Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1982, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1982, Side 3
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1982. 19 Hvað er á seyði um heiyína Hvað er á seyði um helgina Messur Guðsþjónustur í Reykjavikurprófastsdœmi sunnu- daginn 28. febrúar 1982. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma i Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Guösþjónusta í Safnaðarheimilinu kl. 2. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árni Bergur Sigurbjönsson. Miðvikudagur 3. marz: Kirkjukvöld á föstu, i Laugarneskirkju, kl. 20.30. Dr. Gunnar Kristjánsson flytur erindi og sýnir litskyggnur. Manuela Wiesler leikur einleik á flautu. Kirkjukór Ás- og Laugarnessóknar syngja nokkur lög, enda er kirkjukvöldið á vegum beggja safnaðanna. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14 í Brciðholtsskóla. Altarisganga. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. ll.Messa kl. 2. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Æsku- lýðsfundur mánudagskvöld. Félagsstarf aldraðra miðvikudag milli kl. 2 og 5. Föstumessa miðvikudagskvöld kl. 20.30. Sr. ólafur Skúlason, dómprófastur. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í Safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. 11. Guösþjónusta i Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Sunnudagur: Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 2. Sr. Þórir Stephensen. Guðfræðinemar koma i heimsókn. Ólafur Jóhannsson, stud. theol. prédikar. Vænzt er þátttöku fermingarbarna og for- eldra þeirra. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 10. Organleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Sr. Árelíus Níelsson. — FéLfyrrverandi sóknarpresta. FELLA- og HÓLAPRESTAKALL: LaugardaRur: Barnasamkoma i Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnudagur: Barnasamkoma i Fellaskóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í Safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Samkoma nk. þriðjudagskvöld i Safnaðar- heimilinu kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. örn B. Jónsson, djákni, prédikar. Guðsþjónusta og altarisganga kl. 20.30. Ný tónlist. Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur 2. marz kl. 10.30. fyrirbænaguðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum. Miðvikudagur 3. marz kl. 20.30. föstumessa. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kvöldbænir verða kl. 18.15 alla virka daga föstunnar nema miðvikudaga og laugardaga. Kirkjuskóli barnanna er i gömlu kirkjunni á laugardögum kl. 2. HÁTEIGSKIRKJA: Ðarnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jónsson. Föstuguðsþjónusta fimmtudag 4. marz kl. 20.30. Sr. Arngrímur Jónsson. , KARSNESPRESTAKALL.Fjölskylduguðsþjónusta i Kópavogskirkju kl. 11 árdegis. Fullorðnir eru hvattir til að koma með börnunum til guðsþjónustunnar. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Óskastund barnanna kl. II. Sigurður Sigurgeirsson. Söngur, sögur, myndir. Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Kristin ögmunds- dóttir. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Safnaðarnefnd. LAUGARNESKIRKJA: Sunnudagur: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Mánudagur 1. marz. Kvenfélagsfundur kl. 20. Þriðjudagur 2. marz: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Æskulýösfundur kl. 20.30. Miðvikudagur 3. marz: Kirkjukvöld á föstu kl. 20.30, dr. Gunnar Kristjánsson flytur erindi og sýnir litskyggnur. Manuela Wiesler leikur einleik á flautu. Kirkjukórar Ás- og Laugarnes- sóknar syngja nokkur lög, enda er kirkjukvöldið á vegum beggja safnaðanna. NESKIRKJA: I.augardaginn 26. íebrúar: Samverustundaldraðrakl. 15. Vilhjáimur Hjálmars- son fyrrv. ráðherra segir frá einu og öðru í léttum dúr og alþingismennirnir Helgi Seljan og Karvel Pálmason syngja. Vísnavinurinn Hjalti Jón Sveinsson tekur lagið. Sunnudagur 28. febrúar: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 14. Þriðjudagur 2. marz: Æskulýðsfundur kl. 20. Bibliulestur kl. 20.30. Miövikudagur 3. marz: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 18.15. Beðið fyrir sjúkum Fimmtudagur 4. marz: Föstuguðsþjónusta kl. 20. Sýnd verður kvikmynd frá ísrael. Kaffiveitingar. Sr. Frank M. Halldórsson. SEIJASÓKN. Barnaguösþjónusta i ölduselsskóla kl. 10.30. Barnaguösþjónusta að Seljabraut 54 kl. 10.30. Guðsþjónusta í ölduselsskóla kl. 14. Altaris- ganga. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN í HAFNARFIRDI: Bamatiminn kl. 10.30 fyrir unga sem eldri. Guðsþjónustá kl. 14. Dr. Björn Björnsson, prófessor prédikar. Við orgelið Jóhann Baldvinsson. Eftir messu er fundur ferming- arbarna og foreldra þeirra með Sævari B. Guðbergssyni fjölskylduráðgjafa. Safnaðarstjórn. NORRÆNA HÚSIÐ: Samiska listakonan og ljóð- skáldið ROSE-MARIE HUUVA er komin hingað til lands I tengslum viö sýninguna SÁMI DÁIDDA, sem er i sýningarsölum Norræna hússins. Föstudaginn 26. febr. kl. 20:30 flytur hún erindi um samiska listiðn og listiðnaðarmenn og svarar fyrir- spurnum. Sýnd veröur kvikmyndin „Konstens hánder, 33ja mín. mynd i lit. Myndin fjallar um list- iðnaö Sama en cinnig um stööu þeirra sem minni- hlutahóps. Einar Bragi skáld les þýðingar sínar m.a. á Ijóðum Rose-Marie Huuva. ÁRBÆJARSAFN Árbæ, simi 84412: Upplýsingar um opnunartíma milli kl. 9 og 10. Strætisvagn 10 gengur frá Hlemmi aö safninu. ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74, simi 13644: Opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga t'rá kl. 13.30—16. Vetrarsýning. DJÚPID sími 13340. Eggert Mag'nússon sýnir 44 oliumálverk, aðallega náttúrulifsmyndir.Sýningin er opin á sama lima og vciiingasiaðurinn llorniö, (sem er á hæðinni fyrir ofan) eöa frá kl. 11.00—23.30. LISTASAFN ÍSLANDS v/Suflurgötu: verður lokað til 6. marz vegna viðgerða. HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonar: sími 32155: Opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga frákl. 14—16. MOKKA-KAFFI Skólavörflustíg 3a. Stefán frá Möðrudal sýnir vatnslitamyndir. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ. Safnið er opið þriðjudaga, Fimmtudaga og um helgar, frá kl. 13.30. Siminn er 22220. PIZZAHÚSIÐ, Grensásvegi 7, Elín Magnúsdóttir sýnir Ijósmyndir. Sýningin stendur frá 30. janúar- 21. febrúar. LISTMUNAHÚSIÐ, Lækjargötu 2: Gunnar örn Gunnarsson opnaði málverkasýningu laugardaginn 6. febrúar. Sýningunni lýkur 28. febrúar. Virkadaga er opið frá kl. 10—18, laugar- og sunnudaga frá kl. 14—22. Lokað á mánudögum. RAUÐA HÚSIÐ AKUREYRI: Kess Visser, hollenzkur myndlistarmaður sýnir verk sln. GALLERÍ LANGBRÓK, Amtmannstíg 1: Guðrún Auðunsdóttir sýnir verk sin. Virka daga er opið frá kl. 12—18 en um helgar frá kl. 14—18. Listsýningar helgarinnar—Kjarvalsstöðum: Óvenjulegar sýningar hjá þrem Rstamönnum — myndlist, skúlptúr og myndverk Listviðburður helgarinnar gerist á Kjarvalsstöðum um helgina en þar verða þrjár sýningar opnaðar á morg- un kl. 15. Það eru listamennirnir Einar Hákonarson, Karl Júlíusson og Steinunn Þórarinsdóttir sem sýna og standa sýningar þeirra yfir fram til 13. marz. Einar Hákonarson er með sína sýn- ingu í vestursal þar sem hann sýnir 56 olíumálverk, sem unnin eru sl. þrjú ár. Flest verkin eru til sölu. f mynd- um sínum lýsir Einar mannlifinu í öll- um sínum margbreytileika — ís- lenzku mannlífi. Karls Júlíusson sýnir margvisleg myndverk, unnin úr ólikum efnum i austurforsal. öll hans verk eru unnin með sleðaformi i grunni. Steinunn Þórarinsdóttir sýnir í vesturforsal skúlptúra þar sem fram koma margar meiningar. Þungamiðj- an er manneskjan og umhverfi henn- ar og kemur mengunin þar viðsögu. Allar þessar þrjár sýningar eru mjög óvenjulegar og má segja að það sé sérstakur listviðburður að fá þannig þrjá ólíka listamenn saman á einum stað. -ELA Karl Júliusson við eitt verka sinna, sem hann nefnir simaklefa. Steinunn ÞOrarínsdútur gerír manneskjuna og umhverfi hennar að við- fangsefni sinu. DV-myndir Bjarnleifur. Einar Hákonarson við eitt verka sinn sem hann nefnir Á Valhúsahæð. Bækur vikunnar—Litlu listaverkabækumar: Mikil list í of smáu broti Óhætt mun að fullyrða að litlu listaverkabækurnar teljist til minnstu kvera er undirritaður hefur augum barið á sínu lífsskeiði. Þær hljóta að vera of litlar ef höfð er í huga sú stað- reynd að hér er um listaverkabækur að ræða. Verkin sem siik njóta sín aldrei til fulls á þeim örfáu senti- metrum sem þau þekja hvert fyrir sig. Það er ókostur bókanna — og flcira kemur til. Þau verk sem einhverra hluta vegna þekja opnur bókanna falla hlutfallslega lengra inn í kjöl þeirra en ef um stærri bækur væri að ræða. Verður þetta oft þess valdandi að hlutar myndanna og í flestum tilvik- um miðjur þeirra hverfa í kjölinn, ef svo má segja, og verða vart greindir. Er augljóst að margar undurfagrar og vel gerðar myndir gjalda þessa beinlínis— og er það ver. Hvað það var sem olli þvi að ákveðið var að Itafa bækurnar í þessu litla broti, sem raun ber vitni, skal ósagt látið. Hitt er víst að litlu lista- verkabækurnar hefðu að ósekju mátt vera liðlega þrisvar sinnum stærri en þær eru og hefði slíkt gert þær að raunverulegum djásnum, en þær voru einmitt auglýstar sem slikar á sínum tíma. Bækurnar eru fjórar og fjalla um jafnmarga listamenn, er sett hafa ríkulega svip á evrópska listmennt allt frá miðöldum til okkar tíma. Leonardo da Vinci, Rembrandt van Rijn, Francisco Goya og Vincent Willem van Gogh — allt eru þetta merkir og mikilsmetnir listamenn og raunar brautryðjendur hver á sínu sviði. Steinprent og strlðsmyndir Goya, bibliumyndir Leonardos, ljós- beiting Rembrandts og hinir skæru litir van Goghs — allt eru þetta hug- lægar afurðir meistara sem enn lifa í veröld nútímans. Listaverkabækurnar skiptast, hver um sig, í tvo meginhluta. Annars vegar er tæpt á æviatriðum, listsköp- un og stíl viðkomandi listamanns en hins vegar er skrá yfir helztu eða þekktustu málverk þeirra. Vel er komizt frá fyrri hluta bók- anna. Sá texti er undantekningarlítið tæmandi og vel upp settur. Hann er ekki of langur og ekki of stuttur held- ur miklu fremur skilmerkilegur og gagnlegur fyrir leikmenn jafnt sem lærða. Því er þó ekki að leyna að sumsstaðar gætir of mikillar tilhneig- ingar til ofútskýringa, sem verða þess iðulega valdandi að fyrir leikmenn eru þær illskiljanlegar. Þetta ríkir mjög í hugtökum og þar sem lýst er stefnum í listsköpun. Skylt er þó að benda á það að íslenzkan er ákaflega illa 1 stakk búin fyrir þýðingar á list- fræðilegum texta. Hún er fátæk að því leyti— og er það auðsjáanlegt við lestur bókanna. Samt sem áður verð- ur umfjöllunin oft á tíðum hrífandi og ekki er laust við að lesandinn geti á köflum komizt inn í þann blæ sem öðru jöfnu hefur leikið um meistar- ana og gjörðir þeirra. Er það vel, þvi til mikils er að vinna að skilja verkin og það sem þau hafa yfir að búa fyrir allar frekari listfræðilegar rannsókn- ir, ef svo má nefna. Seinni hluta bókanna, sem geymir málverkin, geldur mjög hins smáa brots bókanna, eins og áður segir, og er í raun ónauðsynlegt að bæta þar nokkru við. Hitt er vist að þessi margfrægu listaverk standa alltaf fyrir sínu sem slík og munu gera i ókominni framtíð. Samnefnara þeirra má lesa á blaðsíðu 18 í bókinni um Rembrandt, þar sem listamaður- inn van Hoogstraten segir: „í þinu eigin landi er svo margt fallegt að finna, að líf þitt endist ekki til þess að skilja það allt og tjá og túlka. Hversu fagurt sem landið kann að vera, verð- ur það þér einskis nýtt, ef þú ert ekki þess umkominn að tjá og túlka það sem er allt í kringum þig.” (Staðfærsla blms). Eins og i öllum sönnum fræðibók- um, getur að líta í lok litlu listaverka- bókanna skrá yfir helztu æviatriði viðkomandi listamanna og þær bæk- ur sem vert er að lesa til þess að grúska í þeim og verkum þeirra. Slik- ar skrár eru nauðsynlegar bókum sem þessum— og verða bækurnar að teljast mikið gagn þeim er áhuga hafa á list, þó litlar séu. Bækurnar kosta hver um sig út úr búð kr. 49.40, en allar saman kr. 197.60. -SER. NÝLISTASAFNIÐ VATNSSTtG 3b. ÞriSjudaginn 2. marz, klukkan 20—22, sýnir Eggcrt Pétursson i Nýlistasafninu, Vatnsstig 3b. Eggert sýnir eitt verk og þaö vcröur aðeins til sýnis þetta eina kvöld. Verkiö er unnið meö sal Nýlistasafnsins í huga. Eggcrt nam viö Myndlistaskóia Reykjavíkur, Mynd- lista- og handiöaskólann og síöan við Jan van Eyck Academie i Maastricht, Hollándi. Hann hefur áður haldiö tvær cinkasýningar og tekið þátt i nokkrum samsýningum. Eftir Eggert ‘liggja einnig nokkrar bækur. ASMI NDARSAII R, Freyjugötu: Engin sýning fyrr en i marz. LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegl 16: Yfirlits- sýning á verkum Vigdísar Kristjánsdóttur vefjar- listakonu, en hún iózt 11. febrúar 1981. Á sýning- unni eru 28 myndvefnaöarverk. Sýningin stendur yftr til 6. marz. EDEN Hverageröi: Engin sýning fyrr en í marz. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR Skélavöröu- holli: Safniö er lokað um sinn. ALASKA BREIDHOLTl: Peter Tybjerg danskur kennari í Handlða- og myndlistaskólanum hefur haidið sýningar viöa um heim. Hann sýnir nú kera- mik og skreytir á staðnum. Opiö iaugardag og sunnudag frá kl. 14—18. KJARVALSSTAÐIR: Gunnsteinn Gislason sýnir nýja ttekni i veggmyndagerö hérlcndis. Myndirnar eru unnar i múrristu (sgraffito.) 1 vestursal er sýning á húsgögnum, grafík og nytjalist, Rud Thygescn og Johnny Sörensen frá Danmörku sýna. í Kjarvalssal og á austurgangi er alþjóðleg skákmót. Allt stendur þelta yfir til 21. febrúar. Opið virka daga frá kl. 20—22. cn um helgar frá kl. 14—22. GALLERt KIRKJUMUNIR: Sigrún Jónsdóttir listakona heldur sýningu á kirkjuiegum munum, batik, virka daga er opið frá kl. 9—18 en um helgar frákl.9—16. GALLERÍ HVERFISGÖTU 32. Harpa Bergsdóttir sýnir 47 blýants- og pastelsmyndir. Sýningin stendur frá 20. febr. n.k. til 5. marz n.k. og er opið frá kl. 12.00 til 18.00 alla daga vikunnar og kostar ekkert inn. Þetta mun vcra fyrsta einkasýning Hörpu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.