Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1981, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1981. 26 Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur íslensk söguljóð og draugasögur á snældum Útgáfan Sólspil og Galleri Lækjartorg hafa gefið út íslensk söguljóð og ís- lenskar draugasögur undir merkinu Þjóðlist. Þetta eru eins konar lifandi bækur. Sögurnar eru lesnar inn á snældur og tónlist er leikin undir. Ævar R. Kvaran annast upplestur á sögunum, en tónlistin er eftir Áskel Másson. Flytjendur tónlistar eru Áskell Másson, Einar Jóhannesson, Manuela Wiesler og Reynir Sigurðsson. Hvor útgáfan, „íslenskar drauga- sögur” og „Íslensk söguljóð”, er tvær klukkustundir að lengd á tveimur snældum. Snældurnar eru 1 sérstökum, handhægum umbúðum. Þeim fylgir efnisyfirlit og greinargóður formáli, sem Ævar R. Kvaran skrifar. Gustur, Lassý og Tarzan Siglufjarðarprentsmiðja hf. gefur að þessu sinni út tvær unglingabækur úr bókaflokkum, sem notið hafa mikilla vinsælda hér á landi síðastliðinn ára- tug. Hér er um að ræða 11. bókina úr bókaflokknum um hestinn GUST og vini hans, sem að vanda lenda í alls konar spennandi ævintýrum. Bókin heitir GUSTUR — Leitin að úran-nám- unum. Þá er einnig 10. bókin um LASSÝ, hundinn vinsæla og vini hans og er ekki sökum að spyrja, að þeir lenda i spenn- andi klípu, sem leysist að sjálfsögðu með hjálp LASSÝ. Bókin heitir LASSÝ — Mannrán við Norðurá. reOOV ÉF2MW WWÆÆM mWmJr mJP m mJmJmw lBtiiiatta«ninn Siglufjarðarprentsmiðja hf. gefur einnig út TARZAN-myndablöð árið um kríng, en nú á haustdögum rétt fyrir jólin hafa komið út glæsileg auka- hefti í stærra broti en venjulega. Heftin eru mjög litskrúðug og prentun öll hin vandaðasta Myndasögurnar bera heitin „TARZAN — Demantaæði” og „TARZAN — Drekaskrímsli”. Galdra-Rönku rímur eftir Huga Hraunfjörð Út er komin ný bók eftir Huga Hraun- fjörð rímnaskáld. Nefnist hún Galdra- Rönku rímur, og fjalla rímurnar um stúlku sem uppi var á miðöldum og baráttu hennar við galdratrú og fá- kunnáttu hins andlega og veraldlega valds þess tíma. Hugi Hraunljörð Pétursson er fæddur árið 1918. Hann hefur ort fjöldann allan af ljóðum og tækifæris- visum í blöð og tímarit. Áður hafa komið út eftir hann tvær bækur, Skuggi draumsins 1958 og Ákvæði árið 1972. Galdra-Rönku rimur eru alls 20 rimur og mansöngur fylgir hverri rímu. Bókin er 84 síður. Káputeikning er eftir Ólaf Thorberg listmálara. Bókin er til- einkuð ári fatlaðra. Bókin er tölvusett og offsetfjölrituð. Heimförin eftir Evelyn Anthony Leiftur hf. hefur sent frá sér bókina „Heimförin” eftir Evelyn Anthony. Á bókarkápu segir meðal annars: í lok siðari heimsstyrjaldarinnar voru þrjár milljónir Rússa fluttar til Sovétríkjanna með valdi — fórnarlömb leynisamnings milli Churchills og Roosevelts annars vegar og Stalíns hins vegar, Yaltasamningsins. Sumir Rúss- anna kusu þó heldur að svipta sig lífi en að verða að þola hægan dauðdaga i fangabúðum norðan heimskautsbaugs. Ættingjar fórnarlambanna, sem búa í París, taka höndum saman til að koma fram hefndum. Tækifærið gefst þegar einn æösti ráðamaður Sovétríkj- anna kemur i opinbera heimsókn. Sam- tökin, sem kalla sig „Heimförina”, grípa þá tækifærið, sem lengi hefur verið beðið eftir. Heimförin er 287 blaðsíður að stærð, Hersteinn Pálsson íslenzkaði. Leiftur hf. prentaði. Richard Scarry BlNNl BÓNDí ÐRFKINN ÓGURI.LGI Binni bóndi og drekinn ógur- legi oftir Richard Scarry Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hefur sent frá sér bókina BINNI BÓNDI OG DREKINN ÓGURLEGI, eftir hinn kunna barnabókahöfund Richard Scarry í íslenskri þýðingu Andrésar Indriðasonar. Richard Scarry er iöngu heimsþekktur fyrir barnabækur sínar en hann leggur mikla áherslu á að tvinna saman skemmtun og fróðleik í bókum sínum. Sagan um BINNA BÓNDA, sem öll er litprentuð, er þó fyrst og fremst ævintýri sem gerist fyrr á öldum og segir frá því þegar Binni og Ormar takast á hendur að bjarga hinni undurfögru Perlu prinsessu úr klóm drekans ógurlega. Koma margar skemmtilegar og skrýtnar persónur við sögu. Bókin BINNI BÓNDI OG DREK- INN ÓGURLEGI er sett og fiimuunnin í Prentsmiðjunni Odda, en prentuð og bundin í Englandi. Aftanskin Sjómannadagsráð hefur gefið út bók- ina Aftanskin , ritgerðir og minning- ar manna með sjötíu ára lífsreynslu eða meira að baki. 25 aldnir karlar og konur eru höfundar efnis í þessari bók. „Oft er það gott sem gamlir kveða” segir máltækið, og mun það sannast á þessari bók. Hún hefur að geyma ótrú- lega fjölbreytt efni, sem ungir og aldnir geta sótt í fróðleik og ánægju. Þar er að finna æskuminningar, ferðaþætti, Oj) PIOIMEEn Orð eru þar sem lífið er óþörf, komdu og skoðaðu Radíóborg, HAMRABORG 10, SÍMI 46777. VIDEOMARKAÐURINN ER EINNIG Á SAMA STAÐ. frásagnir af minnisverðum atburðum, aldafarslýsingar, hugleiðingar um æsku og elli, lýsingar á viðbrögðum manna þegar þeim er skyndilega sagt að taka pokann sinn því að nú sé ævi- starfinu lokið. Hér blandast saman gaman og alvara, gleði og sorgir — í fáum oröum sagt lífsreynsla þeirrar kynslóðar, sem nú hefur skilaö sínu verki og lítur um öxl eða fram á veginn. Uilgei.Jn og minnlngar manna ma<5 sjðtiu ítra tltsreynalu eöa metra aö baki Aftanskin er 272 blaðsíður að stærð, Steindórsprent hf. prentaði, en Nýja bókbandið annaðist bókbandsvinnu. Ýlustrá eftir Guðrúnu Brynjúlfs- dóttur Út er komin bókin Ýlustrá , eftir Guðrúnu Brynjúlfsdóttur. Bókin er gefin út á kostnað höfundar. Guðrún Brynjúlfsdóttir er fædd á Kvígstöðum í Andakílshreppi árið 1904. Hún dvaldist í Borgarfirðinum næstu 28 árin, þar ’til hún fluttist til Reykjavíkur. Hún hefur lengst af unnið viö saumaskap og rak eigin saumastofu fyrstu árin í Reykjavík. *«> i x/. lil flKl s BRt Nji l rxr>«t lk ÝLUSTRÁ Það sem hér kemur í bók hefur Guðrún skrifað niður sér til ánægju og til að gleðja aðra. Höfundur vill þakka góðu fólki fyrir aðstoðina við útgáfu bókarinnar. Ýlustrá er 135 blaösíður að stærð. Hólar hf. prentaði. Tvær nýjar um Frank og Jóa Leiftur hefur gefið út tvær nýjar bækur um þá bræöur og félaga, Frank og Jóa. Þetta eru 26. og 27. bókin um Frank og Jóa, og nefnast þær „Ævin- týri í Alaska” og „Pýramídinni í frum- skóginum”. Höfundur er Franklin W. Dixon. Á bókarkápu segir meðal annars: Allar sögurnar um Frank og Jóa eru viðburðaríkar og spennandi frá upp- hafi til enda. Þeir þeysa á mótor- hjólum, aka í bílum, fljúga í flugvélum og sigla hraðbátum í eltingaleik sínum við harðvítuga bófa og bófaflokka. Barátta þeirra er tvísýn og ógnir úr öllum áttum bíða þeirra við hvert fót- mál. Oftast eru þeir einir í þessum tví- sýnu rannsóknarferðum en stundum eru vinir þeirra með þeim. Stundum er faðir þeirra, sem er kunnur leynilög- reglumaður, með þeim í störfum eða að þeir starfa með honum . . . En alltaf sigra Hardý-bræður að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.