Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Side 1
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981.
21
Sjónvarp
Sjónvarp
Fimmtudagur
24. desember
Aðfangadagur jóla
13.45 Fréttaágrfp á táknmáli.
14.00 Fréttir, veður og dagskrár-
kynning.
14.15 Bleiki pardusinn. Bandarísk
teiknimynd fyrir börn. Þýðandi:
Jóhanna Jóhannsdóttir.
14.35 Múmínálfarnir. Fyrsti þáttur
af þrettán um hinar frægu per-
sónur, sem byggðar eru á verkum
Tove Jansson. Þetta er framhald
fyrri þátta. Þýðandi: Hallveig
Thorlacius. Sögumaður: Ragn-
heiður Steindórsdóttir.
(Nordvision).
14.45 Jólin hans Jóka. Þrír síðustu
þættirnir úr bandaríska teikni-
myndaflokknum um Jóka björn og
jólin. Þýðandi: Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
21.00 Jól í landinu helga. Dagskrá
um ferð kirkjukórs Akraness til
ísraels á jóium 1977. Tilefni farar-
innar var boð frá Israel um að
syngja við hátíðahöld næturinnar
ásamt tíu kórum öðrum víðs vegar
að. Kórnum er fylgt um söguslóðir
biblíunnar, þaðan til Rómar og
loks lýkur ferðinni í kirkjunni á
Akranesi. Söngstjóri: Haukur
Guðlaugsson. Einsöngvarar:
Guðrún Tómasdóttir og Friðbjörn
G. Jónsson. Undirleikari: Friða
Lárusdóttir. Raddþjálfun: Guð-
munda Eliasdóttir. Lesarar: Þórey
Jónsdóttir og sr. Björn Jónsson.
Stjórn upptöku: Tage Ammen-
drup. (Þessari dagskrá var áður
sjónvarpað á aðfangadag jóla árið
1978).
21.35 ,,Syng, barnahjörð.” Kór
Öldutúnsskóla syngur átta kristileg
. lög undir stjórn Egils Friðleifs-
sonar. Stjórn upptöku: Viðar
Víkingsson.
22.00 Hlé í fimmtán mínútur.
22.15 Aftansöngur jóla í sjónvarps-
sal. Biskup Islands, herra Pétur
Sigurgeirsson, prédikar og þjónar
fyrir altari. Dómkórinn syngur
AFTANSÖNGUR JÓLA—sjónvarp og útvarp kl. 22.15:
HERRA PÉTUR SIGURGEIRS-
S0N FLYTUR JÓLAMESSU
í þau rúmlega fimmtán ár sem
sjónvarpið hefur starfað hafa lands-
menn ævinlega fengið að fylgjast
með aftansöng á jólakvöldið. Og það
hefur verið biskup, Sigurbjörn
Einarsson, sem prédikað hefur. Nú
verður allt með sama sniði og áður,
nema hvað herra Pétur Sigurgeirsson
tekur nú við af Sigurbirni.
Sjónvarpið á sérstaka sviðsmynd,
með altari, krossi og prédikunarstól,
sem eingöngu er notuð á jólum,
páskum og hvítasunnu. Hún mun
vera eina sviðsmyndin á landinu, sem
hlotið hefur kirkjulega vígslu.
Að þessu sinni syngur Dómkórinn
undir stjórn Marteins Hungers og
verða sálmarnir þessir „í Betlehem
er barn oss fættl’ ,,Sem börn af
hjarta viljum vér” „Guðs kristni í
heimi” og „Heims um ból.”
Til hátíðabrigða verður samleikur
á fiðlu og sembal, sem þær annast,
Guðný Guðmundsdóttir og Helga
Ingólfsdóttir.
Aftansönginn má heyra bæði í út-
varpi og sjónvarpi.
Vaktmennirnir um bord 1 skipum í Reykjavíkurhöfn, starfsfólk og sjúklingar á
sjúkrahúsum, já, og fjölmargir aðrir munu hlusta á aftansöng í útvarpi/sjónvarpi
-ihh. kl. 22.15.
BARNAMYNDIR Á AÐFANGADAG
—sjónvarp kl. 14.15-15.50:
Fyrir börnin er það
lengsti dagur ársins
Yngstu börnin eru oft óþekk á
aðfangadag, af því hann er svo
hræðilega, hræðilega lengi að líða.
Sjónvarpið kemur stressuðum for-
eldrum til hjálpar og sýnir teikni-
myndir frá 14.15 til 15.50. Fyrst er
það Bleiki pardusinn, síðan Múmin-
álfarnir. Frá Múmín/álfunum
segjum við betur seinna, en nú hefst
ný þáttaröð með þeim. Lengsti kafl-
inn í þessari syrpu verður Jólin hans
Jóka. Þrír síðustu þættirnir úr
bandaríska teiknimyndaflokknum
verða sýndir í einni bunu. Klipparar
sjónvarpsins hafa lagað þá lítillega,
svo krakkarnir sleppa við að horfa á
kynningar og afkynningar inni í þeim
miðjum.
Þetta er ágætt, en hefði kannske
mátt vera enn lengur, fram undir kl.
17. -ihh.
Jóki björn fær jólagest sem heilsar honum innilega og ber ekki á öðru en honum
liki það vcl.
undir stjórn Marteins Hunger
Friðrikssonar. Guðný Guðmunds-
dóttir og Helga Ingólfsdóttir leika
einleik á fiðlu og sembal. Stjórn
upptöku: Maríanna Friðjóns-
dóttir. Aftansöngnum er
sjónvarpað og útvarpað samtímis.
23.15 Dagskrárlok.
Föstudagur
25. desember
Jóladagur
STIKLUR—Börn náttúrunnar-jóladagskvöld kl. 20.15
Sérstæðir persónuleikar -
tveir utan við alfaraleið
í seinni Stiklu-þættinum á vestustu
nesjum landsins kynnast sjónvarps-
áhorfendur tveimur mjög merkum
mönnum og hefur hvorugur þeirra
bundið bagga sína sömu hnútum og
samtíðarmennirnir.
Annar þeirra, Samúel Jónsson, er
látinn en handaverk hans bera vott
um mikla listgáfu. Samúel bjó í hjá-
leigu út frá Selárdal og kom víst varla
nokkurn tíma út fyrir Vestfirði. En
hann hafði séð myndir af fögrum
byggingum i útlöndum, eins og Al-
hambra á Spáni og Taj Majhal í Ind-
landi. Úr sementi, sem hann ferjaði
með ærinni fyrirhöfn frá Bíldudal,
timbri og öðru handbæru efni gerði
hann eftirlíkingar af þessum og öðr-
um listaverkum. Hann málaði altaris-
töflu og vildi gefa kirkjunni í Selár-
dal. Þegar sóknarnefndin afþakkaði
(því enginn er spámaður í sinu föður-
landi) reiddist Samúel og byggði sína
eigin kirkju utan um töfluna. Sú
kirkja var aldrei vígð en taflan er nú í
eigu Listasafns ASÍ.
Á Uppsölum býr Gísli Gíslason í
sínum eigin heimi. Nútíminn kemur
honum ekkert við. Hann hefur ekki
lesið blöðin né hlústað á útvarp, hvað
þá horft á sjónvarp, í marga áratugi.
Við annað fólk talar hann alls ekki á
hverjum degi.
En þrátt fyrir fjölmiðla- og fjöl-
mennisleysið — eða kannske einmitt
þess vegna — er hann hinn spakasti
maður. Sumir segja hann minni á
náunga eins og Björn í Brekkukoti
eða Jón Prímus hjá Laxness. í
skemmtilegu viðtali sem Árni John-
sen blaðamaður tók við hann 1977
eða svo orðaði hann skoðanir sínar á
framhaldslífi með þessum látlausu og
Ijúfu orðum: „Sumir segja að það sé
líf á öðrum stjörnum. Mér fellur sú
kenning vel.”
ihh
Gísli Gislason, Uppsölum, snýr baki við skarkala heimsins og fer sfnar eigin
götur.
17.00 Jólaævintýri. Ópera byggð á
sögu Charles Dickens með sama
nafni. Aðalpersónan er Scrooge og
atburði og annað sjáum við með
augum hans. Höfundur: John
Morgan. Höfundur tónlistar:
Norman Kay. Með helstu hlutverk
fara: Geraint Evans, sem Scrooge
og Gwynne Howell, Elizabeth Gale
og Ryland Davies. Þýðandi:
Þrándur Thoroddsen.
18.00 Jólastundin okkar. Séra
Halldór Gunnarsson, sóknar-
prestur í Holti, ræðir við börn um
jólin, barnakór, tónlistarskóla
Rangæinga syngur, Ómar
Ragnarsson bregður á leik, jóla-
sveinninn kemur í heimsókn, og
leiknir verða stuttir leikþættir. Þá
verður jólaskemmtun i sjónvarps-
sal og síðast en ekki síst kemur
óvæntur gestur í heimsókn. Um
sjón: Bryndís Schram. Stjórn
upptöku: Elin Þóra Friðfinns-
dóttir.
19.00 Illé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir, veður og dagskrár-
kynning.
20.15 Stiklur. Sjötti þáttur. Börn
náttúrunnar. Síðari þátturinn af
tveimur, þar sem stiklað er unr
vestustu nes landsins. í þessum
þætti liggur leiðin yfir Rauðasand
og Látrabjarg vestur í Seláral, þar
sem margt er með ævintýralegum
blæ. Byggingar og listaverk
Samúels Jónss., eiga engan sinn
lika hér á landi, á sundi i firðinum
er stúlka, sem kallast á við dýr
sjávarins og á Uppsölum hefur ein-
búinn Gísli Gíslas. búið áratugum
saman, án nútima þæginda, svo
sem rafmagns, fjölmiðla og
heyvinnuvéla. Myndataka: Páll
Reynisson. Hljóð: Sverrir Kr.