpan stöðv- aði mann á götu 1 þorpinu. — Þú ert frændi minn, sagði hún ákveðin. — Pabbi minn heitir Larli Saran og ég drukknaði i brunni. Maðurinn vissi að Sarli fjölskyldan hafði misst telpu á þennan hátt og sagði henni frá Malti. Frú Sarli heimsótti hana og telpan þaut í fang hennar og grét beisklega. Það sama gerðist er hr. Sarli og sonur hans komu í heimsókn. Hún var bara 3 1/2 árs þegar ég talaði við hana, segir dr. Pasricha. — Hún gat rifjað upp í allt 23 atriði úr fyrra lifi sínu — þar af stemmdu 19 fullkomlega við raunveruleikann. Þótt undarlegt sé kýs Malti fremur að dvelja hjá ,,fyrrverandi” foreldr- um sínum — jafnvel þótt þeir séu mun fátækari en „núverandi” for- eldrar hennar. Bókin er saga Tonton Yves, eða ,, Yves frœnda“ sem stundaði veiðar á skútum við ísland á lokaskeiðiþeirrar út- gerðar. Jacques Dubois skráði eftir frásögn Yves. Vigdís Finnbogadóttir er manna fróðust um íslands- siglingar Frakka. í formála segir hún m.a.: ,,Þessi bók sem hér hefur verið þýdd af frönsku á íslensku er, auk þess að vera merk œvisaga einstaklinga, drjúgt heimildarrit um siglingar Frakka á íslandsmið og samskipti þeirra við íslendinga á síðasta skeiði 300 ára siglingasögu. Hér er brugðið upp myndum afþví hvernig lífið var um borð langa mánuði með endalaust hafið við sjóndeild- arhring, hvernig menn voru keyrðir áfram til vinnu og veik- um og slösuðum allar bjargir bannaðar um lœknishjálp, þar sem hagur útgerðarinnar var stœrri og meiri en hagur einstaklingsins. Hún segir frá strandi franskrar skútu á söndunum suður af jöklum og viðbrögðum skipverja og heimamanna... Þá er íþessari bók rifjað upp hvernig veið- ar fóru fram á frönsku skútunum. “ Bókin er prýdd 52 gömlum ljósmyndum YVES FRÆNDI hefur að geyma 32 gamlar Ijósmyndir, sumar áður óbirtar, sem tengjast efni hennar, jafnt frá Bretagne sem Austfjörðum þar sem frönsku duggararnir komu einkum. Aftast í bókinni er sögulegt yfirlit um fiskveiðarnar við ísland. Raunsönn og forvitniieg bók um samskipti íslendinga og Frakka. Bræðraborgarstig 16 Simi 12923-19156 Vigdís Finnbogadóttir ritar ítarlegan formála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.